Tíminn - 14.03.1989, Qupperneq 4
4 Tíminn
Þriðjudagur 14. mars 1989
íb
Æ
KENNARA-
HÁSKÓU
ÍSIANDS
Ensku-
kennarar
Við Kennaraháskóla íslands er laust starf stunda-
kennara í ensku í eitt ár á sviði kennslufræði,
bókmennta og málfræði. Annars vegar er um að
ræða kennslu í almennu kennaranámi (B.Ed.) frá
og með hausti 1989 og hins vegar kennslu í
réttindanámi í jún í 1989 og frá og með hausti 1989.
Hér getur verið um að ræða heilt starf fyrir einn
eða hlutastörf fyrir fleiri.
Nánari upplýsingar eru veittar í Kennaraháskóla
íslands, síma 688700.
Umsóknir, ásamt upplýsingum um nám og störf,
sendist Kennaraháskóla íslands fyrir 7. apríl n.k.
Rektor
Byggung Kópavogi
Byggung Kópavogi auglýsir nýjan byggingarflokk
við Trönuhjalla 1 og 3 í Kópavogi.
Um er að ræða 7 tveggja herbergja íbúðir, 6
þriggja herbergja íbúðir án bílskúrs, 1 þriggja
herbergja íbúð með bílskúr, 2 fjögurra herbergja
íbúðir með bílskúr og 1 fimm herbergja íbúð með
bílskúr.
Nánari upplýsingar á skrifstofu félagsins, Hamra-
borg 1, Kópavogi, sími 44906.
Frá Tónlistar-
skóla Kópavogs
Páskatónleikar skólans verða haldnir í salnum,
Hamraborg 11,3.hæð, miðvikudaginn 15. mars kl.
20.30.
Byrjendur í hljóðfæraleik koma fram.
Skólastjóri.
Tilkynning til
launaskatts-
greiðenda
Athygli launaskattsgreiðenda skal vakin á því að
eindagi launaskatts fyrir mánuðina janúar og
febrúar er 15. mars n.k.
Launaskatt ber launagreiðanda að greiða til inn-
heimtumanns ríkissjóðs, í Reykjavík tollstjóra, og
afhenda um leið launaskattsskýrslu í þríriti.
Fjármálaráðuneytið.
Tilkynning til
söluskatts-
greiðenda
Athygli söluskattsgreiðenda skal vakin á því, að
gjalddagi söluskatts fyrir febrúarmánuð er 15.
mars.
Ber þá að skila skattinum til innheimtumanns
ríkissjóðs ásamt söluskattsskýrslu í þríriti.
Fjármáiaráðuneytið.
F.v. Jóhannes Tómasson, starfsmaður læknafélags Reykjavíkur, læknarnir: Páll Þórðarson, Magni Jónsson, Haukur
Þórðarson, Sverrir Bergmann og Lúðvík Guðmundsson. Tímamynd: Árni Bjarna
Læknafélögin koma á framfæri sjónarmiðum vegna launakjara:
ÓHEIDARLEIKI
STJÓRNVALDA
Nýlega boðuðu Læknafélögin blaðamenn á sinn fund til að
koma á framfæri sjónarmiðum sínum vegna þeirrar umræðu
sem fram hefur farið að undanförnu um laun og hlunnindi
læknastéttarinnar.
Fulltrúar læknanna gagnrýndu
harðlega ummæli fjármálaráðherra,
Ólafs Ragnars Grímssonar, um m.a.
„ótrúiega góð kjör læknanna", utan-
landsferðir, bílastyrki og námsferð-
ir. Læknarnir sögðu það óheiðarleg
vinnubrögð af hálfu annars viðsemj-
andans að taka út eftir á einstök
atriði í kjarasamningum lækna og
halda þeim á lofti sem leið til að ná
fram niðurskurði á sjúkrahúsunum.
Á fundinum lögðu læknarnir sér-
staka áherslu á tvennt. í fyrsta lagi
þá sé rangt að halda því fram að ef
læknar hafi skikkanleg kjör þá bitni
það á kjörum annarra, og sögðust
þeir harma þær tilraunir sem gerðar
hafi verið til að etja sarnan stéttum í
heilbrigðiskerfinu. f öðru lagi sé
rangt að tala um námsferðir lækna
sem fríðindi eða forréttindi. Þarna
sé um lagalega og siðferðilega skyldu
að ræða.
Þá vildu læknarnir benda á að á
sínum tíma við gerð kjarasamninga
var farið að vilja fjármálaráðuneytis-
ins t.d. hvað varðar námsferðir og
bílastyrki og ráðuneytinu hafi verið
fullkunnugt um hvað þetta myndi
kosta. Til að auka aðhald hvað
varðar námsferðirnar hefði sá réttur
ekki verið settur beint inn sem
tekjur til læknanna og hvað bíla-
styrkina varðaði, þá var ráðuneytinu
það ljóst að ekki myndu allir læknar
hafa sömu þörf fyrir þennan styrk og
væri hann því eins konar launaupp-
bót fyrir hluta stéttarinnar.
Á þessum sama fundi voru tíund-
uð atriði sem læknunum fannst rétt
að væri komið á framfæri við al-
menning þar sem að þeirra mati
hefðu ýmsar rangfærslur komið fram
í umræðunni.
Byrjunarlaun aðstoðarlækna eru
rúm 74 þúsund á mánuði, laun elstu
sérfræðinga eru um 134 þúsund og
laun yfirlækna tæp 160 þúsund. Um-
fram þessi grunnlaun fá læknar greitt
fyrir bakvaktir og að óverulegu leyti
fyrir aðra yfirvinnu. Þess má geta að
47% læknanna eru í hluta starfi og
vinna yfirleitt á eigin stofum auk
starfa sinna á spítalanum.
Launakostnaður ríkisspítalanna
er nálægt 67% af rekstrargjöldum.
Þar af er launakostnaður lækna um
20% eða um 13% af rekstrarkostn-
aði spítalanna, en stöðugildi þeirra
samsvara því að þeir séu 10% heild-
armannafla sem starfar á ríkisspít-
ölununt.
Bifreiðastyrkur til læknis í fullu
starfi nemur 12.500 krónum á mán-
uði, en hann fá sérfræðingar og þeir
aðstoðarlæknar sem taka bakvaktir.
Styrkurinn byggist á því að á bak-
vöktum þurfa læknar að sinna útköll-
um.
Hvað námsferðir varðar fá læknar
greidda eina utanlandsferð á ári auk
dagpeninga í allt að 15 daga. Rétt er
að komi fram að læknar þurfa sam-
þykki yfirmanns til að fara slíkar
ferðir og skila skýrslu um þær er
heim er komið. Að meðaltali er það
helmingur lækna á hverju ári sem
nýtir sér þennan rétt. Ekki er hægt
að safna yfir nokkur ár ónýttum
fargjöldum. Fargjöld og dagpening-
ar eru greiddir í hlutfalli við ráðn-
ingu. SSH
__ Nýtt sjúkrahús á ísafirði:
Færri sjúkrarúm en
á gamla sjúkrahúsinu
Síðastliðinn föstudag var nýtt sjúkrahús tekið í notkun á
ísafirði. Um er að ræða svokallaðan fjórða áfanga sem
inniheldur legudeild og gjörgæsludeild með samtals 30
rúmum, skurðstofu og slysastofu.
Fimmti áfangi er nú aðeins fok-
heldur en þar kemur til með að vera
önnur legudeild og skrifstofuhús-
næði. Að sögn Kristins Benedikts-
sonar yfirlæknis má telja fullvíst að
gerð þess hluta ljúki ekki fyrr en
eftir fimm ár í fyrsta lagi og þangað
til er fjöldi sjúkrarúma minni en í
gamla sjúkrahúsinu þar sem voru 32
rúm, sem telst allt of lítið fyrir byggð
sem telur um sjö þúsund manns.
marksbúnað. I byrjun árs 1987 var
samþykktur tækjalisti fyrir fjórða
áfangann upp á 72 milljónir, síðan
kom í Ijós að ekki yrði hægt að
fjármagna kaupin á réttum tíma og
þá var fyrrverandi yfirlæknir fenginn
til að setja á biðlista tæki fyrir 17
milljónir króna. Þrátt fyrir að það
eru ekki til staðar öll þau tæki 'sem
átti að vera búið að fjármagna.
Miklar deilur hafa staðið um nýju
sjúkrahúsbygginguna. Að mati
starfsfólksins vantaði mikið á að
búnaður væri fullnægjandi, einnig
var ágreiningur um einangrun
hússins, en sumir töldu að ekki væri
nægilega vel frá henni gengið og frá
henni væri mengunarhætta. Kristinn
sagði að hann hefði ákveðið að láta
það mál niður falla í bili þar sem
ljóst væri að vilji yfirvalda til að bæta
þar úr að fullu væri ekki fyrir hendi
og málið þar með komið í strand.
SSH
Hlutafjársjóður Atvinnutryggingarsjóðs:
Reglugerðin tilbúin
Kristinn sagði að þrátt fyrir þetta
hefði verið talið rétt að flytja starfs-
emina þar sem öll aðstaða væri betri
bæði fyrir sjúklinga og starfsfólk, en
gamla sjúkrahúsið var úr sér gengið,
þar sem því hafði lítið sem ekkert
verið haldið við í 15 ár vegna
nýbyggingarinnar.
Kristinn sagði ennfremur að þó
flutt hefði verið inn í fjórða áfangann
þá væri honum ekki að fullu lokið.
Enn væri ýmislegt hálfkarað t.d.
vantar innréttingar og ýmsan lág-
Reglugerð um Hlutafjársjóð At-
vinnutryggingarsjóðs er tilbúin og
gefin út. Fyrir liggur að Helgi Bergs
fyrrverandi bankastjóri Landsbank-
ans verður formaður stjórnar
sjóðsins.
Endanlega var gengið frá reglu-
gerðinni í forsætisráðuneytinu á
föstudag eftir að málið var afgreitt á
ríkisstjórnarfundi fyrir helgi. Stein-
grímur Hermannsson forsætisráð-
herra kvaðst ekki geta upplýst að
svo stöddu hverjir aðrir skipuðu
stjórn Hlutafjársjóðsins, þar sem
ekki væri búið að ganga frá þeim
málum við viðkomandi. Þrír aðal-
menn skipa stjórn sjóðsins og þrír
eru til vara. - ág