Tíminn - 26.05.1989, Blaðsíða 13
Föstudagur 26. maí 1989
Tíminn 13
ÚTLÖND
Sprengingin mannskæða í orrustuskipinu lowa:
Morð eða sjálfsvíg
orsök sprengingar?
Bandaríska vamarmálaráðuneyt-
ið vildi í gær hvorki játa því né neita
að orsakar sprengingarinnar í orr-
ustuskipinu Iowa í síðasta mánuði
mætti jafnvel rekja tií morðs eða
Hæstaréttardómarinn sem dæmdi
hinn 23 ára Barend Strydom til
dauða sagði að hann hefði brosað og
hlegið á meðan hann hljóp um götur
Pretoríu og skaut sjö blökkumenn
til bana af handahófí. Sagði dómar-
inn að glæpur Strydoms væri alvar-
legri en önnur hryðjuverk.
Strydom brosti ekki aðeins þegar
hann myrti blökkufólkið, heldur
brosti hann sínu breiðasta þegar
dómurinn var lesinn yfir honum í
byggingu hæstaréttar í Pretoríu,
sama stað og Nelson Mandela leið-
togi blökkumanna í Suður-Afríku
var dæmdur í ævilangt fangelsi fyrir
25 ámm.
- Hann er verri en aðrir hryðju-
verkamenn. Hann er brosandi reiðu-
búinn til að skjóta saklaust fólk á
meðan hann horfir í augun á því.
Aðrir skilja eftir sprengjur, sagði
sjálfsvígs sem tengdist uppgjöri
tveggja sjóliða sem „átt hafi í sér-
stöku sambandi“.
Bandaríska sjónvarpsstöðin NBC
skýrði frá því í fréttatíma sínum að
Louis Harmas hæstaréttardómari
um Strydom og vísaði til sprengjutil-
ræða blökkumanna.
Strydom er gallharður stuðnings-
maður öfgafullrar hægrihreyfíngar
hvítra manna í Suður-Afríku sem
berst fyrir áframhaldandi forréttind-
um og yfirráðum hvítra mann í
Suður-Afríku og líta á blökkumenn
sem réttlausa.
Strydom sem myrti blökkukonu
viku áður en hann skaut blökku-
mennina átta í Pretoríu sagði að það
hefði verið æfing fyrir seinni morðin.
Strydom sagði einnig í vitnaleiðsl-
unum að hann hefði drepið fólkið
þar sem hann teldi að há fæðingar-
tíðni hjá blökkumönnum ógnaði
stöðu hinna hvítu Afríkana í Suður-
Afríku. Strydom sagði einnig að
Guð styddi hann og að hann myndi
halda áfram morðum á blökku-
mönnum ef hann hlyti frelsi að nýju.
sérstök rannsóknarnefnd vamar-
málaráðuneytisins sem kanni orsakir
sprengingarinnar í Iowa sem kostaði
47 sjóliða lífið, hallist nú að því að
sprengingin hafi verið undirbúin af
mannavöldum og að um sjálfsvíg
eða jafnvel morð hafí verið að ræða.
NBC sjónvarpsstöðin segir að
rannsóknarnefndin einbeiti sér nú
að því að rannsaka náið samband
Claytons Hartwigs, 24 ára sjóliða
sem fórst í sprengingunni og félaga
hans um borð í Iowa sem ekki fórst
í sprengingunni.
Félagi Hartwigs neitar staðfast-
lega að eiga nokkra aðild að harm-
leiknum, að sögn NBC. Hins vegar
hefur NBC grafið upp að félagi
Hartwigs eigi að erfa hann og fær því
100 þúsund dollara líftryggingu
Hartwigs, reynist hann með hreinan
skjöld.
Samkvæmt heimildum NBC innan
flotans hafði náið samband Hartwigs
og félaga hans kólnað mjög fyrir sex
mánuðum eða svo. NBC bætti því
síðan við að félagi Hartwigs hefði
staðfastlega neitað að þeir hafi átti í
gagnkynhneigðu sambandi.
Bretar í hreinsunum:
Fjórum
Tékkum
vísað
úr landi
Þaö er greinilegt að Bretar
standa í stórhreinsunum
hvað erlenda njósnara
varðar. í gær vísuðu þeir
fjórum tékkneskum sendi-
ráðsstarfsmönnum úr iandi
fyrir „athæfi sem ekki sam-
rýmist stöðu þeirra“ en það
er alþjóðlegt rósamál yfír
njósnir sendirráðsmanna
sem njóta friðhelgi. Fá þeir
hálfan mánuð til að hypja sig
úr landi með sitt hafurtask.
Pað er ekki nema vika síðan
Bretar vísuðu ellefu sovéskum
sendiráðsmönnum úr landi af sömu
sökum. Viðbrögð Sovétmanna þá
voru hörð, ellefu Bretum var vísað
frá Sovétríkjunum og breskum
stjómvöldum gert að fækka í starfs-
liði sínu við sendiráð Bretlands í
Sovétríkjunum um hundrað og
fjörutíu manns.
Bresk stjómvöld segja að brottvís-
un Tékkanna eigi ekkert skylt við
mál Sovétmannanna ellefu.
Jan Fidler sendiherra Tékkó-
slóvakíu f London var kallaður á
fund utanríkisráðuneytisins breska
og honum kynnt ákvörðun Breta um
að vfsa mönnunum fjómm úr landi.
Notuðu Bretar tækifærið og minntu
Fidler á að í septembermánuði hefði
honum verið tilkynnt að bresk
stjómvöld myndu ekki sætta sig við
„athæfí tékkneskra sendiráðsmanna
sem ekki hæfði stöðu þeirra“. Þá
höfðu Bretar vísað þremur Tékkum
úr landi og Tékkar svarað með því
að vísa tveimur Bretum úr landi.
Ekki er ljóst hvort Bretar hafi
komist að njósnum Tékkanna hjá
tékkneska sendiráðsmanninum
Vlastimil Ludwik sem var l.ritari
tékkneska sendiráðsins í London,
en Ludwig stakk af og bað um
pólitískt hæli í Bretlandi.
í Suður-Afríku, berst af alefli gegn því að blökkumenn hljóti aukin réttindi.
Einn meðlimur hreyfingarinnar var í gær dæmdur til dauða fyrír fjöldamorð
á blökkumönnum.
Suður-Afríka:
Hvítur öfgamaður
dæmdur til dauða
fyrir fjöldamorð
Hvítur fyrrum lögreglumaður sem myrtí átta blökkumenn
á götu í Pretoríu í Suður-Afríku í fyrrahaust var dæmdur tíl
dauða í gær og skal hann hengdur.
Frá Félagi
eldri borgara
Opið hús í Tónabæ á morgun laugardaginn 27.
maí.
Kl. 13.30: Frjálst spil og tafl.
Kl. 15.00: Bingó. Spilaðar verða 12 umferðir.
Aðalvinningar eru: Ferð fyrir tvo til Glasgow og
vikudvöl í Ölfusborgum.
Kl. 20.00: Lokaskemmtun, dans og skemmtiatriði.
Meðal annars koma fram Árni Sighvatsson, kór
Átthagafélags Strandamanna ásamt Gilsbræðr-
um.
Þrír kórar aldraðra syngja saman í Fella- og
Hólakirkju, laugardaginn 27. maí kl. 15.00.
Forstöðumaður
óskast
Dagvistun barna auglýsir stöðu forstöðumanns á
dagheimilinu Laugaborg lausa til umsóknar.
Staðan veitist frá 1. ágúst n.k. Umsóknarfrestur er
til 15. júní. Fóstrumenntun áskilin.
Upplýsingar veita framkvæmdastjóri og umsjón-
arfóstrur í síma 27277.
Umsóknareyðublöð liggja frammi á afgreiðslu
Dagvistar barna, Hafnarhúsi við Tryggvagötu.
>fv .
Ke&^^r&W
TÖLVUNOTENDUR
Við í Prentsmiðjunni Eddu
hönnum, setjum og prentum
allar gerðir eyðublaða fyrir tölvuvinnslu.
Smiðjuvegi 3, 200 Kópavogur. Sími 45000
t
Útför
Margrétar lllugadóttur
Syðri Hömrum,
Ásahreppl
fer fram frá Kálfholtskirkju mánudaginn 29. mai kl. 2.
Gísll Ástgeirsson