Tíminn - 01.03.1989, Blaðsíða 15
Miðvikudagur 1. mars 1989
Tíminn 15
lllllllllillllilllllll SAMVINNUMÁL
Seiðacldisstöðin sem íslandslax hf. rekur að Stað við Grindavík.
Aukið eigið fé
hjá íslandslaxi
Nýlega var ákveðið að auka eigið
fé fyrirtækisins íslandslax lif., sem
rekur seiðaeldisstöð og fiskeldi að
Stað við Grindavík. Islandslax er
51% í eigu Sambands ísl. samvinnu-
félaga og samstarfsfyrirtækja þess,
en 49% í eigu norskra aðila. Verður
eigið fé fyrirtækisins nú aukið um 70
miljónir króna, en hlutafé þess er
101,6 miljónir fyrir.
arfjárfestinga sem fyrirhugaðar cru í
rekstri fyrirtækisins og aðallega
munu felast í því að taka þar upp
sjálfvirka fóðrun og súrefnisdælingu
niður í kerin. Núna er um 370 tonna
lífþungi af fiskum í stöðinni og
vöxtur þessa lífþunga er um 10—12
tonn á viku. Því magni er nú slátrað
vikulega, en bætt jafnóðunt í kerin
aftur úr seiðaeldisstöð fyrirtækisins.
Nánar til tekið munu Sambandið
og samstarfsfyrirtækin leggja fram
nýtt hlutafé að fjárhæð 22,9 miljónir
og 19,1 miljón í víkjandi hluthafa-
lán. Norsku eigendurnir munu hins
vegar ekki leggja fram hlutafé heldur
einungis víkjandi hluthafalán að
upphæð 28 miljónir króna. Við þetta
breytast eignarhlutföllin í fyrirtæk-
inu þannig að Sambandið og sam-
starfsfyrirtækin munu eiga 60%
hlutafjár en norsku aðilarnir 40%.
Sigurður Friðriksson frkvstj. sagði
að þetta væri gert vegna hagræðing-
BÆKUR
Slátrun hjá íslandslaxi er nú ný-
hafin aftur eftir rúmlega fjögurra
mánaða hlé, sem notað var til þess
að byggja upp þennan lífþunga í
stöðinni. Af þeim sökum varslátrun
hjá fyrirtækinu aðeins um 220 tonn
á síðasta ári. Núna er markmiðið að
halda þessum lífþunga og auka hann
með því að dæla súrefni í kerin. Á
þann hátt er ætlunin að stefna á 750
tonna útflutning á ári, eða sem
svarar 15-20 tonnum á viku.
Salan hjá fslandslaxi gengur vel,
en markaðir eru bæði í Vestur-Evr-
ópu og Bandaríkjunum. Verðið er
lítið eitt hærra vestra, þangað sent
fiskurinn er sendur með flugi, en sá
verðmunur er unninn upp að því er
Evrópu varðar með því að senda
fiskinn þangað á lægri flutnings-
gjöldum með skipunt. Af fiskinum,
sem fer til Evrópu, fer núna mest á
Þýskaland, en annars hefur Frakk-
land verið aðalmarkaðurinn fyrir
íslenska laxinn. Meðalþungi á laxin-
um, sem nú er verið að selja, skiptist
nokkurn veginn til helminga á milli
stærðarflokkanna 4-5 kg og 3-4 kg.
Verðið, sem fæst fyrir laxinn,
hefur verið við það að vera viðun-
andi að sögn Sigurðar. Aftur er
heildarverðmæti lífþungans í stöð-
inni um 210-220 miljónir króna, og
af því eru aðeins 37,5% fjármögnuð
gegnum banka með afurðalánum.
Sagði Sigurður að mikilvægt væri að
fá afurðalánin hækkuð þannig að
þetta hlutfall yrði sem næst 70%.
-esig
Egils saga
Skalla-Grímssonar
Janúarbók bókaklúbbs Almenna
bókafélagsins er Egils saga Skalla-
Grímssonar myndskreytt af Einari
Flákonarsyni. Umsjónarmaður út-
gáfunnar var Eiríkur Hreinn Finn-
bogason.
Kjami Egils sögu er víkingurinn,
bóndinn og skáldið Egill Skalla-
Grímsson. Verk eða öllu heldur
stórvirki þessa gamla en þó síunsa
ásatrúarmanns eru víst flestum ls-
lendingum kunn, en hinu ættum við
að átta okkur á að þessi karl er ef til
vill ein fyrsta verulega flókna per-
sónan sem lýst er í gjörvöllum heims-
bókmenntunum. Á yfirborðinu gíf-
urleg harka, kraftur og eigingimi,
undir niðri sjóðandi tilfinningar; og
þær em svo magnaðar að þær bera
stundum jsennan þróttmikla mann
ofurliði. Ur slíkri samsetningu hefði
þó ekki orðið annað en fáránleiki og
ósigrar ef ekki hefði fylgt mikið
mannvit, orðsnilld og óvenjulegt
hugmyndaflug.
Þessi útgáfa bókarinnar er mynd-
skreytt af Einari Hákonarsyni.
Myndir hans eru vissulega merkilegt
framlag til myndskreytinga íslend-
ingasagnanna. Þær leggja ekki aðal-
áherslu á atburði og athafnir eins og
algengast hefur verið í slíkum
myndum, heldur skapgerð og tilfinn-
ingar - að því er Egil snertir hið
margbrotna og flókna innra líf.
Þyrfti engum að koma á óvart þótt
þessar myndir ættu eftir að hafa sín
áhrif á myndskreytingu íslendinga-
sagna yfirleitt.
Bókin er 248 bls. að stærð. Setn-
ingu, filmuvinnu, prentun og bók-
band annaðist Prentsmiðjan Oddi
hf.
myndskreytt af Einari Hákonarsyni
Jón Helgason Guðni Ágústsson Unnur Stefánsdóttir
alþingism. alþingismaður varaþingmaður
Rangæingar
Árlegir stjórnmálafundir og viðtalstímar þingmanna Framsóknar-
flokksins verða haldnir á eftirtöldum stöðum:
1. Heimalandi, Vestur-Eyjafjallahreppi, mánudaginn 27. febr. kl. 21.
2. Gunnarshólma, Austur-Landeyjahreppi, þriðjud. 28. febr. kl. 21.
3. Hlíðarenda, Hvolsvelli, fimmtud. 2. mars kl. 21.
Vestur-Skaftfellingar
1. Leikskálum, Vík, föstudaginn 3. mars kl. 21.
2. Kirkjuhvoli, Kirkjubæjarklaustri, laugardaginn 4. mars kl. 14.
Vesturland - Formannafundur
Fundur formanna framsóknarfélaganna á Vesturlandi verður haldinn
í Hótel Borgarnesi laugardaginn 11. mars n.k. kl. 13.00.
Guðmundur Ragnheiður Sigurður
Guðmundur Bjarnason heilbrigðisráðherra, Ragnheiður Sveinbjörns-
dóttir og Sigurður Geirdal koma á fundinn.
Sjá nánar í fundarboði til félaganna.
Kjördæmissambandið.
Framsókn í sveitarstjórnarmálum
Landssamband framsóknarkvenna boðar til funda með sveitarstjórn-
arkonum og öðrum áhugakonum um sveitarstjórnarmál í öllum
kjördæmum landsins, helgarnar 3.-5. og 17.-19. mars n.k.
Fundarstaðir nánar tilkynntir síðar.
Framkvæmda- og landsstjórn LFK.
Borgnesingar - Nærsveitir
Spilum félagsvist í samkomuhúsinu í Borgarnesi föstudaginn 3. mars
kl. 20.30.
Allir velkomnir, mætum vel og stundvíslega.
Framsóknarfélag Borgarness.
Austur-Skaftfellingar:
Aðalfundur
Aðalfundur Framsóknarfélagsins verður haldinn í húsi Skinneyjar hf.,
föstudaginn 3. mars kl. 20.00.
Fundarefni:
1. Venjuleg aðalfundarstörf.
2. Húsnæðismál.
3. Önnur mál.
Stjórn Framsóknarfélagsins.
Kópavogur
Skrifstofan í Hamraborg 5er opin þriðjudagaog miðvikudagakl. 9-13.
Sími 41590. Heitt á könnunni.
Opið hús alla miðvikudaga kl.17-19. Félagsmenn eru hvattir til að
líta inn og taka með sér gesti. Eflum flokksstarfið.
Framsóknarfélögin í Kópavogi.
Fjölmiðlanámskeið SUF
Fyrsta fjölmiðlanámskeið SUF og kjördæmissambandanna hefst
laugardaginn 11. mars kl. 10 í Nóatúni 21, Reykjavík.
Framkvæmdastjórn SUF
Reykjanes
Skrifstofa Kjördæmissambandsins að Hamraborg 5, Kópavogi er
opin á mánudögum og miðvikudögum kl. 17 til 19. Sími 43222.
K.F.R.