Tíminn - 21.01.1989, Page 12
24 Tíminn
L
LANDSVIRKJUN
Samkeppni um gerð útilistaverks við
stjórnstöð Landsvirkjunar
Landsvirkjun býður til samkeppni um gerð útilista-
verks við stjórnstöð Landsvirkjunar, Bústaðavegi
7, Reykjavík.
Allir íslenskir listamenn hafa heimild til þátttöku.
Heildarverðlaunaupphæð er allt frá kr. 500.000,00.
Þar af verða 1. verðlaun ekki lægri en 300.000,00.
í dómnefnd eru:
Dr. Jóhannes Nordal, stjórnarformaður Landsvirkj-
unar
Guðmundur Kr. Kristinsson, arkitekt
Halldór Jónatansson, forstjóri Landsvirkjunar
Halldór B. Runólfsson, listfræðingur
Þór Vigfússon, myndhöggvari.
Keppnisgögn verða afhent af trúnaðarmönnum
dómnefndar, Jóhönnu S. Einarsdóttur, fram-
kvæmdastjóra Sambands íslenskra myndlistar-
manna, Ásmundarsal, Freyjugötu 41, Reykjavík,
alla virka daga kl. 12.00-15.00 og Ólafi Jenssyni,
framkvæmdastjóra Byggingaþjónustunnar, Hall-
veigarstíg 1, Reykjavík, frá og með mánudeginum
23. janúar 1989. Skilatrygging er kr. 1.000,00.
Skila skal tillögum til annars hvors trúnaðarmanna
fyrir kl. 16.00 þriðjudaginn 21. mars 1989.
Reykjavík, 20. janúar 1989
Landsvirkjun.
FÉLAGSMÁLASTOFNUN REYKJAVÍKURBORGAR
Unglingadeild
Við deildina er laus til umsóknar 50% staða
félagsráðgjafa.
Reynsla af starfi með unglingum æskileg. Félags-
ráðgjafamenntun eða sambærileg menntun á
sviði uppeldis- og/eða félagsmála áskilin.
Nánari upplýsingar veitir deildarstjóri í síma
622760 og yfirmaður fjölskyldudeildar í síma
25500.
Umsóknum skal skilatil starfsmannahalds Reykja-
víkurborgar, Pósthússtræti 9, á eyðublöðum sem
þar fást, fyrir 1. febrúar.
FÉLAGSMÁLASTOFNUN REYKJAVÍKURBORGAR
Heimilishjálp
Starfsfólk vantar til starfa við heimilishjálp.
Vinnutími eftir samkomulagi, allt niður í 4 tíma á
viku.
Upplýsingar í síma 18800.
fH HITAVEITA REYKJAVÍKUR
\ m f Hitaveita Reykjavíkur símanúmer. auglýsir breytt
Aðalnúmer: 600100. Beinar línur:
Innheimta: 600101
Innlagnadeild: 600102
Bilanaþjónusta: 600265
Nætur- og helgidagavakt: 27311
\ f ........,i
Laugardagur 21. janúar 1989
IIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIII AÐUTAN lllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllll
Hans-Dietrich Genscher utanríkisráðherra Vestur-Þýskalands stendur í ströngu við að sannfæra George
Shultz utanríkisráðherra Bandaríkjanna um heiðarleika ríkisstjórnar sinnar.
Bandaríkjamenn deila á Þjóðverja:
Alið á vaxandi
Þjóðverjaandúð
í Bandaríkjunum
Nýlega lauk í Parls alþjóðlegri ráðstefnu um útrýmingu
efnavopna. Öll þau 149 ríki sem þátt tóku í ráðstefnunni
undirrituðu I lok hennar yfirlýsingu um að efnavopnum
skyldi útrýmt og að ríkin muni undirrita samkomulag um
bann við framleiðslu og notkun efnavopna.
Undanfarnar vikur hafa Bandaríkjamenn verið háværir
um að Gaddafi Líbýuforseti byggi nú af kappi verksmiðju
til framleiðslu á eiturgasi og njóti við þær framkvæmdir
góðs stuðnings vestur-þýskra fyrirtækja. Vestur-þýsk
stjórnvöld vilja ekki sitja undir þessum ásökunum Banda-
ríkjamanna og þykir enn einu sinni komið í ljós að í
Bandaríkjunum sé nú alið á vaxandi andúð á Þjóðverjum.
Á meðan umræðurnar um þessa
meintu aðild Þjóðverja að verk-
smiðjunni voru á suðupunkti birtist
eftirfarandi grein í Der Spiegel og
kemur þar berlega í Ijós að mörg-
um Þjóðverjum þykir sem mælir-
inn sé að verða fullur hvað varðar
afstöðu Bandaríkjamanna í þeirra
garð.
Vestur-þýska stjómin
heykist á mótmælunum
f morgunsárið voru ráðgjafar
kanslarans enn hughraustir. í þetta
sinn ætluðu þeir að sýna amerísku
vinunum tennurnar. Stöðugum
ásökunum frá Washington um að
yfirvöld í Bonn hylmi yfir með
vestur-þýskum fyrirtækjum sem
aðstoði sérvitra eyðimerkurherr-
ann Muammar el-Gaddafi við að
byggja efnavopnaverksmiðju verði
að svara fullum hálsi.
Einn aðstoðarmanna Helmuts
Kohl sagði að kanslaranum þætti
keyra um þverbak þegar banda-
mennirnir í Washington settu hann
svona í gapastokkinn, eins og t.d.
mætti sjá í „New York Times“ þar
sem segði að Þjóðverjar væru ein-
mitt að byggja „Auschwitz í eyði-
merkursandinum" og með þeirri
léttúðugu aðdróttun að Líbýa ætl-
aði að binda enda á Ísraelsríki með
aðstoð Þjóðverja.
En þegar að því kom að formæl-
andi Kohls, Friedhelm Ost gæfi
opinberlega svar við ásökununum
var komið annað hljóð í s trokkinn.
Þá hét það að „form og innihald“
umræðnanna væri „ekki vænlegt til
árangurs“. „Það er ekki vináttu
Þjóðverja og Ameríkana til góðs
að ræðast við í fjölmiðlum um
óstaðfestar grunsemdir sem menn
eru sannfærðir um að eigi við rök
að styðjast." Aðstoðarmaður
Hans-Dietrichs Genscher utanrík-
isráðherra fann ekki annað í mælgi
Osts en að um væri að ræða
„sterkan orðróm“. Kohl hefði falið
Genscher að fara fram á nánari
skýringar hjá bandaríska starfs-
bróður sínum á eiturefnaráðstefn-
unni í París.
Sannanir Bandaríkjamanna
ekki fullnægjandi
Kanslarinn hafði þegar fyrir ráð-
stefnuna samband við bandarísk
'stjórnvöld og mótmælti þessari
herferð bandarískra fjölmiðla.
Bandaríkjavinirnir í Bonn eru
ráðalausir og óánægðir við hrana-
legu bandamennina sína í Was-
hington. Þeir hafa ekki getað fund-
ið heila brú í því hvers vegna
Bandaríkjamenn halda því stöðugt
fram að þeir hafi látið Kohl í té
sannanir fyrir hlutdeild fyrirtækis-
ins Imhausen-Chemie og annarra
þýskra fyrirtækja í byggingu eitur-
gasverksmiðju í Líbýu um miðjan
nóvember sl.
George Shultz, utanríkisráð-
herra Bandaríkjanna lét mótbárur
Bonn-stjórnarinnar sem vind um
eyrun þjóta og sagði að ekki aðeins
hefði kanslaranum verið afhent
sönnunargögnin, heldur hefði vest-
ur-þýska stjórnin „verið sannfærð"
um réttmæti þeirra.
Á skrifstofu kanslarans hafa
menn látið hugfallast en halda því
fram að Bandaríkjamenn hefðu
ekki lagt fram sannanir „sem yrðu
teknar gildar fyrir rétti“, heldur
einungisniðurstöðurleyniþjónustu
og engar „sannanir sem hönd sé á
festandi". Og jafnvel bandaríska
sendiráðið í Bonn hafi engar sann-
anir fyrir ásökunum stjórnar
sinnar. Hins vegar hafi Kohl og
Genscher orðið mjög um þessar
erfiðu grunsemdir og hefðu hafið
eftirgrennslanir eftir að kanslarinn
kom aftur frá Bandaríkjunum.
Athuganir tollyfirvalda í Frei-
burg hjá Imhausen-Chemie fyrir-
tækinu og tilkynningin um að „ef
með þyrfti yrðu gerðar lagabreyt-
ingar“ á utanríkisviðskiptalögum,
blíðkuðu bandarísk yfirvöld ekki
hið minnsta. Þar kemur fram að
ekki finnist „nein átylla" til að
álykta að fyrirtækið eigi einhvern
þátt í að reisa efnaverksmiðju í ríki
Gaddafis, a.m.k. sé ekkert slíkt að
finna í bókhaldi fyrirtækisins.
Bandaríkjamenn
„hræra í þýskum skít“
En ímynd „peningapoka-Iýð-
veldis, þar sem vesælustu viðskipti
séu sett ofar siðferði og með-
ábyrgð," svo notuð séu orð Her-
manns Scheer þingmanns sósíal-
demókrata, hafa bandarískir fjöl-
miðlar fyrir löngu fest á Þýskaland.
Samt segja málsmetandi Þjóðverj-
ar að þeir hafi aldrei áður orðið