Tíminn - 01.06.1989, Qupperneq 15

Tíminn - 01.06.1989, Qupperneq 15
Fimmtudagur 1. júní 1989 'minn 15 llllllllllllll MINNING Oddur Búason bifreiöarstjóri, Borgarnesi Þann 23. maí s.l. lést á sjúkrahús- inu á Akranesi Oddur Búason leigu- bifreiðarstjóri, Borgarnesi. Oddur var fæddur þann 26. apríl 1903, að Ballará á Skarðsströnd. Foreldrar hans voru hjónin Búi Oddsson og Elínbjörg Jónasdóttir, sem þá voru heimilisföst að Ballará. Síðan skildu leiðir þeirra hjóna. Elínbjörg fluttist með Odd son sinn að Skarði á Skarðsströnd. Þar ólst Oddur upp að mestu undir verndar- væng móður sinnar. Oddur lærði smíðavinnu á ungl- ingsárum sínum. Rúmlega tvítugur fluttist hann í Borgames. Þar var hans heimili upp frá því, til hinstu stundar. Meðal starfa sem Oddur stundaði í Borgamesi á fyrri ámm sínum þar var smíði. Hann vann hjá Trésmiðju Borgarfjarðar hf. er bygging barna- og unglingaskóla Borgarness var í framkvæmd. Sú bygging er ennþá vemlegur hluti af núverandi skóla- húsi í Borgamesi. Meðal annarra sá Oddur um innréttindu í skólahúsinu þá. Aðalatvinna Odds var bifreiða- akstur. Fyrst á vöruflutningabifreið- um, sem Arnbergur Stefánsson gerði út. Síðar eignaðist Oddur fólksflutn- ingabifreiðar og eftir það rak hann leigubifreiðaakstur svo lengi sem starfsorka hans og aldur leyfðu. Oddur Búason var þekktur sem snilldarleigubílstjóri langt út fyrir sitt heimahérað. Snyrtimennska ein- kenndist á öllu útliti bifreiða hans og alltaf vom þær í lagi. Svo vel var honum treyst sem ökumanni, að þegar embættismenn í Borgarnesi notuðu leigubifreiðar, svo sem lækn- arnir Ingólfur Gíslason, Eggert Ein- arsson eða Jón Steingrímsson sýslu- maður, var Oddur Búason alltaf í keyrslu hjá þeim, eins og hann væri þeirra fasti bifreiðarstjóri. Af öllum er til hans þekktu var honum svo vel treyst til starfa, ekki bara í leigu- akstri, heldur og til annarra þeirra starfa, er hann vann að. Snyrti- mennska, vandvirkni og stundvísi einkenndi alla hans framkvæmd. Oddur var virkur í félagsmálum. Hann var einn af stofnendum Verka- lýðsfélags Borgamess og virkur þátt- takandi í félaginu á fyrstu árum þess. Hann var einnig einn af fyrstu félögum Rotaryklúbbs Borgarness. Og nú er hann lést var hann einn af heiðursfélögum klúbbsins. Þá var hann einnig í hópi þeirra er stofnuðu Framsóknarfélag Mýrasýslu og starf- aði þar alla tíð. Oddur var einn af þessum sérstak- lega skemmtilegu og áhugasömu samherjum í stjórnmálaþátttöku minni, þó margir fleiri séu, sem ég minnist með sérstöku þakklæti og ánægju. Mér eru minnisstæðar Al- þingiskosningarnar á Jónsmessu 24. júní 1956. Þegar búið var að telja öll atkvæði í Mýrasýslu nema utankjör- fundaratkvæði, rúmlega eitt hundrað, var ég með 31 atkvæði færra en frambjóðandi Sjálfstæðis- flokksins. Á meðan talning utan- kjörfundaratkvæða fór fram reyndist biðin löng og erfið. Ég minnist þess ennþá er ég leit út um stofugluggann í íbúð minni á Þórólfsgötu í Borgar- nesi og horfði á fólkið streyma frá samkomuhúsinu þar sem talið var. Ég reyndi að lesa út úr gönguhraða þess, hvort þar mætti ráða fréttir. Allt í einu heyrði ég hratt hlaupið í stigann að íbúð minni og Oddur Búason opnar stofuhurðina hvatlega og snarast inn með þessum orðum: „Ég gat ekki beðið lengur með að óska nýkjömum þingmanni Mýra- manna til hamingju með sigurinn." Ég kveð nú í hinsta sinn þann besta fréttagest sem nokkm sinni hefur á mitt heimili komið. Þess vegna kveð ég vin minn Odd Búason í hinsta sinn með sérstöku þakklæti. Oddur Búason kvæntist 18. októ- ber 1930 Guðrúnu Daníelsdóttur, sem komin er af þekktum borgfirsk- um ættum, enda mikil sómakona. Einn son áttu þau, Daníel, sem veitir forstöðu umboði Samvinnu- trygginga í Borgamesi. Hann er giftur Olöfu ísleifsdóttur og eiga þau eina dóttur, Guðrúnu. Síðustu ár Odds Búasonar var heilsa hans þrotin, enda var starfs- dagur hans þá liðinn svo hvíldin var honum og hans nánustu kærkomin. Ég færi frú Guðrúnu, Daníel syni þeirra Odds og Guðrúnar og fjöl- skyldu hans innilegar samúðar- og þakkarkveðjur frá okkur Margréti. Halldór E. Sigurðsson. ' lllllllllllllllllllillllllll BÓKMENNTIR Deilurit um réttarfar og stjórnendur Að gefnu tilefni - deilurit nefnist bók eftir Þorgeir Þorgeirsson, sem út kom í fyrra og er uppseld. Nú er komin önnur útgáfa og einhver ein- tök munu enn á boðstólum. Bókin fjallar um réttarfar, valda- stóla og stjórnendur okkar í víðasta skilningi. Frá sjónarhóli almennra mannréttinda vekur hún spurningar sem margoft eru fremur óþægilegar - einkanlega fyrir þá sem með völdin fara. Er málfrelsi virt hér? Býr hinn almenni þegn við réttaröryggi? Njóta dómstólarnir þeirrar almennu virðingar sem þeim er nauðsynleg? Hversvegna ekki? Eru daglega fram- in hér mannréttindabrot sem fara hljótt og fáir dirfast að nefna? Hver er virðing stjórnmálamanna sem þjarka um krónur og aura á meðan grundvöllur samfélagsins er að molna? Fyrsta útgáfa bókarinnar kom á markað fyrir 8 mánuðum og var lítill gaumur gefinn af fjölmiðlum. Samt er hún nú uppseld fyrir löngu og fengu færri en vildu. Er það mál dómbærra manna sem lesið hafa þessa bók að hún sé að öllum líkindum komin til að vera um sinn. Enda hreyft í henni mörgum hug- myndum sem hljóta bráðlega að verða til gaumgæfilegrar umræðu, ef fólki á að verða líft hér í fyrirsjáan- legri framtíð. Tilefni bókarinnar var upphaflega Þorgeir Þorgeirsson. það að ríkissaksóknari hóf mál á höfundinn fyrir skrif hans um lög- regluna. Það mál er smávægilegt í margra augum og myndi vart þykja umtalsvert ef Þorgeir hefði ekki kosið að láta reyna á vinnubrögð réttvísinnar sem virðist hafa kolfallið á prófinu, því við blasir hrollvekja sem höfundinum þó auðnast að segja frá með undraverðri gaman- semi ogskilningi sem hverjum manni er hollt að kynnast. En Þorgeiri er það einkar lagið að skemmta um hin óskemmtilegustu efni - svo sem kunnugt er. Hin nýja útgáfa bókarinnar er 233 blaðsíður að stærð og kostar kr. 1750,- í bókaverslunum en kr. 1250,- hjá forlaginu Leshúsi að viðbættu póstkröfugjaldi. Alexander Stefánsson alþlngismaður Vesturlandskjördæmi Alexander Stefánsson, alþingismaður verður til viðtals og ræðir þingmál og stjórnmálaviðhorfið, á eftirtöldum stöðum sem hér segir. Saurbæ, fimmtudaginn 1. júní kl. 16.00 Búðardal, fimmtudaginn 1. júnf kl. 20.30 Reykholt, föstudaginn 2. júní kl. 14.00 Hvanneyri, föstudaginn 2. júní kl. 17.00 Hlöðum, Hvalfjarðarströnd, laugardaginn 3. júní kl. 14.00 Borgarnes, mánudaginn 5. júní kl. 20.30 Akranes, þriðjudaginn 6. júní kl. 20.30 Tímasetning og húsnæði auglýst jafnóðum. Landsstjórn og framkvæmdastjórn LFK Aðal- og varamenn eru boðaðir til fundar að Nóatúni 21, laugardag- inn 3. júní kl. 10-16. Dagskrá: Undirbúningur landsþings. A. Málefni. B. Framkvæmd. C. Önnur mál. Áríðandi er að tilkynna þátttöku í síma 91-24480. Ath. breyttan fundardag. Stjórnin. m Sumartími: Skrifstofa Framsóknarflokksins, að Nóatúni 21 í Reykjavík, verðurfrá og með 1. júní n.k. opin alla virka daga frá kl. 8.00-16.00. Framsóknarflokkurinn. Konur í Strandasýslu Rabbfundur um þjóðmál o.fl. verður haldinn fimmtudaginn 1. júní kl. 20.30. Upplýsingar gefur Hafdís Sturlaugsdóttir í síma 3393. Gestur fundarins verður Unnur Stefánsdóttir formaður Landssambands framsóknarkvenna. Mætið allar í vorspjallið. Stjórn L.F.K. Flag í fóstur SUF hefur ákveðið að efna til gróðursetningar- ferðar í Galtalæk, laugardaginn 10. júní 1989. Tekinn verður upp þráðurinn frá fyrra ári og haldið áfram uppgræðslu á því landsvæði sem SUF hefur tekið í fóstur. Nánar auglýst síðar. Framkvæmdastjórn SUF. Stjórnarfundur SUF Stjórnarfundur Sambands ungra framsóknar- manna verður haldinn í Nóatúni 21, föstudaginn 9. júní 1989, og hefst kl. 17:30. Framkvæmdastjórn SUF Reykjanes Skrifstofa Kjördæmissambandsins~að Hámraborg 5, Kópavogi er opin á mánudögum og miðvikudögum kl. 17 til 19. Sími 43222. K.F.R. , Framsóknarmenn Siglufirði Munið hádegisfund á Hótel Höfn föstudaginn 2. júní.

x

Tíminn

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.