Tíminn - 14.03.1989, Page 2
2 Tíminrv
Þriðjudagur 14. mars 1989
Sovétmenn báðu Útvegsbankann að ganga í ábyrgð fyrir Olís en Útvegsbankinn hafnaði því:
Sovétmenn höfnuðu
ábyrgð Alþýðubankans
„Það er ekki heimilt að rökræða málefni einstakra
viðskiptamanna og mér skilst að ég megi ekki segja
nokkurn skapaðan hlut og allra síst við blaðamenn. Eg get
þó sagt að ég hef gengið úr skugga um að það eru fyllilega
traustar tryggingar af hálfu Olís fyrir þeim ábyrgðum sem
Alþýðubankinn hefur veitt.“
Þetta sagði Ásmundur Stefánsson
formaður bankaráðs Alþýðubank-
ans þegar Tíminn spurði hann hvers
vegna minnsti banki landsins gengist
í tæplega 70 milljón króna ábyrgð
vegna olíuinnkaupa Olís og hvort
það sé skynsamlegt í ljósi þess að
Landsbankinn hefur neitað því sama
og er þó viðskiptabanki félagsins.
í byrjun síðustu viku lagði skip af
stað með gasolíufarm frá Sovétríkj-
unum til landsins og gekkst Alþýðu-
bankinn öðru sinni á stuttum tíma í
ábyrgð fyrir hluta Olís í farminum
að verðmæti tæplega 50 milljónir
króna og hefur því opnað ábyrgðir
fyrir alls um 70 milljónir króna.
Á föstudaginn var gerðist það hins
vegar að skeyti barst frá Sovétríkj-
unum um að þeir viðurkenndu ekki
ábyrgð Alþýðubankans og barst
samhljóða skeyti um þetta m.a. til
viðskiptaráðuneytisins og bæði
Skeljungs og Olíufélagsins hf.
í skeytinu stendur að Alþýðu-
bankinn starfi ekki á sama grundvelli
og banki Sovétmanna sjálfra sem
annast olíuviðskiptin við íslendinga
og því sé óskað eftir því að lögð
verði fram ábyrgð frá Utvegsbank-
anum.
Ráðuneytið segir ekkert
„Ég vil ekkert um þetta segja. Ég
held að þú verðir að tala við Óla Kr.
Sigurðsson forstjóra Olís. Við höf-
um eftirlit með framkvæmd olíu-
samningsins en erum ekki stöðugt
að fylgjast nteð smáatriðum eða
svara til eða frá um þau,“ sagði Jón
Ögmundur Þormóðsson í viðskipta-
ráðuneytinu.
- En hvað gerist ef Sovétmenn
neita alfarið að taka mark á ábyrgð
Alþýðubankans?
„Það kemur þá bara í Ijós ef svo
fer. Að öðru leyti get ég ekki tjáð
mig um málið," sagði Jón Ögmund-
ur.
Ekki náðist í Óla Kr. Sigurðsson
allan daginn í gær þrátt fyrir ítrekað-
ar tilraunir.
Bankamenn telja að tryggingar
sem Alþýðubankinn hefur fengið
séu í raun ekki aðrar en þær að
Könnun hf. sem annast ýmiskonar
tryggingamál og úttektir, hefði verið
fengin til að mæla það sem á birgða-
geymum Olís er nú og síðan verði
greitt fyrir það sent af tönkunum
verður tekið, líkt og gert er nú með
olíu þá sem Texaco lánaði Olís fyrir
skömmu.
Sömu heimildir segja einnig að
Alþýðubankinn hafi óskað eftir því
við Útvegsbankann að hann ábyrgð-
ist olíukaupin fyrir Olís gegn því að
Alþýðubankinn baktryggði þau, en
því hafi Útvegsbankamenn hafnað.
Útvegsbankinn ekki með
„Almennt séð vil ég ekki ræða
þessi mál en ég get sagt að við erum
ekkert inni í þessunt málum Olís og
Alþýðubankans og Olís hefur ekkert
leitað til okkar um viðskipti af
nokkru tagi,“ sagði Guðmundur
Hauksson bankastjóri Útvegsbank-
ans þegar þetta var borið undir hann.
Tíminn spurði Ásmund hvaða
tryggingar bankinn hefði tekið fyrir
ábyrgðum sínum. Hann sagðist ekki
geta rætt þetta mál í smáatriðum en
hann gæti þó fullyrt að ekki væri
verið að hætta Alþýðubankanum og
endurtók að fyllilega traust veð og
tryggingar væru fyrir þeim ábyrgðum
sem bankinn hefur gefið út vegna
Olís. Allar sögusagnir um annað
væru byggðar á misskilningi.
„Sem lítill banki höfum við ekki
aðstöðu til að taka mikla áhættu,
enda gerum við það ekki, það er
alveg ljóst,“ sagði Ásmundur.
- En hvað er það sem rekur
Alþýðubankann til að opna ábyrgðir
vegna fyrirtækis sem á í alvarlegum
útistöðum við viðskiptabanka sinn?
„Ég vil ekki segja að neitt reki
Alþýðubankann til að gera eitt eða
neitt. Ég fæ ekki séð að einhver hafi
keyri á bankann. Málið var einfald-
lega metið og niðurstaðan varð sú að
ganga í ábyrgð þar sem fyllstu trygg-
ingar komu á móti.“
Nýjar ábyrgðir í vikunni
Ef farið verður eftir settum reglum
um olíukaupin frá Sovétríkjunum
þá þarf að opna ábyrgðir þegar í
þessari viku fyrir þrem olíuförmum:
Þann 20. þ.m, verður olíuskip lestað
bæði bensfni og gasolfu. Milli 25. og
30. þ.m. verða síðan lestuð tvö skip;
annað gasolíu, en hitt svartolíu.
Fullvíst þykir að Sovétmenn muni
ganga mjög hart eftir því sem þeir
telja öruggar ábyrgðir. Framtíð Al-
þýðubankans í olíuviðskiptum og
raunar framtíð Olís munu því að
líkindum ráðast á næstu dögum og
vikum. _
Júpíter kemur til hafnar í
Loðnufrysting
Tímamynd: Arni Bjama
hefst að nýju:
METDAGURA
L0DNUMIDUM
Mjög góð veiði var um helgina á
loðnumiðunum úti fyrir Suðaust-
urlandi. Alls var tilkynnt um
64.870 tonn frá aðfaranótt föstu-
dags fram á miðjan dag í gær.
Metdagur varð á föstudag, en þá
tilkynntu 36 bátar um 28.350 tonna
afla, sem er mesti afli sem tilkynnt
hefur verið um á einum degi.
Á laugardag tikynntu fimm bátar
um 3.850 tonna afla og á sunnudag
tilkynnti 31 bátur um 22.330 tonn.
Síðdegis í gær hafði verið tilkynnt
um 10.340 tonnaaflafrá 12bátum.
Aflinn á föstudag fékkst út af
Ingólfshöfða, en frá laugardegi
hafa bátamir verið að veiðum út af
Hornafirði.
Að sögn Ástráðs Ingvarssonar
hjá Loðnunefnd stóð loðnan held-
ur djúpt, eða um 30 faðma og náðu
bátarnir því ekki nema um 100
tonnum í kasti. Loðnan þyrfti hins
vegar ekki að lyfta sé nema um
fimin faðma eða svo til að köstin
yrðu stærri. Búist var við því að
hún lyfti sér með kvöldinu.
Hrognafylling þessarar loðnu,
sem bátarnir hafa verið að veiða
undanfarna daga, er um 18%,
þannig að hún er ekki tilbúin til
hrognatöku, en hins vegar ágæt til
frystingar og hafa margir staðir á
Austfjörðum og í Vestmannaeyj-
um hafið loðnufrystingu að nýju,
eftir hátt í þriggja vikna stopp.
Heildaraflinn á vertíðinni er orð-
inn um 781 þúsund lestir og því
ekki eftir að veiða nema um 141
þúsund lestir. -ABÓ
Grænfriðungar mótmæla sýningu myndarinnar „Lífsbjörg í norðurhöfum" og hóta málsókn:
Meiðyrði og brot
á höfundarrétti?
Ríkissjónvarpið sýnir í kvöld myndina „Lífsbjörg í norðurhöfum“
og virðist allt benda til þess að grænfriðungar höfði mál á hendur
Sjónvarpinu í kjölfar sýningarinnar vegna meiðyrða og brota á
lögum um höfundarrétt.
Síðastliðinn laugardag sendu
grænfriðúngar útvarpsstjóra skeyti
þar sem þess er krafist að fulltrúar
samtakanna fái að sjá myndina eigi
síðar en mánudaginn 13. mars, þar
sem samtökin hafi rökstuddan grun
um að í myndinni sé að finna
ærumeiðandi ummæli í þeirra garð
auk rangra sakargifta. Jafnframt er
þess krafist að Sjónvarpið afhendi
samtökunum eintak af myndinni til
að hægt sé að kynna hana í höfuð-
stöðvum samtakanna í Englandi. En
samtökin telja nauðsynlegt, hags-
muna sinna vegna, að þau fái tæki-
færi til að koma sínum sjónarmiðum
á framfæri fyrir sýningu myndarinn-
ar. Þess er einnig krafist í skeytinu
að sýningu myndarinnar sé frestað
ótiltekið.
Markús Örn Antonsson sendi lög-
fræðingi grænfriðunga á íslandi,
Róberti Árna Hreiðarssyni, svar við
þessu skeyti í gær og þar kemur fram
að Ríkisútvarpið ákveði sjálft og
meti það efni sem það flytur. Það sé
grundvallarregla í óháðri fjölmiðlun
að utanaðkomandi aðilar ritskoði
eða ritstýri ekki því efni sem flutt er
og þar með sé þessari kröfu hafnað.
Grænfriðungum hefur verið boðið
að taka þátt í þeim umræðunt sem
verða eftir sýningu myndarinnar í
kvöld en í gærdag höfðu samtökin
ekki gefið svar.
Sem fyrr segir hafa grænfriðungar
hótað málsókn vegna sýningar á
myndinni, en fulltrúar Sjónvarpsins
og lögfræðingur þess komu ekki
auga á neitt í myndinni sem gefið
gæti tilefni til málshöfðunar. Róbert
Á. Hreiðarsson sagði í viðtali við
Tímann í gær að ef til málsóknar
komi yrði það í fyrsta lagi vegna
brota á höfundarrétti þar sem að
þeirra mati er í myndinni notað á
óleyfilegan hátt efni sem er í eigu
samtakanna. Einnig bendi allt til
þess að í myndinni séu brotin þau
lög er varða æru manna og rangar
sakargiftir.
Hvað varðar brot á lögunt um
höfundarrétt hefur Magnús Guð-
mundsson sagt að hann hafi undir
höndum bréf þar sem samtökin veiti
leyfi fyrir notkun efnisins í mynd-
inni. Hvað þetta varðar sagði Róbert
að mat samtakanna væri á þá leið að
þetta efni væri notað á óleyfilegan
hátt. f tilkynningu frá grænfriðung-
um segir að Magnús Guðmundsson
hafi enga heimild til að taka kafla úr
eða sýna efni sem er í eigu grænfrið-
unga.
Aðspurður sagði Róbert að allt
benti til þess að grænfriðungar taki
ekki þátt í umræðunum í kvöld og
mál verði höfðað í kjölfar sýningar-
innar. „Mér sýnist staðan vera
þannig, en ég er ekki málsvari sam-
takanna. Ég tók þetta tiltekna mál
að mér og hef engar „prívat“
skoðanir á því hvort hér er rétt með
farið eða ekki. Þessi samtök áttu rétt
á lögmanni til að sjá um sín mál eins
og allir aðrir og ég tel það skyldu
mína sem lögmanns að vinna þetta
verk samkvæmt beiðni. Róbert sagði
einnig að einhverra hluta vegna
hefðu margir lögmenn ekki viljað
taka þetta mál að sér. Þess má svo
geta að Róbert baðst undan því að
birt yrði mynd af honum þar sem
hugur íslendinga í þessu máli væri
þannig um þessar mundir að honum
yrði tæplega vært á götum úti.
_____________________ SSH
Snjóflóðið í Óshlíð:
Leit bar árangur
Lík Skarphéðins Rúnars Ólafs-
sonar, annars mannanna sem leit-
að hefur verið að síðan snjóflóð
féll í Óshlíðinni á þriðjudag fyrir
viku, fannst á laugardag. Hann
fannst í sjónum rétt vestan við
þar sem flóðið féll. -ABÓ