Tíminn - 01.03.1989, Side 14
14 Tíminn
Miðvikudagur 1. mars 1989
Komiö er í Ijós að breskir skóla-
krakkar drekka allt að 5 hálfpotta
af bjór á hverju kvöldi. Nú á að
leggja til atlögu gegn drykkju ung-
linga í Bretlandi og leitað Jogandi
Ijósi að nýjum hugmyndum til að
valda viðhorfsbreytingu hjá
krökkunum.
á krám og hjá sprúttsölum. „Þeir
vita ósköp vel að við erum undir 18
ára aldri svo að stundum biðjum
við einhvern sem á leið framhjá að
kaupa fyrir okkur,“ segir 14 ára
strákur sem drekkur fjóra hálf-
potta af bjór á hverju kvöldi. Hann
bætir við að í skólanum sé engin
fræðsla um áfengi, bara eiturlyf.
Vinur hans, 15 ára, segir að það
sé enginn vandi að fá nafnskírteini
einhvers eldri lánað og fá þá um-
svifalaust afgreiðslu. „Við drekk-
um bara til að hafa eitthvað að gera
og til að skemmta okkur betur
þegar okkur leiðist. En eiturlyf
drepa fólk," segir hann.
Stórfellt átak í bar-
áttu gegn drykkju skóla
krakka í Bretlandi
AÐ UTAN
Og þá vilja krakkarnir
bara breyta lögunum!
Tveir af hverjum þrem að-
spurðra taka undir það að drykkju-
skapur krakka innan 18 ára sé
alvarlegt vandamál. En flestir
þeirra standa í þeirri meiningu að
skynsamlegast væri að breyta
lögunum svo að þau falli að
drykkjuvenjum krakkanna. Meira
en fjórir af hverjum 10 vilja að
aldursmörkin verði lækkuð niður í
16 ára aldur eða jafnvel neðar, en
það er kostur sem yfirvöld hafa
hafnað.
Meira en þriðjungur aðspurðra
drekkur heima hjá sér, og fjórð-
ungur neytir áfengis á krám, hótel-
um, klúbbum og diskótekum. Einn
af hverjum 10 strákum og ein af
hverjum 20 stelpum drekka á einu
kvöldi magn sem svarar a.m.k. 5
hálfpottum af bjór, sem er meðal-
vikuskammtur flestra bekkjarfé-
laga þeirra. Því sem næst fjórðung-
ur allra krakka hefur smakkað
áfengi þegar þeir ná 8 ára aldri.
Dr. Martin Plant, framkvæmda-
stjóri áfengisrannsóknahóps há-
skólans í Edinborg, sem gerði
könnunina, sagði að nemendur
álitu enga skynsemi í því að reyna
að framfylgja lögum sem væru svo
almennt höfð að engu.
Plant er að vísu andvígur kröfum
krakkanna um að lögunum verði
breytt en segir þó að heilmiklar
sannanir liggi fyrir um það að fólk
sem bragði vín fyrst ungt að aldri í
skynsamlegu umhverfi undir um-
sjón foreldra eigi síður á hættu að
lenda síðar meir í hættu vegna
áfengisneyslu en þeir sem er fyrir-
skipað að snerta aldrei víndropa.
Nefnd skipuð sér-
fræðingum á hverjum
stað finni nýjar lausnir
Leiðbeiningar yfirvalda, gefnar
út af sex ráðuneytum, skipa svo
fyrir að sett verði á fót nefnd,
skipaðar kennurum, lögreglufor-
ingjum, heilsusérfræðingum og fé-
lagsráðgjöfuin, í hvcrri borg, bæ
og þorpi í landinu. Það verður lagt
fast að þeim að finna nýjar aðfcrðir
til að takast á við drykkju krakka
undir lögaldri, áflog á síðkvöldum
á krám og slys þar sem áfengi
kemur við sögu.
Upphafsmenn þessarar nýju að-
ferðar er nefnd 12 ráðherra sem
Margaret Thatcher skipaði fyrir
hálfu öðru ári. Fyrirmyndin er
árangursrík barátta til að hindra
glæpi sem staðbundnar nefndir
hafa haft forystu um. Ætlast er til
að nefndirnar sem skipaðar verða
í áfengismálum, geri sínar eigin
kannanir til að setja saman „mynd"
af vandamálunum á hverjum stað
„Áfengi er eldsneytið sem hrind-
ir af stað áreitninni og óspektunum
sem setja skammarblett á svo
margar aðalgötur í landinu við
lokunartíma kránna," segir hann.
Hann segist ætla að spyrja krakk-
ana hvers vegna svo margir hafi þá
ranghugmynd að það sé ekki hægt
að skemmta sér nema með því að
drekka sig ofurölvi.
Leiðindi eiga mestan
þátt í drykkjunni
í könnuninni kemur fram að að
áliti eins af hverjum þrem þeirra
sem drekka undir lögaldri eigi
leiðindi mestan þátt í drykkjunni.
Kostnað af könnuninni báru fram-
leiðendur skosks viskýs, sem veltir
tveim milljörðum sterlingspunda á
ári, í samvinnu við menntamála-
ráðuneytið.
Af hálfu þeirra sem berjast fyrir
áfengisvörnum í Bretlandi var vel
tekið hugmynd yfirvalda um að
ráðist væri að vandamálinu á hverj-
um stað eftir aðstæðum og tekið
fram að kráareigendur ættu að
vera vandvirkari við að framfylgja
þeim lögum sem fyrir hendi eru.
„Allt ungt fólk vill gera tilraunir og
könnunarinnar og ráðstefnunnar
halda því fram að ungt fólk álíti að
drykkjuskapur meðal þess hafi ver-
ið stórlega ýktur. „Samt sem áður
er okkur annt um, eins og öðrum
framleiðendum, að allir þeir sem
noti framleiðsluvöru okkar geri sér
grein fyrir hvernig á að gera það á
skynsamlegan hátt," segja þeir.
Unglingarnir fá áfengi
víðar en á kránum
Eitt atriði í baráttu yfirvalda
gegn misnotkun áfengis er að dóm-
urum verða fengin aukin völd til að
svipta umsvifalaust krár og klúbba
veitingaleyfi sem stöðugt afgreiða
viðskiptavini undir lögaldri, hvort
sem það er vísvitandi eða ekki.
Samtök 25.000 kráareigenda í
Englandi og Wales halda því fram
að það kerfi sem þeir hafa tekið
upp af sjálfsdáðum, að viðskipta-
vinirnir sýni nafnskírteini, sýni að
þeir líti málið alvarlegum augum.
Hins vegar þykir þeim ómaklega
að sér vegið þegar ásakanirnar
beinast eingöngu að kránum.
„Unglingar fá heilmikið áfengi
heima hjá sér og annars staðar,
ekki bara á kránum," segir einn
þeirra.
svo að unnt sé að beita úrræðum á
árangursríkari hátt.
Engin fræðsla
í skólanum um áfengi
- bara eiturlyf
í Liverpool hafa unglingar stað-
fest að það væri engum vandkvæð-
um bundið fyrir þá að kaupa áfengi
Nemendur sem þátt tóku í
könnuninni verða beðnir um að
skýra nánar skoðanir sínar á ráð-
stefnu með John Butcher aðstoð-
armenntamálaráðherra. Hann
sagðist gera sér vonir um að krakk-
arnir kæmu fram með einhverjar
uppástungur sem ekki yrði bara
hlegið að heldur hlytu virðingu alls
ungs fólks.
hegða sér eins og þeir fullorðnu
sem fyrst. En hættan liggur raun-
verulega í því að það er ekki fyrr
en fólk er komið á fertugsaldur
sem það verður virkilega vart við
afleiðingarnar, og þá er það orðið
of seint," segir einn talsmaður
áfengisvarna.
Samtök framleiðenda skosks
viskýs, sem lögðu 60.000 pund til
Mikið hefur verið rætt og ritað um drykkjuskap íslenskra
unglinga og í því sambandi vitnað í tölur sem unnar hafa
verið upp úr skoðanakönnunum meðal skólakrakka. Bresk
yfirvöld hafa nýlega gert slíka könnun meðal skólanem-
enda og blöskrað niðurstöðurnar. En það á ekki að láta
sitja við vitneskjuna um ástandið eina saman, það á að
grípa til aðgerða. Og hafa krakkana sjálfa með í ráðum um
hvaða ráð séu vænlegust til að koma á viðhorfsbreytingu
meðal þeirra sjálfra.
Lög um lág-
marksaldur áfengis-
kaupenda ekki virt
Skólukrakkar í Bretlandi drekka
allt að 5 „pints" (hálfpotta) af bjór
á kvöldi vcgna þess að kráarcig-
endur virða ekki lög um lágmarks-
aldur þcirra sem veita má áfenga
drykki. Þessar upplýsingar koma
fram í könnun sem gerð var að
undirlagi brcskra stjórnvalda ný-
lcga.
Könnunin náði til 6000 skóla-
nemenda á aldrinum 14-16 ára.og
þar kemur fram að þrír af hverjum
fjórum hafa aldrei verið spurðir
um aldur þegar þeir hafa keypl
áfengi yfir barborð.
Þessar niðurstöður voru birtar
um sama leyti og yfirvöld eru að
búa sig undir að opinbera áætlanir
um að setja á fót starfshóp í hverju
sveitarfélagi til að samræma að-
gerðir gegn misnotkun áfengis, sér-
staklega meðal ungs fólks.