Tíminn - 02.03.1989, Blaðsíða 2

Tíminn - 02.03.1989, Blaðsíða 2
2 Tíminn -■ fíYnmtadaglir 2rmaVs T9é9 r* Snjómokstursreglur mars 1989 Snjómokstur. .2. .2. Alla daga. 5. daga í viku. daga í viku, meðan snjólétt er. daga i viku. daga í viku, meðan snjólétt er. dag i viku. dag i viku, meðan 1. 1. Ný reglugerð tekur gildi um miðjan mánuðinn. Nýjar reglur um mokstur Það er greinilegt að sú neikvæða umræða í garð bænda sem átt hefur sér stað í fjölmiðium að undanförnu, þar sem nefnd er í sömu andránni gróðureyðing, fjárveitingar tengdar landbúnaði og markaðsmál bænda, hefur valdið bændum áhyggjum. Stjórn Búnaðarfélags íslands ítrekar í erindi um gróðurverndarmál, að aldrei verði unnið að gróðurvernd og endurheimt landgæða með góð- um árangri, nema í fullri sátt og samvinnu við bændur landsins og félagasamtök þeirra. í sama erindi er lagt til að Búnaðarþing 1989 taki til umfjöllunar og ályktunar gróður- verndarntál almennt með scrstakri áherslu á gildi skógræktar í því sambandi. Stjórn B.í. beinir því einnig til Búnaðarþings 1989 að það beiti sér fyrir því að lagaheimildir sveitarfé- laga til að takmarka lausagöngu búfjár verði rýmkaðar. Þetta sé gert vegna vaxandi áhuga ýmissa aðila á takmörkun á lausagöngu búfjár, í tengslum við umræðu unt ágang í ræktunarlönd, umfcrð á fjölförnum vegum, skógrækt og gróðurvernd á viðkvæmu landi. Ekki eru til laga- lendi“ sagði Jón Birgir Jónsson hjá Vegagerð ríkisins í samtali við Tímann. Til dæmis verður norðanvert Snæfellsnesið tengt frá Hellissandi um Ólafsvík, Grundarfjörð til Stykkishólms og frá Patreksfirði yfir hálendi á Tálknafjörð. í Húnavatns- sýslu verður aukning á mokstri frá Miðfirði til Laugabakka, Hvamms- tanga, Blönduóss og til Skagastrand- heimildir til að takmarka lausagöngu búfjár annarra en hrossa utan kaup- túna og kaupstaða. Stjórn Búnaðar- félagsins hefur með þessu erindi sínu lagt til að unnt veði að banna lausagöngu búfjár með lögum, á vissunt svæðum, s.s. á fjölförnunt vegum og viðkvæmum gróðursvæð- um. Nefnd sem fjallaði um skipan leiðbeiningarþjónustu í landbúnaði og skilaði af sér til landbúnaðarráð- herra s.l. haust varpaði fram þeirri hugmynd að forðagæsla (eftirlit með því að bændur eigi fóður handa skepnum sínum í byrjun.^etrar) og meðferð búfjár, verði sameinað und- ir eina löggjöf. Nú hefur stjórn B.í. mælst til þess að Búnaðarþing 1989 beiti sér fyrir samningu frumvarps til laga um forðagæslu, talningu, skrán- ingu og meðferð búfjár, er taki til allra búl'jártegunda og allra sveitar- félaga landsins. - ág ar. 1 Skagafirði er það leiðin frá Varmahlíð til Sauðárkróks sem var reyndar mokuð áður en verður nú framlengd út á Hofsós. Leiðin til Akureyrar verður mokuð þrjá daga vikunnar þegar snjólétt er í stað tveggja áður og þaðan framlengt til Dalvíkur og aðeins inn í Eyjafjörð. Á milli Suðurfjarðanna, Eskifjarð- ar, Reyðarfjarðar, Fáskrúðsfjarðar, Stöðvarfjarðar og Breiðdalsvíkur verður nú mokað fimm daga vikunn- ar. Leiðin suður með sjó, Miðnes- hringurinn til Sandgerðis og í Garð- inn verður mokuð daglega. En á Miðnesheiðinni og til Grindavíkur hefur til þessa ekki verið mokað á hverjum degi. Auk þessa er stefnt að því að moka leiðina til Norðfjarðár, frá Egilsstöðum um Fjarðarheiði til Seyðisfjarðar, til Súgandafjarðar, Ólafsfjarðar og Siglufjarðar, þrjá daga vikunnar en þar hefur aðeins verið mokað tvisvar í viku hingað til. Á ársgrundvelli er gert ráð fyrir að þessi aukning kosti um 30-35 millj- ónir rniðað við venjulegt árferði. jkb Samgönguráðherra hefur í samráöi við Vegagerð ríkisius gengið frá nýjum reglum varðandi snjómokstur. Munu þær taka gildi um miðjan þennan mánuð en Vegagerðin sér um framkvæmdina. Umtalsverð breyting verður mið- að við eldri reglugerö um snjómokst- ur. Nýju reglurnar kveða á um töluverða aukningu moksturs víða um land. Á meðfylgjandi korti má sjá vegi þar sem aukið verður við moksturinn. „I raun er ekki verið að bæta við mokstri á vegum sem ekki hafa verið mokaðir til þessa. Heldur er verið að bæta þá þjónustu sem fyrir er. Meginmarkmiðið er að tengja betur santan þéttbýli á lág- Búnaðarþing 1989. Neikvæð umræða þar sem sett er sama- semmerki á milli gróðureyðingar og búfjár, veldurtaugatitringi: Gróðurvernd áberandi Gróðurverndarmál eru talsvert áberandi í þeim erindum heimildir til að takmarka lausagöngu sem liggja fyrir Búnaðarþingi 1989, sem haldið er á Hótel búfjár annarra en hrossa utan kauP Sögu þessa viku. Tillöguflutningurinn einkennist af kröfum íéi^L^hS^Lð^ þTssí er£di uni neimildir 111 takmorkunar á lausagöngu búfjár og nektun sínu lagt til aö unnt veði aö banna skoga. lausagöngu búfjár með lögum, á Þriðja kryddið ekki krabba- meinsvaldandi Efnið einnatríumglúmat (MSG) betur þekkt sem þriðja kryddið er ekki talið vera krabbameinsvaldur. Fullyrt var á einni útvarpsstöð- inni að það gæti valdið krabba- meini. Einnig voru neytendurvar- aðir við neyslu þess og upplýst að það væri víða bannað. Hollustu- vernd ríkisins hefur í kjölfar þess sent frá sér yfirlýsingu þar sem bent er á að kryddið sé víða um lönd notað við framleiðslu matvæla og sem hluti af ýmsum kryddblönd- Árið 1987 var fjallað um MSG í skýrslu. sem gefin var út af Alþjóða heilbrigðismálastofnun. Kemur þar fram álit sérfræðinefndar sem starfar á vegum stofnunarinnar og Matvælastofnunar Sameinuðu þjóðanna. Niðurstöðurnar eru á þá leið að ekki sé ástæða til að ákvarða markgildi fyrir neyslu MSG, þar sem niðurstöður rann- sókna varðandi eituráhrif gefi ekki tilefni til þess. Auk þess sem notk- un efnisins takmarkist vegna áhrifa þess á bragð vörunnar. jkb

x

Tíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.