Tíminn - 14.03.1989, Side 16
16 Tíminn'
-VP ► Af V I . 'I.VlM
Þriðjudagur 14. mars 1989
DAGBÓK
lllllllíllll
iiliiiiiini
ÚTVARP/SJÓNVARP
Erindi um byggingamál
eldri borgara
Aðalfundur Rauðakrossdeildar Kópa-
vogs verður haldinn í sal á sjöttu hæð
Sunnuhlíðar í kvöld kl. 20.30. Að loknum
aðalfundarstörfum flytur Ásgeir Jóhann-
esson stjórnarformaður Sunnuhlíðar-
samtakanna erindi um byggingarmál eldri
borgara. Öllu áhugafólki um þau mál er
boðið að sækja fundinn.
Aðalfundur
Kvenfélags Kópavogs
Kvenfélag Kópavogs hcldur aðalfund
fimmtudaginn 16. mars kl. 20:30 í Félags-
heimilinu. Fundarefni: Venjuleg aðal-
fundarstörf.
Stjórnin
Pennavinir:
Námsmenn í Ghana lcita í annað sinn til
íslands eftir pennavinum
Nýlega barst bréf frá þremur náms-
mönnum í Ghana í Vestur-Afríku, þar
sem óskaö er eftir bréfaviðskiptum við
Islendinga á öllum aldri. Þeir skrifuðu til
Islands fyrir einu ári, en fengu engin svör
við bréfum sínum, en reyna nú aftur, og
segjast hafa áhuga á að komast í samband
við fólk í fjarlægum löndum. Þeir eru á
aldrinum 21-23 ára og kalla sig „Magnus
and Co“. Áhugamál eru lík hjá þeim
öllum: póstkortaskipti, boltaleikir, veið-
ar, borðtennis o.fl.
Utanáskrift til þeirra er:
Magnus Aggrey-Fynn
P.O.Box 23,
Anglian Cliurch,
Sunyani,
Ghana,
West Africa
Immanuel Arhin Jr.
P.O. Box 23,
Anglian Church,
Sunyani,
Ghana,
West Africa
Ekoxy Apafuah
P.O.Box 23,
Anglian Church,
Sunyani,
Ghana,
West Africa
Hin vinsæla
GLEÐIDAGSKRÁ
sýnd öll föstudags-
og laugardagskvöld.
Þríréttuð veislumáltíð
Forsala aögöngumiöa
alla virka daga kl. 10-18
og á laugardögum kl. 14-18
ÞÓRSgCAFÉ
Brautarholti 20
S.23333 og 23335
BILALEIGA
meö utibu allt i krmgurri
landiö, gera þer mögulegt
aö leigja bil á emum staö
og skila honum á öörum.
Reykjavík
91-31615/31815
Akureyri
96-21715/23515
Pöntum bíla erlendi$
interRent
Bilaleiga Akureyrar
Talið frá vinstri: Erna Pálmcy Einarsdótt-
ir verslunarstjóri, Eyrún Helgadóttir og
Guðbrandur Jónatansson.
Verslunin VATNSRÚM
á nýjum stað
Verslanirnar Vatnsrúm hf. og Rúmgott
sf. gengu nýlega í eina sæng, fluttu sig um
set og opnuðu að nýju undir nafninu
VATNSRÚM hf. Nýja verslunin er til
húsa að Skeifunni 11, þar sem Myllan var
áður til húsa.
Verslunin sérhæfir sig í vatnsrúmum,
eins og nafnið gcfur til kynna. Fyrirtækið
hefur m.a. umboð fyrir Land and Sky
rúm og dýnur frá Bandaríkjunum, auk
hinna viðurkenndu norsku Sovehjerte
rúma.
Aðaleigendur Vatnsrúma hf. eru hjón-
in Eyrún Helgadóttir og Guðbrandur
Jónatansson, en auk þeirra starfa Aðal-
heiður Bjarnadóttir, Axel Örlygsson og
Erna Einarsdóttir í nýju versluninni.
Verslunin er opin kl. 10:00-18:00 á virk-
um dögum, en 10:00-16:00 á laugardög-
um. Nýtt símanúmer verslunarinnar er
688466.
Þctta málvcrk er á dönsku kallað „Hilser
pa landet“ og er verðlagt á 86 þús.
danskar krónur. Málverkið er 200 X 160
sm stórt.
Eiríkur Smith sýnir
í Kaupmannahöfn
Laugardaginn 11. mars var opnuð sýn-
ing á málverkum eftir Eirík Smith í
SKAG, Scandinavian Contemporary Art
Gallery, Amaliegade 6 í Kaupmanna-
höfn. Á sýningunni eru 27 málverk, bæði
olíumálverk og vatnslitamyndir. Sýningin
stendur til 27. mars og er opin virka daga
kl. 11:00-18:00 og á laugardögum 11:00-
14:00.
Lyndon Chapman trompctleikari
Trompet-námskeið á Akranesi
Tónlistarskólinri á Akranesi og Tóna-
stöðin gangast fyrir námskeiði fyrir
trompetleikara á Akranesi dagana 19.-21.
mars. Leiðbeinandi er breski trompet-
leikarinn Lyndon Chapman. sem hefur
nú nokkur sl. ár ferðast um heiminn og
haldið námskeið. Chapinan, sem er að-
eins þrítugur að aldri, hefur þegar öðlast
mikla reynslu sem trompetleikari og hefur
leikið með frægum hljómsveitum og í
óperuhúsum og söngleikjahúsum.
Á námskeiðinu á Akranesi verður farið
í helstu þætti trompetleiks. auk þess sem
leikin verða ýmis smærri samspilsverk
fyrir trompet.
Virkir þátttakendur á námskeiðinu
munu búa í hinni glæsilegu heimavist
Fjölbrautaskóla Vesturlands og einnig
verður þar mötuneyti fyrir þá. Fjöldi
virkra þátttakenda verður takmarkaður,
en allir sem áhuga hafa eru velkomnir til
Akraness þessa daga sem námskeiðið
stendur. Allar nánari upplýsingar má fá í
Tónlistarskólanum á Ákranesi kl. 09:-
14:00 alla virka daga í síma 93-12109.
Vatnslitamyndir í
Safni Ásgríms Jónssonar
I Safni Ásgríms Jónssonar hefur verið
opnuð sýning á vatnslitamyndum Ás-
gríms og stendur hún til 28. maí.
Á sýningunni eru 27 ntyndir frá ýmsum
skeiðum á hinum langa listferli Ásgrínts.
Elstu myndirnar á sýningunni eru frá því
í byrjun aldar.
Sýningin er opin þriðjudaga, fimmtu-
daga, laugardaga og sunnudaga kl. 13:30-
16:00 í mars og apríl, en í maí alla daga
nema mánudaga.
Ásgrímssafn
Safn Ásgríms Jónssonar, Bergstaöas-
træti 74 er opið á sunnudögum, þriöju-
dögum , fimmtudögum og laueardögum
kl. 13.30-16.00. 6
Þriðjudagur
14. mars
6.45 Veöurfregnir. Bæn, dr. Bjarni Sigurðsson
flytur.
7.00 Fréttir.
7.03 í morgunsárið með Randveri Þorlákssyni.
Fréttayfirlit kl. 7.30 og 8.30, fréttir kl. 8.00 og
veðurfregnir kl. 8.15. Lesið úr forustugreinum
dagblaðanna að loknu fréttayfirliti kl. 8.30.
Tilkynningar laust fyrir kl. 7.30, 8.00, 8.30 og
9.00.
9.00 Fréttir.
9.03 Litli barnatíminn: „Litla lambið“ eftir Jón
Kr. ísfeld Sigríður Eyþórsdóttir les (4). (Einnig
útvarpað um kvöldið kl. 20.00).
9.20 Morgunleikfimi Umsjón: Halldóra Björns-
dóttir.
9.30 í pokahorninu Sigríður Pétursdóttir gefur
hlustendum holl ráð varðandi heimilishald.
9.40 Landpósturinn - Frá Vesturiandi Umsjón:
Einar Kristjánsson.
10.00 Fréttir. Tilkynningar.
10.10 Veðurfregnir.
10.30 Ég man þá tíð Hermann Ragnar Stefánsson
kynnir lög frá liðnum árum.
11.00 Fréttir.
11.03 Samhljómur Kynntur tónlistarmaður vikunn-
ar, að þessu sinni Jón Nordal tónskáld og
skólastjóri Tónlistarskólans í Reykjavík.
Umsjón: Hanna G. Sigurðardóttir. (Einnig út-
varpað að loknum fréttum á miðnætti nk.
föstudag).
11.55 Dagskrá.
12.00 Fréttayfirlit. Tilkynningar.
12.20 Hádegisfréttir
12.45 Veðurfregnir. Tilkynningar.
13.05 í dagsins önn - Tómstundir unglinga
Umsjón: Steinunn Harðardóttir.
13.35 Miðdegissagan: „í sálarháska“, ævisaga
Árna prófasts Þórarinssonar Þórbergur Þórð-
arson skráði. Pétur Pétursson les (11).
14.00 Fréttir. Tilkynningar.
14.05 Eftirlætislögin Gestur þáttarins er Sigur-
björg Pétursdóttir. Umsjón: Svanhildur Jak-
obsdóttir. (Einnig útvarpað aðfarnótt sunnudags
að loknum fréttum kl. 2.00).
15.00 Fréttir.
15.03 ímynd Jesú í bókmenntum Þriðji þáttur:
Ástráður Eysteinsson fjallar um verk Franz
Kafka. (Endurtekinn þáttur frá fimmtudags-
kvöldi).
15.45 Þingfréttir
16.00 Fréttir.
16.03 Dagbókin Dagskrá.
16.15 Veðurfregnir.
16.20 Barnaútvarpið Umsjón: Kristín Helgadóttir.
17.00 Fréttir.
17.03 Tónlist á síðdegi - Mendelssohn og
Sibelius
- „Lygn sær og heillarík ferð“, forleikur op. 27
eftir Felix Mendelssohn. Sinfóníuhljómsveit
Lundúna leikur; Claudio Abbado stjómar.
- Sinfónía nr. 1 í e-moll eftir Jean Sibelius.
Hljómsveitin Fílharmónía leikur; Vladimir Ash-
kenazy stjómar.
18.00 Fréttir.
18.03 Á vettvangi Umsjón: Bjarni Sigtryggsson,
Guðrún Eyjólfsdóttir og Páll Heiðar Jónsson.
Tónlist. Tilkynningar.
18.45 Veðurfregnir.
19.00 Kvöldfréttir
19.30 Tilkynningar.
19.32 Kviksjá - „Að villast í þoku hefðarinnar"
Sipríður Albertsdóttir fjallar um óhugnanlega
þætti í verkum Svövu Jakobsdóttur. (Einnig
útvarpað á föstudagsmorgun kl. 9.30).
20.00 Lítli barnatíminn: „Litla lambið“ eftir Jón
Kr. ísfeld Sigríður Eyþórsdóttir les (4). (Endur-
tekinn frá morgni).
20.15 Orgeltónlist eftir Cesar Franck
- Fantasía í C-dúr.
- „Grande piéce symphonique“. Marie-Claire
Alain leikur á orgel.
21.00 Kveðja að austan Úrval svæðisútvarpsins á
Austurlandi í liðinni viku. Umsjón: Haraldur
Bjarnason. (Frá Egilsstöðum)
21.30 Útvarpssagan „Heiðaharmur" eftir Gunn-
ar Gunnarsson Andrés Björnsson les (3).
22.00 Fréttir. Dagskrá morgundagsins.
22.15 Veðurfregnir.
22.20 Lestur Passíusálma Guðrún Ægisdóttir les
43. sálm.
22.30 Leikrit vikunnar: „Þrjár sögur úr heita
pottinum" eftir Odd Björnsson Leikstjórn:
Lárus Ýmir Óskarsson. Leikendur: Rúrik Har-
aldsson, Sigrún Edda Björnsdóttir, Sigurður
Skúlason, Lilja Guðrún Þorvaldsdóttir, Helgi
Skúlason og Guðrún Gísladóttir. (Áður á
dagskrá 1983). (Einnig útvarpaö nk. fimmtudag
kl. 15.03).
23.15 Tónskáldatími Guðmundur Emilsson kynnir
íslenska tónlist, í þetta sinn verk eftir Hafliða
Hallgrímsson.
24.00 Fréttir.
00.10 Samhljómur Umsjón: Anna Ingólfsdóttir.
(Endurtekinn frá föstudagsmorgni).
01.00 Veðurfregnir.
Næturútvarp á samtengdum rásum til
morguns.
01.10 Vökulögin Tónlist af ýmsu tagi í næturút-
varpi. Fréttir kl. 2.00 og 4.00 og sagðar fréttir af
veðri, færð og flugsamgöngum kl. 5.00 og 6.00.
Veðurfregnir frá Veðurstofu kl. 4.30.
7.03 Morgunútvarpið Leifur Hauksson og Ólöf
Rún Skúladóttir hefja daginn með hlustendum,
spyrja tíðinda víða um land, tala við fólk í
fréttum og fjalla um málefni líðandi stundar.
Fréttir kl. 8.00, veðurfregnir kl. 8.15 og leiðarar
dagblaðanna kl. 8.30.
9.03 Stúlkan sem bræðir íshjörtun, Eva Ásrún
kl. 9 Morgunsyrpa Evu Ásrúnar Albertsdóttur
- Afmæliskveðjur kl. 10.30.
11.03 Stefnumót Jóhanna Harðardóttir tekur fyrir
það sem neytendur varðar á hvassan og
gamansaman hátt.
12.00 Fréttayfirlit. Auglýsingar.
12.15 Heimsblöðin
12.20 Hádegisfréttir
12.45 Umhverfis landið á áttatíu Gestur Einar
Jónasson leikur þrautreynda gullaldartónlist og
qefur qaum að smáblómum í mannlífsreitnum.
14.05 Milii mála, Óskar Páll á útkíkki og leikur ný
og fín lög.
- Útkíkkið upp úr kl. 14 og Auður Haralds talar
frá Róm.
- Hvað gera bændur nú?
16.03 Dagskrá Dægurmálaútvarp fyrir þá sem vilja
vita og vera með. Stefán Jón Hafstein, Ævar
Kjartansson og Sigríður Einarsdóttir.
- Kaffispjall og innlit upp úr kl. 16.00, hlustenda-
þjónustan kl. 16.45.
- Fréttanaflinn, Sigurður G. Tómasson með
fjölmiðlarýni eftir kl. 17.00.
- Stórmál dagsins milli kl. 17 og 18.
- Þjóðarsálin, þjóðfundur í beinni útsendingu að
loknum fréttum kl. 18.03. Málin eins og þau
horfa við landslýð, sími þjóðarsálarinnar er
38500.
19.00 Kvöldfréttir
19.32 Áfram ísland Dægurlög með íslenskum
flytjendum.
20.30 Útvarp unga fólksins Vernharður Linnet
verður við hljóðnemann.
21.30 FRÆÐSLUVARP: Lærum ensku Ensku-
kennsla fyrir byrjendur á vegum Fjarkennslu-
nefndar og Málaskólans Mímis. Tuttugasti og
fyrsti og lokaþáttur endurtekinn frá liðnu hausti.
22.07 Bláar nótur Ólafur Þórðarson kynnir djass
og blús.
01.10 Vökulögin Tónlist af ýmsu tagi í næturút-
varpi til morguns. Að loknum fréttum kl. 2.00
verður endurtekinn frá föstudegi þátturinn „Ljúf-
lingslög" í umsjá Svanhildar Jakobsdóttur. Að
loknum fréttum kl. 4.00 flutt brot úr dægurmála-
útvarpi þriðjudagsins. Fréttir kl. 2.00 og 4.00 og
sagðar fréttir af veðri, færð og flugsamgöngum
kl. 5.00 og 6.00. Veðurfregnir frá Veðurstofu kl.
1.00 og 4.30.
Fréttir kl. 2.00, 4.00, 7.00, 7.30, 8.00, 8.30, 9.00,
10.00, 11.00, 12.00, 12.20, 14.00, 15.00, 16.00,
17.00,18.00,19.00, 22.00 og 24.00.
SVÆÐISÚTVARP Á RÁS 2
8.07- 8.30 Svæðisútvarp Norðurlands
18.03-19.00 Svæðisútvarp Norðurlands
SJÓNVARPIÐ
Þriðjudagur
14. mars
18.00 Veist þú hver hún Angela er? Þriðji þáttur.
Þýðandi Jóhanna Jóhannsdóttir. Þulur Halldór
N. Lárusson. (Nordvision-Norskasjónvarpið).
18.20 Freddi og félagar. (Ferdi) Þýsk teiknimynd
um maurinn Fredda og félaga hans. Þýðandi
Óskar Ingimarsson. Leikraddir Sigrún Waage.
18.50 Táknmálsfréttir
19.00 Poppkorn - endursýndur þáttur frá 8. mars.
Umsjón Stefán Hilmarsson.
19.25 Smellir. Endursýndur þáttur frá 11. mars sl.
20.00 Fréttir og veður.
20.40 Söngvakeppni sjónvarpsins. íslensku
lögin. Flutt lög Gunnars Þórðarsonar og
Sverris Stormskers. Kynnir JónasÞ. Jónsson.
20.50 Matarlist. Umsjón Sigmar B. Hauksson.
21.05 Ofvitinn. Lokaþáttur. Leikgerð Kjartans
Ragnarssonar á sögu Þórbergs Þórðarsonar.
21.55 Blóðbönd. (Blood Ties) Annar þáttur.
Sakamálamyndaflokkur frá 1986 i fjórum þátt-
um gerður í samvinnu ítala og Bandaríkja-
manna. Leikstjóri Giacomo Battiato. Aðalhlut-
verk Brad Davis, Tony LoBianco og Vincent
Spano. Ungur Bandaríkjamaðurfærtilkynningu
frá mafíunni um að þeir hafi föður hans í haldi,
og muni þeir þyrma lifi hans ef ungi maðurinn
kemur dómara nokkrum á Sikiley fyrir kattarnef.
Þýðandi Gunnar Þorsteinsson.
23.00 Seinni fréttir.
23.10 Umræðuþáttur á vegum fréttastofu
Sjónvarps.
23.55 Dagskrárlok.
Þriðjudagur
14. mars
15.45 Santa Barbara. Bandarískur framhaldsþátt-
ur. New World International.
16.30 Gung Ho. Þegar bílaverksmiðjum bæjarins
Hadleyville í Pennsýlvaníu er lokað kemur
ungur og dugmikill maður til skjalanna. Hann
drýgir þá dáð að telja japanska fyrirtækið Assan
Motors á að halda verksmiðjunum opnum
áfram. Aöalhlutverk. Michael Keaton. Leikstjóri
og framleiðandi: Ron Howard. Paramount 1986.
Sýningartími 110 mín.
18.20 Feldur. Foofur. Teiknimynd með íslensku
tali um heimilislausa en fjöruga hunda og ketti.
Þýðandi: Ástráður Haraldsson. Leikraddir: Arn-
ar Jónsson, Guðmundur Ólafsson, Saga Jóns-
dóttir og Sólveig Pálsdóttir.
18.40 Ævintýramaður. Adventurer. Spennandi
framhaldsmyndaflokkur í ævintýralegum stíl.
Ellefti þáttur. Aðalhlutverk: Oliver Tobias, Peter
Hambleton og Paul Gittinis. Leikstjóri: Chris
Bailey. Framleiðandi: John McRae. Thames
Television.
19.1919.19. Heil klukkustund af fréttaflutningi
ásamt fréttatengdu efni.
20.30 Leiðarinn. Umsjón: Jón Óttar Ragnarsson.
Stöð 2.
20.50 íþróttir á þriðjudegi. Blandaður þáttur.
Umsjón Heimir Karlsson.
21.50 Hunter. Vinsæll bandarískur spennumynda-
flokkur. Þýðandi: Ingunn Ingólfsdóttir. Lorimar.
22.35 Rumpole gamli. Rumpole of the Bailey.
Lokaþáttur. Aðalhlutverk: Leo McKern. Leik-
stjórn: Herbert Wise. Höfundur: John Mortimer.
Framleiðandi: Irene Shubik. Þýðandi: Björn
Baldursson. Thames Television.
23.30 Minningarnar lifa. Memories Never Die.
Myndin fjallar um erfiðleika konu sem snýr heim
eftir sex ára dvöl á geðsjúkrahúsi. Aðalhlutverk:
Lindsay Wagner, Gerald McRaney og Barbara
Babcock. Leikstjóri: Sandor Stern. Framleið-
andi: David Victor. Þýðandi: Ragnar Hólm
Ragnarsson. Universal 1982. Sýningartími 90
mín. Lokasýning.
01.05 Dagskrárlok.