Tíminn - 02.03.1989, Blaðsíða 12
12 Tíminn
Fimmtudagur 2. mars 1989
Jose Napóleon Duarte forseti El Salvador á að láta af embætti 1. júní. Stjórnarherinn segist ekki bcrjast gegn
skæruliðum fram að þeim tíma.
El Salvador:
Stjórnarherinn
býður vopnahlé
Stjómarherinn í E1 Salvador
lýsti einhliða yfir vopnahléi í land-
inu, en þar hefur hatrömm borg-
arastyrjöld verið háð undanfarin
níu ár. Hvatti stjórnarhcrinn
vinstri sinnaða skæruliða til að
leggja cinnig niður vopn, en skær-
uliðar hafa gefið sig út fyrir að vilja
friðarviðræður og frjálsar kosning-
ar í landinu.
Stjórnarherinn mun hætta öllunt
hernaðaraðgerðum gegn skærulið-
um allt þar til Jose Napoleon
Duarte forseti lætur af völdunt 1.
júní, en framundan eru kosningar.
Skæruliðar höföu liins vegar boðist
til að leggja niður vopn og hlíta
niðurstöðum kosninga ef kosning-
um yrði frestað fram á haustið og
að tryggt yrði að þær færu heiðar-
lega fram.
Fyrr í vikunni höfðu skæruliðar
stungið upp á að leiðtogar þeirra
og stjórnarinnar rnyndu hittast í
San Salvador um hclgina og ræða
málin. Vilja þeir að allir stjórn-
málaflokkar landsins og fulltrúar
hersins taki þátt í þeim viðræðum.
Duarte forseti landsins hafði
áður boðist til þess að fresta kosn-
ingunum sem fram eiga að fara 19.
mars um sex vikur, en skæruliðar
höfnuðu því þar sem þeir telja að
ekki vcrði komið í veg fyrir kosn-
ingasvik og að kosningabarátta
liðsmanna skæruliða yrði of stutt
til að mark yrði á takandi. Þeir
vilja fresta kosningum um sex mán-
uöi.
Óttast er að ef ekkert verður úr
friðarsamkomulagi nú muni fjand-
inn verða laus í kringum kosning-
arnar og ofbeldi verða meira en
nokkru sinni. Talið er að utn 70
þúsund manns hafi fallið í E1
Salvador þessi níu ár.
TUNIS - Frelsissamtök Pal-
estínu vilja sjá árangur við-
ræðnanna við Bandaríkja-
menn ef þær eiga að ganga
öllu lengur áfram. Frá þessu
skýrði Abdullah Hourani.
KHARTOUM - Leiðtogar
Súdan héldu neyðarfund eftir
að herforingjar í her landsins
neituðu bón Sadeq al-Mahdi
forsætisráðherra landsins um
stuðning hersins við umbóta-
áætlun og friðarviðræður við
skæruliða í suðurhluta
landsins. Sadeq mun því að
líkindum segja af sér.
FRÉTTAYFIRLIT
imilllllllllllllllllllll ÚTLÖND ............ .................. ....................... ................. ................ ................ ................. f,!, ....- -.............................. ................................ „
Yfirvikt í
grískri farþegaþotu:
Tólf farþegar
með aukakíló
skildir eftir
Yfirvöld í Júgóslavíu láta verkfallsmenn
í Kosovo fá fyrir ferðina:
Refsivöndur
Tólf þungaviktarfarþegar voru
skildir eftir á flugvellinum á grísku
eyjunni Samos í gær vegna þess hve
flugvélin sem bera átti þá til Aþenu
var orðin ofhlaðin og komst ekki í
loftið.
- Þetta var bæði fyndið og
sorglegt. Fyrst rifust farþegarnir við
áhöfn flugvélarinnar en síðan rifust
þeir sín á milli um það hver væri
léttastur, sagði Maria Lafi farþegi í
hinni sögulegu ferð.
- Ég fékk að fljóta með þrátt fyrir
aukakílóin - ég er komin átta mánuð
á leið.
Flugvélin sem er af gerðinni Boe-
ing 73 og tekur 130 farþega í sæti
komst í loftið tveimur tímum á eftir
áætlun vegna þessa máls, en farþe-
garnir feitu þurftu að bíða næsta
flugs, án matar ...
WASHINGTON - George
Bush forseti Bandaríkjanna
leggur allt undir til að fá öld-
ungadeild Bandaríkjaþings til
að staðfesta val hans á John
Tower sem varnarmálaráð-1
herra landsins þrátt fyrir það
að forsetinn kunni að bíða1
,alvarlega hnekki ef öldunga-|
jdeildin hafnar Tower. Frá
þessu skýrði Robert Dole leið-
togi repúblikana í öldunga-
deildinni.
JERÚSALEM - Hið hægri
sinnaða Likudbandalag Yit-
zhak Shamírs sigraði í sveitar-
stjórnakosningunum í ísrael
og túlka Likudbandalagsmenn
þann sigur sem stuðning ísra-
ela við þá stefnu Shamírs að
neita að ræða málin við PLO.
Gorbatsjovog
JóhannesPáll
vilja hittast
Gorbatstjov leiðtogi Sovétríkj-
anna er reiðubúinn til að hitta Jó-
hannes Pál páfa II að máli þegar
hann sækir Ítalíu heim í nóvem-
bermánuði. Það var leiðtogi ítalska
kommúnistaflokksins Achille Occ-
hetto sem skýrði frá þessu í gær, en
hann var í Moskvu um helgina að fá
rétta línu frá Gorbatsjov.
Páfinn hefur þegar lýst því yfir að
hann sé reiðubúinn til að hitta Gor-
batsjov að máli og yrði það fyrsti
fundur páfa og leiðtoga svo voldugs
kommúnistaríkis.
Forsætisráðherra Vatikansins Ag-
ostino Casaroli hitti Gorbatsjov að
máli á síðasta ári er hann heimsótti
Sovétríkin í tilefni af lOOOára afmæli
kirkjunnar í Rússlandi.
Ef af fundi verður eru líkur á því
að þeir félagarnir ræði eitthvað um
málefnin í Póllandi því páfinn er
pólskur. Það bar til tíðinda í Póllandi
um helgina að þekktur pólskur sagn-
fræðingur sagði það skýrt og skorin-
ort að Sovétmenn bæru ábyrgð á
morðum á að minnsta kosti 4000
pólskum liðsforingjum í Katyn skógi
árið 1940. Það hefur verið opinbert
leyndarmál í marga áratugi.
á loft gegn
forsprökkum
TOKYO - Mútuhhneyksli og
ný söluskattslög gætu orðið til
þess að ríkisstjórnin í Japan
neyðist til að rjúfa þing og boða
kosningar í apríl. Þetta var mál
stjórnmálaspekinga eftir að
skoðanakönnun sýndi að ríkis-
stjórn Nobru Takeshita nýtur
einungis stuðnings 19% kjós-
enda.
BANGKOK - Burmabúar
gætu orðið að þola herstjórn í
nokkur ár í viðbót eftir eins
flokks alræði i aldarfjórðung
þrátt fyrir byltingar þær er
gengu yfirlandið í haust. Ríkis-
stjórnin hefur ekki enn gefið út
hvenær þeir kjörnu fulltrúar
sem kjósa á á þing í haust fái
þau völd sem þeim ber.
WINDHOEK - Louis Pie-
naar sem var fylkisstjóri í Suð-
ur-Afríku tók við valdataumun-
um í Namibíu og lenti sam-
stundis upp á kant við Þjóðar-
samtök Suðvestur-Afríku er
hann skýrði frá því að sum
ákvæði aðskilnaðarlaganna
sem Suður-Afríkustjórn stjórn-
aði eftir á sínum tíma yrðu
áfram f gildi þar til landið fær
algert sjálfstæði.
Helstu leiðtogar Júgóslavíu tóku í
sama streng og Serbinn Slobodan
Milosevic sem hét því að taka í
lurginn á forsprökkum verkfalls
námuverkamanna í Kosovo, en
verkfall þeirra neyddi þrjá háttsetta
embættismenn í Kosovo hliðholla
Serbum til að segja af sér. Mikil reiði
ríkir meðal Serba vegna þessa, en
námuverkamennirnir eru af al-
bönsku bergi brotnir.
Raif Dizdarevic forseti Júgóslavíu
og stjórnarnefnd kommúnista-
flokksins hétu því að forsprakkar
verkfallsins yrðu handteknir og þeim
refsað. Voru það viðbrögð við mót-
mælagöngu hálfrar milljónar Serba
sem tóku sér stöðu utan við þinghús-
ið í Belgrad á þriðjudag eftir að
embættismennirnir sögðu af sér. Við
það tækifæri hét Slobodan Milosevic
hefndum.
Lögregla og hermenn voru á varð-
bergi við alla vegi er liggja’til og frá
Pristína sem er höfuðstaður sjálf-
stjórnarhéraðsins Kosovo þar sem
Albanir eru í miklum meirihlta.
Viðbúnaður hersins við landamæri
Júgóslavíu og Albaníu var einnig
mikil.
Þó flesti námuverkamennirnir hafi
hætt verkföllum þá liggur vinna
ennþá niðri á ýmsum stöðum.
100 FALLNIR
fVENEZÚELA
Ljóst er að hátt í hundrað manns
féllu í óeirðunum í Venezúela á
mánudag og þriðjudag þegar
múgurinn rændi og ruplaði í versl-
unum í borgum og bæjum eftir að
holskefla verðhækkana gekk yfir
landið. Forseti landsins Carlos
Andréz Pérez beitti valdi sínu til
að afnema um stundarsakir almenn
lýðréttindi og sendi hann hermenn
út á göturnar til að halda uppi
lögum og reglu.
Samkvæmt opinberum tölum
höfðu sextíu manns fallið í átökun-
um, en háttsettur maður innan
hersins sem ekki vildi láta nafns
síns getið sagði að tala fallinna
næði að líkindunt hundraðinu.
Málfrelsi, fundahöld og ferðalög
innan Venezúela eru nú bönnuð og
hefur herinn fengið rétt til að gera
húsrannsóknir án húsrannsóknar-
heimildar.
Hinar harkalegu efnahagsað-
gerðir sem Pérez kynnti á mánu-
daginn og hleyptu öllu í bál og
brand eru gerðar til að koma til
móts við Alþjóða gjaldeyrissjóðinn
sem setur mjög strangar kröfur til
að ríki fái lán úr sjóðnum. Skulda-
byrði Venezúela er mjög þung og
þrátt fyrir að ríkið þar hafi reynt að
komast hjá því að taka lán úr
sjóðnum er ekki hjá því komist nú.
Ofbeldisaldan hefur vakið mik-
inn óhug víða um heim því Venez-
úela hefur undanfarna áratugi ver-
ið fyrirmyndarland í Suður-Amer-
íku hvað lýðréttindi og almenn
lífskjör varðar.