Tíminn - 10.02.1989, Side 9

Tíminn - 10.02.1989, Side 9
Föstudagur 10. febrúar 1989 Tíminn 9 VETTVANGUR Þórarinn Þórarinsson: Síld og þorskur stjóma íslendingum Það er ekki nýtt, að sagt sé um efnahagsaðgerðir ríkisstjórnar, að þær séu gagnslitlar og séu alls ekki til varanlegra bóta. Þetta hefur verið sagt um nær allar eða jafnvel allar efnahagsaðgerðir sem gerðar hafa verið hérlendis síðustu 70 árin. Oft hefur verið lofað af stjórnvöldum, að gerðar skyldu varanlegar ráðstafanir og stundum hefur því verið trúað af talsvert stórum hluta kjósenda. Þannig var það t.d. um viðreisnina, sem ráðist var í fyrir um þrjátíu árum, en henni lauk með mikilli gengisfell- ingu, stórfelldu atvinnuleysi og landflótta. Spariféð, sem menn höfðu safnað í góðærisárum, brann að verulegu leyti til ösku í gengis- fellingunni. Allmargir höfðu þó reynt að koma peningunum í stein- steypu og olli það mikilli ofþenslu um skeið, ásamt því að síld veiddist vel. Sannleikurinn um allar hinar mörgu efnahagsráðstafanir, sem hér hafa verið reyndar síðustu sjötíu árin, hafa runnið fljótlega út í sandinn og engar þeirra reynst varanlegar. Af því finnst mér ekki fjarri lagi að draga þá ályktun að hin varanlega lausn sé ekki til eins og efnahagsmálum íslendinga er háttað. Ástæðan er sú, að hér verða meiri sveiflur í efnahagsmál- um en í flestum löndum öðrum. f raun og veru eru það síld og þorskur, sem stjórna efnahagsmál- um íslendinga, en ekki stjórnmála- menn. Þegar vel veiðist, tekur allt efnahagslífið fjörkipp og eyðsla og fjárfesting aukast úr hömlu fram. Stjómmálamennimir verða síðan að fara eftir því, hvernig síldin og þorskur haga göngum sínum. Sögu íslenskra efnahagsmála má rekja eftir því, hvernig göngum síldar og þorsks hefur verið háttað. Góðum afla og góðæri hefur jafnan fylgt mikil eyðsla og ofþensla og efnahagsráðstafanir, sem hafa enst til bráðabirgða. íslendingum hefur ekki lærst að leggja fyrir gróða góðu áranna og geyma féð til hinna Sfld. mögru. Hagfræðingar sem álíta sig vitra, töldu það nægilegt til að tryggja sparnað að gefa vextina frjálsa. Farið var eftir ráðum þeirra sumar- ið 1984. Morgunblaðið segir svo frá árangri þessarar ráðabreytni í smáklausu á öftustu síðu 8. þ.m. „Sparnaður þjóðarinnar hefur Þorskur. minnkað um 40% eða rúmlega 23 milljarða á undanförnum tíu árum. Sparnaður var 24-25% af vergri landsframleiðslu fyrir áratug en er nú um 14%.“ Þannig hafa hinir frjálsu vextir gefist. Þær raddir heyrast, að betur myndi nú hafa gefist, ef farið hefði verið að ráðum Sjálfstæðisflokks- ins. Þetta geta þeir sagt, sem ekki hafa kynnt sér afleiðingar gengis- fellinga. Ef gengið hefði t.d. verið fellt meira, hefði fylgt í kjölfarið meiri verðbólga, meiri kauphækk- anir og samt sennilega minni sparn- aður. Útflutningsframleiðslan hefði verið enn verr stödd. íslenskt efnahagslíf kemst þá fyrst á traustan grundvöll, þegar krónan er orðin stöðugur gjaldmið- ill og sveiflurnar, sem ráðast af göngum síldar og þorsks, ekki látnar ráða ferðinni og arði af góðæri ekki alltaf eytt af fyrir- hyggjuleysi. I góðærum á að byggja upp sterka sjóði, sem nota má, þegar síld og þorskur haga göngum sfnum án tillits til íslenskra stund- arhagsmuna. íslendingar þurfa trausta stjórn í stað stjórnleysis, sem er fastur fylgifiskur hömlu- lausrar frjálshyggju. Á meðan verða efnahagsráðstaf- anir aðeins gerðar til bráðabirgða. Guömundur G. Þórarinsson: EFNAHAGSADGERDIR Forsætisráðherra hefur kynnt efnahagsaðgerðir ríkis- stjórnarinnar. Gripið hefur verið til aðkallandi aðgerða, en nær allar efnahagsaðgerðir ríkisstjórnarinnar eru nauð- vörn. Menn spyrja auðvitað: „Nauðvörn, hvers vegna?“ Jú, lítum nánar á málið. 1) Verðstöðvun er nauðvörn í stuttan tíma. 2) Strangt verðlagseftirlit í 6 mán- aða umþóttunartíma er nauð- vörn. 3) Handaflsstýring á vöxtum er nauðvörn. 4) Frysting launa og afnám kjara- samninga tímabundið er nauð- vörn. 5) Stofnun sérstaks sjóðs til þess að skuldbreyta skammtímalán- um útflutningsatvinnuveganna er nauðvörn. 6) Myndun hlutafjársjóðs til að auka eigið fé fyrirtækja, sem eru nær gjaldþrota, er nauð- vörn. Þannig mætti telja áfram. Nauð- vörn er auðvitað tímabundin lausn, biðleikur. Tímann þarf að nota til þess að móta framtíðarstefnu. Viðskilnaður ríkisstjómar Þorsteins Pálssonar Þegar núverandi ríkisstjórn tók við var staðan slík að nauðvarnar var þörf. Lítum nánar á málið. Aðstæður: 1) Ytri aðstæður þjóðarbúsins 1987 og 1988 voru góðar. Þjóð- arframleiðsla mikil, verð hátt á erlendum mörkuðum. Þjóðar- tekjur voru því hærri en dæmi eru um frá fyrri árum. Fiskveið- ar 1988 voru nær 1.800.000 tonn. Árangur: 1) f lok árs 1988 voru útflutnings- atvinnuvegir komnir í þrot. Eigið fé sjávarútvegs minnkaði um helming 1988 eða um 13 millj- arða króna. Samkeppnisstaða útflutningsiðnaðar hafði hríð- versnað. Gjaldþrot blöstu hvar- vetna við. 2) Erlend skuldasöfnun var mikil. Viðskiptahalli áranna 1987 og ’88 var um 20 milljarðar króna. Mest eyðsluhalli. 3) Eignatilflutningur hafði orðið gífurlegur milli landshluta, milli atvinnugreina og einstaklinga. Fé útflutningsgreinanna flæddi til þjónustugreinanna, einkum fjármagnsfyrirtækja. Fé lands- byggðarinnar flæddi til þétt- býlisins. Eignatilfærsla gífurleg og miklu meiri en ráðherrar eru nokkrir menn til að bera ábyrgð á. Orsakir Mín skoðun er sú að meginorsök þessa sé gengisstefna stjórnvalda og stefnan á fjármagnsmarkaði. Auðvitað eru skýringar margvís- legar og flóknar. En þessi atriði eru meginþættirnir. íslendingar hafa fyrr búið við óðaverðbólgu, mikla fjárfestingu og þenslu án svo geigvænlegra afleiðinga sem hér um ræðir. Skipulagsvandi er ekki meiri í útflutningsgreinunum en öðrum greinum og ekki meiri en verið hefur undanfarin ár. Það breytir ekki því að sjálfsagt má nokkuð vinna með hagræðingu. Gengisstefnan Uppi hafa verið ýmsar kenningar meðal hagfræðinga um gengis- stefnur. Á áratugnum 1970-80 var ríkjandi sú stefna að „fljótandi gengi" væri best. íslenskir hagfræð- ingar tóku þessa nýjung frá starfs- bræðrum sínum erlendis og fljót- andi gengi var talið allra meina bót. Reynslan varð hins vegar sú að óstöðugleiki varð mikill í efna- hagslífi og fljótandi gengi magnaði verðbólgu. „En þá kom út ný bók í Svíþjóð." Þannig var stundum sagt þegar kúvending varð í félagsmála- stefnu hérlendis. Ný stefna í Sví- þjóð þýddi umbyltingu hérlendis. Erlendir hagfræðingar hurfu frá fljótandi gengi. Um 1985 byrjuðu sjö stærstu iðnríki veraldarinnar samvinnu um efnahagsmál, sem fljótlega beindist að því að halda gengi stöðugu. íslenskir hag- fræðingar gripu boltann á lofti og nú varð lausnarorðið „fastgengi". Það hefur síðan verið reynt í íslensku efnahagslífi við ærið vafa- saman árangur. Nú eru reyndar iðnríkin farin að efast um árangur þess að halda innbyrðis gengi íslendingar mega ekki festast í verðlagseftir- liti og launahömlum og varast verður að af- leiðingar stjórnar Þor- steins Pálssonar verði tilþess aðríkiðtaki við atvinnuvegum gegn- um hlutafjársjóð. stöðugu, en íslenskir hagfræðingar hafa líklega ekki fengið fréttir af því enn. Vandinn sem upp kom 1987 og 1988 var sá, að menn gáðu ekki að sér í fastgengisstefnunni að verð- bólgan var miklu meiri hér en í iðnríkjunum, hvaðan lærdómurinn var kominn. Þetta þýddi raungeng- ishækkun upp á 21% frá 1. ársfj. 1985 til 1. ársfj. 1988. Þrátt fyrir 7% lækkun raungengis á árinu 1988 er enn um 14% raungengis- hækkun að ræða frá sama tíma. Slík verðlækkun hjá útflutningsat- vinnuvegunum leiddi auðvitað til rýrnunar eigin fjár með þeim af- leiðingum sem nú eru komnar fram. Ég lýsti því yfir haustið 1987 að ég teldi fastgengisstefnuna hættu- legustu efnahagsstefnu sem ég hefði séð í framkvæmd á íslandi. Afleiðingarnar eru nú komnar í ljós. Ólafur Þ. Þórðarson gekk lengra. Hann neitaði að styðja ríkisstjórnina. Fjármagnsmarkaður Á sama tíma og gengisstefnan lækkaði tekjur útflutningsgreina var fjármagnsmarkaður gefinn frjáls. Við eðlilegar aðstæður er frjáls gengismarkaður eðlilegur og æskilegur. Fjármagnsmarkaðurinn var hins vegar óeðlilegur hérlendis vegna ríkjandi aðstæðna. 1) Eftirspurn var langt umfram framboð, svo að líkja mátti markaðnum við einokun. Sumir nefna þetta fákeppni. 2) Vaxtakerfið náði ekki aðlögun. Jafnvægi framboðs og eftir- spurnar náðist ekki vegna: a) Halli ríkissjóðs var mikill og ríkissjóður sótti 5-6000 milljón- ir á þennan yfirspennta markað þegar honum hentaði. b) Gengisstefnan setti atvinnu- lífið í bóndabeygju og stórjók eftirspurn eftir fjármagni. 3) Lánskjaravísitalan var og er röng. Verðtryggða íslenska krónan reyndist sterkasti gjald- miðill veraldar, en grunnur hennar er byggður á reglugerð en ekki þjóðarframleiðslu. 4) Raunvextir, reiknaðir ofan á lánskjaravísitölu, eru auðvitað allt of háir og ekki sambærilegir við það sem gerist erlendis. 5) íslenski lánsfjármarkaðurinn er lokaður og íslenskt lánsfé þarf ekki að keppa við erlent svipað og innlendur iðnaður þarf að keppa við innflutning. Hvað er framundan? Núverandi ástand er tímabund- ið. Við þurfum að komast út úr því með markvissum aðgerðum. íslendingar mega ekki festast í verðlagseftirliti og launahömlum og varast verður að afleiðingar stjórnar Þorsteins Pálssonar verði til þess að ríkið taki við atvinnuveg- um gegnum hlutafjársjóð. Nú mega menn gæta sín að þrengja ekki svo að orkufyrirtækj- unum að þau fari eins og útflutn- ingsgreinamar. Guðmundur G. Þórarinsson. 1) Gengisstefnan er aðalatriði. Það er röng fullyrðing að gengið sé afgangsstærð. Gengið er grunnatriði í efnahagsstefn- unni. Eina raunhæfa gengis- stefnan er sú gengisskráning sem gefur útflutningsatvinnu- vegunum stöðug starfsskilyrði. 2) Stýra verður fjármagnsmarkaði þar til hann hefur verið opnaður og raunveruleg samkeppni ríkir. Eðlilegt er að láta innlent fjármálakerfi keppa við erlenda banka. íslenskir framleiðendur verða að fá að taka lánin þar sem þau eru hagstæðust. Ella geta þeir ekki keppt á erlendum mörkuðum. 3) Svo fljótt sem auðið er verður að koma á frjálsri verðmyndun. Gengisrugl liðinna ára má ekki verða til þess að íslendingar hverfi inn í fortíð verðlagseftir- lits og ríkisafskipta. 4) Treysta verður aðilum vinnu- markaðarins til að gera ábyrga launasamninga. Eðlilegt ástand á launamarkaði þarf að nást hið fyrsta. 5) Snúa verður þróuninni við þannig að útflutningsatvinnu- vegirnir geti á ný byggt upp eigið fé. Atvinnureksturinn á samkvæmt stefnu Framsóknar- flokksins að vera í höndum einstaklinga og félaga þeirra. Ríkið mótar hinn almenna grundvöll og umhverfi en tekur aðeins í undantekningartilvik- um þátt í atvinnulífinu. Ljóst er að þörf er markvissrar efnahagsstefnu er tekur við af „nauðvörninni". Framsóknarflokkurinn þarf að hafa forystu um þessa stefnumörk- un.

x

Tíminn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.