Tíminn - 23.02.1989, Side 4
4 Tíminn
Fimmtudagur 23. febrúar 1989
Tónleikar Kammersveitar Reykjavíkur, sem
fagnar 15 ára afmæli um þessar mundir:
Viðamesta
verkefnið
til þessa
í kvöld frumflytur Kammersveit Reykjavíkur hljómsveitar-
verkið Des Canyons aux Etoiles, „Frá gljúfrunum til
stjarnanna“, í Langholtskirkju.
Höfundur verksins er franska tónskáldið Olivier Messiaen.
Verkið er í tólf þáttum, samið fyrir 40 manna hljómsveit og
fjóra einleikara. Það var samið á fyrrihluta áttunda áratugar-
ins í tilefni tvö hundruð ára afmælis bandarísku stjórnarskrár-
innar.
Kammersveitin hefur undanfarið
aðeins flutt verk eftir franska höf-
unda. Er það í tilefni tvö hundruð
ára afmælis frönsku stjórnarbylting-
arinnar. í apríl verður síðan frum-
flutt verk fransks flautuleikara sem
búsettur er hér á landi, Martial
Nardeau. Pá verða á efnisskránni
fleiri verk, öll eftir franska höfunda.
Sveitin fagnar í ár fimmtán ára
afmæli sínu með því að taka þetta
viðamikia verk Messiaens til
flutnings. En þetta er stærsta verk
sem Kammersveitin hefur nokkru
sinni ráðist í flutning á.
„Þetta er stórkostlegt og ótrúlega
magnað verk,“ sagði Rut Ingólfs-
dóttir konsertmeistari og formaður
Kammersveitarinnar. „Verkið er
eins og flest verka Messiaens tii-
beiðsla til guðs og sköpunarinnar. í
því er til dæmis mikið um fuglasöng.
Titillinn vísar til gljúfranna í Utah í
Bandaríkjunum og stjarnanna.
Höfundurinn varð áttræður um síð-
ustu jól. Þegar við vorum að leita að
verki til að fagna afmælinu hans
fundum við þetta, en Messiaen hefur
ekki samið mjög mikið af kammer-
verkum."
Kammersveitin bauð verkið fram
til listahátíðar í fyrra en fékk neitun.
Þau vildu ekki hætta við að flytja
það, tóku sig til og æfðu verkið í
sjálfboðavinnu, án nokkurra launa.
Stjórnandi sveitarinnar er Paul
Zukofsky sem er íslendingum vel
kunnur. En hann hefur mikið starfað
með Kammersveitinni á síðustu
árum auk þess að stjórna Sinfóníu-
hljómsveit æskunnar.
Tónleikamir í kvöld hefjast
klukkan hálf níu en þetta verk
Messiaens verður aðeins flutt einu
sinni. jkb
Frá æfingu Kammersveitar Reykja-
víkur á verkinu Des Canyons aux
Etoiles eftir Olivier Messiaen.
Tímamynd: Ámi Bjama
Frumvarp lagt fram á Alþingi er gerir Grænlendingum og
Færeyingum auðveldara að landa afla á íslandi:
Ráðherraleyfi
verði afnumið
Þingmennirnir Ólafur Þ.
Þórðarson og Kjartan Jó-
hannsson hafa lagt fram
frumvarp er felur í sér að
grænlenskum og færeysk-
um fiskiskipum sé heimilt
að landa afla sínum í ís-
lenskum höfnum án sér-
staks leyfi ráðherra. Sam-
kvæmt ákvæðum 65 ára
gamalla laga er öll löndun
erlendra skipa her á landi
óheimil nema með ráð-
herraleyfi.
1 greinargerð er bent á stóraukin
viðskipti íslendinga við Grænlend-
inga og Færeyinga á undanfömum
árum. Þar er einnig minnt á að þótt
samanlagður íbúafjöldi þessara
tveggja þjóða sé tæpur helmingur
af íbúatölu íslands hafi komið í
ljós að þar sé að finna mikilvæga
markaði fyrir íslenskar iðnaðarvör-
ur, m.a. vegna þess að vinátta
þessara þjóða í okkar garð sé
einlæg og þær velji að skipta við
okkur frekar en við aðrar þjóðir að
öllu jöfnu. Þessu til rökstuðnings
Ólafur Þ. Þórðarson, alþm.
er bent á aukin þátt Flugleiða við
að tryggja samgöngur til Græn-
lands og Færeyja og vaxandi umsvif
íslenskara verktakafyrirtækja í'
löndunum tveimur.
Áframhaldandi uppbygging sé
Kjartan Jóhannsson, alþm.
eðlileg og beggja hagur. Það sé
hagkvæmt bæði fyrir Grænlend-
inga og Færeyinga að landa afla
sínum á íslandi og aukin löndun
skapi aukna atvinnu í íslenskum
sjávarþorpum. -ág
Glit hf. setur á markaðinn:
Olkollur og
drykkjuvísur
Með komu bjórsins reynist nauð-
synlegt að grafa upp það í íslenskri
menningu sem mögulega getur
tengst áfengu öli.
Glit hf. gerir sitt besta og hefur nú
sett á markaðinn sérstakar bjórkoll-
ur hannaðar í listasmiðju fyrirtækis-
ins. Kollurnar eru skreyttar land-
vættunum okkar og íslenskum vísum
sem tengjast ölteiti.
Kollunum fylgir lítið kver með
ýmsum fróðleiksmolum um bjór og
drykkjuvísum. Vísurnar eru eftir
nafnkunna fslendinga eins og Vatns-
enda-Rósu, Káin, Hallgrím Péturs-
son og fleiri. Blaðsíður aftasta hluta
kversins eru merktar; fyrsta kolla,
önnur kolla og svo framvegis upp í
auka auka kollu. Þar eru gefnar
heppilegar hugmyndir að fleiri söng-
lögum íslenskum og erlendum.
jkb
Ráðstefna um gróðurvernd á Húsavík:
Gróðri að hnigna
í landi bæjarins
Þann fjórða mars verður haldin
ráðstefna um uppgræðslu og land-
nýtingu á Húsavíkurlandi. Ráðstefn-
an er haldin á vegum Iðnþróunarfé-
lags Þingeyinga.
Skógræktar- og önnur gróður-
vemdarmál eru víða í brennidepli.
Húsvíkingar standa nú frammi fyrir
því að land sem tilheyrir kaupstaðn-
um er illa farið og fer hnignandi í
gróðurfarslegu tilliti. Þar í bæ er
mikill áhugi á að koma þessum
málum í það horf að allir geti nýtt
landgæðin sem til boða standa. Til-
gangur ráðstefnunnar er að vekja
áhuga bæjarbúa á umhverfi sínu og
gefa þeim kost á að fræðast um þessi
mál frá öllum sjónarhornum.
í kjölfar ráðstefnunnar er fyrir-
hugað að stofna samtök félaga og
einstaklinga um gróðurvernd, land-
græðslu og landnýtijigu. Haft hefur
verið samband við fulltrúa svo til
allra félaga og félágasamtaka sem
starfa á Húsavík vegna þessa. Ráð-
stefnan er öllum opin og hefur
sveitarstjórnum vítt og breitt verið
boðið að senda fulltrúa á hana.
Vonir standa til að ráðstefnan
verði upphaf víðtækrar samstöðu
um gróðurvemd og uppgræðslu
landsins, framtak þetta á Húsavík
verði til þess að fleiri fylgi í kjölfarið
með átaki í þessum málum. jkb