Tíminn - 10.01.1989, Qupperneq 13
Þriðjudagur 10. janúar 1989
Tíminn 13
UTLOND
lllliii
Japan:
Hirohito horfinn
á vit fyrri keisara
Hirohito hinn aldni keisari í Japan
lést á laugardaginn eftir stranga
sjúkralegu undanfarna mánuöi. Ak-
ihito sonur hans tók við keisaraem-
bættinu á sunnudag.
Hirohito sem var orðinn 87 ára að
aldri mundi tímana tvenna, en hann
ríkti sem keisari í 64 ár. Fyrstu tvo
áratugina var hann talinn guðleg
vera og var dýrkaður takmarkalaust
af japönsku þjóðinni. í síðari hcims-
styrjöldinni börðust japönsku her-
irnir í nafni keisarans og vildu því
margir saka Hirohito um þær hörm-
ungar sem Japanar stóðu fyrir í
stríðinu.
Hirohito var þó ekki dreginn i'yrir
rétt sem stríðsglæpamaður eftir
styrjöldina heldur fékk að halda titli
sínum. Hann varð þó að stíga ofan
af fyrri stalli og láta af guðdóminum.
Eftir það hefur Hirohito lagt sig eftir
að vera talsmaður friðar enda mun
hann héðan í frá vera kallaður
„Tenno Showa" sem útleggst „keis-
ari hins upplýsta friðar“.
Þegar Akihito, sem gegnt hefur
störfum keisarans undanfarna fjóra
mánuði, tók opinberlega við em-
bætti keisarans á sunnudaginn lagði
hann sérstaka áherslu á þennan
friðarvilja föður síns og sagðist sjálf-
ur ætla að beita sér fyrir friði:
- Þegar litið er til baka sést að á
64 ára valdatíma keisarans óskaði
Kjarnorku-
veri lokað
Sovésk stjórnvöld hyggjast
loka kjarnorkuveri sem til allrar
hamingju stóðst jarðskjálftana
miklu í Armeníu á dögunum.
Suren Arutyunyan leiðtogi
kommúnistaflokksins í Armeníu
skýrði frá því á fundi flokksins í
Jerevan um helgin að kjarnorku-
verinu í Medzamor verði endan-
lega lokað 18. mars.
Medzamor er í aðeins 25 km
fjarlægð frá Jerevan höfuðborg
Armeníu. Mikil mótmæli hafa
verið vegna kjarnorkuversins allt
frá því í marmánuði 1986 er
opinbert varð að 150 alvarleg
óhöpp höfðu orðið þar frá því
kjarnorkuverið var byggt á sjö-
unda áratugnum.
Vegna kröftugra mótmæla al-
mennings er nú á stefnuskrá sov-
éskra yfirvalda að loka fimm
öðrum kjarnorkuverum sem ekki
eru talin nægilega örugg.
hann þegnum sínum einungis friðar
og hamingju.
Ekki eru allir sammála um friðar-
hug Hirohitos. Bob Tizard varnar-
málaráðherra Nýja Sjálands sagðist
myndi beita sér gegn því að senda
fulltrúa til útfarar keisarans sem
fram á að fara 24. febrúar:
- Við hefðum átt að senda ein-
hvern fyrir 40 árum til að vera
viðstaddan aftöku keisarans.
í sama streng tóku japönsku
hryðjuverkasamtökin „Rauða her-
deildin" í yfirlýsingu sinni sem send
var til fréttastofu í Beirút:
- Ábyrgð japanskra heimsvalda-
sinna á stríðsglæpum erekki afsökuð
með dauða keisarans Hirohitos,
stríðsglæpamannsins sem bar ábyrgð
á fjöldamorðum 48 milljóna Japana
og annarra Asíubúa.
„Rauða herdeildin" sagðist
rnundu berjast gegn hinum nýja
keisara af öllum mætti sínum.
En það voru ekki einungis öfga-
fullir hryðjuverkamenn sem tóku
hinum nýja keisara illa. Leiðtoga
kommúnistaflokksins og leiðtogar
kirkjunnar í Japan voru óhressir
með viðbúnaðinn þegar Akihito tók
við keisaraembættinu í samræmi við
aldnar hefðir. Telja þeir að hinn hýi
keisari sé að brjóta stjórnarskrána
sem gekk í gildi eftir heimsstyrjöld-
ina síðari, en þar er kveðið á um að
keisarinn taki ekki þétt í stjórnmál-
um:
- Ríkisstjórnin er þegar farin að
umgangast hinn nýja keisara eins og
Hryðjuverkamenn myrtu tuttugu
og sex manns er þeir köstuðu hand-
sprengjum inn í áhorfendaskara á
körfuknattleiksleik á Filippseyjum á
sunnudaginn. Flestir hinna látnu
voru aðeins á barnsaldri. Áttatíu
manns særðust.
Mennirnir köstuðu tveimur
sprengjum í þann mund er bæjar-
Hirohito hinn aldni kcisari Japans
lést á laugardaginn 87 ára að aldri.
Sonur hans Akihito tók við keisara-
embættinu á sunnudag.
algeran einvald, sagði Zenmci Mats-
oumoto þingmaður kommúnista cft-
ir embættistökuna.
Talið var að japanska yenið myndi
falla á gjaldeyrismörkuðum í kjölfar
dauða Hirohitos. Það varð ekki
heldur styrktist yenið til mikilla
muna sérfræðingum til mikillar
undrunar.
stjórinn í Ezperanza afhenti sigurliði
í körfuknattleiksmóti sigurlaun sín.
Bæjarstjórinn og nokkrir leikmenn í
sigurliðinu eru meðal hinna særðu.
Tilræðismennirnir komust undan,
en einn maður sem grunaður cr um
aðild að glæpnum er nú í yfirheyrsl-
um. Ekki er vitað um ástæðu þessa
hryðjuverks.
Filíppseyjar:
Fjöldamorð
á kappleik
Lech Walesa:
ÓTTAST KLOFNING
INNAN SAMSTÖÐU
Lech Walesa leiðtogi hinna óháðu
verkalýðssamtaka Samtöðu óttast
nú að samtökin klofni vegna óbil-
gjarnrar afstöðu harðlínumanna inn-
an samtakanna.
- Við verðum að vinna í samein-
ingu að sigri, annar munu stjórnvöld
kljúfa okkur, sagði Walesa á fjöl-
mennum fundi stuðmngsmanna
Samstöðu utan við St. Brygida
kirkjuna í Gdansk.
Með ræðu sinni var Walesa að
svara fyrir harkalegrar árásar rót-
tækasta arms Samstöðu sem sakað
hefur Walesa um linkind gagnvart
pólskum stjórnvöldum og krefst
nýrrar forystu.
Það er fyrrum nánasti samstarfs-
maður Walesa, Andrzej Gwiazda,
sem leiðir hinn róttæka arm Sam-
stöðu. í yfirlýsingu sinni saka þeir
núverandi forystu um of mikla mið-
stýringu:
- Reynt hefur verið að koma á
miðstýringu í anda kommúnismans
hjá Samstöðu með því að bregðast
við ágreiningi með því að halda uppi
rógburði og hreinsunum.
SAMVINNU
TRYGGINGAR
ARMÚLA 3 108 REYKJAVlK SlMÍ (91)681411
Tölvari
Laust er til umsóknar starf tölvara í skýrsluvéla-
deild.
Starfiö felst fyrst og fremst í því aö keyra
tölvusamstæðuna okkar sem er af gerðinni IBM
4361 og IBM ES 9370. 3 daga vikunnar er unnið
að hluta utan reglubundins dagvinnutíma.
Allar nánari upplýsingar veittar hjá starfsmanna-
haldi, Ármúla 3, sími 681411.
Samvinnutryggingar g.t.
Rangæingar
Jón Guöni Unnur
Árlegir stjórnmálafundir og viðtalstímar þingmanna Framsóknar-
flokksins verða haldnir á eftirtöldum stöðum: ,
Samkomuhúsinu, Þykkvabæ, miðvikudaginn 11. jan. kl. 21.00.
Allir eru böðnir velkomnir
Fulltrúaráð
framsóknar-
félaganna
á Akureyri
Fundur verður haldinn að Hafnarstræti 90 miðvikudaginn 11. janúar
n.k. kl. 20.30. Þingmenn kjördæmisins Guðmundur Bjarnason
heilbrigðis- og tryggingamálaráðherra og Valgerður Sverrisdóttir
mæta á fundinn. Stjórnin.
Guðmundur Páll Stefán
Siglfirðingar - Siglfirðingar
Ráðherra heilbrigðis- og tryggingamála Guðmundur Bjarnason og
alþingismennirnir Páll Pétursson og Stefán Guðmundsson halda
almennan stjórnmálafund um heilbrigðismál að Hótel Höfn, þriðjudag-
inn 10. janúar kl. 20.30.
Allir velkomnir
Skagstrendingar
Alþingismennirnir Páll Pétursson og Stefán Guðmundsson verða til
viðtals í Hótel Dagsbrún fimmtudaginn 12. jan. kl. 15-18.
Hofsós - nágrenni
Alþingismennimir Páll Pétursson og Stefán Guðmundsson verða til
viðtals í félagsheimilinu Höfðaborg miðvikudaginn 11. jan. kl. 15-18.
Austur-Húnvetningar
Alþingismennimir Páll Pétursson og Stefán Guðmundsson og Elín
Líndal varaþingmaður halda almennan stjórnmálafund að Hótel
Blönduósi fimmtudaginn 12. jan. kl. 20.30.
Skagfirðingar, Sauðárkróksbúar
Alþingismennirnir Páll Pétursson og Stefán Guðmundsson og Elín
Líndal varaþingmaðurhaldaalmennan stjórnmálafund í Framsóknar-
húsinu, Sauðárkróki, miðvikudaginn 11. jan. kl. 20.30.