Tíminn - 04.04.1989, Síða 6

Tíminn - 04.04.1989, Síða 6
6 Tíminn Þriðjudagur 4. apríl 1989 Fyrri hluti K-byggingar opnaður: Fyrri afangi K-byggingar Landspítalans var formlega opnaður á föstudag. Um er að ræða tæplega 4/10 af allri byggingunni. Þessi áfangi hefur náð til uppsteypu og lokunar hússins, fullnaðar frágangs á rými geislameðferðareiningar á neðstu hæð og einangrunar og grunnhitunar á annarri og þriðju hæð. Á þessu ári verður svo hafíst handa við bráðabirgða innréttingu fyrir rannsóknarstofur á þeim hæðum. Ekki hefur verið tekin ákvörðun um hvenær hafíst verður handa við seinni hluta Hlutverk K-byggingarinnar verð- ur í framtíðinni að vera miðstöð rannsókna, skurðlækninga, krabba- meinslækninga, myndgreininga- tækni, röntgenrannsókna, gjörgæslu og annarrar hátækni læknisfræði. Heildarkostnaður við fyrri áfanga verður um 560 milljónir króna á verðlagi í mars 1989. Par af má rekja um 30 milljónir til þess að verkþættir hafa verið færðir úr síðari í fyrri áfanga. Kostnaður við fyrri áfanga eins og hann var upphaflega skil- greindur nemur því 530 milljónum. Þetta er rúmum 50 milljónum króna, eða 11%, umfram þá frumáætlun um kostnað sem lögð var fyrir stjórn- völd vegna ákvarðana um bygging- una á árunum 1983-84. Heildarkostnaðurinn skiptist þannig að almennur kostnaður við hönnun, stjórnun og eftirlit nemur 76 milljónum, byggingakostnaður nemur 383 milljónum og kostnaður við kaup tækja og búnaðar nemur 101 milljón króna. byggingarinnar. Línuhraðall Sem fyrr segir er geislameðferðar- eining K-byggingarinnar nú fullgerð og er það merkur áfangi í sögu krabbameinslækninga á íslandi. Ákvörðun Lions-hreyfingarinnar um fjársöfnun til kaupa á línuhraðli til krabbameinslækninga átti mikinn þátt í því að heilbrigðisyfirvöld ákváðu að ráðist skyldi í fram- kvæmdir við K-bygginguna. Til- koma línuhraðalsins mun skila geislameðferð gegn krabbameins- sjúkdómum hérlendis í nútímalegt horf. Þess má geta að tæki af þessu tagi kostar um 45 milljónir króna á núverandi gengi. Við krabbamcinsmeðferð með línuhraðli er rafeindum sem hraðað er í rafsegulsviði ýmist skotið beint á meðferðarsvæði í sjúklingnum eða breytt í háorkuröntgengeislun þegar slík geislun hentar betur vegna legu æxlis djúpt í líkamanum. Þessir kostir gefa m.a. tæknilega möguleika á meðferð sem ekki hefur verið unnt að sinna hérlendis. Má Fjöldi gesta var við opnun K-byggingarinnar. F.v. Guðmundur Bjarnason, Guðrún Helgadóttir, Steingrímur Hermannsson, Edda Guðmundsdóttir, Ragnhildur Helgadóttir og Guðmundur G. Þórarinsson. Timamynd: Árni Bjarna þar nefna geislun á allan líkamann fyrir mergígræðslu. Einnig verður nú unnt að veita meðferð, þar sem geislun er gefin á miðtaugakerfi ungra barna svo og aukna nákvæmni og gæði geislameðferðar á brjóstvef kvenna sem halda brjóstinu í fram- haldi fleygskurðar. Einnig aukast gæði meðferðar gegn krabbameins- sjúkdómum í eitlum og nákvæmni meðferðar krabbameinssjúkdóms í þvagblöðru, blöðruhálskirtli og brisi. Stjórnkerfi línuhraðalsins er mjög fullkomið. Það er að mestu leyti tölvuvætt og er gert ráð fyrir því að framhaldsþróun hugbúnaðar, bæði hvað varðar stjórn tækisins svo og meðferðarmöguleika línuhraðalsins nýtist á komandi árum. SSH Línuhraðallinn. Geislameðferðin er tölvuvædd og öryggistækni mjög fullkomin. Þess má geta að armur tækisins vegur sex tonn. Tímamynd: Árni Bjarna | W. Niöurstööur könnunar um störf og aöbúnaö kvenna: Brauð, rósir og spítalamórall Niðurstöður könnunar senr gerð var á vegum Jafnréttisnefndar Reykjavíkurborgar, varðandi stöðu og kjör kvenna, liggja nú fyrir. Margt athyglisvcrt kom fram í þessari könnun. Eins og til dæmis það að mikiö er hægt að bæta stöðuna án þess að einskorða sig við launaumræðu. Einnig varáber- andi „spítalamórall‘% eins og einn nefndarmanna sagði, atlrar athygli verður auk rnargra fleiri atriða. Könnunin snérist um stöðu og kjör kvenna sem starfa á vegum borgarinnar. Meðal þess sem spurt var um var vinnutími, aðbúnaður og samskipti á vinnustað, launa- kjör, félags- og fræðslustörf auk stjómunarstarfaog stööuhækkana. Úrtak könnunarinnar náði til níu hundruð kvenna og svör bárust frá um 75% þáttakenda. Ýmislegt kom fram í þessari könnun sem ekki er vitað til að hafi fengist staðfest áður í öðrunr þeim könnunum sem gerðar hafa verið, í sama eða svipuðum tilgangi, hér á landi. Til dæmis má nefna að í fcbrúar í fyrra voru yfir sextíu prósent kvennanna með 35-55 þúsund krónur f laun á mánuði. Miðað við tiu til eliefu prósenta hækkun sem varð á töxtum launa aðildarmanna starfsmannafélags Reykjavtkur- borgar að meðaltalí á síðasta ári, má gera ráð fyrir að launin séu nú frá 39-61 þúsund krónur. Tæpur helmingur kvennanna eða 45% sjá einar um tekjuöflun heimilisins. Hlunnindi í starfi eru lítil og rýr. Aðeins þriðjungur þátttakenda taldi einhvcr hlunnindi fylgja starfi sínu. Af þeím má helst nefna sundlaugar- og strætisvagnamiða, (organg að dagheimilum og niður- greitt fæði. 40% telja aðbúnað á vinnustað vera sæmilegan eða lélegan og var aðallega kvartað uniían léiegri loft- ræstingu. slæmri hvíidaraðstöðu og tæknibúnaði. í því sambandi nefndi Þórunn Gestsdöttirformaö- ur Jafnréttisnefndarinnar „brauð og rósir“. Það er að segja að þótt brauðið eða launin væru auövitað forgangsverkefni væri svo margt annað sem kippa mætti í lag án mikils tilkostnaðar hvað varðar starfsaðstöðu eða rósirnar. Starfsandi á vinnustöðum borg- arinnar var einnig lalinn frekar góður með einni áberandi undan- tekningu þó. En það var á Borgar- spítalanum sem konur í öllum' starfsstéttum voru sammála því að samskipti manna á rneðai væru slæm. Ein þeirra lét eftirfarandi athugasemd fylgja svörunt: „Ég vikli að yfirmenn stærri stofnana eins og Borgarspítalans heföu meira samband við okkur sem vinnum störfin." Nefndarmenn töldu Borgarspítalann ckki vera neitt einsdæmi hvað þetta varöar. Þær minntust á svokallaðan „spít- alamórai“ sem væri gegnumgang- andi mjög áberandi ásjúkrahúsum almennt. Jafnréttisnefndin hefur í hyggju aö fara ýtarlcga yfir skýrsluna og semja að því loknu framkvæmda- áætlun. Þeim tiimælum verðursíð- an beint til viðkomandi yfirvaida að úrbætur verði gerðar í samræmi við áætlunina. jkb Verður miðstöð hátækniþjónustu Heimild í fjárlögum þjóðgarðsins, annað árið í röð, til að kaupa Hótel Valhöll: Þingvallanefnd undir- býr tilboð í Valhöll Lögmaður Þingvallanefndar, Jón- as A. Aðalsteinsson, hrl., hefur síðan í febrúar verið að kanna fyrir hönd Þjóðgarðsins á Þingvöllum grundvöll að hugsanlegum kaupum á Hótel Valhöll á Þingvöllum. Fleiri aðilar hafa auk þess unnið að úttekt og undirbúningsþáttum til að hægt verði að setjast niður og ræða við eigendurna um verð og skilmála. Að sögn Hjörleifs Guttormssonar, al- þingismanns og eins nefndarmanna, er málið á það miklu byrjunarstigi að ekki hefur enn verið rætt um verð. Hins vegar benti Hjörleifur á að heimild væri fyrir hendi í fjárlög- um 1989 til að kaupa hótelið og taka til þess nauðsynleg lán. Heimild þessi á fjárlögum var einnig til staðar í fyrra og var einnig farið af stað með athugun á hótel- kaupum. Þá mun ekki hafa gengið saman með eigendum og nefndar- mönnum vegna tilboðs hinna síðar- nefndu, sem tók mið af brunabóta- mati húseignanna, um 70 millj.kr. á þávirði.Nú hefur hins vegar forsvars- maðureigendanna, Jón Ragnarsson, veitingarmaður, látið að því liggja að hótelið gæti verið til sölu ef viðunandi tilboð fæst. „Er ekki allt falt ef vel er boðið,“ sagði Jón, en ítrekaði að vegna sögu staðarins og staðsetningar væri kaupverðið mun hærra en sem nemur mati á húseign- um einum sér. „Viðskiptavild Hótel Valhallar er mikil og tengsl okkar eigendanna við staðinn eru sterk, þannig að við munum ekki selja nema gegn viðunandi verði. Framkvæmdarstjóri Þingvalla- nefndar og þjóðgarðsvörður, sr. Heimir Steinsson, sagði að mál þetta væri á forstigi og ekki hafi enn verið ákveðið hvenær nefndin komi saman til að ræða þessi mál formlega. Sagðist hann telja að enginn sérstak- ur hraði væri á þessu máli af hálfu þjóðgarðsmanna. Nú mun vera farið að styttast í vorfund nefndarinnar þar sem búast má við að Valhallar- málin verði m.a. rædd og verður hann líkast til haldinn í næstu viku eða vikunni þar á eftir. KB Um 640 húðsjúkdóma> læknar til Islands Um 640húðsjúkdómalæknareru væntanlegir til íslands þann 6. apríl til ráðstefnuhalds í boði lyfja- fyrirtækisins Gist-brocades. Ráð- stefnan verður haldin á Hótel Sögu og verður m.a. unnið að kynningu á nýju lyfi Gist-brocades er hefur áhrif á húðsjúkdómana Psoriasis og Exemi. Ráðstefnugestir koma frá Dan- mörku, Svíþjóð, Noregi, Finn- landi, Hollandi, Belgíu, Englandi, írlandi, Austurríki og V-Þýska- landi.

x

Tíminn

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.