Tíminn - 14.03.1989, Qupperneq 15

Tíminn - 14.03.1989, Qupperneq 15
Tíminn 15 Þriðjudagur 14. mars 1989 II LEIKLIST J Sviðsmynd frá afmælisleiksýningu Leikfélags Dalvíkur. Leikfélag Dalvíkur 45 ára Leikfélag Dalvíkur minnist um þessar mundir 45 ára afmælis síns. Starfsemi þess hefur verið með blóma gegnum árin og mörg smá og stór verkefni hafa verið á verkefna- skránni. Félagar íLeikfélagi Dalvík- ur eru nú um 70 talsins, og stjórn þess skipa Guðlaug Björnsdóttir form., Heiða Hilmarsdóttir, Björn Björnsson, Kristján Hjartarson og Guðbjörg Antonsdóttir. Að þessu sinni var leikrit Böðvars Guðmundssonar Úr aldaannál tekið til meðferðar, Böðvar samdi þetta verk á sínum tíma fyrir Litla leik- klúbbinn á ísafirði. Verkið er af sögulegum toga og greinir frá atburðum sem áttu sér stað í Múlaþingi 1784-86. Nánar tiltekið, örlagasaga þriggja ungra manna sem lentu á vergangi og lögðust út í harðindunum sem urðu í kjölfar Skaftárelda 1783-84. Leik- félag Dalvíkur hefur með leyfi höf- undar breytt nafni leikritsins og nefnt það „Dysin“ undirtitill „úr aldaannál". Tónlist við það hefur Lárus Grímsson samið sérstaklega fyrir leikfélagið. Leikstjórn er í höndum Þráins Karlssonar, leikara og hefur hann líka séð um hönnun leikmyndar og búninga, lýsingu ann- ast Ingvar Björnsson. Hlutverk í leikritinu eru 10 talsins, 4 kvenhlut- verk og 6 karlhlutverk. Það er vissulega alltaf einhverjum erfiðleikum bundið fyrir áhuga- mannaleikfélög að fá fólk til starfa, þar sem þessi vinna er mjög krefj- andi og tímafrek. í dag hefur fólk líka úr miklu fjölbreyttara tóm- stundaefni að velja en fyrir nokkrum árum og auðvitað er það skiljanlegt að eftir langan og strangan vinnudag kjósi fólk að setjast fyrir framan sjónvarpið og láta færa sér skemmt- unina heim í stofu. En það eru nú samt alltaf einhverjir sem ganga með leiklistarbakteríuna og láta sig hafa það að mæta til æfinga eftir að hinum almenna vinnudegi lýkur og skemmta sér við að skapa margskon- ar manngerðir og vinna hin margvís- legu störf sem til falla við uppsetn- ingu á leikriti. Þetta sýnir sig best í því að á íslandi eru milli 80-90 félög áhugafólks um leiklist, sem sameig- inlega mynda Bandalag íslenskra leikfélaga. Frumsýning á Dysinni, úr alda- annál, var föstudaginn 10. mars í Ungó, leikhúsi Dalvíkinga, og næstu sýningar verða 14., 17. og 18. mars, aðrar sýningar verða ákveðnar síðar. H.D. llllllllllllllllllllllll BÓKMENNTIR llllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllll '!íi.. Setið í höfuðstólnum Eiríkur Brynjólfsson: Dagar sem enda, Oröhagi sf., Rv. 1988. Ég verð að segja það eins og er að ég bjóst eiginlega við dálítið átaka- meiri Ijóðabók frá Eiríki Brynjólfs- syni heldur en þessari. Hann yrkir hér ákaflega einlægt og af hrein- skilni, þannig að hér á með fullum. rétti við að tala um opin Ijóð. Og vissulega er hér sitthvað áhugavert og vekjandi. En svo er þó skemmst frá að segja að í heild virðist mér að varðandi flest Ijóðin hér vanti þá ögun og yfirlegu sem úrslitum ræður um það hvort tekst að gera góðar hugmyndir að góðum skáldskap. Með öðrum orðum að hér hefði þurft að liggja lengur yfir Ijóðunum, áður en þau voru send út á bók, og vinna þau betur. Dæmi um þetta gæti verið lítið Ijóð sem hér stendur og heitir um drauma: í nótt svaf ég en mig dreymdi ekki neitt mig dreymir á daginn það er betra Hér er vissulega góð hugmynd á ferðinni, um mismun svefndrauma og vökudrauma, en ekkert unnið úr henni, né heldur með hana, og því er eiginlega ekkert í Ijóðinu sem kemur lesanda á óvart. Hér hefði að mínum dómi mátt standa betur að verki, og gildir það um talsvert mörg fleiri ljóð hér. Aftur tekst höfundi nokkuð betur til undir lokin þar sem hann birtir ein fimm húsaljóð, sem hann nefnir svo og fjalla um vandann sem fylgir húsbyggingum. í þe'im koma fram ýmiss konar líkingar og ýmsar vel gerðar, svo sem „ég sit í höfuðstóln- um/ og undir mér braka vaxtafæturn- ir“. Og „það færist í vöxt/ að menn eigi við lán að stríða,/ og lánsmenn verði ólánsmenn". Hér er vissulega beitt bæði snerpu og hugmyndaflugi, sem sýnirgetu höfundarins og mætti að ósekju vera meira af þarna. í því efni gilda þau gömlu og góðu sann- indi að skáldgyðjan er kröfuhörð og gerir sig ekki ánægða með neitt minna en að menn leggi sig alla fram áður en þeir senda Ijóð sín frá sér í bókarformi til lesenda. -esig r Lwmvwisj a nnr Jón Helgason Guðni Ágústsson Unnur Stefánsdóttir alþingism. alþingismaður varaþingmaður Sunnlendingar Árlegir stjórnmálafundir og viðtalstímar þingmanna Framsóknar- flokksins verða á eftirtöldum stöðum: 1. Ársölum, Selfossi, mánud. 13. mars kl. 21.00. 2. Brautarholti, Skeiðum, þriðjud. 14. mars kl. 21.00. 3. Staður, Eyrarbakka, miðvikud. 15. mars kl. 20.30. Utanríkis- og umhverfismál Opinn fundur Utanríkismálanefndar Framsóknarflokksins þriðjudag- inn 14. mars kl. 18.00 að Nóatúni 21. Umræðuefni: 1. (sland og Evrópubandalagið. 2. Umhverfisvernd á norðurhveli. Gestir fundarins: Alþingismennirnir Páll Pétursson og Valgerður Sverrisdóttir. Fundarstjóri: Ásta Ragnheiður Jóhannesdóttir, formaður Utanríkis- málanefndar. Allir velkomnir. Nefndin Suðurland FUF í Árnessýslu og Félag framsóknarkvenna í Árnessýslu áformar að halda félags- málanámskeið í lok mars og í apríl. Um er að ræða byrjenda- og framhaldsnámskeið. Námskeiðin eru öllum opin sem áhuga hafa. Þátttaka tilkynnist sem fyrst til formanna félaganna. Siguröar Eyþórssonar í síma 34691 og Ólafíu Ingólfsdóttur í síma 63388. FUF og FFÁ. Norðurland vestra Stjórn kjördæmasambands framsóknarmanna, stjórnir framsóknar- félaga, blaðstjórn Einherja og fulltrúar í verkalýðsráði eru boðuð til fundar í Framsóknarhúsinu á Sauðárkróki laugardaginn 18. mars n.k. Fundurinn hefst kl. 14.00. Alþingismennirnir Páll Pétursson og Stefán Guðmundsson mæta á fundinn. Stjórn K.F.N.V. SUF í Viðey Miðstjórnarfundur Sambands ungra framsóknarmanna verður hald- inn laugefrdaginn 18. mars í Viðeyjarstofu. Dagskrá og sérmál fundarins auglýst síðar Framkvæmdastjórn SUF lllllllllll BLQÐ OG TIMARIT Nýr Teningur Sjötta hefti af tímaritinu Teningi er nýkomið út. Það flytur að vanda margs konar efni af sviði bókmennta og annarra fagurra lista, en þó virðist mér hlutur myndlistar vera með meira móti að þessu sinni. Bókmenntirnar eru þó síður en svo fyrir borð bornar, en það sér- kennilega er samt að trúlega má það teljast tvennt af tagi þýdds skáld- skapar sem líklegast er til að hnippa í lesendur úr þessu hefti. Annars vegar eru það nokkur ljóð eftir þrjú spænsk nútímaskáld, Luis Garcia Montero, Javier Egea og Alvaro Salvador, sem hér eru og einna helst er líklega að segja að fjalli um ástina og hin ýmsu tilbrigði hennar. Hins vegar er það sérkennilega og býsna fagmannlega ofin smásaga eftir höf- und að nafni Ian McEwan. Og fleira er þarna þýtt, og reyndar talsvert meira frumsamið, eftir nokkuð jafnt áður þekkta sem nýja höfunda. Þó er svo að sjá að íslenskir höfundar hafi oft látið meira að sér kveða heldur en er í þessu hefti. í heild verður innlenda bókmennta- efnið hér að teljast býsna hefðbund- ið og töluvert minna af ætt framúr- stefnu en menn máski vænta í bók- mennta- og listatímariti fólks af yngri kynslóðinni. Helst er að nefna lítið ljóð eftir Aðalheiði Sigur- björnsdóttur sem hérna er og heitir Djúprista; í því þykist ég sjá yfir- færslu á einhverju í ætt við súrreal- íska myndgerð yfir í ljóðformið, sem ekki mörg skáld hafa stundað hér. Loks eru þarna einar þrjár tölu- vert fyrirferðarmiklar greinar um nútímalistamenn, ásamt allmörgum ljósmyndum af verkum þeirra. Er allt það efni út af fyrir sig fróðlegt fyrir áhugamenn um slík efni, þótt almenn skírskotun þess sé kannski ekki tiltakanlega breið. Af tónlistar- tagi er í heftinu grein um Schumann eftir Roland Barthes. Þetta sjötta hefti Tenings er bæði vel úr garði gert og býsna fjölbreytt að efni, þannig að ekki þarf að efa að í því geta margir fundið sér lestrarefni við hæfi. Á hinn bóginn leynist það heldur engum að veru- lega byltingarkennt eða framúr- stefnulegt efni er hér tæpast á ferð- inni í neinum umtalsverðum mæli. Heftið er vandað og vel fram borið, en í því er þó lítið af sprengiefni. -esig Kópavogur Skrifstofan í Hamraborg 5 er opin þriðjudaga og miðvikudaga kl. 9-13. Sími 41590. Heitt á könnunni. Opið hús alla miðvikudaga kl.17-19. Félagsmenn eru hvattir til að líta inn og taka með sér gesti. Eflum flokksstarfið. Framsóknarfélögin í Kópavogi. Borgnesingar - nærsveitir Spilum félagsvist í Samkomuhúsinu Borgarnesi föstudaginn 17. mars kl. 20.30. Mætum vel og stundvíslega. Framsóknarfélag Borgarness. Reykjanes Skrifstofa Kjördæmissambandsins að Hamraborg 5, Kópavogi er opin á mánudögum og miðvikudögum kl. 17 til 19. Sími 43222. K.F.R.

x

Tíminn

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.