Tíminn - 21.01.1989, Síða 11
Laugardagur 21. janúar 1989
Tíminn 23
FRÉTTAYFIRLIT
HONOLULU - Ferdinand
Marcos, fyrrum forseti Filipps-
eyja, er nú aö dauöa kominn
og getur látist á hverri stundu.
OLONGAPO - Tugir þús-
unda hafnarverkamanna, eig-
enda smáverslana og bar-
stúlkna héldu í göngu til stuön-
ings herstöðvum Bandarikja-
manna á eyjunum og stöðvaöi
friðargöngu er mótmælti veru
Bandaríkjamanna á eyjunum.
BEIRÚT - Nú hefur Bretinn
Terry White sem starfaði fyrir
kirkjuna í hinu stríðshrjáða
landi Líbanon verið í haldi
mannræningja í tvö ár. Ekkert
bendir til þess að hann muni
losna í bráð þrátt fyrir bænir
kirkjumanna og fjölda annarra.
PRAG - Tékknesk yfirvöld
saka aðildarríki NATO um að
hafa komið af stað mótmæla-
öldu þeirri er riðið hefur yfir
Prag síðustu viku. Öryggis-
sveitir lögreglu hafa verið mjög
harkalegir í að bæla niður
mótmælafundi.
TAIPEI - Þing Taiwan hefur
samþykkt frumvarp sem leyfir
starf stjórnarandstöðuflokka.
Stjórnarandstaða hefur ekki
verið leyfð eftir að stjórn kín-
verska Þjóðernissinnaflokks-
ins flutti til Taiwan árið 1949.
BANDAR SERI BEGA-
WAN - Hin sjö ríki í Suðaust-
urasiu sem ekki aðhyllast kom-
múnisma og starfa saman í
samtökum hyggjast bjóða Kín-
verjum og Sovétmönnum til
viðræðna um málefni Kam-
pútseu, en þar hefur ríkt borg-,
arastyrjöld síðastliðin tíu ár.
Það var utanríkisráðherra Mal-
asíu sem skýrði frá þessu. í Ho
Chi Minh borg skýrðu Víet-
namar frá því að þeir muni
þiggja aðstoð Indverja í samn-
ingaviðræðum um framtíð
Kampútseu.
COLOMBO -Sex hermenn
og fjórir stjórnmálamenn voru
drepnir í tveimur aðskildum
árásum á Sri Lanka.
HÖFÐABORG - Chris
Heunes, sem nú gegnir emb-
ætti forseta Suour-Afríku i
veikindum P.W. Botha, hitti
ráðherra í Namibíu að máli um
þróun mála þar.
illllllllllllllllllllllll ÚTLQno .limHIHF: ............................................................OIHIIIli; ................................ ■'iilllllllllli, ................................... .....Illlll...... ........................... ...................I.......... ..................... ...................... .. "ill
Forsetaskipti í Bandaríkjunum:
GEORGE BUSH SVER
EMBÆTTISEIÐ SINN
George Bush sór í gær
embættiseið sem 41. forseti
Bandaríkjanna og tók því
opinberlega við þessu valda-
mikla embætti af Ronald
Reagan sem nú er á ný orðinn
almennur borgari eftir átta
ára dvöl í Hvíta húsinu.
Það var forseti hæstaréttar, Wil-
liam Rehnquist sem tók hinn þrjátíu
og fimm orða forsetaeið af George
Bush í tröppum þinghússins í Wash-
ington. Bush hét því meðal annars
að „þjóna, vernda og verja stjórn-
arskrána" í forsetatíð sinni.
- Bandaríkin eru ekki að fullu
sjálfum sér samkvæm nema þau
stefni á háleit siðferðisleg markmið.
Við sem þjóð höfum slík markmið.
Það markmið er að milda ásjónu
þjóðarinnar og ásjónu heimsins,
sagði Bush meðal annars í innsetn-
ingarræðu sinni.
En það var ekki aðeins Bush sem
sór eið sinn. J. Danforth Quayle sór
einnig eið sinn sem 44. varaforseti
Bandaríkjanna. Það var Sandra Day
hæstaréttardómari sem setti Quayle
inn í embætti, en hann varð fyrir
miklu aðkasti í kosningabaráttunni
þar sem menn fullyrtu að hann væri
óhæfur í varaforsetaembættið.
Quayle er fyrsti varaforsetinn sem
fæddur er eftir síðari heimsstyrjöld-
ina, en hann er aðeins fjörutíu og
eins árs. Þó hefur hann verið öld-
ungadeildarþingmaður í átta ár og
fulltrúadeildarþingmaður í fjögur
ár, svo hann er ekki alveg reynslu-
laus.
Nú er Ronald Reagan því orðinn
almennur borgari á ný eftir átta ára
dvöl í Hvíta húsinu. Hann mun þó
ekki mikið slappa af á næstunni, því
á næstu þremur mánuðum hefur
hann bókað sig í hundrað „velkom-
inn aftur“ samkvæmi í Kaliforníu
þar sem hann var áður ríkisstjóri.
George Bush hefur nú tekið við af Ronald Reagan sem forseti Bandarikjanna,
Mannréttindaráðstefna í Moskvu árið 1990:
Thatcher setur
skilyrði fyrir
þátttöku Breta
Margaret Thatcher forsætisráð-
herra Bretlands, sem í vikunni
uppgötvaði að London er sóðaleg-
asta höfuðborg Evrópu og hvatti
borgarbúa til að ástunda snyrti-
mennsku, setti Sovétmönnum skil-
yrði fyrir því að Bretar tækju þátt
í mannréttindaráðstefnu í Moskvu
árið 1990.
Skilyrðin sem Thatcher setur
eru þau að Sovétmenn verði búnir
að leysa úr haldi alla þá sem nú
dúsa í sovéskum dýflissum vegna
trúarbragða sinna eður stjórnmála-
skoðana.
Thatcher skýrði frá þessu í gær
og sagði að ríkisstjórnin hefði sam-
þykkt að taka þátt í alþjóðaráð-
stefnu Sovétmanna um mannrétt-
indamál ef þeir gengju að þessum
skilyrðum. Benti hún á að Sovét-
menn hafi nú í vikunni undirritað
sáttmála þessa efnis, en að nokkuð
vanti á að Sovétmenn framfylgi
honum.
Reyndar hnýtti breska ríkis-
stjórnin því við að Sovétmenn
yrðu að hafa tryggt málfrelsi, trú-
frelsi og frelsi til ferðalaga eins og
kveðið er á unt í mannréttindasátt-
málanum sem undirritaður var í
Vín í vikunni.
Thatcher sagðist myndi ræða
þessi mál við Mikhaíl Gorbatsjov
þegar hann heimsækir Bretland
síðar á þessu ári.
Því má bæta við að samkvæmt
nýrri skoðanakönnun er Rússa-
grýlan svo gott til dauð á Bretlandi.
Einungis 4% Breta óttast Sovétrík-
in á meðan Gorbatsjov er þar við
völd, en hætt er við að hlutfall
þetta hafi verið allmiklu hærra hér
í eina tíð.
Palestínumenn haröir á hernumdu svæðunum:
Engin miskunn
fyrir hjálpar-
kokka ísraela
Palestínumenn eru ekki á því að
miskunna sig yfir þá kynbræður sína
sem þeir telja að vinni með ísraels-
mönnum á hernumdu svæðunum. í
gær var Mohammed Amar Jerandal
skotinn til bana þegar hann opnaði
dyrnar á húsi sínu eftir að knúið
hafði verið dyra hjá honum. Mo-
hamad bjó í bænum Atil og var
grunaður um samstarf við gyðinga.
í fyrradag neyddist annar Palest-
ínumaður til að skjóta á kynbræður
sína sem gerðu aðsúg að honum
vegna samstarfs hans við ísraelsa
hermenn. Frændi mannsins hafði
verið settur bæjarstjóri af ísraelskum
yfirvöldum. Lauk þeim hildarleik
þannig að ísraelskir hermenn mættu
á staðinn og björguðu vesalings
manninum. Þá höfðu níu Palestínu-
menn verið særðir skotsárum.
Á annan tug Palestínumanna sem
grunaðir voru um samstarf við ísra-
ela hafa verið myrtir af kynbræðrum
sínum þá þrettán mánuði sem upp-
reisnin á hernumdu svæðunum hefur
staðið yfir.
Ein milljón Palestínumanna var í
verkfalli í gær þriðja daginn í röð til
að mótmæla auknu mannfalli í
átökunum undanfarnar vikur, eftir
að Yitzhak Rabin varnarmálaráð-
herra fyrirskipaði hertari aðgerðir
gegn grjótkösturum Palestínu-
manna.