Tíminn - 25.01.1989, Page 4
4 Tíminn
Auglýsing um lausa
stöðu heilsugæslulæknis
í Stykkishólmi
Laus er til umsóknar önnur staöa heilsugæslu-
læknis í Stykkishólmi frá og með 1. maí 1989 aö
telja.
Umsóknir ásamt ítarlegum upplýsingum um
læknismenntun og læknisstörf sendist ráöuneytinu
fyrir 23. febrúar 1989, á sérstökum eyðublöðum,
sem þar fást og hjá landlækni. í umsókn skal koma
fram hvenær umsækjandi getur hafið störf. Æski-
legt er að umsækjendur hafi sérfræðileyfi í heimil-
islækningum og reynslu í svæfingum enda er
starfið tengt læknisstörfum í sjúkrahúsinu í Stykk-
ishólmi.
Upplýsingar um stöðuna veita ráðuneytið og
landlæknir.
Heilbrigðis- og tryggingamálaráðuneytið
23. janúar 1989.
Umboðsmenn Tímans:
Kaupstaður: Nafn umboðsmanns Heimili Sími
Hafnarfjörður Ragnar Borgþórsson Hamraborg 26 641195
Kópavogur Linda Jónsdóttir Holtageröi28 45228
Garðabær Ragnar Borgþórsson Hamraborg 26 641195
Keflavík GuðríðurWaage Austurbraut 1 92-12883
Sandgerði Margrét Magnúsdóttir Hjallagötu 4 92-37771
Njarðvík Kristinn Ingimundarson Faxabraut 4 92-13826
Akranes Aðalheiður Malmqvist Dalbraut55 93-11261
Borgarnes Inga Björk Halldórsdóttir Kveldúlfsgata26 93-71740
Stykkishólmur Erla Lárusdóttir Silfurgötu 25 93-81410
Ólafsvik LindaStefánsdóttir Mýrarholti 6A 93-61269
Grundarfjörður Anna Aðalsteinsdóttir Grundargötu 15 93-86604
Hellissandur Ester Friöþjófsdóttir Háarifi49 93-66629
Búðardalur Kristiana Guðmundsdóttir Búöarbraut3 93-41447
ísafjörður Jens Markússon Hnifsdalsvegi 10 94-3541
Bolungarvík Kristrún Benediktsdóttir Hafnargötu 115 94-7366
Flateyri Guðrún Kristjánsdóttir Brimnesvegi2 94-7673
Patreksfjörður Ása Þorkelsdóttir Uröargötu 20 94-1503
Bíldudalur HelgaGísladóttir Tjarnarbraut 10 94-2122
Þingeyri Karitas Jónsdóttir Brekkugötu 54 . 94-8131
Hólmavík Elisabet Pálsdóttir Borgarbraut 5 95-3132
Hvammstangi Friöbjörn Níelsson Fífusundi 12 95-1485
Blönduós Snorri Bjarnason Urðarbraut20 95-4581
Skagaströnd Ólafur Bernódusson Bogabraut27 95-4772
Sauðárkrókur Guörún Kristófersdóttir Barmahliö 13 95-5311
Siglufjörður Guöfinna Ingimarsdóttir Hvanneyrarbraut 54 96-71555
Akureyri Jóhannes Þengilsson Kambagerði4 96-22940
Svalbarðseyri ÞrösturKolbeinsson Svalbaröseyri 96-25016
Húsavík Ólafur Geir Magnússon Hjaröarhóli 2 96-41729
Ólafsfjörður Helga Jónsdóttir Hrannarbyggö8 96-62308
Raufarhöfn Ófeigurl. Gylfason Sólvöllum 96-51258
Þórshöfn Kristinn Jóhannsson Austurvegi 1 96-81157
Vopnafjörður SvanborgVíglundsdóttir Kolbeinsgötu 44 97-31289
Egilsstaðir Páll Pétursson Árskógar 13 97-1350
Seyðisfjörður Anna Dóra Árnadóttir Fjarðarbakka 10 97-21467
Neskaupstaður KristínÁrnadóttir Nesbakka16 97-71626
Reyðarfjörður Marínó Sigurbjörnsson Heiöarvegi 12 97-41167
Eskifjörður Þórey Dögg Pálmadóttir Svínaskálahliö 19 97-61367
Fáskrúðsfjörður Guöbjörg H. Eyþórsdóttir Hlíðargötu4 97-51299
Stöðvarfjörður SvavaG. Magnúsdóttir Undralandi 97-58839
Djúpivogur ÓskarGuðjón Karlsson Stapa, Djúpavogi 97-88857
Höfn Ingibjörg Ragnarsdóttir Smárabraut 13 97-81255
Selfoss Margrét Þorvaldsdóttir Skólavöllum 14 98-22317
Hveragerði Lilja Haraldsdóttir Heiöarbrún51 - 98-34389
Þorlákshöfn Þórdís Hannesdóttir Lyngberg 13 98-33813
Eyrarbakki ÞórirErlingsson Túngötu 28 98-31198
Stokkseyri Hjörleifur Bjarki Kristjánsson Sólvöllum 1 98-31005
Laugarvatn Halldór Benjam í nsson Flókalundi 98-61179
Hvolsvöllur Jón í na og Árný Jóna Króktún 17 98-78335
Vík VíöirGylfason Austurveg 27 98-71216
Vestmannaeyjar MartaJónsdóttir Helgafellsbraut29 98-12192
ei rvurur
r lwí\ n.
m
Fundir um atvinnu- og efnahagsmál
Steingrímur Hermannsson, forsætisráöherra, heldur fundi um at-
vinnu- og efnahagsmál á eftirtöldum stööum:
Vesturland, fimmtudag 26. jan. Hótel Akranes kl. 20.45.
Austurland, laugardag 28. jan. Egilsstaðir kl. 15.00.
Vestfirðir, sunnudag 29. jan. Félagsheimilinu, Patreksfirði kl.
16.00.
Norðurland-V, laugardag 4. feb. Varmahlíð kl. 14.00.
Allir velkomnir
Steingrímur
Miðvikudagur 25. janúar 1989
Þrír leikara verksins Óvitar sem frumsýnt verður í Þjóðleikhúsinu um helgina. F.v. Halldór Björnsson, IVlaría
Ellingsen og Þór Tulinius.
Einn aðalleikara Óvitanna slasaöist
á æfingu er hann datt niöur stiga
Slysafaraldur
í leikhúsunum ?
Á æfíngu í fyrradag datt Halldór Björnsson niður stiga sem
tilheyrir leikmynd Óvitanna. Það verk á að frumsýna nú um
helgina og Halldór er einn aðalleikaranna.
Ætla mætti að Macbeth hefði
verið æfður stíft baksviðs í leikhús-
unum í vetur.
En hvernig sem jiví er farið er
ckki einleikinn sá slysafaraldur sem
gengið hefur yfir. Þess er skemmst
að minnast er sýningar á Sveitasin-
fóníunni féllu niður vegna forfalla
einnar aðalleikkonunnar. Svo ekki
sé minnst á Ævintýri Hoffmanns, en
þeim sýningum hefur verið aflýst
hvað eftir annað, ýmist vegna tá-
brots cða annarra veikinda.
„Við vitum ekki ennþá hvernig
þetta fer. Ef Halldór er ekki of
kvalinn til að geta leikið stendur
jafnvel til að skrifa eitthvað í kring-
um hlutverkið þannig að drengurinn
sem hann leikur geti verið á hækjum.
Höfundurinn, Guðrún Hefgadóttir,
er komin í startholurnar" sagði Signý
Pálsdóttir fréttafulltrúi Þjóðleik-
hússins. Hún vildi allavega ekki gera
ráð fyrir að frumsýningu yrði frestað
..það hafa víst þegar orðið nægar
breytingar vegna Ævintýris
Hoffmanns" sagði hún.
Leikritið Óvitar eftir Guðrúnu
Helgadóttur verður því að öllum
líkindum frumsýnt í nýrri uppfærslu
næstkomandi laugardag klukkan tvö
í Þjóðleikhúsinu.
Höfundur skrifaði leikritið að
beiðni Þjóðleikhússins og var það
frumsýnt árið 1979 í tilefni barnaárs.
Leikstjóri Brynja Benediktsdóttir
og leikmyndateiknari Gylfi Gíslason
eru þau sömu og við uppfærsluna
fyrir tíu árum.
í þessu leikriti þar sem „allt er
öfugsnúið" leika fullorðnir börn og
börnin þá fullorðnu. Leikarahópur-
inn samanstendur af níu fullorðnum
og tuttugu börnum. Elsti leikarinn
Flosi Ólafsson er á sextugsaldri en sá
yngsti Melkorka Óskarsdóttir er sjö
ára.
Aðalhlutverkin eru í liöndum
þeirra Þórs Tulinius og Halldórs
Björnssonar. En í stærstu barnahlut-
verkunum eru Guðrún Jóhanna Ól-
afsdóttir og Haukur Karlsson.
„Það er alveg bráðsnjöll hugmynd
að láta börnin leika fullorðna og
fullorðna börn. Það koma svo skýrt
í Ijós einkenni hvors aldurshóps fyrir
sig. Það er alveg dásamlega fyndið
að sjá þessi saklausu börn segja og
gera alla þá vitleysu sem fullorðnir
gera venjulega“ sagði Þór Tulinius í
samtali við Tímann.
Hann sagði að þetta leikrit væri
vitaskuld æft allt öðru vísi en venju-
leg leikrit sem lærðir leikarar setja
upp. „Það verður að fara í ýmis
grundvallaratriði eins og að tala
fram í salinn, standa ekki bak við
eitthvað þegar maður fer með text-
ann og svo framvegis." En að þetta
væri jafnframt mjög skemmtilegt og
holl upprifjun.
Þór sagði margt bráðsmellið hafa
fylgt þessri uppsetningu. „Eins og
gerist og gengur taka krakkarnir
með mismikilli alvöru á hlutverkun-
um. Sumir líta á þetta sem skemmti-
legan leik, hafa gaman af og standa
sig vel, en aðrir eru öllu metnaðar-
fyllri. Það var til dæmis ein voðalega
sæt lítil stelpa sem lagði mikla
áherslu á að fá ákveðið hlutverk.
Ástæða þess var að þá fengi hún aðj
leika mikið á móti Flosa Ólafssyni
og gæti lært af sér eldri og reyndari
leikara." jkb
„Maraþon“-þjófnaður
Um helgina var stolið frá Leikfé-
lagi Reykjavíkurtöluverðri fjárhæð.
Þjófnaðurinn ver framinn í veit-
ingahúsinu Broadway en þar standa
eins og kunnugt er yfir sýningar á
Maraþondansinum.
Stolið var öllu iausafé úr sölu
kvöldsins sem og skiptinrynt sæt-
avísa. Ekki er kunnugt hversu há
fjárupphæðin er.
Leikfélagið liefur eigin miðasölu í
anddyri hússins. En samkvæmt
heimildum Tímans var hurðin læst
þegar skilið var viö hana á laugar-
daginn og aðeins starfsmenn Leik-
félagsins eiga að hafa iykil sem
gengur að henni. Þegar miðasölu-
stúlkan kom í gær var hurðin ólæst
og peningarnir horfnir. Hlýtur því
sökudólgurinn að hafa skriðið yfir
vegg miðasölunnar.
Venjulega eru peningar ekki
skildir eftir í miðasölunni en vegna
ófærðarinnar meðal annars, var það
gert um helgina.
Málið hefur ekki verið kært til
lögreglunnar en það mun vera á
döfinni. Þá er baru áð vona að sá
seki sjái sóma sinn í því að skila
peningunum aftur. jkb