Tíminn - 10.01.1989, Blaðsíða 19
Þriðjudagur 10. januar 1989
Tíminn 19
Ltinnuo
,JS )j
!Í
ÞJÖÐLEIKHUSIÐ
Stóra sviðið
Fjalia-Eyvindur
og kona hans
leikrlt eftir Jóhann Sigurjónsson
Fimmtudag 12. jan. 7. sýning
Laugardag 14. jan. 8. sýning
Fimmtudag 19. jan. 9. sýning
Þjóðleikhúsið og islenska óperan sýna
3F^knnfí;rt
^o|fmanní3
ópera eftir Otfenbach
Því miður fellur sýningin á
sunnudagskvöld niður af
óviðráðanlegum ástæðum. Þeir sem áttu
miða á sýninguna i gærkvöldi eða á
sunnudagskvöld eru vinsamlegast
beðnir um að snúa sér til miðasölu fyrir
fimmtudag 12. janúar.
Næstu sýningar:
Föstudag kl. 20.00
Laugardag kl. 21.1 kl. 20.00
Sunnudag 22.1 kl. 20.00
Föstudag 27.1 kl. 20.00
Laugardag 28.1 kl. 20.00
Takmarkaður sýningafjöldi
Stór og smár
Leikrit eftir Botho Strauss
Tvær aukasýningar:
Miðvikudag kl. 20.00 Næstsíðasta sýning
Su. kl. 20.00 Síðasta sýning
Miðasala Þjóðleikhússins er opin alla
daga nema mánudaga kl. 13-20.
Simapantanireinnig virka daga kl. 10-12.
Sími 11200.
Leikhúskjallarinn er opinn öll
sýningarkvöld frá kl. 18.00.
Leikhúsveisla Þjóðleikhússins: Máltíðog
miði á gjafverði.
Meryl Streep
er nær óþekkjanleg í
seinustu mynd sinni sem
ástralska konan Linda
Chamberlain.
Söguþráðurinn er
sannsögulegur með öllu.
Linda þessi kom fyrir rétt í
heimalandi sínu fyrir
nokkrum árum, sökuð um
að hafa fyrirkomið lítilli
dóttur sinni í útilegu fjarri
alfaraleiðum og varð mest
hataða kona í allri Ástralíu.
Don Johnson
fékk nýlega alvarlega
viðvörun frá
framleiðendum Miami-
þáttanna af því hann tók
þátt í hraðbátakeppni. Enn
er eftir að taka upp nokkra
þætti og Don var tilkynnt að
þeir yrðu teknir upp án
hans ef hann héldi áfram að
geysast um á bátum á allt að
250 km. hraða.
I.KIKI-TIAC 2i2 lál
KKYK|AVlKlJK ^
SVEITASINFÓNÍA
eftir Ragnar Arnalds
fv
Tónlist: Atli Heimir Sveinsson
Leikmynd og búningar: Sigurjón
Jóhannsson
Leikstjóri: Þórhallur Sigurðsson
Miðvikudag 11. jan. kl. 20.30
Fimmtudag 12. jan. kl. 20.30
Laugardag14. jan. kl. 20.30
Sjang-Eng
Hölundur: Göran Tunström
Þýðing: Þórarinn Eldjárn
Leikstjóri: Lárus Ýmir Óskarsson
Aðst.leikstjóri: Jón Tryggvason
Leikmyndir og búningar: Marc Deggeller
Tónlist: Hilmar Örn Hilmarsson og Ríkarður
Örn Pálsson
Dans og hreyfingar: Hlif Svavarsdóltir
Leikendur: Sigurður Sigurjónsson, Þröslur
Leó Gunnarsson, Sigrún Edda Bjömsdóttir,
Guðrún Gísladóttir, Ragnheiður Arnardóttir,
Sigurður Karlsson, Margrét Ólafsdóttir,
Steindór Hjörleifsson, Edda Heiðrún
Backman, Eggert Þorleifsson, Jón
Sigurbjörnsson, Kristján Franklin Magnús,
Jakob Þór Einarsson og Jón Tryggvason
Frumsýning föstud. 13. jan. kl. 20.00
Uppselt
2. sýn. sunnud. 15. jan. kl. 20.00 Grá kort
gilda
3. sýn miðv.d. 18. jan. kl. 20.00 Rauð kort
gilda
4. sýn. föstud. 20. jan. kl. 20.00 Blá kort gilda
5. sýn. sunnud. 22. jan. kl. 20.00 Gul kort
gilda
Miðasala i Iðnó simi 16620
Miðasalan i Iðnó er opin daglega kl. 14-19
og fram að sýningu þá daga sem leikið er.
Símapantanir virka daga frá kl. 10. Einnig
símsala með VISA og EUROCARD á sama
tíma. Nú er verið að taka á móti pöntunum
til 22. janúar 1989.
HlÁlA Þ OWÐAmí
Söngleikur eftir Ray Herman
Sýnt á Broadway
Föstudag 13. jan. kl. 20.30
Laugardag 14. jan. kl. 20.30
Miðvikudag 18. jan. kl. 20.30
Miðasala i Broadway sími 680680
Miðasalan I Broadway er opin daglega kl.
16-19 og fram að sýningu þá daga sem
leikið er. Einnig simsala með VISA og
EUROCARD á sama tíma. Nú er verið að
taka á móti pöntunum til 22. janúar 1989.
I I
Michael J. Fox
og Tracy Pollen, nýbökuð
eiginkona hans rifust svo
heiftarlega um daginn að
nú virðist sælunni lokið.
Ástæðan er talin sú að
Michael vill eiga
heimahlaupandi konu en
Tracy sjálf vill skapa sér
frama sem leikkona. Hún
hefur lítið verið heima
undanfarið vegna vinnu og
það líkar ekki
eiginmanninum.
Allt of veisluglöð
Ringo Starr, fyrrvcrandi
bítill og kona hans, Barbara
Bach tilkynntu nýlega að þau
æthtðu bæði að leggjast inn á
meðferðarheimili fyrir áfeng-
issjúklinga. Þessi ákvörðun
var tekin eftir að ljóst þótti að
Ringo gat ekki orðið fengið
sér í glas án þess að ganga í
skrokk á Barböru. Hann sá
alls kyns ofsjónir og hafði
ekki glóru um hvað hann var
að gera.
Ringo og Barbara hafa ver-
ið gift síðan 1981. Hún varð
fræg er hún sýndi sig fyrst í
James Bond-mynd. Eins og
nærri má geta er svona frægt
og ríkt fólk aufúsugestir í
santkvæmum kunningjanna
og Ringo og Barböru hefur
gengið illa að segja nei. Þau
hafa nú í nokkur ár viður-
kennt að vcra áfengissjúkl-
ingar. Svo illa var komið fyrir
Ringo að Itann mundi ekki
einu sinni textann við eitt
vinsælasta bítlalagið. Nú hef-
ur skynsemin sem sagt tekið
yfirhöndina og hjónin leitað
hjálpar.
Liðin tíð? Ringo og Bar-
bara í veislu með glas.
Jeff þraukar
Varla er hægt að segja um
hinn 38 ára gamla leikara Jeff
Bridges að hann sé ungur og
efnilegur, heldur er alveg
óhætt að telja hann gamal-
reyndan því hann kom fyrst
fram í kvikmynd 4 mánaða
gamall. Undanfarin 19árhef-
ur hann leikið í fjölda kvik-
mynda og tvisvar verið til-
nefndur til Óskarsverðlauna.
Langt er frá að kvikmynda-
leikur sé eina áhugamál Jeffs
í lífinu. Hann hefur líka
ánægju af að mála, semja lög
og njóta heimilislífsins með
Sue konu sinni og þremur
dætrum þeirra. Þau eiga
heimili í Santa Monica í Kali-
forníu en dvelja langtímum
saman á stórum búgarði sín-
um í Montana. - Við viljum
heldur vera þar en nokkurs
staðar annars staðar, segir
Jeff. - Að vísu kostar búgarð-
urinn okkur miklar fjárhæðir
á ári hverju og ég gæti eflaust
aflað þeirra peninga með því
gerast nautgripabóndi ein-
göngu. Hins vegar finnst mér
ekki tímabært að hætta að
leika að sinni.
Á meðfylgjandi mynd er
Jeff með bróður sínum,
Beau, sem einnig er leikari.
Þeim er iðulega ruglað
saman, þó ekki sé hægt að
segja að þeir séu nauðalíkir.
Löng nótt
hjá Tom
- Það tók mig 15 ár að
verða frægur á einni nóttu,
segir Tom Selleck. - Þó ég
byggi í Hollywood tók eng-
inn eftir mér og þess vegna
drýgði ég tekjurnar með því
að láta mynda mig í auglýs-
ingum. Með þessu móti
hjálpaði Tom til við að selja
allt frá sígarettum upp í
æfingaskó. - Þá fékk ég
hlutverk Magnums og pen-
ingar og aðdáendur
streymdu að mér, heldur
hann áfram. - Ég veit ekki
hversu lengi mér tekst að
halda mér á tindinum, en
það veit sá sem allt veit að
ég ætla að njóta hverrar
mínútu hérna uppi.
Þó er alls ekki víst að
hann hafi notið þeirra mín-
útna sem liðu nýlega eftir
að hann yfirgaf strand-
klúbbinn sem hann er félagi
í Honolulu. Hann hugðist
fara fótgangandi heim gegn
um almenningsgarðinn. Þá
uppgötvaði hann að skyrtu-
lafið hékk upp úr buxunum.
Tom taldi ekkert athugavert
við að kippa þessu í lag á
staðnum, hann var einn og
dimmt var orðið, svo hann
losaði um beltið. Þá brá svo
við að fólk stökk framundan
runnum og trjám allt í kring
og fór að ljósmynda í erg og
gríð. Afleiðingin varð sú að
Tom flýði aftur í klúbbhúsið
til að koma lagi á klæðnað-
inn.
Til gamans birtum við
hér mynd af Tom Selleck
eins og hann leit út í þá
góðu, gömlu daga. Varla
furða þó enginn hafi tekið
eftir honum í Hollywood.
Síðan þetta var hefur greini-
lega mikið hár sprottið og
ekki er laust við að eyrun
hafði breyst líka.
Ekki eintóm sæla
Billy Joel gaf sér tíma til að
skreppa á skemmtun hjá
Moskvu-fjölleikahúsinu þeg-
ar það var í heimsókn í New
York nýlega. Með í för voru
eiginkonan, Christie Brink-
ley, og dóttirin Alexandra
Ray og var þessi mynd tekin
af fjölskyldunni við það tæki-
færi. Billy hefur líklega ekki
veitt af upplyftingunni því
hann stendur í málaferlum
við fyrri konu sína, Elizabeth
Weber, sem var einnig um-
boðsmaður hans og fram-
kvæmdastjóri. Hún vill að
Billy greiði sér litlar 25 millj-
ónir króna, en hann segir
hins vegar að hún skuldi hon-
um 45 milljónir. Ástæðan fyr-
ir þessum ágreiningi er flókið
skattakerfi.