Tíminn - 21.01.1989, Qupperneq 19
nniitíH Ot'
OOO r u'unfii. TS iunfibifí|DUfi-i
Laugardagur 21. janúar 1989
LCinnua
ÞJÓÐLEIKHÚSIÐ
ÞjóSleikhúsið og íslenska óperan sýna
JRgxnnfiíprt
ihojfmann^
ópera ettir Offenbach
í kvöld kl. 20.00 uppselt.
Sunnudag kl. 20.00 uppselt.
Miðvikudag kl. 20.00
Föstudag kl. 20.00
Laugardag 28.1. kl. 20.00
Þriðjudag 31.1. kl. 20.00
Takmarkaður sýningafjöldi
Fjalla-Eyvindur
og kona hans
leikrit eftir Jóhann Sigurjónsson
Fimmtudag kl. 20.00
Föstudag 3. feb. kl. 20.00
Óvitar
barnaleikrit eftir Guðrúnu Helgadóttur
Leikstjóri: Brynja Benediktsdóttir
Leikmynd og búningar: Gylfi Gíslason
Lýsing: Ásmundur Karlsson
Sýningarstjórar: Kristin Hauksdóttir og
Jóhanna Norð|örð
Leikarar: Álfrún Helga Ornólfsdóttir,
Bergur Sigurðsson, Erla Gunnarsdóttir,
Flosi Ólafsson, Freyr Ólafsson, Grímur
Hákonarson, Guðlaug Maria
Bjarnadóttir, Guðrún Jóhanna
Ólafsdóttir, Halldór Björnsson, Haukur
Karlsson, Helga Jónsdóttir, Helga
Sigmundsdóttir, Helgi Páll Þórisson,
Hildur Eiríksdóttir, Hlin Diego, Hrafnkell
Pálmason, María Ellingsen, Linda
Camilla Martinsdóttir, Melkorka
Óskarsdóttir, Oddný Arnarsdóttir,
Oddný Ingimarsdóttir, Orri Helgason,
Randver Þorláksson, Sigriður
Hauksdóttir, Sigrún Waage, Torfi F.
Ólafsson, Vaka Antonsdóttir, Þór
Tulinius, Örn Árnason
Laugardag 28. jan. kl. 14 Frumsýning
Sunnudag 29. jan. kl. 14.00
Miðasala Þjóðleikhússins er opin alla
daga nema mánudaga kl. 13-20.
Simapantanireinnig virka daga kl. 10-12.
Sími11200.
Leikhúskjallarinn er opinn öll
sýningarkvöld frá kl. 18.00.
Leikhúsveisla Þjóðleikhússins: Máltíðog
miði á gjafverði.
RKYKjAvlkim^
SVEITASINFÓNÍA
eftir Ragnar Arnalds
Tónlist:.Atli Heimir Sveinsson
Leikmynd og buningar: Sigurjón
Jóhannsson
Leikstjóri: Þórhallur Sigurðsson
I kvöld kl. 20.30 Uppselt
Miðvikudag 25. jan. kl. 20.30
Föstudag 27. jan. kl. 20.30 Örfá sæti laus
Sunnudag 29. jan kl.20.30. Örfá sæti laus
Sjang-Eng
eftir Göran Tunström
5. sýn. sunnud. 22. jan. kl. 20.00 Uppselt.
Gul kort gilda
6. sýn. þriðjud. 24. jan. kl. 20.00 Græn kort
gilda. Örfá sæti laus
7. sýn. fimmtud. 26. jan. kl. 20.00 Hvit kort
gilda. Örfá sæti laus.
8. sýn. laugard. 28. jan. kl. 20. Appelsínugul
kort gilda. Uppselt
9. sýn. þriðjud. 31. jan. kl. 20. Brún kort gilda.
Miðasala í Iðnó simi 16620
Miðasalan i Iðnó er opin daglega kl. 14-19
og fram að sýningu þá daga sem leikið er.
Símapantanir virka daga frá kl. 10-12.
Einnig simsala með VISA og EUROCARD
á sama tima. Nú er verið að taka á móti
pöntunum til 12. febrúar 1989.
MAl A Þ ONBAÍNfSX
Fjölbreyttur matseðill um helgina.
Leikhúsgestir fá 10% afslátt af mat fyrir
sýningu.
Sími 18666
Söngleikur eftir Ray Herman
Sýnt á Broadway
I kvöld kl. 20.30
Föstudag 27. jan. kl. 20.30
Laugardag 28. jan. kl. 20.30
Miðasala í Broadway simi 680680
Miðasalan I Broadway er opin daglega kl.
16-19 og fram að sýningu þá daga sem
leikið er. Einnig símsala með VISA og
EUROCARD á sama tíma. Nú er verið að
taka á móti pöntunum til 12. febrúar 1989.
Veitingar á staðnum. Sími 77500.
Brigitte
Nielsen
er orðin spakmælt. Nýlega
voru höfð eftir henni þau
gullvægu orð að vinátta
væri eitthvað ævarandi en
ást aðeins nokkuð sem
entist f rá einum skilnaði til
þess næsta. Ekki fylgdi
sögunni hvort Brigitte
ávinnur sér sess i bókum
sem innihalda fleyg orð
frægs fólks fyrir þessa
djúphugsuðu speki.
Tom Selleck
og kona hans, Jillie Maack,
hafa verið hjá
fasteignasölum undanf arið.
Endirinn varð sá að þau
keyptu tvö hús á samtals
350 milljónir. Ekki er vitað
hvort þau ætla að búa hvort^
í sínu húsinu en hitt er víst
loks vist að þau eiga von á
fyrsta barni sínu í febrúar.
Það hlaut að koma að því,
meðgöngutíminn hefur
verið óvenju langur
samkvæmt
slúðurdálkunum.
Tíminn 31
Nýi forsetinn í Banda-
ríkjunum hefur fengið
viðurnefnið „Georg IV“
Malcolm heldur á Mike tvíburabróður sínum
George Bush hefur nú fengið viðurnefnið „Georg IV“ og það
eru ýmsar ástæður fyrir því
Tvíburarnir
„LITLI OG
STÓRI“
Þegar George Bush sór
embættiseið sinn og tók við
forsetaembættinu varð hann
fjórði - elsti, fjórði - hæsti og
fjórði örvhenti forseti Banda-
ríkjanna!
Síðan mætti nefna það, að
Bush er fjórði forsetinn sem
er fæddur í Massachusetts og
sá fjórði sem er kosinn til
forsetaembættis - beint úr
varaforsetaembættinu.
Þessar upplýsingar um hinn
41. forseta í Bandaríkjunum
má finna í opinberum upplýs-
ingabæklingi sem gefinn er út
í sambandi við forsetaskiptin.
Bæklingurinn, - ef bækling
skyldi kalla - er um 5 pund á
þyngd og er uppfullur af mis-
merkilegum atriðum um hinn
nýja forseta.
Eini forseti
Bandaríkjanna sem
fæddur er í júnímánuði
Bush er fæddur 12. júní
1924, og er eini forsetinn sem
er fæddur í þeim mánuði, en
annar - fyrir utan Kennedy
(f. 29. maí) - sem fæddur er
í tvíburamerkinu. Bush er
annar elsti forseti sem tekur
við embætti. Sá elsti var Ron-
ald Reagan, en hann var 69
ára þegar hann tók við
forsetaembættinu fyrir 8
árum.
Aðrir forsetar en Bush,
sem eru örvhentir, eru þeir
Gerald Ford, Harry Truman
og James Garfield. Þeir sem
fæddir eru í Massachusetts,
fyrir utan Bush, eru John
Adams, John Quincy og John
Kennedy.
Menn gætu haldið að hann
Malcolm Henbury-Ballan
ætlaði að fara að skemmta
áheyrendum með búktali, og
héldi því á þar til gerðri
brúðu eða "Konna“. En þetta
er engin brúða sem Malcolm
heldur á, - heldur er þetta
lifandi maður, bróðir
Malcolms, m.a.s. tvíbura-
bróðir!
Mike, litli bróðirinn, er
aðeins 94 sentimetrar á hæð,
og er sagður minnsti maður
Bretlands. Malcolm „stóri
bróðir“ er svo nærri því heil-
um metra hærri. Þeir hafa
verið skráðir í metabók Gu-
inness sem sérkennilegustu
tvíburar heimsins.
Við fyrstu sýn virðist manni
sem Mike litli hafi hlotið
aumlegt hlutskipti miðað við
n stóra bróður, - en það er
Mike sem kemur sér betur
áfram í lífinu og vinnur fyrir
rneiri peningum. Malcolm
hefur ósköp venjulegt skrif-
stofustarf, en Mike hefur
áunnið sér frægð sent leikari.
Það gerist alltaf öðru hverju
að kvikmyndafyrirtækin
bjóða honum hlutverk við
hans hæfi og þykir hann snjall
leikari. Hann hefur leikið í
„Star Wars“ og myndinni
„Labyrinth“ með David
Bowie. Hann hefurhittmargt
frægðarfólk eftir frumsýning-
ar, t.d. bæði Karl Bretaprins
og Díönu prinsessu.
Mike á kærustu, Debbie
Spicer, sem er 19 ára, falleg
stúlka og um 40 sm hærri en
hann. Þau ætla að gifta sig á
næstunni. Mike hefur vinnu á
tollstofu á milli þess sem
hann vinnur við kvikmyndir,
svo hann kemst vel af. „Ég er
feginn að ég er ekki hærri,“
segir h'ann og glottir, “ég er
nefnilega svo lofthræddúr!“