Tíminn - 10.02.1989, Síða 19

Tíminn - 10.02.1989, Síða 19
< l « W' < '•J \ 1 _______________________- .........: Föstudagur ÍÓ. febrúar 1989 Tíminn 19 .irvnuo Æ* ÞJÓÐLEIKHÚSIÐ Þjóðleikhúsið og íslenska óperan sýna 3RjSDtníí;rt ibojfmann^ ópera eftir Otfenbach i kvöld kl. 20.00 Sunnudag kl. 20.00 Föstudag 17. febr. kl. 20.00 Laugardag 18. febr. kl. 20.00 Föstudag 24. febr. kl. 20.00 Sunnudag 26. febr. kl. 20.00 Leikhúsgestir á sýninguna sem felld var niður s.l. sunnudag vegna óveöurs, vinsamlegast hafið samband við miðasölu fyrir 16. febrúar til að fá aðra miða eða endurgreiðslu. Sýningum lýkur í byrjun mars ÓVITAR barnaleikrit eftir Guðrúnu Helgadóttur Ath! Sýningarnar hefjast kl. tvö eftir hadegi. Laugardag. kl. 14. Uppselt Sunnudag kl. 14. Uppselt Laugardag 18. febr. kl. 14 Sunnudag 19. febr. kl. 14. Uppselt Fimmtudag 23. febr. kl. 16 Laugardag 25. febr. kl. 14 Sunnudag 26. febr. kl. 14 Laugardag 4. mars kl. 14 Sunnudag5. marskl. 14 Laugardag 11. mars kl. 14 Sunnudag 12. mars kl. 14 Háskaleg kynni leikrit eftir Christopher Hampton byggt á skáldsögunni Les liaisons dangereuses eftir Laclos. Laugardag kl. 20.00. Frumsýning Miðvikudag 2. sýning Sunnudag 19. febr. 3. sýning Laugardag 25. febr. 4. sýning Kortagestir ath. Þessi sýning kemur í stað listdans i febrúar. Stóra sviðið: Fjalla-Eyvindur og kona hans leikrit eftir Jóhann Sigurjónsson Fimmtudag 16. febr. kl. 20.00. Næst síðasta sýning Föstudag 17. febr. kl. 20.00. Siðasta sýning. Uppselt Miðasala Þjóðleikhússins er opin alla daga nema mánudaga kl. 13-20. Símapantanireinnig virka daga kl. 10-12. Sími11200. Leikhuskjaltarinn er opinn öl! sýningarkvöld frá kl. 18.00. Leikhúsveisla Þjóðleikhússins: Máltiðog miði á gjafverði. VISA SAMKORT EURO mæM i.iíikfííiac 3(2 22 RHYKJAViKlJR SVEITASINFÓNÍA eftir Ragnar Arnalds /fd Tónlist: Atli Heimir Sveinsson Leikmynd og búningar: Sigurjón Jóhannsson Leikstjóri: Þórhallur Sigurðsson I kvöld kl. 20.30. Uppselt 60. sýning laugardag 11. febr. kl. 20.30. Uppselt Sunnudag 12. febr. kl. 20.30 Þriðjudag 14. febr. kl. 20.30 Fimmtudag 16. febr kl. 20.30 eftir Göran Tunström Ath. breyttan sýningartima I kvöld kl. 20.00. Uppselt Miðvikudag 15. febr. kl. 20.00 Laugardag 18. febr. kl. 20.00. Uppselt Sunnudag 19. febr. kl. 20.00. Uppselt Miðvikudag 22. febr. kl. 20.00 Föstudag 24. febr. kl. 20.00. Uppselt Sunnudag 26. febr. kl. 20.00 Þriðjudag 28. febr. kl. 20.00 Miðasala i Iðnó sími 16620 Miðasalan í Iðnó er opin daglega kl. 14-19 og fram að sýningu þá daga sem leikið er. Simapantanir virka daga frá kl. 10-12. Einnig símsala með VISA og EUROCARD á sama tima. Nú er verið að taka á móti pöntunum til 21. mars 1989. I I I I NEMENDA LEIKHÚSIÐ LEIKUSTABSKOU tSLAHOS I UNDARBÆ sm »971 „Og mærin fór í dansinn...“ eftir Debbie Horsfield 8. sýning föstudag 10. febr. kl. 20 9. sýning laugardag 11. febr. kl. 20 Miðapantanir allan sólarhringinn í sima 21971. ! - Mér þykir leitt aö veröa aö tilkynna þér að sumarleyfið þitt byggist á villu í tölvunni! Daryl og stjórnmálin Úthfutað gullhnöttum: Sigourney Weaver hlýtur tvenn „Golden Globe“ Hún ergjarnan kölluð Jane Fonda níunda áratugsins en hin hávaxna, ljóshærða Daryl Hannah er ekkert hrifin af samlíkingunni. - Þó ég sé virk í stjórnmálum þarf ég ekki að líkjast Jane, segir hún. - Hins vegar tala ég fyrir þeim málefnum sem ég hef áhuga á, rétt eins og hún. Daryl hefur líka verið köll- uð ný Marilyn Monroe síðan hún skvetti til sporðinum í Disney-mynd fyrir fjórum árum og varð fyrir vikið ein eftirsóttasta Ijóskan í Holly- wood. Hún sást í nokkrum myndum áður en „Splash“ vakti á henni athygli. Nú segist Daryl framvegis reyna að velja kvikmyndir sem hafa einhvern boðskap, fremur en að gefa vel í aðra hönd. Daryl er 27 ára og rúmlega 175 sm á hæð. Um þessar mundir er víða verið að frum- sýna nýjustu mynd hennar „High Spirits" þar sem hún leikur á móti Peter O’Toole og Steven Guttenberg. Þar er fjallað um umhverfismengun og hvernig peningaöfl ráða því að heimurinn er að verða ein svínastía. Daryl er góð vinkona Johns Kennedy yngri sem ætlar að feta í fótspor föður síns sem talsmaður demókrata. Hún hefur mikinn áhuga á málefnum E1 Salvador og hef- ur farið þangað tvisvar og hlustað á talsmenn beggja aðila deilunnar og kynnt sér ástandið í landinu. - Þegar ég hugsa um hvern- ig skattpeningunum mínum er eytt, get ég orðið galin, segir hún. - Kvikmyndir eru miðill sem ætti að nota til að opna augu fólks fyrir sann- leikanum að baki málum eins og E1 Salvador. Gera ætti mun fleiri slíkar myndir. Vegna afskipta sinna af stjórnmálum hefur Daryl oft- lega verið orðuð við John Kennedy en þau eru bara góðir vinir. - Ég ræði yfirleitt ekki einkalíf mitt, svarar Daryl, - en ég get alveg sagt að við Jackson Browne erum ánægð saman og meira segi ég ekki. Hún hefur búið í 5 ár með hljómlistarmanninum og eiga þau ósköp venjulegt heimili í Hollywood-hæðum ofan við Los Angeles. Þau stunda ekki ljúfa lífið og halda sig mest heima, þar sem þau segjast vera nátt- hrafnar hinir mestu, horfði gjarnan á sjónvarp og mynd- bönd alla nóttina og sofi svo á daginn. Daryl ólst upp í Chicago sem ein af níu systkinum í sameinaðri fjölskyldu. Móðir hennar er kennari, fráskilin og gift aftur. Átta ára kom Daryl fram í sjónvarpsauglýs- ingu og sjö árum seinna í sinni fyrstu kvikmynd, þar sem hún sagði aðeins eitt skammaryrði. - Mig dreymdi alltaf um að leika, en aldrei hvarflaði að mér að ég yrði neitt annað en skapgerðarleikkona með þetta útlit. í skóla var ég ýmist kölluð tannstöngullinn eða baunagrasið. Ég var löng og mjó og með hræðilega minnimáttarkennd vegna út- litsins. Fótleggirnir á mér voru engu líkir, eins og leggir á hesti, með kúluhnjám. Engum dettur í hug að segja það um fótleggi Daryl núna. Hún hefur komist langt á þeim. Hér er Daryl með Steve Guttenberg í „High Spirits.“ verðlaun Sl. laugardag var „Golden Globe" verðlaununum út- hlutað í Hollywood. Frétt- næmast af þeirri verðlaun- aveitingu var sú staðreynd að ein leikkona hlaut tvo „Gull- hnetti“; Sigourney Weaver fékk verðlaun fyrir leik sinn í myndinni „í þokumistrinu", sem nú er sýnd í Bíóborginni og sömuleiðis fyrir myndina „Working Girl“. Golden Globe verðlaunum er úthlutað árlega af erlend- um fréttamönnum, þ.e. meðlimum í „Hollywood Foreign Press Association", og þykja þau oft vera undan- fari Oscars-verðlaunanna eftirsóttu. Weaver, sem er 39 ára, sagði: „Ég fékk mikið út úr því að leika í „Gorillas in the Mist“. Ég vildi helst skipta verðlaununum með górilla- öpunum, vinum mínurn, -en það er ekki hægt að borða verðlaunin og ekki hægt að búa sér bæli í þeim, svo ég held þeim bara sjálf. En ég vil minnast vinanna í Afríku, bæði manna og dýra.“ Sigourney Weaver gengur allt í haginn | um þessar niundir, enda er hún broshýr á svipinn. Daryl Hannah er langt frá að vera heimsk Ijóska. Hún er virk í stjómmálum og líkt við Jane Fonda.

x

Tíminn

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.