Tíminn - 14.03.1989, Blaðsíða 11
10 Tíminn.
Þriðjudagur 14. mars 1989
Þriðjudagur 14. mars 1989
Tíminn 11
Handknattleikur:
Valsmenn voru skör ofar
Unnu 6 marka sigur, 22-16,
Valsmenn fengu tækifærí á að
gera út um Evrópuviðureign sína
gegn a-þýska liðinu Magdeburg í
Laugardalshöllinni á sunnudags-
kvöld. Tólf marka sigur hefði ekki
verið fjarri lagi, en í stað þess
klúðruðu þeir fjölmörgum dauða-
færum og 5 vítaköstum. Þeir fara þó
með 6 mörk í nesti til A-Þýskalands
um næstu helgi, en síðari leikur
liðanna verður í Magdeburg á laug-
ardag.
Leikurinn var í járnum framan af,
eða allt þar til Valsmenn breyttu
stöðunni úr 6-6 í 9-6. Þeir tóku aðra
skorpu rétt fyrir leikhlé og gerði 3
mörk í röð og höfðu yfir í leikhléi
12-7.
Nokkuð dró af Valsmönnum í
upphafi síðari hálfleiks, eða leik-
menn Magdeburgar hresstust öllu
hcldur nokkuð. Munurinn fór niður
í 3 mörk 13- 10, en Valsmcnn komu
síðan með góðan leikkafla og voru
nánast einráðir á vellinum. Þeir
komust í 17-11 og 21-12, en þá var
sem þætti nóg komið. A-Þjóðverj-
arnir skoruðu 4 mörk í röð og
minnkuðu muninn í 21-16. Júlíus
Jónasson gerði síðan 22. mark
Valsmanna sem unnu öruggan sigur
22-16.
Eins og áður sagði hefði Valsmenn
átt að vinna mun stærri sigur í
þessum leik. Þeir voru skör ofar en
a-þýska liðið, én markvarsla Gunars
Schimrocks og klaufaskapur Vals-
manna kom í veg fyrir að sigurinn
yrði enn stærri. Öll vítaköst Vals-
manna í leiknum, 5 talsins, fóru
forgörðum. Schimrock varði 3
þeirra, en 2 höfnuðu í markstöng
A-Þjóðverja. Dauðafæri fóru for-
görðum þar sem Valsmenn hittu
ekki markið eða sendingar rötuðu
ekki rétta leið. Valsmenn geta sjálf-
um sér um kennt ef þessi munur
nægir þeim ekki í síðari leiknum,
þeir fengu færin en misnotuðu þau.
Leikurinn var mjög skemmtilegur
en klúðruðu fjölda dauðafæra
þennan leik með 10 marka mun. Ég
er hóflega bjartsýnn fyrir síðari leik-
inn, ef varnarleikurinn verður í lagi
þá ættum við að komast áfram. Það
hefur sýnt sig í Evrópukeppninni að
allt getur gerst í síðari leiknum.
Okkur tókst að halda markatölunni
á að horfa og áhorfendur skemmtu
sér vel. Valsmenn skoruðu glæsileg
mörk sem yljuðu áhorfendum um
hjartaræturnar. Bestur Valsmanna í
leiknum var án efa Páll Guðnason
markvörður, sem stóð í markinu
allan tímann og varði 14 skot, 7 í
hvorum hálfleik. Sigurður Sveinsson
sýndi skemmtileg tilþrif í leiknum,
skoraði falleg mörk og gaf glæsilegar
línusendingar á félaga sína. Sigurður
hefur þó oft leikið betur og hann
misnotaði mörg færi í leiknum. Þeir
Jakob Sigurðsson, Valdimar Gríms-
son og Geir Sveinsson skiluðu sínu
með sóma og Þorbjörn Jensson átti
góðan leik í vörninni. Greinilegt var
að landsliðsmenn þeirra Valsmanna
eru í góðri æfingu um þessar mundir.
„Það var fyrst og fremst mjög
góður varnarleikur okkar sem skóp
sigurinn. Við unnum með 6
mörkum, en klúðruðum mörgum
færum og vorum óheppnir í víta-
köstunum. Við hefðum átt að vinna
niðri í þessum leik og megum því að
öllum líkindum tapa með 6 mörkum
úti. Ef þeir ná upp stemningu á
laugardaginn í Magdeburg getur allt
gerst,“ sagði Valdimar Grímsson
Valsmaður eftir leikinn á sunnudags-
kvöld.
í liði Magdeburgar var Gunar
Schimrock góður í markinu og Peter
Pysall var sprækastur útileikmann-
anna.
Dómararnir frá Noregi dæmdu
þokkalega.
Mörkin Valur: Sigurður Sveinsson
6, Jakob Sigurðsson 4, Júlíus Jónas-
son 4, Geir Sveinsson 3, Valdimar
Grímsson 2, Jón Kristjánsson 2 og
Theodór Guðfinnsson 1. BL
Handknattleikur:
Evrópudraumur FH varð
að hreinni martröð
Liöiö tapaöi með 10 marka mun fyrir SKIF Krasnodar frá Sovétríkjunum 24-14
„Sovéska liðið var mun öflugra en
við reiknuðum með. Við höföum
séð þá á myndbandi og í þeim leik
virtust þeir þungir og leika hægan
handknattleik. Þeir voru mjög góðir
í þessum leik og við lékum illa.
Skytturnar brugðust alveg og mark-
varslan var nánast engin. Lið Kras-
nodar lék mjög góða vörn og skoraði
mikið úr hraðaupphlaupum, á með-
Handknattleikur:
Annar ósigur hjá
FH gegn Krasnodar
FH-ingar léku í gær seinni leik
sinn gegn rússnesku risunum í SKIF
Krasnodar. Leikurinn átti upphaf-
lega að fara fram um næstu helgi en
FH-ingar fengu Rússana til að leika
seinni leikinn hér á landi. FH-ingar
þurftu að vísu að borga Rússunum
um 250.000,00 krónur fyrír vikið og
var það í ýmsu formi, t.d. lopapeysur
handa eiginkonum leikmanna, nýir
búningar á liðið, fjórir tennisspaöar
o.fl.
FH-ingar hófu leikinn af krafti og
ætluðu greinilega ekki að láta leika
sig eins grátt og í fyrri leiknum.
Bergsveinn Bergsveinsson, mark-
maður FH, fór hamförum í marki
FH og varði hvað eftir annað stór-
kostlega. Markvarsla Bergsveins gaf
leikmönnum FH byr undir báða
vængi og þeir náðu fimm marka
Gróttusigur
Gróttan tryggði stöðu sína í
1. deild er hún vann KR óvænt
22-17 í gærkvöldi. Jafnt var á
fyrstu tölum leiksins en svo
sigu Gróttumenn framúr og
unnu sanngjaman sigur.
Lcikurinn þótti frekar slakur
sóknarlega séð en þokkalegur
vamarieikur sást á köflum.
FH.
forskoti þegar um 6 mín. voru til
leikhlés. Gunnar Beinteinsson fór á
kostum og skoraði hvert glæsimarkið
á fætur öðru. En leikmenn Krasno-
dar náðu að minnka muninn fyrir
leikhlé niður í þrjú mörk, 11-14.
En Adam var ekki lengi í Paradís.
Leikmenn Krasnodar með Sergej
Ladygin fremstan í flokki sýndu það
og sönnuðu hvers þeir eru megnugir.
Þeir söxuðu á bilið og vel það.
Um miðjan seinni hálfleik voru
leikmenn Krasnodar búnir að jafna
leikinn og þá sprungu leikmenn FH
á limminu. Þegar flautað var til
leiksloka var öruggur sigur Krasno-
dar í höfn, 25-19.
Bergsveinn Bergsveinsson var
bestur FH-inga í gær. Hann varði
alls 17 skot og mörg þeirra úr opnum
færum. Gunnar Beinteinsson fór á
kostum í fyrri hálfleik og gerði mörg
glæsileg mörk. Einnig voru þeir
sprækir Guðjón Árna og Óskar
Ármanns.
Lavrow markvörður og Ladygin
voru bestir leikmanna Krasnodar,
en annars var rússneska liðið mjög
jafnt.
Dómarar voru Koppe og Haak frá
Hollandi og voru þeir slakir.
Mörk FH: Gunnar 7, Guðjón 6/3,
Óskar 3 og Þorgils 3.
Mörk Krasnodar: Ladygin 5, Ti-
tow 4, Stepanenko 4, Kaljasin 3,
Zhycharew 3/2, Porurkin 3/1 og
Levin 1. FH.
an við fengum engin hraðaupphlaup.
Þá er því ekki að leyna að við
gáfumst upp undir lokin. Við verð-
um að horfast í augu við það að
Evrópudraumurinn er úti í þetta
sinn,“ sagði Viggó Sigurðsson þjálf-
ari FH-inga, eftir leikinn á sunnu-
daginn.
Fyrri hálfleikur var jafn og spenn-
andi og Gunnar Beinteinsson kom
FH yfir með því að skora fyrstu 2
mörk FH-liðsins. Hinn hávaxni
Zhycharew jafnaði fyrir Krasnodar
og Þorgils Óttar kom FH yfir á nýjan
leik 3-2. Næstu 2 mörk áttu Sovét-
mennirnir og j^eir voru komnir yfir
4-3 í fyrsta sinn í leiknum. Næstu 3
mörk gerðu FH-ingar og breyttu
stöðunni í 6-4. Héðinn gerði 4.
markið en þá tók Óskar Ármanns-
son við með tveimur mörkum úr
vítaköstum. Tveggja marka forysta
FH og útlitið virtist hreint ekki svo
slæmt fyrir liðið.
En Adam var ekki lengi í Paradís
og 4 mörk Svartahafsliðsins litu
dagsins ljós á næstu mínútum, þar af
2 á stuttum tíma úr hraðaupphlaup-
um, eftir að Lavrov markvörður
þeirra hafði varið skot FH-inga.
Krasnodar-liðið var nú komið með
yfirhöndina í leiknum og virtist ekki
á þeim buxunum að láta hana af
hendi. Guðjón Árnason gerði tvö
mörk úr vítaköstum áður en hálf-
leikurinn var úti og staðan 8-10 fyrir
sovéska liðið.
Þáttur markvarðanna í fyrri hálf-
leik var nokkuð skrautlegur. Þeir
félagar Bergsveinn Bergsveinsson og
Magnús Árnason vörðu sitt skotið
hvor í hálfleiknum, meðan félagi
þeirra í marki Krasnodar, Andrej
Lavrov, varði 12 skot og þar af eitt
vítakast.
FH-ingar hófu síðari hálfleikinn
með látum og náðu þegar af jafna
metin 10-10 með tveimur mörkum
Guðjóns Árnasonar. Sovésku leik-
mennirnir vöknuðu við vondan
draum og keyrðu upp hraðann. Þeir
gerði 6 mörk í röð, án þess að
Hafnfirðingunum tækist að svara
fyrir sig og breyttu stöðunni í 10-16.
Óskar Ármannsson hafði þá fengið
að sjá rauða spjaldið hjá hollensku
dómurunum fyrir harðan varnarleik.
Þessi munur hélst áfram næstu
mínútur, Ólafur Magnússon, ungur
leikmaður í liði FH, skoraði 11.
markið. Héðinn náði loksins að
skora tr hann stökk upp fyrir háa
vörn Krasnodar og skoraði 12. mark
FH. Gunnar Beinteinsson skoraði
sitt 3. mark og 13. mark FH og
Guðjón Árnason skoraði 14. markið
stuttu síðar. Þá var staðan 14-19 og
skammt til leiksloka. Síðustu mínút-
urnar gáfust leikmenn FH hreinlega
upp og Krasnodar-liðið sigldi fram
úr á mikilli ferð. 5 síðustu mörkin í
leiknum voru þeirra gegn varamönn-
um FH sem léku síðustu mínúturn-
ar. Lokatölur leiksins voru því 14-24
og sovéska liðið búið að gera út um
hvort liðið kemst áfram í Evrópu-
keppninni að þessu sinni.
Eftir leikinn sömdu FH-ingar við
Sovétmennina um að leika síðari
leikinn einnig hér á landi, þar sem
ferð til Svartahafs með 10 mörk á
bakinu var mjög ófýsilegur kostur
fyrir FH. Síðari leikurinn fór fram í
gærkvöld og sagt er frá leiknum
annars staðar á síðunni.
Skytturnar í liði FH brugðust
algjörlega í þessum leik. Þær mættu
hreinlega ofjörlum sínum og náðu
ekki að skjóta yfir vörnina sem var
skipuð þremur tveggja metra
mönnum. Línusendingar og vítaköst
í kjölfar þeirra héldu FH-ingum á
floti í fyrri hálfleiknum, en í þeim
síðari þéttu Sovétmennirnir vörnina
og lokuðu fyrir línusendingarnar.
Bergsveinn í marki FH bjargaði
liði sínu frá enn stærri skell og varði
5 skot í síðari hálfleik, þar af 3
vítaköst. Lavrov í marki Krasnodar
hélt uppteknum hætti í síðari hálf-
leiknum og varði 7 skot, þar af 1
vítakast, eða alls 19 skot í leiknum.
Hollensku dómararnir dæmdu
mjög mikið og tóku hart á leikmönn-
um fyrir brot.
Mörkin FH: Guðjón Árnason 5/3,
Gunnar Beinteinsson 3, Óskar Ár-
mannsson 2/2, Héðinn Gilsson 2,
Ólafur Magnússon 1 og Þorgils Óttar
Mathiesen 1. Krasnodar: Ladigin 6,
Titow 4, Zhychrew 4/1, Stepanenko
3/1, Gonatschenko 3/1 og Levin 3.
BL
Körfuknattleikur:
Valdimar Grímsson er hóflega bjartsýnn fyrir síðari leik Vals og Magdeburgar um næstu helgi.
Hér skorar Valdimar eitt marka sinna í leiknum á sunnudagskvöld.
Blak:
Titillinn í
augsýn hjá
KA-mönnum
Unnu öruggan sigur gegn HK um helgina - Öruggur
sigur Þróttar gegn Stúdentum í Reykjavík
Frá Jnhannesi Bjarnasyni fréllamanni Tímarn:
KA-menn færðust skrefl nær íslands-
meistaratitlinum í blaki með því að sigra
HK í þremur hrinum, en leikurinn fór fram
norðan heiða á sunnudagskvöld.
Strákarnir úr Kópavogi höfðu lítið í
heimamenn að gera og voru sem áhorfend-
ur í fyrstu hrinu, sem endaði með öruggum
sigri KA-mnnna 15-3. Heldur hresstust
þeir þegar líða tók á leikinn, en það fór
aldrei á milli mála hvort liðið værí sterkara.
Önnur hrina cndaði 15-8 og sú síðasta
15-10. KA-menn eiga eftir tvo leiki í ’
úrslitakeppninni, gegn ÍS heima og Þrótti
í Reykjavík. Dugir þcim sigur úr annarrí
viðureigninni til að tryggja íslandsmeist-
aratitlinum dvalarstað á Akurcyri næsta
áríð, við hlið deildarmeistaratitils og hugs-
anlega sigurlaunanna úr bikarkeppninni.
Allir leikir vetrarins hafa unnist og
blakararnir hafa vakið verðskuldaða at-
hygli bæjarbúa. í þessum leik var það Fei
þjálfari sem best spilaði, en liðið allt er
mjög jafnt. HK-piltamir börðust vel í
annarri og þriðju hrinu, en voru einfald-
lega að etja kappi við sér sterkara lið.
í Reykjavík var einn leikur í úrslita-
keppni karla. Þróttarar unnu öruggan
sigur gegn Stúdentum 3-0 í Hagaskóla. í
kvennaflokki vann ÍS 3-0 sigur gegn UBK
■ og á laugardag unnu Víkingsstúlkur örugg-
an sigur á Þrótti Nes. 3-0.
Einn leikur var í íjögurra liða úrslitum í
bikarkeppni kvenna á Húsavík. HK-stúlk-
ur unnu 3-0 sigur gegn Völsungi. JB/BL
KR vann taugastríðið -
Njarðvíkingar úr leik
Það ríkti mikil taugaspenna
íþróttahúsi Hagaskóla í gærkvöld er
KR-ingar tóku á móti Njarðvíking-
um í síðari leik liðanna í undanúrslit-
um Islandsmótsins í körfuknattleik.
Taugastríðið var jafnt inná vellinum
sem og í troðfullri áhorfendastúk-
unni. Njarðvíkingar urðu að vinna
leikinn til þess að eiga möguleika á
titlinum og KR-ingar vildu ólmir
losna við að fara til Njarðvíkur í
oddaleik.
Það var mikil pressa á Njarðvík-
ingum fyrir þennan leik, eftir tapið
á föstudag urðu þeir að vinna leik-
inn. Liðið hefur staðið sig allra liða
best á mótinu í vetur og því margir
sem höfðu reiknað með þeim sem
íslandsmeisturum. En KR-ingar
voru á öðru máli. Þeir réðu lögum
og lofum í Hagaskóla í gærkvöld og
unnu öruggan sigur. Fljótlega í
leiknum náðu þeir 9 stiga forystu
22-13 og þeir létu þessa forystu ekki
af hendi. I leikhléi var staðan 40-32
KR í vil.
KR-ingar komnir í úrslit íslandsmótsins í körfuknattleik
Það hafa vafalaust margir reiknað
með því að Njarðvíkingar rækju af
sér slyðruorðið í síðari hálfleiknum
en það var öðru nær. Langtímum
saman gekk hvorki né rak hjá hvor-
ugu liðinu vegna taugaspennu, en
um miðjan hálfleikinn hrökk Guðni
Guðnason í gang og gerði út um
leikinn. Guðni gerði hverja körfuna
á fætur annarri og munurinn var allt
í einu orðinn 20 stig, 60-40. Þrátt
fyrir að KR-ingar misstu 4 leikmenn
sína út af með 5 villur á lokamínút-
unum þá kom það ekki að sök. Fyrst
fór Birgir út af þegar staðan var
62-45 og 5:20 mín. eftir. Guðni hlaut
sömu örlög.þegar 4:09 mín. voru
eftir og staðan var 62-47. Þeir Matt-
hías Einarsson og Lárus Árnason
hlutu sömu örlög áður en yfir lauk
og sigri KR-inga varð ekki ógnað.
Lokatölurnar voru 72-59.
Bæði liðin léku mjög illa í þessum
leik. Taugaspennan var gífurleg og
mistök leikmanna fjölmörg. Þrátt
fyrir það var leikurinn mjög
skemmtilegur á að horfa, en spennan
var þó ekki veruleg eftir að KR hafði
náð 20 stiga forystu. ívar Webster
átti stórleik hjá KR-ingum og sópaði
skotum Njarðvíkinga frá KR-körf-
unni sem strákústur. Sem aftasti
maður í pressuvörn KR var hann
lykilmaður í sigrinum. Guðni
Guðnason sýndi að hann er að
kornast í sitt gamla form. Hann var
KR-ingum mjög mikilvægur í sókn-
inni og Birgir Mikaelsson var
drjúgur. Annars eiga allir leikmenn
KR heiður skilinn fyrir mikla bar-
áttu.
Lið Njarðvíkinga hefur vart leikið
verr í vetur en í þessum leik. Hittni
leikmanna var nánast engin og þeir
hittu ekki hringinn í skotum sínum
undir lok leiksins. Teitur Örlygsson
var þeirra skástur þótt hann hitti
mjög illa. Þeir mega þó eiga það
Njarðvíkingarnir að þeir gáfust ekki
upp þótt staða þeirra væri vonlaus.
Stigin KR: Guðni 23, Birgir 18,
ívar 8, Jóhannes 8, Matthías 5,
Gauti 5, Lárus Á. 2, Ólafur 2 og
Lárus V. 1. UMFN: Teitur27, Helgi
15, Friðrik Ragnars. 6, ísak 4,
Hreiðar 3, Kristinn 3 og Friðrik
Rúnars. 1.
„Ég vonast til að verða íslands-
meistari annað áríð í röð, annars
reiknaði ég ekki með að við ynnum
Njarðvík í tveimur leikjum. Ég vil
þakka þetta því að við höfum lagt
mikið á okkur við æflngar og pressu-
vörnin gekk upp í leikjunum. Ann-
ars er ég bara ánægður og þreyttur,“
sagði ívar Webster KR-ingur eftir
leikinn.
„Ég er ánægður, en ekki fullkom-
lega sáttur við leik minna manna.
Við áttum slæma kafla í þessum leik.
Það kom okkur til góða í þessum
leik að við höfum notað 9 leikmenn
■ öllum leikjum okkar í vetur. Ég
reiknaði ekki með því að vinna
Njarðvík í tveimur leikjum. í úrslit-
unum reikna ég með að lenda á móti
Keflvíkingum,“ sagði Laszlo Ne-
meth þjálfari KR-inga eftir leikinn í
gærkvöld. BL
Körfuknattleikur:
ÍBK stefnir í úrslitin
Vann Valsmenn með 13 stiga mun í Keflavík
Frá Margréti Sanders fréttamanni Tímans:
Tölur úr leiknum: 2-0,9-10,15-14,
15-25, 28-39, 41-42, 47-49. 49-49,
61-62, 76-69, 85-75, 96-81, 99-86.
Keflvíkingar sigruðu Valsmenn
99-86 í fjögurra liða úrslitum íslands-
mótsins í körfuknattleik, en leikur-
inn fór fram í Keflavík á sunnudags-
kvöld. Valsarar leiddu í leikhléi
47-49.
Leikurinn var jafn og spennandi
og oft og tíðum vel leikinn. Keflvík-
ingar komust í 3-0, en þá náðu
Valsarar yfirhöndinni og leiddu nær
allan hálfleikinn og voru mest 11
stigum yfir 28-39, en Keflvíkingar
minnkuðu muninn í lok fyrri hálf-
leiks.
Liðin skiptust á um forystuna í
síðari hálfleik, en um miðjan hálf-
leikinn kom góður kafli hjá Keflvík-
ingum á meðan ekkert gekk hjá
Völsurum og breyttu Keflvíkingar
þá stöðunni úr 67-67 í 85-75 og héldu
þessum mun til loka.
Bestur í liði Vals var Tómas
Holton, Matthías Matthíasson var
einnig góður og Hreinn Þorkelsson
átti góðan leik í fyrri hálfleik. Jón
Kr. var bestur Keflvíkinga, skoraði
mikið í fyrri hálfleik og spilaði vel
allan leikinn. Guðjón Skúlason var
góður í síðari hálflcik, einnig stóð
Axel vel fyrir sínu.
Þokkalegir dómarar voru þeir Jón
Otti Ólafsson og Helgi Bragason.
Jón Kr. Gíslason 27, Guðjón
Skúlason 23, Axel Nikulásson 17,
Magnús Guðfinnsson 10, Sigurður
Ingimundarson 9, Albert Óskarsson
6, Nökkvi Jónsson 4 og Falur Harð-
arson 3. Valur: Hreinn Þorkelsson
22, Matthías Matthíasson 18, Tómas
Holton 15, Björn Zoéga 11, Ragnar
Þór Jónsson 10, Bárður Eyþórsson 7
og Ari Gunnarsson 3. MS/BL
Handknattleikur:
Aftur jafntefli hjá KA
Annað jafnteflið í suðurferð KA-
manna í handknattleiknum var
staðreynd um helgina er liðið gerði
jafntefli við Stjörnuna í Digranesi
23- 23. Eins og kunnugt er þá gerði
KA jafntefli við KR á föstudags-
kvöld.
Leikurinn á sunnudagskvöld var
mjög jafn og spennandi, en gestirnir
voru með frumkvæðið lengst af. í
leikhléi höfðu norðanmenn 2 mörk
yfir 13-15.
Jafnræði var mikið með liðunum í
síðari hálfleik og þegar upp var
staðið var sanngjarnt jafntefli stað-
reynd 23-23. KA-menn geta ekki
kvartað yfir helginni, þeir fóru ósigr-
aðir til síns heima og endanlega
sloppnir af fallsvæðinu.
Erlingur Kristjánsson, Guðmund-
ur Guðmundsson og Sigurpáll Aðal-
steinsson voru bestir norðanmanna,
en sem fyrr voru þeir Gylfi Birgis-
son, Sigurður Bjarnason og Skúli
Gunnsteinsson afgerandi hjá Garð-
bæingum.
Mörkin, Stjarnan: Sigurður 7,
Gylfi 6, Skúli 5, Hafsteinn 3, Einar
1 og Axel 1. KA: Erlingur 6, Guð-
mundur 5, Sigurpáll 5, Pétur 3,
Jakob 2 og Friðjón 2. BL
Petta 'eru tolurnar sem upp komu 11. mars.
Heildarvinningsupphæð var kr. 4.673.066,-
Enginn var með fimm tölur réttar og bætist því fyrsti vinningur sem var kr. 2.151.826,-
við 1. vinning á laugardaginn kemur.
Bónusvinningur (fjórar tölur + bónustala) var kr. 374.216,- skiptist á 8 vinningshafa og
fær hver þeirra kr. 46.777,-
Fjórar tölur réttar, kr. 645.392,-, skiptast á 209 vinningshafa, kr. 3.088,- á mann.
Þrjártölur réttar kr. 1.501.632,- skiptast á 5.688 vinningshafa, kr. 264,- á mann.
Sölustaðirnir eru opnir frá mánudegi til laugardags og loka ekki fyrr en 15
mínútum fyrir útdrátt.
Sími 685111. Upplýsingasímsvari 681511.