Tíminn - 23.02.1989, Blaðsíða 10
10 Tíminn
Fimmtudagur 23. febrúar 1989
Fimmtudagur 23. febrúar 1989
Tíminn 11
1 Iþróttir
íPHf fí;
iiíliii'llillliill
ÍÞRÓTTIR
Enska knattspyrnan:
Toppliðin Arsenal og
Norwich töpuðu bæði
Fjórði ósigur Arsenal og Norwich
í 1. deild ensku knattspyrnunnar í
vetur var staðreynd í fyrrakvöld.
Arsenal tapaði 0-1 fyrir Coventry á
útivelli, en Norwich tapaði 1-2 fyrir
Tottenham á White Hart Line,
heimavelli Spurs.
Tap Arsenal er það fyrsta í 12
tleildarleikjum, en liðið hefur enn
fjögurra stiga forystu í deildinni.
Fyrirliði Coventry, Brian Kilcline,
kom mikið við sögu í lciknum.
Honum mistókst að skora úr víta-
spyrnu á fyrstu mín. leiksins. Mark-
vörður Arsenal John Lukic varði þá
með fótunum, en þegar 8 mín. voru
til leiksloka tókst honum ekki að
koma neinum vörnurn við er Kilcline
tók aðra vítaspyrnu. Hún var dæmd
á Steve Bould fyrir að handleika
knöttinn innan vítateigs eftir auka-
spyrnu Brians Borrows. Kilcline
sendi knöttinn örugglega í netið
hægra megin við Lukic. Með þessum
sigri er Coventry komið í þriðja sæti
deildarinnar 11 stigum á eftir Arsen-
al og 78 stigum á eftir Norwich.
Paul Gascoigne náði forystunni
fyrir Tottenham á móti Norwich
með marki á 13. mín. Trevor Putney
jafnaði leikinn á 52. mín. er hann
fékk boltann eftir að hinn norski
markvörður Tottenham, Erik
Thorstvedt hafði hálfvarið skot frá
Dale Gordon. Enski landsliðsmað-
urinn Chris Waddle gerði varnar-
mönnum Norwich lífið leitt allan
leikinn og það var einmitt hann sem
gerði sigurmark Tottenham á 65.
mín. úr þröngu færi. Þar með tapaði
Norwich sínum öðrum útileik á
þessu keppnistímabili. Tottenham
skaust upp fyrir mesta botnsvæðið í
deildinni með þessum sigri og í 11.
sæti 1. deildarinnar.
Millwall er enn eitt Öskubuskulið-
ið í 1. deildinni í vetur. Liðið hafði
fyrir leikina í fyrrakvöld tapað þrem-
ur heimaleikjum í röð, en nú snerist
gæfan þeim í vil og liðið vann 2-0
sigur á Middlesbrough. Les Briley
og sjálfsmark Tony Mowbray gerðu
þar gæfumuninn. Milwall er nú í
fimmta sæti deildarinnar.
Skiöaganga:
Úrslitin i 1. deild: / 4
Coventry-Arsenal . . . . . . , . . ... 1-0
Millwall-Middlesbrough . . . . . . ...2-0
Tottenham-Norwich . ... 2-1
Úrslitin í 2. deild: Jj/
Blackburn-Oxford . . . . . . . . . . . . ... 3-1
Ipswich-Barnsley
Úrslitin í skosku úrvalsdeildinni:
St. Mirren-Hibemian ... Staðan í 1. deild: ... 3-1
Arsenal 25 15 6 4 50-25 51
Norwich 25 13 8 4 37-27 47
Coventry 25 11 7 7 34-25 40
Manchester Utd. . . . 20 10 9 5 34-19 39
Nottingham Forest. 24 9 11 4 34-26 38
Liverpool 23 9 9 5 30-20 36
Derby 23 10 5 8 26-18 35
Everton 24 8 9 7 29-26 33
Wimbledon 23 9 5 9 27-30 32
Tottenham 25 7 9 9 36-37 30
Aston Villa 25 7 9 9 34-38 30
Middlesbrough .. . . 25 8 6 11 30-38 30
Luton 24 7 8 9 27-29 29
Southampton 25 6 10 9 37-47 28
Q.P.R 25 6 8 11 24-24 26
Charlton 24 5 9 10 26-35 24
Sheff. Wednesday . 24 5 9 10 19-34 24
Newcastle 24 5 6 13 21-43 21
West Ham 23 4 5 14 20-41 17 BL
Einar Olafsson hafði
sigur í 30 km göngu
Um síðustu helgi var haldið á
Akureyri bikarmót í skíðagöngu,
svokallað Visa-bikarmót. Keppt var
í karlaflokki og unglingaflokkum
stúlkna og pilta. í aðalgöngu
mötsins, 30 km göngu karla sigraði
hinn reyndi göngumaður Einar
Ólafsson frá ísafirði.
Einar gekk manna best og kom
lang fyrstur í mark á 1:47,17 klst.
Sigurgcir Svavarsson frá Ólafsfirði
kom annar í mark á 1:51,08 klst. og
þriðji varð Sigurður Aðalsteinsson
frá Akureyri á 1:58,56 klst. Siglfirð-
ingarnir Ólafur Valsson og Baldur
Hermannsson luku ekki keppni.
Úrslit í 15 km göngu 17-19 ára
pilta:
1. Sveinn I rauslason Flj. 58,55 sck.
2. Óskar Jukohsson ísaf... 1:00,57 mín.
5 km ganga 13*14 ára pilta:
1. Kristján liauksson Ólafsf.
2. Tryggvi Sigurðsson Ólafs. . .
3. Ásgrímur S.Þorsteinss. Ó. .
4. Gísli Árnason ísafirði ....
5. Árni F. Flíasson ísaf......
6. Kári Jóhannesson Ak ....
7. Bergur Hjörnsson Ólafsf. . .
8. Halldór Óskarsson Ólafsf. .
9. Bjartmar Gudmundsson ól.
10. Arínbjörn Þórarínsson A. .
11. Dagur Gunnarsson Sigl ....... 28,04 m.
12. Már örlygsson Sigluf.........28,16 m.
13. Óskar Pétursson Sigluf ...... 30,50 m.
7.5 km ganga 15-16 ára pilta:
1. Daniel Jakobsson ísaf........ 29.29 mín.
2. Guömundur Óskarsson Ól. . . . 30,23 mín.
3. Bjarni Brynjólfsson ís....... 30,29 mín.
4. Gísli Valsson Sigluf ........31,25 mín.
5. Sigurdur Sverrisson S........ 33,23 mín.
6. Sigurður Helgason Ak......... 35,53 mín.
7. Kristján Ó. Ólafsson A....... 36,00 mín.
8. Steingrímur Þorg. Ak.........38,51 mín.
9. Hrólfur M. Krístinss.A....... 45,30 mín.
2.5 km ganga 13-14 ára stúlkna:
1. Hulda Magnúsdóttir S... 14,34 mín.
2. Guöbjörg Siguröard.ís........16,42 mín.
3. Sólvcig Valgeirsdótt.A.......18,24 mín.
í 3x5 km boðgöngu 15-16 ára
sigraði sveit Siglfirðinga á 62,37
mín. í sveitinni voru Hulda Magnús-
dóttir, Sigurður Sverrisson og Gísli
Valsson. Önnur varð sveit Akureyr-
inga, skipuð þeim Steingrími Þor-
geirssyni, Sigurði Helgasyni og
Kristjáni Ólafssyni á 65,58 mín.
A-sveit Ólafsfirðinga sigraði í
3x3,5 km boðgöngu 13-14 ára
drengja, gekk samtals á 45,00 mín.
Sveitinaskipuðu Kristján Hauksson,
Ásgrímur Þorsteinsson og Tryggvi
Sigurðsson. B-sveit Ólafsfirðinga
varð í öðru sæti á 46,56 mín., þriðja
varð sveit ísfirðinga á 48,15 mín.
fjórða varð Akureyrarsveitin á 51,57
mín og sveit Siglfirðinga rak lestina
á 55,38 mín.
Loks urðu Siglfirðingar hlutskarp-
astir í 3x7,5 km göngu karla. Sveitin
gekk á 79,08 mín. en í henni voru
Ólafur Valsson, Sölvi Sölvason og
Baldur Hermannsson. Sveit Isfirð-
inga skipuð þein. Óskari Jakobssyni,
Einari Ólafssym og Daníel Jak-
obssyni, á 79,38 mín. Ólafsfirðingar
urðu í þriðja sæti á 82,19 mín.
Blönduð sveit skipuð Sveini Trausta-
syni, Bjarna Brynjólfssyni og Sigurði
Bjarklind varð í fjórða sæti á 85,43
mín. og sveit Akureyrar varð í
fimmta sæti á 86,,04 mín. BL
Einar Ólafsson sigraði í bikargöng-
unni á Akureyri uni síðustu helgi.
Madrid. Real Madrid frá Spáni
vann síðari leik sinn í undanúrslitum
Evrópukeppni bikarhafa gegn Ci-
bona Zagreb frá Júgóslavíu í fyrra-
kvöld 119-97. Þar með er Rcal
Madrid komið í úrslit keppninnar
með 211-188 samanlagða stigatölu.
Staðan í hálfleik í fyrrakvöld var
57-43. Mikið skorað hjá þessum
stóru liðum.
New York. Og yfir í atvinnu-
mannadeildina í Bandaríkjunum.
Úrslitin í fyrrakvöld í NBA-deild-
inni urðu þessi:
New York Kn.-Houston Rockets . 120-115
Washington Bullets-L.A.Clipp. . . 123-109
Seattle Supers.-Boston Celtics .... 96-91
Milwaukee Bucks-Indinana Pac. . . . 116-90
Phoenix Suns-Golden State Wa. . . 138-121
New York. Bandaríska frjáls-
íþróttakonan Florenca Griffith Jo-
yner, fljótasta kona heims, hlaut á
gær Jesse Owens verðlaunin 1989.
Aðrir íþróttamenn sem komu til
álita í valinu voru bandaríski sund-
maðurinn Matt Biondi, og v-þýska
tennisstjarnan Steffi Graf. Verð-
launin eru veitt þeim einstaklingi
sem bestum árangri nær í íþrótt sinni
og eykur skilning og samvinnu þjóða
á milli. Meðal íþróttamanna sem
unnið hafa þessi verðlaun á síðustu
árum eru Ben Johnson, Carl Lewis,
Greg Louganis og Edwin Moses.
Köln. Pólski landsliðsmaðurinn í
knattspyrnu, Andrzej Rudy, sem
flúði til Vesturlanda er hann var á
keppnisferðalagi með pólska lands-
liðinu í nóvember sl. hefur gert
samning við lið Kölnar í v-þýsku
Bundesligunni. Rudy fær ekki að
leika með Kölnarliðinu fyrr en í
fyrsta lagi á næsta keppnistímabili
þar sem hann var settur í bann fyrir
athæfi sitt. í júní n.k. verður fundur
hjá FIFA, þar sem reynt verður að
fá keppnisleyfi fyrir kappann.
Guðmundur Guðmundsson hefur leikið mjög vel í Frakklandi, eftir að hafa orðið fyrír meiðslum í upphafi mótsins. Hér er Guðmundur í kunnuglegrí stellingu í leik gegn Alsir
á Ólympíuleikunum í Seoul. Tiau^d: Fjco
Handknattleikur:
LEIKURISLAND TIL
ÚRSLITA í PARÍS?
Frammistaða íslenska landsliðsins í
handknattleik í B-keppninni í handknatt-
leik í Frakklandi hefur vakið mikla
athygli og jafnvel komið mönnum á
óvart, því bjartsýni manna var í lágmarki
fyrir keppnina. Eftir brösótt gengi á
síöasta ári hefur liðið náð að rífa sig upp
og sigra í mikilvægustu leikjunum í
keppninni.
Leikirnir á móti V-Þjóðverjum og
Svisslendingum voru mjög vel leiknir og
hin mikla leikreynsla liðsins kom berlega
í Ijós. Þetta voru leikir sem urðu að
vinnast ef ísland ætlaði að endurheimta
sæti sitt í A-keppninni.
Oft hefur viljað brenna við að liðið hafi
átt misjafna leiki á stórmótum, en í
B-keppninni í Frakklandi hefur liðið átt
vaxandi leiki og slæmi leikurinn er enn
ekki kominn. Sigrar liðsins á Búlgörum
og Kuwait-mönnum voru mjög öruggir,
en liðið hefur stundum átt í basli með að
leika gegn sér lakari þjóðum.
Þá hefur oft verið talað um að sviss-
neska liðið sé skör neðar en það íslenska,
en í B-keppninni í Frakklandi hefur
berlega komið í ljós að liðið er komið til
að vera og miklar líkur eru á því að Sviss
verði nú A-þjóð í handknattleik. Talað
ér um að liðið leiki leiðinlegan hand-
knattleik, en Jpað er árangurinn sem öllu
rnáli skiptir. 1 kvöld leika Sisslendingar
gegn Rúmenum og úrslitin í þeim leik
skipta miklu máli fyrir íslenska liðið.
Jafntefli í leiknum væru hagstæðustu
úrslitin fyrir Island.
Þó skipta úrslitin í kvöld einnig miklu
máli fyrir V-Þjóðverja, sem virðast beita
öllum brögðum til þess að komast í
A-keppnina. Þjóðverjarnir eiga að leika
gegn Búlgörum í kvöld og vinni þeir stórt
og Svisslendingar tapa fyrir Rúmeníu, þá
gætu þeir komist upp fyrir Sviss á töflunni
og komist í A-keppnina á þeirra kostnað.
En leikurinn sem öllu skiptir í kvöld
fyrir okkur íslendinga er leikurinn gegn
Hollendingum. Hollenska liðið er ekki
líklegt til afreka, en varast ber að van-
meta þá. Liðið hefur ekki unnið leik í
milliriðlinum og markatala þeirra er 39
mörk í mínus úr fjórum leikjum. Það
þýðir að liðið hefur tapað með tæplega
10 marka mun í leikjum sínum. Verði
það dæmigerða uppá teningunum í
kvöld, að Island vinni með 10 mörkum
gæti það dugað okkar mönnum til þess að
komast í efsta sætið í milliriðlinum og þar
með í úrslitaleik keppninnar, en leikið
verður um sæti í París. Vinni Rúmenía
Sviss með 1 marki og ísland vinnur
Holland með 10 mörkum eins og áður
segir, þá dugar það íslandi í efsta sætið.
Vinni Rúmenía stærri sigur þarf ísland
að bæta við markatöluna gegn Hollandi.
Fari svo að Sviss vinni Holland þarf
Island áðeins að vinna Holland með
tveimur mörkum betur en Sviss vinnur
Rúmeníu. Eins og áður segir yrði j afntefli
í leik Sviss og Rúmeníu hagstæðustu
úrslitin fyrir ísland.
Stórslys eins og tap íslands fyrir Hol-
Iandi gæti kostað okkur A-sætið, til þess
að þetta gangi eftir þarf V-Þýskaland að
vinna Búlgaríu og úrslitin í leik Rúmeníu
og Sviss skipta þá ekki máli, nema ef
Sviss tapar stórt, þá komast þeir ekki í
A-keppnina.
En leikurinn gegn Hollandi í kvöld er
lykillinn að áframhaldandi velgengni fs-
lands á handknattleiksvellinum. Það er
erfitt að þurfa að vinna með rúmlega 10
marka mun, en það ætti þó að vera
raunhæft markmið í leiknum. Bein út-
sending hefst í sjónvarpinu kl. 17.00.
BL
Blak:
Urslitað hefjast
Úrslitakcppni Islandsmotsins í blaki
karla og kvenna hefst um næstu helgi
er leiknar verða tvær heilar umferðir í
Hagaskóla og Digranesi.
Urslitakeppnin er með því fyrir-
komulagi að 4 efstu liðin í dcildar-
keppninni leika tvöfalda umferð í ur-
slitakeppninni, sem kallast úrvalsdeild.
KA varð sem kunnugt er deildarmeist-
ari með fullt hús stiga, en ásamt þeim
leika í úrvalsdeildinni Þróttur, IS og
HK. f kvennaflokki leika einnig fjögur
lið, Víkingur, ÍS, UBK og Þróttur
Neskaupstað.
Kcppnin hefst í Hagaskóla á laugar-
dag er ÍS og Þróttur leika kl. 14.00.
Strax á eftir leika í kvennaflokki Vík-
ingur og Þróttur Neskaupstað. Keppn-
inni verður síðan framhaldið á sunnu-
daginn í Digranesi í Kópavogi. Þá
leika HK og KA í karlaflokki kl. 14.00
og 15.45 leika UBK og ÍS í kvenna-
flokki. BI.
iESTUNARAÆILUN
Skip Sambandsins
munu ferma til íslands
á næstunni sem hér
segir:
Árhus:
Alla þriðjudaga
Svendborg:
Annan hvern þriðjudag
Kaupmannahöfn:
Alla miðvikudaga
Gautaborg:
Annan hvern föstudag
Varberg:
Alla fimmtudaga
Moss:
Alla laugardaga
Larvik:
Annan hvern laugardag
Hull:
Alla mánudaga
Antwerpen:
Alla þriðjudaga
Rotterdam:
Alla þriðjudaga
Hamborg:
Alla miðvikudaga
Helsinki:
Schouwenbank....... 1/3
Gloucester/Boston:
Alla þriðjudaga
New York:
Alla föstudaga
Portsmouth/Norfolk:
Alla sunnudaga
1*
SKIPADEILD
SAMBANDSJNS
LINDARGOTU 9A • 101 REYKJAVlK
SlMI 698100
A Á A 1 1
■'AKN TRAtJSTRA HUHNINGA
ITT
litasjönvarp
er Qárfestíng
ív-þýskum
gseðumog
fallegum
ITlltum
FÉLAGSMÁLASKÓLI
Gissur Pétursson
Egill H. Gislason
Finnur Ingólfsson
Arnar Bjarnason
Hrólfur Ölvisson
Helgi Pétursson
Samband ungra framsóknarmanna og Kjördæmissambönd
Framsóknarflokksins hafa ákveöiö að fara á staö meö
Félagsmálaskóla þar sem boöiö verður uppá eftirfarandi
námskeiö:
A. Grunnnámskeið í félagsmálum:
Efni: Fundarsköp og ræðumennska, tillögugerð, stefnumál
Framsóknarflokksins o.fl.
Tímalengd: 8 klst.
Leiðbeinendur verða: Gissur Pétursson, Egill Heiöar Gísla-
son, Finnurlngólfsson, Arnar Bjarnason og HrólfurÖlvisson.
Stefnt er aö því aö halda námskeiðið í febrúar og mars á
eftirtöldum stööum ef næg þátttaka fæst: Reykjavík, Keflavík,
Selfoss, Vestmannaeyjar, Höfn, Egilsstöðum, Akureyri, Sauö-
árkróki, ísafirði, Ólafsvík og Akranesi.
B. Fjölmiðlanámskeið:
Efni: Framkoma í sjónvarpi og útvarp. Undirstöðuatriöi í
frétta- og greinaskrifum. Áhrif fjölmiöla.
Tímalengd: 16 klst.
Leiðbeinandi: Helgi Pétursson, fréttamaður. Stefnt er aö því
að halda námskeið í Reykjavík og á Akureyri.
Þeir aöilar sem hafa áhuga á þessum námskeiðum eru hvattir
til aö hafa samband viö eftirtalda aöila:
Reykjavík: Skrifstofa Framsóknarflokksins, s. 91-24480
Reykjanes: Ágúst B. Karlsson, sími 91-52907
Vesturland: Bjarni Guömundsson, sími 70068
Vestfirðir: Siguröur Viggósson, sími 94-1389
Norðurland vestra: Bogi Sigurbjörnsson, sími 95-71527
Norðurland eystra: Snorri Finnlaugsson, sími 96-61645
Austurland: Ólafur Sigurðsson, sími 97-81760
Suðurland: Guðmundur Búason, sími 98-23837
Samband ungra framsóknarmanna
Kjördæmissambönd Framsóknarflokksins
Fjölmiðla-
námskeið
Fjölmiðlanámskeiðið hefst fimmtudaginn 23. febrúar nk. kl. 17.30 og
stendur laugardaginn 25. febr. frá kl. 13.00 og sunnudaginn 26. febr.
frá kl. 13.00 að Nóatúni 21. Samtals 22 kennslustundir.
Kennari: Arnþrúður Karlsdóttir fjölmiðlafræðingur.
Getum enn bætt við örfáum þátttakendum.
Upplýsingar í síma 24480.
Stjórn LFK
Bjami
Matarspjallsfundur með sveitarstjórnarkonum
Hinn mánaðarlegi matarspjallsfundur LFK verður haldinn 23. febrúar
n.k. kl. 19 að Lækjarbrekku.
Bjarni Einarsson, aðstoðarforstjóri Byggðastofnunar, ræðir um Upp-
lýsingaöflun innan kerfisins.
Ahugafólk um sveitarstjórnarmál sérstaklega hvatt til að mæta.
Stjórn LFK.