Tíminn - 01.06.1989, Side 7

Tíminn - 01.06.1989, Side 7
Fimmtudagur 1. júní 1989 Tíminn 7 Endurskoðuð aðalnámsskrá grunnskóla komi út: Nemendur með mismikla námsgetu saman í Endurskoðuð aðalnámsskrá fyrir grunnskóla hefur verið gefin út og kemur hún til framkvæmda í haust, að svo miklu leyti sem unnt er og að fullu haustið 1990. Námsskráin leysir af hólmi námsskrána sem tók gildi á árunum 1976 og ’77. Sú námsskrá átti að koma út endurskoðuð 1982, en þá var ákveðið að hún héldi gildi sínu áfram óbreytt. f nóvembersl. skipaði menntam- álaráðherra samráðshóp sem starfa átti með skólaþróunardeild og var markmiðið að lagfæra þau drðg sem gerð höfðu verið. í samráðs- hópnum áttu sæti fulltrúar kennara, skólastjóra og yfir- kennara, foreldra, fræðslustjóra, Kennaraháskóla íslands og Há- skóla íslands. Hópurinn skilaði tillögum sínum til ráðherra þann 6. mars sl. og í apríl voru ný drög lögð fram á Alþingi ásamt greinargerð. í tilkynningu frá menntamála- ráðuneytinu segir að við lokafrá- gang bókarinnar hafi verið reynt að taka tillit til athugasemda frá mörgum aðilum og ná samkomu- lagi um álitamál og ágreiningsefni á þann veg að sem flestir geti sætt sig við niðurstöðuna. Samkomulag varð m.a. um að líta á meginmarkmið, megininntak og grundvallaratriði varðandi kennslu, námsmat og aðstöðu sem bindandi starfsramma, en aðra þætti sem skýringar og ábendingar. Samkomulag varð um að skilja ekki að fræðslu og uppeldi heldur fella bæði undir umfjöllun um menntun. Þá var einnig samkomu- lag um að skýra betur og leggja áherslu á uppeldisskyldur og upp- eldisrétt foreldra. Ekki þótti unnt að draga mjög skarpar línur á mörkum heimila og skóla. Að samkomulagi varð einnig að setja fram skýr tilmæli um að skipa nemendum með mismikla náms- getu saman í bekki, draga verulega úr áherslu á samanburð við aðra nemendur þegar árangur er metinn og leggja þunga á þann tilgang námsmats að vera leiðsögn og örvun í námi. Mælt er með því að hver skóli geri ítarlegar starfsáætl- anir og skólanámsskrár. Þá varð að lokum að samkomulagi að gera skuli ráð fyrir undanþágum frá skyldunámi t.d. af trúarlegum eða siðfræðilegum forsendum í sam- ræmi við uppeldisrétt foreldra. Aðalnámsskrá er nánari útfærsla á ákvæðum laga sem kveða á um innra starf grunnskóla. Aðalnáms- skráin 1989 skiptist í 19 kafla og fjalla fyrstu fimm kaflamir m.a. um hlutverk og meginmarkmið gmnnskóla, almennt nám og kennslu. í köflum 6 til 16 eru sett fram markmið og megininntak námsgreina og gefnar ábendingar um skipulag náms og kennslu, námsmat o.fl. Þrír síðustu kaflarn- ir fjalla m.a. um ýmsa aðra náms- þætti sem grunnskólum ber að sinna, þó ekki sé um hefðbundnar námsgreinar að ræða. Þá er gerð AÐALNAMSKRA GRUNIVSKOLA grein fyrir samvinnu heimila og skóla, samstarfi innan skóla, hlut- verki skólastjórnenda og kennara og að lokum er fjallað um þann tíma sem skólar hafa til ráðstöfun- ar og nýtingu hans. Aðalnámsskránni er dreift til mjög margra aðila m.a. til allra grunnskóla og fær hver starfandi kennari eintak auk stofnana og einstaklinga sem vinna að skóla- málum. Haldið verður uppi kynn- ingu meðal kennara og foreldra og er hafinn undirbúningur að útgáfu kynningarbæklings handa foreldr- um og útgáfu upplýsinga - og leiðbeiningarrita handa starfsfólki skóla. - ABÓ ÖKUMADUR missti stjórn á bifreið sinni á Skothúsvegi um fímm leytið í fyrradag með þeim afleiðingum að bíllinn steyptist í Tjörnina. Ökumaðurinn, sem er kona, mun hafa tekið bifreiðina í leyfisleysi frá bróður sínum og keyrt af stað með fyrrgreindum afleiðingum. Hún slapp með engin meiðsl og bifreiðin er lítið skemmd. - gs Tímamynd:Pjetur VOR "89 ABURÐAR- DREIFARAR VICON áburðardreifari fyrir tilbú- inn áburð. Vicon tryggir nákvæma dreifingu og sparnað í áburðarkaup- um. Þrjár stærðir PS-303, 275 lítra kr. 44.000,- PS-503, 500 lítra kr. 64.000,- PS-753, 750 lítra kr. 69.800,- Hafið samband við sölumenn okkar eða umboðsmenn G/obus? Lágmúla 5 Reykjavík Sími 681555

x

Tíminn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.