Tíminn - 14.03.1989, Síða 5
Ti
minn
ÞriðjúdágLir '14. márs '1 Ö'89
Tímirm komst í gær í samband viö sendibílstjóra er kall-
aóur var að Ávöxtun sf. kvöldið áður en fyrirtækinu var lokað:
Báru út skjöl nokkrum
tímum fyrir gjaldþrot
Upp eru komnar ákveðnar grunsemdir um að skjölum hafi
verið stungið undan við gjaldþrot Ávöxtunar sf. Hvernig
rannsókn þeirri miðar er okkur ekki kunnugt um. Tíminn
hafði í gær upp á sendibílstjóra er féllst á að skýra okkur frá
útkalli er hann fékk kvöldið áður en Ávöxtun sf. lokaði.
Bílstjórinn, sem ekki vill láta
nafns síns getið, segir að tilviljun
hafi ráðið því að hringt var í hann.
„Nafn mitt var á símsvara á sendi-
bílastöðinni sem ég vinn hjá, þetta
kvöld. Ármann hringdi í mig og bað
um að ég kæmi að húsi Ávöxtunar
sf. við Laugaveg 97. Þetta var um
tíuleytið unt kvöldið og ég fór í þetta
sem hvern annan túr. Eg man að
þetta hafði verið góður dagur.
Þegar ég kom að Ávöxtun fór ég
upp og var allt opið. Þar var Ármann
Reynisson og með honum annar
maður er ég kannaðist við, en man
ekki nafnið á. Hann var mjög stór-
gerður, þrekinn, greiddi hárið aftur
og reykti stóra bogna pípu með
leðurhaus. Ármann bað mig að
koma með bílinn nær og fór ég niður
og færði hann.
Ármann virtist vera órólegur og
var í einu svitabaði. Hann benti mér
að taka kassa sem stóðu inni í
skrifstofu hans. Ég held það sé rétt
hjá mér að skrifstofa hans sé fyrsta
herbergi á vinstri hönd þegar komið
er upp stigann. Ég tók kassana og
bar þá út í bíl. Ég keyri skutlu og var
þetta ríflega gólffyllir af pappaköss-
um.
Ármann fór eina ferð en hinn
maðurinn bar ekki. Þegar bíllinn
hafði verið fylltur bað Ármann mig
að fara með kassana heim til foreldra
hans og þau myndu borga bílinn.
Þegar ég kom á heimili foreldra
hans, í Furugerðinu, tóku þau á
móti mér og borguðu bílinn. Árm-
ann kom ekki á meðan ég var á
staðnum," sagði bílstjórinn.
Hvað var í kössunum sent þú barst
út?
„Það voru ýmsir hlutir. Möppur
með einhverskonar skjölum, bækur
og skrifstofumunir sem maður sér á
öllum skrifstofum. Ég flýtti mér að
bera þetta út í bílinn, enda iila við
að hafa hann standandi úti á Lauga-
vegi, vitandi af krakkagengjum á
vappi.“
Hvorki Tíminn né bílstjórinnn
hafa hugmynd um hverslags skjöl
voru í kössunum. Hvort um var að
ræða bækur eða persónuleg skjöl
Ármanns Reynissonar. Hinsvegar
hlýtur það að vekja upp spurningar
þegar miklir skjalabunkar eru bornir
út úr fyrirtæki nokkrum klukku-
stundum fyrir gjaldþrot þess.
Sendibílstjórinn tók það fram að
honum væri óljúft að ræða þetta
mál, en hefði hinsvegar hugsað mik-
ið um hvort ekki væri rétt að greina
frá þessu, í framhaldi af þeim frétt-
um er bárust af fyrirtækinu daginn
eftir umræddan túr. „Ég komst að
þeirri niðurstöðu að það væri ekki
mitt mál að rannsaka þetta heldur
ættu þeir að gera það sem til þess eru
fengnir af hinu opinbera. Því þagði
ég þar til nú.
Einnig er ég með þessu að brjóta
siðareglur þær er sendibílstjórar
setja sér, þar sem kveðið er á um að
allt er við heyrum í túrum er trúnað-
armál. Hinsvegar þar sent þið hafið
komist að þessu og ætlið að greina
frá þessu hvort eð er tel ég betra að
gera grein fyrir málinu eins og það
var í raun og veru,“ sagði bílstjórinn.
Tíminn hefur fyrir því áreiðanleg-
ar heimildir að skiptaráðanda hafi
verið kunnugt um mál þetta frá
upphafi og beinist athugun málsins
m.a. að því að finna út hvað flutt var
af skrifstofu Ármanns umrætt kvöld,
á heimili foreldra hans í Furugerði.
- ES
Heimatilbúin hryllingsmynd í Árbæ kærð til RLR:
Bundu krakka við staur
og báru eld að tuskum
Nokkrir nemendur í efri bekkjum
Árbæjarskóla hafa verið kærðir til
Rannsóknarlögreglu ríkisins fyrir að
hafa í hótunum við yngri krakka í
. sama skóla, en eldri bekkingamir
voru að útbúa sína eigin „hryllings-
mynd“. Enginn yngri nemendanna
mun hafa meiðst við atganginn.
Að því er Tíminn kemst næst fólst
hryllingsmynd eldri bekkinganna í
því að a.m.k. einn yngri nemandi
var bundinn við staur og síðan helltu
þeir, eða þóttust hella, eldfimum
vökva í tuskur sem lagðar voru í
kring um fætur fórnarlambsins og
báru eld að. Ekki kviknaði þó í
tuskunum og ekki hefur verið sýnt
fram á hvort hér var um leik að ræða
eða hvort tilgangurinn var að fá fram
raunveruleg hræðsluviðbrögð frá
fórnarlambinu.
Foreldri eins barnsins kærði at-
burðinn til RLR, sem hefur skoðað
myndbandið sem tekið var og verða
krakkarnir yfirheyrðir nú í vikunni
að viðstöddum fulltrúum barna-
verndarráðs. -ABÓ
Verð erlendra gjaldmiðla (SDR) hækkað 11 % umfram lánskjaravísitölu frá ársbyrjun 1988:
Dollaragengi hækkað
um 47% á 14 mánuðum
I ljósi langvarandi kröfu um 10-
15% meiri gengisfellingu er fróðlegt
að líta á hvað verð á myntum helstu
viðskiptalanda okkar hefur hækkað
frá ársbyrjun 1988, þ.e. á rúmlega 14
mánaða tímabili. í ljós kemur að
hækkunin er minnst um 24% og
síðan allt upp undir 47% á Banda-
ríkjadollara, sem hækkað hefur úr
35,72 upp í 52,73 kr. á þessu tíma-
bili. Á sama tíma hefur verðtryggð
króna hækkað um 22,6%.
Verð helstu gjaldmiðla hefur
hækkað sem hér seeir:
Dollari 35,72 52,73 47,6%
Pund 66,87 90,51 35,3%
D.kr. 5,86 7,26 23,9%
N.kr. 5,73 7,77 35,6%
S.kr. 6.16 8,27 34,3%
Þ-mark 22,58 28,27 25,2%
Fr.franki 6,65 8,34 25,4%
Peseti 0,33 0,45 37,4%
Port.escud. 0,27 0,34 25,8%
Jap.yen 0,29 0,41 38,6%
SDR 50,59 68,89 36,2%
ECU 46,48 58,84 26,7%
Lang stærstu kaupendur útflutn-
ingsvara okkar eru: Bretland,
Bandaríkin, Þýskaland, Portúgal og
Japan. Um 65% af heildarútflutn-
ingnum fór til þessara fimm landa á
s.l. ári. - HEI
PÓSTFAX
TÍMANS
687691
Laugavegur 97, þar sem Ávöxtun sf. var til húsa.
Kröfur á Ávöxtun sf., Pétur Björnsson og Ármann
Reynisson, hafa þegar náð hálfum milljarði:
Gjaldþrota í
marga mánuði
Skiptafundir eru farnir af
stað í gjaldþrotamáli Ávöxtun-
ar sf. og aðstandenda hennar,
Péturs Björnssonar og Ár-
manns Reynissonar. Að sögn
annars bústjórans, Sigurmars
Albertssonar, hæstaréttarlög-
manns, hafa ekki allar kröfur
verið samþykktar enn og getur
því endanleg upphæð krafn-
anna hækkað frá þeim hálfa
milljarði sem þær nema nú.
Bústjóri mun nú í dag eða
næstu daga tilkynna ríkissak-
sóknara um ólöglegt athæfi
sem fram kemur við meðferð
skiptaráðanda.
Meðal þess sem tilkynnt verður
saksóknara er sú skoðun bústjór-
anna að fyrirtækið hafi verið rekið
nokkrum mánuðum lengur en það
gat talist rekstrarhæft. Það hafi
með öðrum orðum verið orðið
gjaldþrota nokkrum mánuðum
áður en það var tilkynnt af hálfu
eigenda. Aðrir angar þessa máls
eru enn til skoðunar hjá Rannsókn-
arlögreglu ríkisins.
Það eru rúmlega 160 aðilar sem
gera kröfur í þrotabú Ávöxtunar
sf. Vegna þess að þeir gera margir
hverjir einnig kröfu á Pétur Björns-
son og Ármann Reynisson, marg-
faldast þessi fjöldi krafna. Þannig
hafa alls verið samþykktar á milli
220 og 230 kröfur í þrotabúið.
Þessum samþykktu kröfum mun
að líkindum fjölga að sögn Sigur-
mars Albertssonar, þegar næsti
skiptafundur verður haldinn, 31.
mars nk. Þær kröfur sem þegar
hafa verið samþykktar nema um
hálfum milljarði króna og á sú
upphæð eftir að hækka, samkvæmt
þessu. Eignir þrotabúanna þriggja,
Ávöxtunar sf., Péturs Björnssonar
og Ármanns Reynissonar, eru hins
vegar ekki metnar nema á liðlega
56 milljónir króna. Það er því ljóst
að flestir kröfuhafar munu tapa
verulegu fé, en þeir einstaklingar
sem hæstar eiga kröfur eiga inni fé
sem nemur yfir 10,2 milljónum
króna. Vegna umfangs málsins og
væntanlegrar rannsóknar saksókn-
ara er ekki búist við að þessir
kröfuhafar muni sjá nokkuð af fé
sínu fyrr en að loknum einu til
tveimur árum.
Meðal þeirra krafna sem hafnað
hefur verið er krafa sem skilanefnd
Verðbréfasjóðs Ávöxtunar hf. og
Rekstrarsjóðs Ávöxtunar hf. hafa
gert og nam hún ríflega 160 millj-
ónum króna. Þar með er ljóst að
þeir sem áttu fé inni hjá ávöxtunar-
sjóðunum hafa tapað enn meira fé
en fram til þessa hefur verið talið.
Þær eignir sem ætlað er að komi
til móts við viðurkenndar kröfur,
eru samtals um 56 milljónir króna
eins og að framan segir. Ávöxtun
sf. mun standa undir eignamati
upp á um 35 milljónir króna að
gefnum fyrirvara af hálfu bústjór-
anna. Af þeirri upphæð er ekki
nema um 7,1 milljón króna í nettó
fasteign, en 2-4 milljónir í úti-
standandi kröfum. Eignir Péturs
eru metnar á um 15 milljónir króna
og eignir Ármanns eru metnar á
um 5,3 milljónir króna.
Samkvæmt skýrslu bústjóranna
til skiptaráðanda, Ragnars Halls,
eru gerðar sérstakar athugasemdir
við bókhald og fjárreiður fyrir-
tækisins og einnig ruglingslegar
fjárreiður Péturs og Ármanns.
Munu oft og tíðum hafa verið um
að ræða takmarkaðar ábyrgðir á
bak við skuldaviðurkenningar og
rekstri Ávöxtunar sf. mun í ýmsu
öðru hafa verið ábótavant. Mun
áhætta þeirra aðila sem fólu fé sitt
í umsjá þessara aðila því hafa verið
mun meiri en áður hefur verið talið
með vissu. KB