Tíminn - 04.04.1989, Blaðsíða 20
AUGLYSINGASIMAR:
RÍKISSKIP
NtrrÍMA FLUTNINGAR
Hatnarhúsinu v/Tryggvogötu,
S 28822
^ffénnéleru^rf^
tftRflBRtfftMlflSKIPn
SAMVINNUBANKANS
SUÐURLANDSBRAUT 18, SlMI: 688S68
„LÍFSBJÖRG í ,e<ILAsfoö,
NORÐURHÖRJM" Útvegsbankinn Seltj. Gíró-1990
ÞRÚSTIIR 685060
Gegn náttúruvernd á villigötum VANIR IVIENN
Tíniiiiii
ÞRIÐJUDAGUR 4. APRÍL 1989
Samningaviðræður ASl og VSÍ hlupu í hnút í gær. Guðmundur J. Guðmundsson telur hugsanlegt:
'i
SAMNINGAÞÓF
FRAM Á VORID
„VSI hafnaði tillögu okkar Verkamannasambands-
manna um skammtímasamning í 40 daga og tíminn yrði
notaður til að koma saman langtímasamningi,“ sagði
Guðmundur J. Guðmundsson.
Guðmundur sagði að í tillögu þeirra hefði verið gert
ráð fyrir einhverri kauphækkun, t.d. í krónutölu og
verðstöðvun þessa 40 daga.
skref til vaxtalækkunar.
„VSÍ mcnn umpóluðust þegar
þeir heyrðu minnst á verðstöðvun
og sögðu að verðhækkanir hjá
fyrirtækjum væru óhjákvæmilegar
en skilgreindu það ekkert frekar,"
sagði Guðmundur.
Guðmundur sagði að sér hefði
komið nokkuð á óvart hversu lítið
VSÍ menn vildu gera úr vaxta-
lækkun að undanteknum fulltrúa
Vinnumálasambands samvinnu-
félaga.
Ágreiningur varð í gær meðal
Þá yrðu einnig tekin fyrstu
samningamanna ASÍ um hug-
mynd Guðmundar J. og félaga um
40 daga skammtímasamning en
þó fór svo að ofan á varð að leggja
hana fram á samningafundinum
sem hófst kl. 14 í gærdag í húsa-
kynnum ríkissáttasemjara.
Guðmundur sagði Tímanum að
samningaviðræður hefðu hingað
til verið að mestu ófrjótt pex fram
og til baka. Því hefðu þeir Verka-
mannasambandsmenn viljað
höggva á hnútinn með skamm-
tímasamningi og menn settust síð-
an niður og gerðu samning til
langs tíma.
Það hefði því komið á óvart að
þessu hefði verið hafnað. VSÍ-
menn hefðu hins vegar sagst vilja
semja en fram hefði komið að þeir
vildu ekki leggja spilin á borðið
þegar ASÍ menn vildu vita hvað
þeir vildu semja um.
Guðmundur sagði að greinilegt
væri að VSÍ vildi draga samninga-
viðræður á langinn, trúlega næstu
40 daga. Svo virtist sem þeir vildu
bíða eftir ákveðnum erfiðleikum
hjá ríkisstjórninni. Einnig virtist
sem þeir vildu freista þess að láta
ríkisstjórnina greiða hugsanlegar
kjarabætur með einum eða öðrum
hætti.
Það væri því ekki hátt risið á
einkaframtakinu þessa stundina.
-sá
Guðmundur J. Guðmundsson.
Páll Pétursson um væntanlegar heræfingar
Bandaríkjahers hér á landi:
Jón Baldvin á
að neita þeim
Páll Pétursson formaður þing-
flokks framsóknarmanna óskaði
eftir umræðum utan dagskrár í gær
um væntanlegar heræfingar Banda-
ríkjahers hér á landi í júní n.k. Þar
skoraði hann á Jón Baldvin Hanni-
balsson utanríkisráðherra að veita
ekki leyfi fyrir umræddum her-
æfingum.
Sagði Páll meðal annars að sér
skildist að hér væri um að ræða svo
kallaða varaliðsæfingu, bandaríska
heimilisfeður, sem ættu að skríða
hér á fjórum fótum, í kringum
sólstöður. „Ég fæ ekki séð að
þessar æfingar komi til með að
auki öryggi Islands og utanríkis-
ráðherra ætti að taka á sig rögg og
leyfa þær ekki,“ sagði Páll Péturs-
son.
í svari Jóns Baldvins kom fram
að fyrst á sunnudag bárust honum
fullnægjandi gögn til að taka
ákvörðun um hvort leyfa ætti her-
æfingarnar eða ekki. Hann sagði
það sína skoðun að of seint væri að
koma í veg fyrir þessar æfingar, en
eftir væri að fjalla um málið í
ríkisstjórninni.
Páll Pétursson alþingsmaður.
Umræður stóðu fram á nótt í gær
og verður nánar fjallað um þær í
Tímanum á morgun. - ÁG
Könnun á vegum jafnréttisnefndar Reykjavíkurborgar:
Einkaritararnir
sjaldan í fangi
forstjóra sinna?
Athygli hefur vakið að töluverður
fjöldi fóstra sem vinnur hjá borginni
telur sig hafa orðið fyrir kynferðis-
legri áreitni í starfi. Einnig er merki-
legt að áreitnin eykst því ofar sem
dregur í starfsstéttapýramídanum.
Sem og að íslenskir einkaritarar
virðast ekki oft lenda í fangi forstjór-
ans.
Á síðustu tímum hcfur mikið
verið rætt um kynferðislega áreitni á
vinnustað bæði hér heima og erlend-
is. í könnun sem Hansína B. Einars-
dóttir cand.mag. og Herdís D. Bald-
vinsdóttir vinnusálfræðingur gerðu
fyrir jafnréttisnefnd Reykjavíkur-
borgar kom fram að tæplega 13%
kvennanna sem tóku þátt í könnun-
inni töldu að þær hefðu einhvern-
tíma orðið fyrir kynferðislegri
áreitni á vinnustað. Aðstandendur
könnunarinnar tóku það þó fram að
ekki þyrfti endilega að vera um
núverandi vinnustaði kvennanna að
ræða.
I skýrslu unninni upp úr niður-
stöðum könnunarinnar er konum
sem vinna hjá borginni skipt upp í
ellefu hópa. Óvíst er hvort þessi
greininggefi tölfræðilega marktækar
upplýsingar um hvern hóp fyrir sig.
Einn þessara hópa eru fóstrur. Tí-
unda hver fóstra segist hafa orðið
fyrir kynferðislegri áreitni í starfi en
í hvaða formi er ekki skilgreint
nánar. Hverjir áreittu konurnar er
ekki heldur tekið fram sérstaklega.
En ólíklegt hlýtur að teljast að þar
geti verið um að ræða samstarfs-
menn því fóstrustéttin er svo til
eingöngu skipuð konum.
Áberandi var einnig að samkvæmt
svörunum virtist tíðni kynferðislegr-
ar áreitni aukast eftir því sem ofar
dró í starfsstéttapýramídanum. En
auk kvenna í verkakvennafélaginu
Framsókn, töldu um 20% hálauna
og háskólamenntaðra kvenna sig
hafa orðið fyrir kynferðislegri áreitni
á vinnustað. Aðstandendur könn-
unarinnar bentu í því sambandi á
hliðstæðar kannanir erlendis sem
gefið hafa svipaðar niðurstöður
varðandi hópa þolenda. Hugsanlega
skýringu töldu þær vera þá að þátt-
takendum var gefin frjáls skilgrein-
ing áreitninnar og verið gæti að
konur í fyrrgreindum hópum væru
sér frekar meðvitaðar um málið en
aðrar.
Þá virðist skopmyndin af einkarit-
aranum í fangi forstjórans ekki
standast heldur. Því að kynferðis-
lega áreitnin var augljóslega minnst
hjá skrifstofukonum. En aðeins
2,6% þeirra svöruðu spurningunni
játandi.
Spurningar könnunarinnar voru
margvíslegar. Athygli vakti að þess-
ari spurningu svöruðu 95% þátttak-
enda könnunarinnar þrátt fyrir að
spurningum á undan og á eftir væri
í mörgum tilvikum ekki svarað. Það
hlýtur að benda til þess að konum
þyki þetta atriði mikilvægt.
Flestar kvennanna sem fyrir
áreitninni höfðu orðið voru á aldrin-
um 18-25 ára eða um 20%. Þó mátti
finna konur allt að 74 ára sem einnig
sögðust hafa orðið fyrir einhvers-
konar áreitni. jkb