Tíminn - 25.01.1989, Blaðsíða 6
6 Tíminn
Miðvikudagur 25. janúar 1989
Mestur hluti munanna sem sýndir
eru í Þjóðminjasafninu er í eigu
safnsins. Einnig verða þar sýnd
norsk myndbönd um víkingaskip og
fleira myndefni, einkum frá Jórvík.
í Norræna húsinu eru mestmegnis
gripir fengnir að láni frá Englandi.
En þar, nánar tiltekið í Jórvík eða
York, hefur uppgröftur fornleifa frá
víkingatíma verið mjög umfangs-
mikill.
Þar er sýnd sú hliðin sem að hinu
daglega lífi alþýðunnar sneri, m. a.
klæðnaður, skartgripir, hljóðfæri,
peningar og fleiri munir.
í Norræna húsinu er leitast við að
svara spurningunni „Hvernig bjó
fólkið í Jórvík og þar um kring þegar
Egill Skallagrímsson kom þangað og
bjargaði lífi sínu við hirð Eiríks
blóðaxar, með flutningi Höfuðlausn-
ar“. Við inngang salarins er bók úr
safni Árna Magnússonar með kvæð-
inu öllu, handskrifuð.
„Gestir geta einnig fengið að slá
sér mynt að hætti víkinganna," sagði
hönnuður sýningarinnar Steinþór
Sigurðsson er hann fylgdi Tímanum
um sýninguna í Norræna húsinu.
Undirbúningur sýningarinnar hef-
ur tekið þrjú ár. Henni lýkur þriðja
apríl. Annar forsvarsmanna hennar
er eins og áður sagði þjóðminjavörð-
ur, Þór Magnússon en hinn er Knut
Ödegaard.
Fjölmargir fyrirlesarar sérfróðir á
sínu sviði munu sækja sýninguna
heim.
Meðan á sýningunni stendur verð-
ur bryddað upp á ýmsum „nýjung-
um“ í kaffistofu Norræna hússins.
Þar verður boðið upp á víkingamat-
seðil, lagaðan eftir því sem best er
vitað um mataræði forfeðranna.
jkb
Ekki fer á niilli mála að nútíma íslendingum kippir í kynið hvað skrautgirni
varðar. Víkingarnir notuðu einnig margskonar skartgripi eins og til dæmis
þessa sem hér sjást.
Sverð sem grafin voru með einhverjum víkinganna í Þelamörk í Noregi.
Handhæg lausn á vanda þeirra sem eiga í höggi við kaupmenn mcð þunga
þumalfingur. Samanbrjótanleg ferðavog.
Um helgina var ojpnuð sýningin „Víkingar í Jórvík og
Vesturvegi“. Forseti Islands, Vigdís Finnbogadóttir er vernd-
ari sýningarinnar. Þetta er fyrsta stóra víkingasýningin sem
haldin er á íslandi.
Sýningin er ein heild þó hún sé
tvískipt. Annar hluti hennar er í
Norræna húsinu en hinn hlutinn í
Þjóðminjasafninu.
„Hugmyndin er sú að sýna mann-
líf á víkingaöld. Ekki bara þessa
eiginlegu víkinga sem fóru um með
ránum og hernaði heldur daglegt líf
alþýðunnar, menningu, listiðn og
þvíumlíkt," sagði Þór Magnússon
þjóðminjavörður og annar forsvars-
manna sýningarinnar er Tíminn fór
og kynnti sér málið.
í Þjóðminjasafninu er sýnd sú hlið
lífs víkinganna er að sjónum snéri.
Þar er víkingaskipið og það sem því
tilheyrir, eins og sjóferðir og landa-
fundir, í öndvegi.
mtrn'nwmí'iamm-i xJmáiMZ,
Skófatnaður víkinganna er meðal þess sem fundist hefur í Jórvík. Ökklaháir
leðurskór eins og þessi var algengasti fótabúnaðurinn.
Þessi mynd er frá safni í Jórvík þar sem byggt hefur verið víkingaþorp í fullri stærð.
Tímamyndir: Pjetur