Tíminn - 25.01.1989, Blaðsíða 5
oc
íslenskir flugrekstraraðilar áhyggjufullir um að Flying Tigers muni
leggja undir sig vöruflutninga með flugi milli Islands og Evrópu:
„Gætu gleypt þetta
þegar þeim sýnist“
Hjá millilandaflugfélögunum íslensku hafa menn nú þungar
áhyggjur af að fragtflutningar Flying Tigers hingað til lands
frá Evrópu muni stórlega draga úr vöruflutningum þeirra, en
Flying Tigers hafa nýlega byrjað að millilenda í Keflavík á
leið sinni frá Frankfurt tU Tókýó.
Hjá Arnarflugi varö Magnús
Oddsson markaðsstjóri fyrir svörum
og sagði hann að vöruflutningar með
vélum félagsins hefðu dregist eitt-
hvað saman síðustu vikur, en ekki
væri um neina stökkbreytingu að
ræða.
Hann sagðist ekki treysta sér til að
fullyrða um hvort ástæður samdrátt-
arins væru flug Flying Tigers eða
hvort um mætti kenna samdrætti í
þjóðfélaginu og minnkandi innflutn-
ingi eða neikvæðu umtali um Arnarf-
lug
Hið sama sagði Arngeir Lúðvíks-
son stjórnandi flutningadeildar Arn-
arflugs en tók þó nokkru dýpra í
árinni og sagðist alls ekki geta séð að
Flying Tigers hefði dregið nokkurn
hlut úr flutningum Arnarflugs.
Sigmar Sigurðsson yfirmaður
flutningadeildar Flugleiða sagði að
enn væru ekki merkjanlegt að Flying
Tigers hefði tekið flutninga frá Flug-
leiðum enda væri vart við því að
búast þar sem starfsemin væri svo
nýhafin.
Hann sagði að þó gæti svo farið að
Flugleiðir fyndu fyrir samkeppninni
þegar fram liðu stundir og fyrirætlan-
ir Tígranna yrðu betur ljósar.
Sigmar sagði að í raun væri enginn
munur á aðbúnaði vörunnar hjá
Flying Tigers og hjá íslensku fé-
lögunum. Henni væri komið á palla
og kælibúnaður væri áþekkur þannig
að ekki færi verr um vöruna hjá
íslendingunum og flutningskostnað-
ur væri einnig svipaður og ef nokkuð
væri- minni.
Flugstjóri á Evrópuflugleið annars
íslensku flugfélaganna sagðist hafa
orðið var lítilsháttar samdráttar í
vöruflutningum á sínum flugleiðum
en sagðist telja að hann ætti eftir að
verða meiri.
Bæði væri Flying Tigers mjög
stórt fyrirtæki sem flygi flutningavél-
um af stærstu gerð og hefði félagið
því alla burði til að bjóða lág farm-
gjöld og örugga þjónustu og gæti því
fljótt fært út kvíarnar.
f>á væri þess að gæta að verð
þeirra vara sem fluttar eru með flugi
til landsins frá Evrópu er svipað um
allan norðurhluta álfunnar, þannig
að nánast engu breyti í því efni hvort
varan er tekin um borð í flugvél í
Luxemborg, Amsterdam, Hamborg
eða Frankfurt.
Flugvöllurinn í Frankfurt hefði
hins vegar nokkra sérstöðu: hann er
einn stærsti flugvöllur í heiminum og
um hann fer meiri flugfrakt en um
aðra flugvelli í Evrópu.
Þannig væri líklegt að fram-
leiðendur teldu urn margt hægara að
koma vörum sínum á Frankfurtflug-
völl, en marga aðra flugvelli álfunn-
ar.
Flugstjórinn sagði að margt benti
því til að Flying Tigers gæti lagt
undir sig alla þá flugvöruflutninga til
og frá íslandi sem þeir kærðu sig um
og gæti frelsið í flugmálunum orðið
til að drepa niður íslenskt vöruflug.
Flying Tigers fljúga nú einu sinni
í viku milli Frankfurt og Tókýó.
Flugleiðin liggur frá Frankfurt til
London, Keflavíkur Anchorage í
Alaska og Tókýó og sömu leið til
baka.
Páll Sigurðsson starfsmaður
Flugfax, umboðsfyrirtækis Flying
Tigers, sagði að flutningar frá Frank-
furt til íslands væru að komast í
gang. Hann sagðist ekki vera tilbú-
inn að svara hversu stóra hlutdeild í
heildarvöruflutningum með flugvél-
um frá Evrópu til íslands félagið
hefði þegar náð, enda stutt síðan
flugið hófst.
Hann sagðist þó búast við að hún
ykist þar sem hér væri um að ræða
sérsmíðaðar flutningavélar með
kælibúnaði og að öllu leyti eins
fullkomnar og hugsast gæti. „Ef ég
ætti fyrirtæki hér heima og þyrfti á
flutningum að halda til ogfrá landinu
veldi ég öruggustu leiðina," sagði
Páll.
Páll sagði að vörurýmið væri mis-
jafnt eftir því á hvaða vikudögum
vélin lendir í Keflavík. Pegar hún
kemur frá Evrópu á þriðjudögum er
rúm fyrir 19 tonn en alls getur vélin
borið tæp 120 tonn.
„Við gáfum Flying Tigers mjög
takmarkað leyfi til þessa flugs, eða
til aðeins eins árs með það í huga að
geta fyrr gripið inn í ef okkur sýndist
ástæða til,“ sagði Steingrímur J.
Sigfússon samgönguráðherra.
Hann sagði einnig að þar sem flug
félagsins væri nýhafið væri vart enn
hægt að átta sig á áhrifum þess á
innlendu flugfélögin og vöruflutn-
inga þeirra. -sá
Steingrímur Hermannsson, forsætisráðherra:
Efnahagsaðgerðir
fimmtudaginn?
Tillögur til lausnar efnahagsvanda
þjóðarinnar voru enn til umræðu á
fundi ríkisstjórnarinnar í gær. Að
sögn Steingríms Hermannssonar,
forsætisráðherra, eru tillögurnar nú
sem stendur til umfjöllunar í þing-
flokkum stjórnarflokkanna. Þaðan
koma þær til umræðu í ríkisstjórn að
nýju nk. fimmtudag. Þá er búist við
að allir ráðherrar verði í höfuðborg-
inni og jafnvel verði hægt að hrinda
einhverjum af þessum tillögum í
framkvæmd.
Ekki vildi forsætisráðherra tjá sig
um hverjar af tillögum hans nái fram
að ganga, en þeirra hefur verið getið
hér í Tímanum að nokkru í sam-
bandi við fundarferðir ráðherrans.
Sagðist hann hafa lagt þessar tillögur
fram til umræðu og til að um þær
gætu skapast eðlileg skoðanaskipti,
bæði innan ríkisstjórnarinnar og
einnig meðal þeirra hagSmunsaðila
sem hlut eiga að máli.
Að sögn Steingríms Hermanns-
sonar, verður ekki á neinn hátt
blandað saman afgreiðslu á efna-
hagstillögum ríkisstjórnar og þeim
hugmyndum sem upp hafa komið í
viðræðum við Borgaraflokkinn um
hugsanlega aðild að ríkisstjórn.
KB
Frá bókamarkaði Vöku-Helgafells
sem nú stendur yfir.
Bækur
seldar á
50 „kall“
Opnaður hefur verið bókantark-
aður með mörg hundruð bókatitla á
mikið lækkuðu verði allt að 90% í
sumum tilvika.
Bókaforlagið Vaka-Helgafell hcf-
ur opnað þennan markað í verslun
forlagsins í Síðumúla.
Þarna eru á boðstólum útgáfubæk-
ur Helgafells frá síðustu áratugum,
bækur Vöku og síðan Vöku-Helga-
fells eftir að forlögin voru sameinuð.
Bækurnar sem þarna fást eru úr
fjölmörgum ólíkum flokkum og
margar þeirra elstu hafa ekki verið
fáanlegar undanfarin ár. Markaðin-
um lýkur laugardaginn fjórða febrú-
ar næstkomandi. jkb