Tíminn - 10.06.1989, Blaðsíða 8

Tíminn - 10.06.1989, Blaðsíða 8
HELGIN Laugardagur 10. júní 1989 GETTU NÚ Myndin í getrauninni fyrir viku var úr Hljóðaklettum í Þingeyjarsýslu, ekki langt frá Asbyrgi. En nú er það gamalkunn- ur áningarstaður vegfar- enda, sem um er spurt. Þar er landslag fagurt og hefur kunnur dægurlagahöfund- ur helgað staðnum sérstak- an vals. TÍMANS RÁS Atli Magnússon: Að Ferlegir atburðir síðustu daga í Peking hafa minnt á að flest er á hverfanda hveli í heiminum nú unt stundir. Bendir sitthvað til þess að sú heimsmynd sem þeir cr nú eru af æskuskeiði hafa þekkt og talið nokkuð vel mótaða verði alls úrelt fyrr en varir. Meðan Ráðstjórninni hefur tekist að gera ímynd sína stórum þekkilegri en var fyrir til- verknað opnunarstefnunnar, turn- ast holdrosinn á hami kínverska drekans út í einu vetfangi: Notaleg mynd sú sem menn höfðu af bros- leitu fólki á reiðhjólum, sem af myndum að dæma virtist helst hafa það fyrir stafni að framleiða sjónvörp, heyrir gærdeginum til. Leiðtogar Kínverja mega nú reyna hve satt það var sem vitringur þeirra Lao Tse sagði: Að stjórna víðlendu ríki er eins og að sjóða litla fiska í stórum potti. Vangaveltur um atburðina í Kína hljóta þó að verða til þess að bestu stjórnmálaspekingar finna vanmátt sinn, svo óyfirskyggnan- legrar stærðar sem land og þjóð er þar syðra. Sem vænta má meta margir atburðina sem afleiðingar hins kommúníska stjórnarfars landsins, en því skal haldið opnu hér að eitthvað áþekkt hefði getað gerst í landinu, hvert svo sem stjórnarfarið hefði verið. Pað er ofmat á pólitískri teoríu, sem ekki hefur verið í brúkinu nemafjörutíu ár, að hún hefði náð að beisla til fullnustu það afl sem hin forna þjóð Kína er. Sá sem ætlar að stjórna í Kína er í áþekkri aðstöðu og Ahab skipstjóri utan á hval- skrokkinum, þegar ferlíkið bærir á sér, og einmitt í þá veru voru fræg orð Churchills eftir síðustu styrjöld: „Kína er sofandi risi - „Kína er sofandi risi, Guð hjálpi oss þegar hann vaknar,“ sagði Churchill. Sama mega leiðtogar Kínverja segja nú. Guð hjálpi oss þegar hann vaknar.“ Sjálfsagt munu einhverjir segja að nú séu aðstæður mjög breyttar og að Kínverjar nútímans séu orðnir tæknivædd þjóð og liafi tileinkað sér hugmyndir ólíkar feðrum sínum. En að hve miklu leyti er þetta rétt? Það kann að virðast svo í stærstu borgum og helstu iðnhéruðum - en það er nú öldungis ekki allt Kína. Kínverjar eru gamalvanir borgarastyrjöldum og flokkadráttum voldugra her- manna, sem sannarlega hafa ekki ætíð verið neinir menntamenn. Einmitt nú er líka spurt hve hollur herinn reynist stjórnvöldunum - og ekki bara í Peking og þar um kring. Þess skal einlæglega beðið að til slíks komi ekki, því ef að vanda lætur yrðu umbótavonir al- mennings það sem dýpst af öllu væri í jörð grafið er slíkar hamfarir yrðu til lykta leiddar. Annars verð- ur að viðurkenna að frelsis og umbótakröfur stúdentanna á Torgi hins himneska friðar virtust ekki mjög skýrt mótaðar - eða þá að stúdentunum hefur ekki tekist að koma þeim nægilega vel til skila til umheimsins. Helst var að sjá að þeir treystu á „sína menn“ í valda- kerfinu til þess að gera eitthvað sem væri það „rétta“. Kannske hefði slík lausn getað afstýrt harm- leiknum í Peking. Hver veit. En lítið stoðar að segja „ef“ að óhöppunum orðnum. Taugaveikl- aðir og cinstrengingslegir menn gripu til sinna ráða, ákveðnir í að segja með Strössner karlinum í Paraguay: „Vér stjórnum svo sem vér höfum stjórnað og munum stjórna...“ Það skyldi nú vera að veldisstóll þeirra stæði á litlu traustari fótum en vargs þeirra í Suður-Ameríku. sjóða litla fiska

x

Tíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.