Tíminn - 21.01.1989, Blaðsíða 1

Tíminn - 21.01.1989, Blaðsíða 1
Frá strandstað í gærkvöldi. Timamynd: Árnl BJarna Strand í Grindavík Danska flutningaskipið, Marianne Dan- ielsen, sem er vel yfir 2000 lestir að stærð, strandaði við Hópsnes í innsiglingunni við Grindavík laust eftir klukkan 19:00 í gær- kvöldi. Á skipinu er 12 manna áhöfn og var hún ekki í hættu. Björgunarsveitin Þorbjörn í Grindavík var kölluð á vettvang klukkan 19:40. Töluverður leki kom að skipinu og uppúr kl. 21:00 flutti þyrla Landhelgisgæsl- unnar dælur um borð í skipið. Þær upplýsingar fengust hjá björgunar- sveitinni í gærkvöld að til stæði að flytja alla áhafnarmeðlimina í land með þyrlu Gæsl- unnar, en skilja þó vélstjóra við annan mann eftir í skipinu. Skipið var á leið frá Grindavík þegar óhappið varð og er það tómt. Á leiðinni til Grindavíkur í gærmorgun tók skipið niðri og kom í það dálítill leki og því var hætt við að lesta í það mjöl og þess í stað var ferðinni heitið í slipp á Akureyri. í gærkvöldi stóð til að reyna að ná skipinu út á flóði í bítið í dag en tvö skip voru á leið á strandstað, loðnuskipið Júpíter cg togar- inn Engey. - BG Verslað fyrir 1,2 milljarða fyrir jólin út á kreditkort umfram það sem gerist á venjulegu úttektartímabili kortafyrirtækjanna: Uppgjörið fyrir plastjól nálgast Nú líður óðum að því að verslunarglaðir handhafar kreditkorta þurfi að standa skil á þeim hluta jólainnkaupanna sem gerður var út á greiðslukort. Samkvæmt upplýsingum sem við fengum hjá greið- slukortafyrirtækjunum í gær lætur nærri að þessi reikningur sem korthafar fá um mánaðamótin næstu verði u.þ.b. 1,2 mill- jörðum hærri en gerist að jafnaði við lok annarra greiðslukortatímabila. Fyrir jólin var talað um að „kreppan hefði týnst í jólaösinni“. Ekki er ótrúlegt að einhverjir eigi nú eftir að finna sína kreppu aftur fljótlega. • Blaðsíða 2

x

Tíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.