Tíminn - 01.03.1989, Side 9

Tíminn - 01.03.1989, Side 9
Miðvikudagur 1. mars 1989 Tíminn 9 VETTVANGUR Gunnar Oddsson, Flatatungu: Hugleiðing um jólaboðskap Fyrir nokkru barst mér í hendur jólablað Hlyns, málgagns sam- vinnustarfsmanna. Far er meðal annars grein, sem ber yfirskriftina „Sambandið hf." Höfundur er ung- ur maður, Jens Pétur Kristjánsson rekstrarfræðingur. Fyrirsögnin ein út af fyrir sig kemur samvinnumönnum trúlega spánskt fyrir sjónir og þó ekki síður sá boðskapur, sem þar er fluttur, en þar sem ég hef ekki séð nein viðbrögð við þessari ritsmíð, get ég ekki lengur orða bundist, því að mér dámaði ekki jólaboð- skapurinn hans Jens. Innihald og niðurstaðan Grein þessi er skipulega upp sett, þar sem framsett er í punkta- röð það, sem höfundur telur kosti og galla á samvinnufélögum annarsvegar og hlutafélögum hins- vegar. Niðurstaða þessa unga manns er svo sú, að samvinnurekst- ur - samvinnuformið, standist ekki samanburð við hlutafélögin, og því bæri að deila Sambandinu upp í nokkur hlutafélög. Þessa niður- stöðu tel ég hreint og klárt rugl, og skal nú færa því að því nokkur rök. Hvers vegna völdu menn samvinnuformið Hver sá maður, sem vill veita samvinnumönnum félagslega og rekstrarlega leiðsögn ætti að hug- leiða fyrst, hversvegna menn völdu samvinnuformið og stofnuðu sam- vinnufélög og hvernig samvinnu- félögin hafa lifað og dafnað til þessa dags. Samvinnufélögin voru stofnuð til þess að vinna gegn arðráni og misrétti. Til þess að hindra að þeir sem fátækari voru yrðu að sæta verri kjörum heldur en þeir betur stæðu, bæði með verð á nauðsynjum og afurðum. Til þess að hindra að einstaklingar eða félög rökuðu saman gróða á lífi og starfi fólksins í þessu landi, gróða, sem oftast var fluttur úr héraði og jafnvel úr landi. Þau stóðu öllum opin, ungum sem öldnum, ríkum sem snauðunt, konum sem körlunt. Þau höfðuðu til manna um að vinna saman, sameina en deila ekki kröftum og mynda þannig sem traustast afl til hagsbóta fólk- inu og til framfara í landinu. Sam- vinnuformið var valið einfaldlega vegna þess, að menn vildu að áhrif manna innan félaganna færu ekki eftir peningaeign eða umfangi við- skipta, enda væri þá um mismunun einstaklinga að ræða, sem sam- rýmdist ekki lífsviðhorfum þeirra manna, sem að félögunum stóðu. Þau áttu ekki og máttu ekki ganga kaupunt og sölunt. Þau voru sjálfseignarstofnanir, sameign nú- tíðar og framtíðar, sem verandi kynslóð bar ábyrgð á og bar að skila til þeirrar næstu nteð þeirri ávöxtun, sem aðstæður leyfðu á hverjum tíma. Dómur reynslunnar Hver er svo reynslan af starfi samvinnufélaganna? Þau hafa vaxið og dafnað víða um héruð svo að hlutafélög eða einkafyrir- tæki standa þar langt að baki og segja má, að samvinnufélögin séu traustustu stoðirnar undir búsetu og afkomu fólksins í mörgunt héruð- um. Um það læt ég nægja að net'na tvö dæmi, sent næst mér eru: Kaupfélag Skagfirðinga á Sauðár- króki og Kaupfélag Eyfirðinga á Akureyri. Ef menn hugleiða þær staðreyndir, sem ég hef hér drepið á, má öllum vera ljóst, að það er rúgl eitt, að samvinnuformið sé starfsemi félaganna fjötur um fót, heldur þvert á móti gefur það möguleika til meiri og betri verka með því að leiða saman mátt hinna ntörgu, mátt allra þeirra, sem vilja vera með í þarfri uppbyggingu. Hlutverk stjórna og starfsmanna Hjá samvinnufélögum líkt og öðrum fyrirtækjum skiptir þó jafn- an höfuðmáli, að til stjórnar og starfa veljist hæfir og dyggir menn, sem leggja metnað sinn í að starf þeirra beri ávöxt. Nú vita allir, að misjafnlega getur til tekist í þeim efnum, jafnt hjá samvinnufélögum og öðrum aðilum. Þó vil ég full- yrða, að almennt séð hafa sam- vinnufélögin átt því láni að fagna, að eiga framsýna og mikilhæfa stjórncndur og vel hæfa starfsmenn. sem skiluðu starfi sínu með sóma. Nú enn eiga samvinnu- félögin marga slíka menn. Búvörudeild var ein þeirra deilda, sem Jens Pétur tók sem dæmi um að sómi væri að sjá starfandi sent stórt, opið hlutafé- lag. Búvörudeild hefur nú nýverið endurskipulagt starfsemi sína, en viðhaldið santvinnuforminu og lað- að fram og leitað eftir aukinni samstöðu um starfsemi dcildarinn- ar. Þetta hefur skilað góðum ár- angri. Þar starfa nú margir menn, sem hafa skilað góðum árangri í starfi, þrátt fyrir erfiðar ytri að- stæður. Ég hcld að Jens Pétur og félagar hans í Búvörudeild bættu engu við sig í starfsgetu við það eitt að deildin brcyttist í hlutafélag, heldur þvert á móti ættu ýmsir erfiðara með að finna sig í starfi undir því rekstrarformi. Búvöru- deildin yrði þá ekki lengur sölutæki kaupfélaganna í landinu og bænd- anna, sem að þeim standa, heldur apparat, sem stjórnað væri af stærstu hluthöfum og rekið með þeirra hagsmuni fyrir augunt en ekki annarra. Vandi Sambandsins Jens rekstrarfræðingur fer nokkrunt orðum um rekstrarvanda Sambandsins og kemst þannig að orði: „Vandinn felst m.a. í uppbygg- ingu fyrirtækisins og erfiðri eiginfjár- stöðu." Ég dreg þessar fullyrðingar báða ntjög í efa. Uppbygging Sam- bandsins helur ekki reynst verr en svo, að Sambandið hefur náð því að verða stærsta fyrirtæki landsins og eiginfjárstaða þess Itefur verið mjög góð, eða með því besta, sem þekkst hefur hjá íslenskum fyrir- tækjum. Ejginfjárstaðan hlýtur auðvitað að hafa rýrnað verulega á síðasta ári vcgna geigvænlegs tap- reksturs, en þrátt fyrir það. Itygg ég að eiginfjárstaða Sambandsins megi enn kallast góð á íslenskan mælikvarða. Hallarekstur Sam- bandsins verður auðvitað að stöðva og það án tafar, til þess ber stjórn- endum og starfsliði augljós skylda. Til þess duga lítt vanhugsaðar „skipulagsbreytingar". Þær skaffa engar tekjur, nema síður sé. Hér verða að koma til skilvirkar, stjórn- unarlegar aðgerðir, og það fyrr en scinna, og ég vil trúa því, að þeir menn, sem nú stjórna Samband- inu, hafi bæði vilja og burði til þess að ganga að því verki og leysa þann vanda, scnt við er að fást. Ég er ekki það kunnugur innri starfsemi Sambandsins, að ég telji mér fært að benda þar á einstök ráð, en hin almennu ráð má nefna, að skera niður kostnað við rekstur- inn og létta á rekstrarfjárstöðu með sölu eigna, t.d. hlutabréfa í ýmsum fyrirtækjum, scm mérskilst að Santbandið liafi ekki haft ýkja mikinn arð af á síðustu árunt. Tekjur verður einnig að auka með aukinni markaðshlutdeild, eins og nú er stefnt að í Verslunardeild- inni. Kaupfélögin gegna þar lykil- hlutverki. Þau vcrða að efla sam- stöðuna og standa af alefli og heilindunt að Sambandinu. Stjórn og starfsmenn Sambandsins verða einnig að ná samstöðu um þær rekstrarlegu aðgerðir. sem gera þarf, og ég vil trúa því, að þannig eigi málin eftir að ganga frant. Lokaorð Samvinnustarfið hefur alla tíð byggst á lífsviðhorfum þess fólks, sent að því hefur staðið og svo er enn. Þau lífsviðhorf eru, að fólkið eigi að vinna saman aö öflun lífs- gæða og deila kjörum mcð sant- ferðamanninum í stað þess, að einn reyni að sníða sér scm breið- ust skæði af annars skinni. Að vænlegra sé til góðs árangurs í lífsbaráttunni, að fólk stilli saman krafta sína og myndi þannig afl sent dugar til átaka og nauðsyn- legra verka, sent einstaklingurinn réði á engan hátt við. Sundrung og deiling er andstaða þessara lífsvið- horfa. Undangengin ár helur efnahags- málum þjóðarinnar verið stjórnað af fullkomnum afglapahætti. Hin blindu og ég vil segja siðlausu samkcppnis- og gróðaöfl, hafa fengið að leika lausum Itala í okkar litla samfélagi nteð þeint afleiðing- um, að öll framleiðsla og verð- mætasköpun þjóðarinnar var að hruni komin. Nú er von að þessum ósköpum linni um sinn, en endur- reisnarstarfið, sent framundan er, verður erfitt. Nú er með engu móti hægt að segja, að samvinnufélögin hafi staðið verr af sér efnahagslegt óveður síðustu ára en aðrir aðilar með hliðstæða starfsemi, nema síð- ur sé, en auðvitað hafa þau orðið lyrir áföllum, líkt og aðrir, og erfiðleikar eru þar framundan. Vissulega reynir á stjórnir og starfslið félaganna, en gleymunt ekki, að samstaða fólksins unt félög sín og samstaða samvinnufé- laganna unt Sambandið er það, sem mestu ræður um árangurinn nú, sem endra nær. Og gleyntum heldur ekki, að samvinnumenn hafa áður lyft Grcttistökum. Á þorraþræl 1989, Gunnar Oddsson, Flafatungu. Bima K. Lárusdóttir Hvers á fólk að gjalda Sagt hefur verið að vegir séu lífæðar landsins og má það vissulega til sanns vegar færa. Þeir greinast í stofnbrautir og út frá þeim þjóðbrautir og sýsluvegi. Þjóðbrautir eru skilgreindar svo í vegalögum frá 197712. gr. og hljóðar svo með leyfi forseta. „Vegir, sem eru minnst tveggja km langir frá vegamótum og ná til að minnsta kosti þriggja bíla, þann- ig að þeir nái að þriðja býli frá vegamótum. Víkja skal frá jressari reglu ef um er að ræða vegi að kauptúni." Við allflesta þessa vegi býr fólk, margt eða fátt eftir aðstæðum á hverjum stað. Allir eiga það sam- eiginlegt að nota vegina og því skiptir gerð þeirra og ástand mjög miklu máli, ekki síst á veturna sem oft vilja reynast ansi langir og dimmir í strjálbýlinu. Þegar rætt er um snjómokstur á vegum þá er ekki hægt að komast hjá því að taka uppbyggingu og allt almennt viðhald vega þar með, svo náskyld eru þessi mál. Gerð og ástand vega getur skipt sköpum um hvort fólk kemst leiðar sinnar. Fjölmargir langir, lélegir vegir teljast til þjóðbrauta. Sumir eru ennþá hálfniðurgrafnir af þeirri einföldu ástæðu að viðhald þeirra hefur ekki verið sem skyldi undan- farin ár og búið er að hefla það malarlag af sem eitt sinn var, og sem við þjóðbrautir býr? kosti hann enda er ekki raunhæft að sveitarfélög standi undir helm- ingsgreiðslu þar sem þau eru all- flest mjög illa stödd fjárhagslega. Snjómoksturvegaa.m.k. vikulega, þegar þess er þörf, ætti að vera sjálfsögð þjónusta við íbúa landsins. Þessi grein um að þjóðbrautirnar séu mokaðar minnst vikulega er skrifuð fyrst og fremst til að benda á það misrétti sem nú hefur við- gengist langa hríð og þann mismun sem þjóðin býr við í sambandi við snjómokstur, annars vcgar þeir sem eru svo heppnir að hafa valið sér búsetu við vegi sem eru mok- aðir reglulega, misoft í viku, og hins vegar þeir sem búa við það ófremdarástand að engir sérstakir mokstursdagar eru áætlaðir. Ef byggð á að haldast í dreifbýli landsins um ókomna framtíð er nauðsynlegt að jafna aðstöðumun fólks eftir búsetu þess. Bættar samgöngur yfir vetrarmánuðina er eitt spor í þá átt. Sérstaða íslensks þjóðfélags liggur’í hinum dreifðu byggðum landsins. Þar búa þeir sem afla mikils hluta útflutnings- afurða okkar, þessir staðir eru gullegg þessarar þjóðar. Þess vegna skulum við gæta þeirra vel, því þeirra líf er líf landsins. Birna K. Lárusdóttir upp úr stendur grjótið sem mörg- um hjólbörðum hefur banað. Virð- ist það vera sóun á fjármunum að hefía slíka vegi enda grjótið aldrei banvænna hjólbörðum en eftir slík- ar gerðir. Það gefur auga leið að slíkir vegir verja sig illa snjó. Illt er að aka þessa vegi á sumardögum en þó hátíð á við að fara þá á veturna, þá eru þeir meira og minna ófærir og oft illa stikaðir. Viðhald vega hefur verið næsta lítið á undanförnum árum og hlýtur það að orka mjög tvímælis að verja stórum hiuta af viðhaldsfé til lagn- ingar og uppbyggingar vega. Erfitt er að sætta sig við að hökta á holóttum vegum á sama tíma og lögboðin framlög til vegagerðar eru skorin niður um tæpar 700 milljónir. Vegagerðin hefði svo sannarlega full not fyrir þetta fé og átti það svo sannarlega þangað að fara - því marga vegi hefði mátt bæta með því, og moka mikinn snjó. Eflaust þykir mörgum sárt að eyða peningum í snjómokstur, sem er ekki sjáanlegur þegar blessað vorið kemur, og finnst þeim pening betur varið í hluti sem sjáanlegir eru allt árið. Bættar og öruggar samgöngur eru forsenda fyrir því að byggð haldist í sveitum landsins og eitt af mikilvægustu hagsmunamálum byggðarlaganna um landið allt. Flest okkar hafa það fyrir satt að maðurinn lifi ekki á brauðinu einu saman, mannleg samskipti hafi allt- af skipt meginmáli í öllum þjóðfé- lögum. Gildi mannlegra samskipta er aldrei ofmetið og hefur mönnum verið kunnur þessi sannleikur á tímum Snorra. „Maður er manns gaman." Þegar fólki fækkar á landsbyggðinni verður æ erfiðara fyrir þá sem eftir eru að fullnægja þeirri mannlegu þrá sem samskipti við annað fólk er. Það er ekki neinn minnsti vafi á að unnt er að sjá bein tengsl milli fækkunar í byggðum og tækifæra sem bjóðast fólki til þess að taka þátt í og njóta félagslífs. Þar sem félagslífið er fáskrúðugt þar er yfirvofandi byggðaröskun, þar sem alltaf verð- ur lengra og lengra að sækja það sem býðst. Það er liðin tíð að fólk sætti sig við að vera innilokað vegna ófærð- ar svo dögum skiptir, enda hlýtur það á þessari tæknivæddu öld að teljast sjálfsögð mannréttindi að komast ferða sinna og þurfa ekki að búa við það álag sem af því hlýst að vita að allt er ófært og ekkert óhapp má henda því þá getur voðinn verið vís. Heilsugott verður fólk líka að vera, því ekki er hlaupið að læknishjálpinni og best væri að enginn yrði veikur fyrr en snjóa leysir og vegir yrðu færir, sem ekki er alltaf því iðulega eru veg- irnir þá orðnir að botnlausu svaði í verstu slönkunum. Víða að hafa komið tilmæli um að vegagerðin auki mokstur á þjóðbrautum og

x

Tíminn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.