Tíminn - 17.01.1989, Qupperneq 13
Þriðjudagur 17. janúar 1989
Tíminn 13
Bandaríkjamenn byggja upp vopnabúr sitt:
Framleiða milljón
eiturefnasprengjur
Bandaríkjamenn, sem nú eru í
fararbroddi hvað varðar tækni við
framleiðslu efnavopna, hyggjast
framleiða eina milljón einingar af
tveggja þátta eiturvopnum á næsta
áratug. Frá þessu var skýrt í Was-
hington Post á sunnudag.
í frétt blaðsins segir að bandaríski
herinn hyggist fyrst framleiða
tveggja þátta eitursprengjur fyrir
stórskotalið, þá eitursprengjur til
loftárása og síðan eldflaugar hlaðnar
tveggja þátta eiturefnum. Alls mun
þessi áætlun Bandaríkjamanna eiga
að kosta þrjá milljarða Bandaríkja-
dala.
Tveggja þátta efnavopn byggjast
á týfeimur tegundum efna sem eru
óskaðleg hvort í sínu lagi, en þegar
þeim er blandað saman myndast
bráðdrepandi gas. Því er allur flutn-
ingur efnanna í átt að skotmörkum
skaðlaus og handhægur en vopnin
áhrifarík og hræðileg þegar til kast-
anna kemur.
Sérstök efnaverksmiðja banda-
ríska hersins í Arkansas hefur fram-
leitt grunnefnin í hin hræðlegú efna-
vopn Bandaríkjamanna frá því í
desember 1987 þegar bandaríska
þingið samþykkti að hefja á ný
framleiðslu efnavopna eftir átján
ára hlé. Ástæðan var sögð fram-
leiðsla Sovétmanna á svipuðum
vopnum.
Frá því Bandaríkjamenn hófu
Efnavopn eru hræðileg. Það sást Habaja í marsmánuði sl þegar Irakar beittu
efnavopnum gegn Kúrdum. Hér má sjá fórnarlömbin. Bandaríkjamenn
hyggjast framleiða 1.000.000 eiturefnasprengjur.
framleiðslu á efnavopnunum hafa
Sovétmenn hætt framleiðslu efna-
vopna og hafa kynnt áætlun um
eyðingu þeirra.
Bandaríkjamenn voru aðilar að
samkomulagi á alþjóðlegri ráðstefnu
sem haldin var í París í síðustu viku
og fjallaði um efnavopn. Þeir skrif-
uðu einnig undir lokayfirlýsingu ráð-
stefnunnar sem miðar að banni við
framleiðslu efnavopna. Hins vegar
ætla Bandaríkjamenn að halda áfram
framleiðslu efnavopna þar til leið er
fundin til að framfylgja því banni.
Bandaríkjamenn vinna
olíu á ný með Gaddafi
Allar líkur eru á því að Ronald
Reagan afturkalli bann við því að
bandarísk olíufyrirtæki vinni olíu í
Líbýu áður en hann stígur úr valda-
stóli á föstudaginn. Bann þetta hefur
verið í gildi frá því árið 1986. Það
var fréttatímaritið Newsweek sem
skýrði frá þessu á sunnudaginn.
Fimm bandarísk olíufyrirtæki eiga
49% hlutdeild á móti líbýska ríkinu
í lýbíska rfkisolíufyrirtækinu sem
sér um vinnslu olíu í Líbýu. Ef
bandarísku olíufyrirtækin hefja ekki
vinnslu í Líbýu fyrir mitt ár, þá
munu þau samkvæmt samningum
missa hlutdeild sína í ríkisolíufyrir-
tækinu.
Samkvæmt heimildum Newsweek
hefur verið ákveðið að aflétta
vinnslubanninu, en ekki er vitað
hvenær það verður.
Víetnamar finna ný
olíusvæði
Víetnamar hafa fundið nýjar
olíulindir innan efnahagslögsögu
sinnar í Kínahafi og binda þeir
miklar vonir við að vinnsla olíunnar
eigi eftir að bæta efnahag landsins
sem er í rúst.
Það var Dao Duy Chu, fram-
kvæmdastjóri Petrovietnam olíufé-
lags víetnamska ríkisins, sem skýrði
frá þessu fyrir helgina. Hann sagði
að Petrovietnam myndi í næstu viku
ganga frá samningum við breska
stórfyrirtækið British Petroleum
vegna olíuvinnslu og olíuleit á þessu
svæði næstu 25 árin. Er það fjórði
olíuvinnslusamningurinn við alþjóð-
lega olíuauðhringa á átta mánuðum.
- Olíuiðnaðurinn í Víetnam er nú
kominn á nýtt stig. Við höfum góð
sambönd við mörg olíufyrirtæki.
Stefna okkar er að hvetja til fjárfest-
ingar í olíuiðnaði í Víetnam. Við
teljum að samningar okkar séu
sveigjanlegir, sagði Dao Duy á
blaðamannafundi vegna þessa.
Hann sagði að hið nýuppgötvaða
olíusvæði sem hlotið hefur nafnið
„Stóri björn“ væri að líkindum mun
olíuríkara en olíusvæðið „Hvíti
tígur“ sem er í hafinu út af Ho Chi
Minh borg. Þar fer nú fram þó
nokkur olíuvinnsla.
Víetnamar hófu vinnslu á olíu í
lítilli olíuhreinsunarstöð í Ho Chi
Minh borg á síðasta ári, en þeir gera
ráð fyrir að byggja mun stærri olíu-
vinnslustöð með hjálp erlendra stór-
fyrirtækja. Er gert ráð fyrir að sú
stöð vinni úr 60 þúsund tunnum á
dag og verði komin í gagnið um
miðjan næsta áratug.
Fjölmenn mótmæla
ganga í Níkaragva
Á sunnudaginn tóku um það bil
sexþúsund manns þátt í fyrstu
móttmælagöngu stjórnarandstæð-
inga í Níkaragva frá því þrjátíu og
átta stjórnarandstæðingar voru
handteknir á útifundi í Managva í
júh'mánuði. Mótmælagangan fór í
alla staði friðsamlega fram, en
gengið var um götur Managva og
voru slagorð gegn Sandínista-
stjórninni á hvers manns vörum.
Ríkisstjórnin hafði gefið leyfi fyrir
mótmælafundi þessum.
Mótmælagangan var sú fjöl-
mennasta í Níkaragva frá því f
byltingu Sandínista árið 1979.
Kröfðust göngumenn aukinna
mannréttinda og frelsis, auk þess
sem sem krafist var raunhæfra
aðgerða í efnahagsmálum, en verð-
bólga í landinu hefur löngu sprengt
alla verðbólguskala.
Lögreglan lét fara sem allra
minnst fyrir sér og bárust ekki
neinar fregnir af handtökum í
tengslum við gönguna.
m
Steingrímur
Fundir um atvinnu- og efnahagsmál
Steingrímur Hermannsson, forsætisráðherra, heldur fundi um at-
vinnu- og efnahagsmál á eftirtöldum stöðum:
Norðurland-E, þriðjudag 24. jan. Hótel KEA kl. 21.00.
Vesturland, flmmtudag 26. jan. Dalabúð, Búðardal kl. 20.30.
Austurland, laugardag 28. jan. Egilsstaðir kl. 15.00.
Vestfirðir, sunnudag 29. jan. Félagsheimilinu, Patreksfirði kl.
16.00.
Norðurland-V, laugardag 4. feb. Varmahlíð kl. 14.00.
Allir velkomnir
Félagsvist
Spilum félagsvist í samkomuhúsinu. Borgarnesi föstudagainn 20.
janúar kl. 20.30.
Mætum vel og stundvíslega.
Framsóknarfélag Borgarness.
Suðurland
Skrifstofa kjördæmissambandsins Eyrarvegi 15, Selfossi er opin á
fimmtudögum kl. 17-19 sími 98-22547.
KSFS.
fl^BROSUM/ m É UMFEROAR . ^9 /fy alltgengurbetur * ^
m Verkamannabú-
^ staðir í Kópavogi
Stjórn verkamannabústaöa í Kópavogi auglýsir
eftir umsóknum um íbúðir sem byggöar verða í 2
fjöibýlishúsum við Hlíðarhjalla í Kópavogi. íbúðirn-
ar verða afhentar á árinu 1990.
í fjölbýlishúsunum eru 52 íbúðir (4 tveggja, 34
þriggja og 14 fjögurra herbergja).
Umsóknir gilda einnig fyrir endursöluíbúðir sem
koma til úthlutunar á þessu ári.
Réttur til íbúðakaupa er bundinn við þá sem
uppfylla eftirfarandi skilyrði:
a) Eiga lögheimili í Kópavogi.
b) Eiga ekki íbúð fyrir eða samsvarandi eign í öðru
formi.
c) Fara eigi yfir það tekjumark sem hér fer á eftir:
Meðaltekjur (brúttótekjur miðað við árin 1985,
1986 og 1987) mega ekki fara fram úr kr. 756.567,-
að viðbættum kr. 68.933,- fyrir hvert barn innan 16
ára aldurs á framfæri.
Heimilt er að víkja frá þessum reglum í sérstökum
tilvikum.
Þeir sem búa við erfiðasta húsnæðisaðstöðu hafa
forgang að íbúðum í verkamannabústöðum.
Umsóknareyðublöð liggja frammi á bæjarskrifstofu
Kópavogs og skrifstofu VBK í Hamraborg 12, 3ju
hæð.
Umsóknum skal skilað fyrir 30. janúar n.k. í lokuðu
umslagi merktu stjórn verkamannabústaða í
Kópavogi.
Stjórn VBK.
+
Þökkum innilega auösýnda samúð og hlýhug viö andlát og útför
Sveindísar Sveinsdóttur
Kleppsvegi 134, Reykjavík
F.h'. aðstandenda
Jón Jónsson
Brjánsstöðum, Skeiðum.