Tíminn - 02.03.1989, Blaðsíða 4
4 Tíminn
Fimmtudagur 2. niars 1989
nr
Jón Helgason Guðnl Ágústsson Unnur Stefánsdóttir
alþingism. alþingismaður varaþingmaður
Rangæingar
Árlegir stjórnmálafundir og viötalstímar þingmanna Framsóknar-
flokksins veröa haldnir á eftirtöldum stööum:
1. Heimalandi, Vestur-Eyjafjallahreppi, mánudaginn 27. febr. kl. 21.
2. Gunnarshólma, Austur-Landeyjahreppi, þriöjud. 28. febr. kl. 21.
3. Hlíðarenda, Hvolsvelli, fimmtud. 2. mars kl. 21.
Vestur-Skaftfellingar
1. Leikskálum, Vík, föstudaginn 3. mars kl. 21.
2. Kirkjuhvoli, Kirkjubæjarklaustri, laugardaginn 4. mars kl. 14.
Vesturland - Formannafundur
Fundur formanna framsóknarfélaganna á Vesturlandi verður haldinn
í Hótel Borgarnesi laugardaginn 11. mars n.k. kl. 13.00.
Gudmundur Ragnheiður Sigurður
Guðmundur Bjarnason heilbrigöisráöherra, RagnheiðurSveinbjörns-
dóttir og Sigurður Geirdal koma á fundinn.
Sjá nánar í fundarboöi til félaganna.
Kjördæmissambandið.
Kópavogur
Bæjarmálafundur veröur haldinn 6. mars n.k. kl. 20.30 aö Hamraborg 5.
Skúli Sigurgrímsson, bæjarfulltrúi ræðir um fjárhagsáætlun og
stööuna í bæjarmálum.
Mætum öll og tökum þátt í umræðunni.
Framsóknarfélögin í Kopavogi
Borgnesingar - Nærsveitir
Spilum félagsvist í samkomuhúsinu í Borgarnesi föstudaginn 3. mars
kl. 20.30.
Allir velkomnir, mætum vel og stundvíslega.
Framsóknarfélag Borgarness.
Austur-Skaftfellingar:
Aðalfundur
Aöalfundur Framsóknarfélagsins verður haldinn í húsi Skinneyjar hf.,
föstudaginn 3. mars kl. 20.00.
Fundarefni:
1. Venjuleg aöalfundarstörf.
2. Húsnæðismál.
3. Önnur mál.
Stjórn Framsóknarfélagsins.
Framsóknarvist í Kópavogi
Framsóknarfélögin í Kópavogi
efna til 3ja daga spilakeppni í Félagsheimili Kópavogs Fannborg 2.
Spilað veröur þrjá sunnudaga í röö og í fyrsta sinn sunnudaginn 5.
mars n.k. kl. 15. Góð verðlaun verða veitt alla dagana og síðasta
daginn 19. mars veröa veitt glæsileg verðlaun til stigahæsta
einstaklingsins.
Kaffiveitingar veröa á staðnum.
Framsóknarfélögin í Kópavogi
Kópavogur
Skrifstofan í Hamraborg 5 er opin þriöjudaga og miövikudaga kl. 9-13.
Sími 41590. Heitt á könnunni.
Opið hús alla miðvikudaga kl.17-19. Félagsmenn eru hvattir til aö
líta inn og taka með sér gesti. Eflum flokksstarfiö.
Framsóknarfélögin í Kópavogi.
Hamstrið að hefjast
Fjöldi fólks hefur síðustu daga ver/ð að tryggja sér matvæli áður en hækkanir skella yfir af fullum
þunga eftir mánaðamótin núna. Hjá kaupmönnum fengust þau svör á einum stað að óvenju mikil verslun
væri stunduð miðað við aðum síðustu daga febrúarmánaðar erað ræða. Ólafur Sigurðsson, í Kostakaupi,
sagði lítið greitt með peningum en því meira með greiðslukortum. Bjóst hann við því að mikil
innkaupahrina væri nú í uppsiglingu og næði líklega hámarki um helgina. Hækkanir á matvælum kæmu
reyndar ekki strax til framkvæmda, þar sem hillur verslana eru en fullar af birgðum á „gamla verðinu“.
/ Miklagarði við Sund áttu menn erfitt með að meta hvort menn væru að hamstra mat fyrir hækkanir,
en þar hefur staðið yfir útsala á ódýrum frampörtum og hamborgarhryggjum í nokkra daga og mikið
verið að gera. Tímamynd Pjetur
Sjómenn í sumarfrí til Mið-Evrópu:
21 dagur í sumar-
húsi á 30.000 kr.
Orlofsnefnd sjómanna hefur gert samning við ferðaskrif-
stofuna Úrval um flug til Luxemborgar, sumarhús og
bílaleigubíla í sumar. Verður um að ræða sex brottfarir og
alls 400 sæti. Fyrsta ferðin verður farin 20. maí n.k. og sú
síðasta 2. sept.
Orlofsnefnd sjómanna var stofnuð
síðast liðið haust til að vinna að
ferðamálum sjómanna og að henni
standa Farmanna- og fiskimanna-
sambandið og Sjómannasamband ís-
lands cn meðlimir aðildarfélaganna
cru á áttunda þúsund manns.
Þórður Sveinbjörnsson formaður
orlofsnefndarinnar sagði blaðinu að
í samningnum fælist leiga á 17 húsum
og íbúðum í Saarburg - litlum bæ
rétt sunnan við Trier og samið hefði
verið um bílaleigubíla hjá bílaleig-
unni Lux-Viking/Budget, sem er í
eigu íslendinga, búsettra í Luxem-
borg.
Þórður sagði að miðað væri við
þriggja vikna ferðir, en fólk gæti
framlengt ferðina um eina viku á
eigin kostnað að því undanteknu að
fargjaldshluti ferðakostnaðarins
breyttist ekki.
Flogið yrði með venjulegu far-
þegaflugi til Luxemborgarog í fyrstu
og síðustu ferðinni verða 40 sæti cn
í öllum hinum 80 sæti.
Sem dæmi um verð má nefna að
séu fimm í húsi kostar ferðin á mann
kr. 30.936,- miðað við að greitt sé
inn á ferðina fyrir 15. mars. Fyrir
börn á aldrinum tveggja til tólf ára
er veittur afsláttur frá fullu fargjaldi
kr. 8.775,-.
Innifalið í verðinu er flugið báðar
leiðir, gisting í húsinu í þrjár vikur
ásamt öllu sem tilheyrir, svo sem
flugvallarskatti, hreingerningu, raf-
magni ogrúmfatnaði, o.s.frv. þannig
að fyrir hjón með þrjú börn undir
tólf ára aldri kostar þriggja vikna
ferð í sumarhúsi með öllu 128.355,-
Hæstiréttur úrskurðaði í fyrradag
að Pétur Guðgeirsson sakadómari,
dómsformaður í fjölskipuðum dómi
sem fjallar um Hafskipsmálið skuli
lcystur frá störfum, eins og Pétur
óskaði eftir sjálfur.
Pétur fór fram á það að vera
leystur frá störfum þar sem við
lögreglurannsókn á Hafskipsmálinu
Þórður sagði að þegar væri búið
að selja { um það bil helming hús-
anna eða um 200 sæti og sagði hann
að þeir sem ætluðu í húsin gengju
fyrir í þau fargjöld sem inni í ferða-
pakkanum væru, en ef eitthvað yrði
afgangs gæti fólk tekið flugfarið eitt
og ferðast á eigin vegum. Ekki yrði
því hægt að panta flugfarið ein-
göngu, a.m.k. ekki meðan pláss
fyrirfinnst í húsunum.
Starfsmaður orlofsnefndarinnar
veitir upplýsingar og tekur við
pöntunum í ferðirnar fyrri hluta
dags alla virka daga að Borgartúni
18. -sá
kom fram að maður tengdur honum
fjölskyldutengslum var náinn sam-
starfsmaður Björgólfs Guðmunds-
sonar fyrrum forstjóra Hafskips.
Sakadómur hafnaði þessari ósk Pét-
urs og vísaði hann því þá til Hæsta-
réttar, sem úrskurðaði að Pétur
skyldi leystur frá vegna tengsla við
starfsmanninn. - ABÓ
Hafskipsmáliö:
PÉTUR GUÐGEIRSSON
LEYSTUR FRÁ DÓMI