Tíminn - 10.03.1989, Side 12
12 Tíminn
Föstudagur 10. mars 1989
llllllllillllllllllllllll utlond ... .. ..... ... .. ... .. .1;: -.. ... .. -.. .....
Saudi-Arabar brjóta ísinn í Afganistan:
Viðurkenna ríkis-
stjórn skæruliða
Afganskir skæruliðar á leið til orrustu við Kabúl. Nú hafa Saudi-Arabar viðurkcnnt bráðabirgðastjórn þeirra.
FRÉTTAYFIRLIT
WASHINGTON - Banda- I
ríkjamenn sökuðu sovéskan
diplómat um njósnir og ráku
hann úr landi. Yuri Nikolaaye-
vich Pakhtusov sem var með í
hernaðarlegri sendinefnd So-
vétmanna í Bandaríkjunum
var lýstur persona non arata
og gert að yfirgefa landio hið
snarasta.
WASHINGTON - Nokkrir I
bandarískir þingmenn hafa
sakað Japana um að hafa
aðstoða Líbýumenn í því að
byggja efnaverksmiðju þá er
Bandaríkjamenn telja að eigi
að framleiða efnavopn. Þeir
krefjast þess að fyrirtæki þau
japönsk sem að þessu stóðu
verði bannað að athafna sig í
Bandaríkjunum.
LONDONDERRY - Tveir
hermenn létust og sex aðrir
særðust í sprengjutilræði IRA
í Londonderry. Hermennirnir
voru akandi á leið út úr borginni
þegar öflug jarðsprengja
sprakk með fyrrgreindum af-
leiðingum.
ISLAMABAD - Afganskir
skæruliðar ausa eldflaugum og
sprengjum yfir herdeildir
stjórnarhersins sem verja flug-
völlinn í Jalalabad. Það virðist
ekki duga því fiugvöllurinn er
enn í höndum stjórnarher-
manna sem verjast öllum árás-
um skæruliða.
VARSJÁ - Eftir viku þóf
nálgast fulltrúar ríkisstjórnar
Póllands og stjórnarandstöð-
unnar drög að samkomulagi
sem mun veita stjórnarand-
stöðunni nýtt hlutverk í pólsku
þjóðlífi. Samkvæmtsamkomu-
lagsdrögunum er gert ráð fyrir
að forsetavald verði líkt og í
Frakklandi og lýðræðislega
kjörið þing fái neitunarvald ýfir
samþykktum neðri deildar sem
kommúnistaflokkurinn skipar.
ADDIS ABABA - Súd-
anskir skæruliðar eru reiðu-
búnir að semja um vopnahlé í
borgarastyrjöldinni en kröfðust
þess að fyrst stæði ríkisstjórnin
við friðarsamkomulag sem
samið var um á síðasta ári.
JÓHANNESARBORG-
35 pólitískir fangar sem eru í
haldi án þess ao hafa komið
fyrir rétt hættu hungurverkfalli
eftir að þeir höfðu verið fullviss-
aðir um að þeir verði ákærðir
eða þeim sleppt.
Saudi-Arabar hafa brotið
ísinn gagnvart bráðabirgða-
stjórn skæruliða í Afganist-
an, en í gær viðurkenndu
þeir stjórnina sem lögmæta
stjórn Afganistan. Eru þeir
fyrsta ríkið sem stígur þetta
skref.
- Konungsríkið hefur
ákveðið að viðurkenna opin-
berlega bráðabirgðastjórn þá
er Mujahiddeen kaus á lýð-
ræðislegan hátt, sagði í yfir-
lýsingu utanríkisráðuneytis
Saudi-Arabíu vegna þessa
máls.
í yfirlýsingunni segir að ríkis-
stjórnin hafi verið kjörin af Shura
sem sé þing sem kæmi fram fyrir
hönd allrar afgönsku þjóðarinnar.
Skæruliðar Shíta múslíma, sem
bækistöðvar sínar hafa í íran, snið-
gengu Shuruna þar sem meirihluti
skæruliða sunníta múslfma, sem hafa
bækistöðvar í Pakistan, gengu ekki
að kröfum Shíta um aukna hlutdeild
í þinginu. Það virðist ekki hafa haft
ísraelski herinn mun draga
herlið sitt frá nokkrum hluta
Gazasvæðisins sem þeir
hernumdu í sex daga stríðinu
árið 1967. Þess í stað mun
landamæralögregla frá ísrael
sjá um löggæslu á svæðinu
þar sem uppreisn Palestín-
umanna hefur ríkt í sextán
mánuði.
Með þessu segjast hernaðaryfir-
völd vilja draga úr spennu og átökum
á þessum slóðum.
Tveimur fréttamönnum var vísað
frá Tíbet í gær, en herlög eru enn í
gildi í Lhasa höfuðborg landsins.
Óttast Tíbetar nú fjöldahandtökur
og aukið ofbeldi kínversku lögregl-
unnar sem gæti leitt til blóðbaðs.
Hin opinbera fréttastofa Nýja
Kína skýrði frá því að Guy Dinmore
hjá Reuter og Jasper Becker frá
Gardian hafi fengið sólarhringsfrest
til að yfirgefa Tíbet. Þeir fengu leyfi
til að ferðast til Tíbet sem ferða-
menn, en ekki sem fréttamenn.
Tvímenningarnir ku hafa tekið
myndir af átökunum í Lhasa á
áhrif á Saudi-Araba, en gæti komið
í veg fyrir viðurkenningu annarra
múslímaríkja.
Skæruliðaforinginn Gulbuddin
Hekmatyar sem fer með embætti
utanríkisráðherra í bráðabirgða-
stjórninni kom til Saudi-Arabíu á
miðvikudaginn, en hann hyggst taka
sæti Afganistan á fundi utanríkisráð-
hverfa á brott frá Jabalaya flótta-
mannabúðunum þar sem uppreisnin
hófst og hluta af Gazaborg.
Hernaðarsérfræðingar telja að
með því að skipta á hermönnum og
landamæralögreglunni sem eru mun
betur þjálfaðir í að eiga við uppþot,
þá muni mannfall og meiðsl í átökum
minnka til mikilla muna og spenna
því réna.
í landamæralögreglunni starfa
margir drúsar og gyðingar sem tala
arabísku. Er talið að samskipti
þeirra og Palestínumanna verði því
öllu skárri en hermanna sem tala
einungis hebresku.
dögunum og brotið þannig í bága við
lög sem banna myndatökur útlend-
inga af átökum og mótmælum að-
skilnaðarsinnaðra Tíbeta.
Þá eru tvímenningarnir sakaðir
um að hafa hindrað lögreglu að
starfi.
Þá hefur um fimmtíú útlendingum
verið vísað frá Lhasa í skjóli herlag-
anna. Þeir dvelja nú í borginni
Chendu sem er í nálægu héraði í
Tíbet. Er það talið fyrirboði enn
harkalegri aðfara kínverskrar lög-
reglu gegn aðskilnaðarsinnuðum
Tíbetum.
herra Samtaka íslamskra ríkja, en
Kabúlstjórnin tekur ekki þátt í starfi
samtakanna. Þannig hyggjast skær-
uliðar ná stuðningi fleiri ríkja mús-
líma.
Forsætisráðherra í bráðabirgða-
stjórn Afganistan er skæruliðafor-
inginn Abdurrab Rasul Sayyaf, en
Eastern Airlines sem er sjöunda
stærsta flugfélag Bandaríkjanna
lýsti sig gjaldþrota í gær eftir að
flugvélvirkjar hjá félaginu höfðu
verið í verkfalli í sex daga. Flugfé-
lagið mun þó halda áfram starfsemi
sinni fyrst um sinn, en fær frið fyrir
skuldunautum sínum á meðan sér-
stakur gjaldþrotadómstóll kafar
ofan í reikninga félagsins.
Verkfall flugvélvirkjanna hófst
á laugardaginn og höfðu flugmenn
félagsins einnig lagt niður vinnu til
að styðja við bakið á flugvirkjun-
um. Þá hafa flugmenn á öðrum
flugfélögum hafið aðgerðir til
stuðnings félaga sinna hjá Eastern.
Skriðdrekar og þungvopnaðir
hermenn gæta nú laga og reglu í
Kosovo til að ekki slái í brýnu milli
Albana og Serba í þessu sjálf-
stjórnarhéraði í Júgóslavíu þar sem
kynþáttaólga hefur sett sterkan
svip á daglegt líf að undanförnu.
Þrátt fyrir það virðist spennan og
hatrið milli kynþáttanna fara dag-
vaxandi.
Viðbúnaður var sérlega mikill
við zinknámurnar í Mitrovica í
gær, en þar hófst verkfall það sem
varð til þess að yfirvöld í Belgrad
ákváðu að senda herlið á staðinn
og lýsa yfir hernaðarástandi í hér-
aðinu. Ástæða þessa var sú að
Saudi-Arabar hafa stutt skæruliða-
samtök hans dyggilega í borgara-
styrjöldinni í Áfganistan. Ástæða
þess er að Sayyaf er af svokölluðum
Wassabi meiði íslam. Þó tiltölulega
fáir Afganar fylgi því trúarafbrigði
íslam þá eru flestir Saudi-Arabar
áhangendur Wassabi.
Verkfall flugvirkjanna er harka-
legasta verkfall í Bandaríkjunum
frá þvf flugumferðarstjórar fóru í
verkfall árið 1981. Þá braut Ronald
Reagan verkfall þeirra á bak aftur
með því að láta flugumferðarstjóra
á vegurn flughersins taka yfir störf
þeirra.
George Bush segist ekki muni
grípa inn í þessa launadeilu.
Talsmenn Eastern segjast munu
endurskipuleggja fyrirtækið og
vinna sig út úr gjaldþrotinu. Þeir
segjast ekki geta hækkað laun hjá
fyrirtækinu vegna fjárhagsstöð-
unnar og því fari svona.
yfirvöld birtu sérstök neyðarlög
þar sem verkamenn verða hand-
teknir mæti þeir ekki í vinnu sína.
Námurnar hafa verið lokaðar
allt frá því að 1300 námaverka-
menn af albönsku bergi brotnir
lögðu niður vinnu 21.febrúar og
komu þannig af stað allsherjar
verkfalli í Kosovo.
Yfirvöld vonast til þess að nær
allir verkamenn mæti til vinnu
sinnar í dag, enda munu um þrjú-
hundruð hermenn vopnaðir eld-
vörpum, sprengivörpum, stórum
vélbyssum og léttum stórskotaliðs-
vopnum gæta námasvæðisins.
ísrael:
Herlið á brott
frá hluta Gaza
Bandaríkin:
Eastern Airlines
lýst gjaldþrota
Heimildir herma ‘að herlið muni
Fréttamönnum vísaö frá Tíbet:
Óttast ofbeldi
og fjöldahand-
tökur í Lhasa
Júgóslavía:
Mikill viðbunaður
hersins í Kosovo