Tíminn - 16.06.1989, Qupperneq 3

Tíminn - 16.06.1989, Qupperneq 3
Föstudagur 16. júní 1989 Tíminn 3 Fyrsti bjórleikurinn á Laugardalsvellinum: Börn í stórbissnes við biórdósatínslu Leikur íslendinga og Austurrfk- ismanna á miðvikudaginn var fyrsti stórleikurinn á Laugardalsvellin- um síðan bjórinn kom. Jóhannes Óli Garðarsson, framkvæmda- stjóri Laugardalsvallar sagði að þeir hefðu ekki tekið eftir neinni sérstakri drykkju núna fremur en endranær á stórleikjum, en tók fram að erfitt væri að átta sig á magninu því krakkarnir hreinsuðu upp allar dósir og flöskur eftir að skilagjaldið var sett á þær. Margir áhorfendur sem Tíminn ræddi við höfðu orð á því að þjóðhátíðar- stemmning hefði ríkt á vellinum, menn mættu í rigningargallanum og vínlyktin sveif yfir öllu. Einn hafði á orði að þrír ungir sveinar sem voru í stæði við hliðina á honum, hefðu komið með heilan kassa af bjór í flöskum og fóru létt með að klára innihaldið í fyrri hálfleik. Jóhannes Óli sagði að öll áfengisdrykkja væri bönnuð á vell- inum og þar væru stór skilti sem ítrekuðu þetta, en þrátt fyrir það væri drykkjan vandamál sem ætti eftir að taka á. Bjórdrykkja er bönnuð á íþróttavöllum víðast hvar í heiminum, en þar sem hún er leyfð, eins og í Bretlandi, er bannað að vera með dósir eða flöskur og bjórinn seldur í plast- glösum. Jóhannes sagði að einni brenni- vínsflösku hafi verið kastað úr stúkunni niður á stétt, en sem betur fer varð enginn fyrir henni. „Þetta er vandamál sem taka verð- ur á af mikilli hörku. Annaðhvort verðum við að hafa mjög öfluga löggæslu eða fjölga starfsmönnum vallarins á meðan reglu er komið á þetta," sagði Jóhannes. Að sögn lögreglunnar í Reykja- vík var margt fólk í miðbænum fram eftir kvöldi, en þar var rólegt að mestu. 10.500 miðar voru seldir inn á Laugardalsvöilinn, en það var mál manna að með boðsgestum og börnum hefðu áhorfendur ekki verið undir 12.000. -LDH Kortafyrirtækjunum nær að auglýsa eigið ágæti að mati Verðlagsstofnunar: Óæskilegur metingur „Verðlagsstofnun telur, að æski- legt væri að greiðslukortafyrirtækin auglýstu gæði og eðli þjónustu sinnar frekar en að beina spjótum hvort að öðru,“ segir m.a. í niðurstöðu Verð- lagsstofnunar vegna kærumáls Visa íslands á hendur Eurocard, út af auglýsingum að undanförnu. Verðlagsstofnun kemst sem sagt að þeirri niðurstöðu að í auglýsing- um sínum vegi Eurocard að Visa á ótilhlýðilegan hátt og ætti að hætta því. En stofnunin bendir jafnframt á að Visa ísland hafi áður auglýst á þann hátt að „aðeins sé lítill stigs- munur á þeim og auglýsingum Euro- card“. Munurinn sé fyrst og fremst sá, að Eurocard hafi þá ekki kært Visa og því hafi Verðlagsstofnun ekki fjallað um þær auglýsingar. -HEI Samningur staðfestur um loðnustofninn á haf- svæðinu milli Grænlands, íslands og Jan Mayen: 662 þúsund lestir í hlut íslendinga Staðfestur hefur verið samningur milli Grænlands, íslands og Noregs um loðnustofninn á hafsvæðinu milli Grænlands, íslands og Jan Mayen. Bráðabirgðakvóti fyrir tímabilið 1. júlí til 30. nóvember 1989 var ákveðinn 900 þúsund Iestir og var það í samræmi við tillögur fískifræðinga. Samkvæmt ákvæðum samningsins koma 11% í hlut Grænlendinga, 78% í hlut íslendinga og 11% í hlut Norðmanna. Vegna jöfnunar frá síðustu loðnuvertíð koma auk þess 40 þúsund lestir í hlut Noregs og skiptist bráðabirgðakvótinn því þannig að 99 þúsund lestir koma í hlut Grænlands, 662 þúsund lestir í hlut íslands og 139 þúsund tonn í hlut Noregs. 1 októberlok fer fram endurmat á stærð loðnustofnsins og verður ákvörðun um frekari veiðar teknar að því loknu. Veiðarnar má hefja 1. júlí 1989 og er íslenskum loðnuskipum heimilt að stunda veiðar bæði innan lögsögu Grænlands og Jan Mayen. Veiði- skipunum er gert að tilkynna sig samkvæmt sérstökum reglum meðan þau eru í lögsögu Grænlands og Jan Mayen, jafnframt sem þeim er gert að halda sérstakar afladagbækur þegar veiðar eru stundaðar í lögsögu Grænlands, sem grænlensk stjóm- völd leggja til. í viðræðunum tilkynnti Island að ekki yrði fleiri en 25 erlendum skipum heimilar loðnuveiðar á sama tíma innan íslenskrar lögsögu, en það er svipaður fjöldi skipa og stundað hafa loðnuveiðar undanfar- in á í janúar og febrúar hér við land samkvæmt sérstöku samkomulagi við Noreg. í upphafi verða ekki ákveðin sér- stök vemdarsvæði vegna ungloðnu, en dreifing ungloðnu verður könnuð frekar í leiðöngmm í júlí og ágúst. • Sú könnun gæti leitt til þess að svæði yrðu lokuð eins og gripið hefur verið til sum árin. Sjávarútvegsráðuneytið mun inn- an skamms senda íslenskum loðnu- skipum tilskilin veiðileyfi þar sem gerð verður nánari grein fyrir þeim reglum, sem gilda um veiðarnar. -ABÓ w Aöalfundur Hússtjórnarkennarafélags íslands: Askoranir til ráð- herra og Alþingis Á aðalfundi Hússtjórnarkennarafélags íslands sem haldinn var nýlega í Verkmenntaskólanum á Akureyri, voru nokkrar ályktanir samþykktar þar sem skorað var á menntamálaráð- herra og Alþingi að hlutast til um að ýmis atriði er vörðuðu nám í hússtjórnarfræðum, verði teki til umfjöllunar. Meðal annars að allir nemendur gmnnskólans fái heimilisfræði- kennslu í 1.-9. bekk eins og viðmið- unarstundaskrá gerir ráð fyrir og að kennslufulltrúi í heimilisfræði verði ráðinn á fræðsluskrifstofur landsins, eins og verið hefur um aðrar náms- greinar. Einnig að komið verði sem fyrst á kennslu í matreiðslu og næringarfræði, umhverfis- og neyt- endafræði í öllum framhaldsskólum landsins, bæði í skólakjama og val- námi og skipulagðar verði fleiri námsbrautir á framhaldsskólastigi í tengslum við atvinnulífið. Hússtjórnarkennarar vilja að mót- uð verði heildarstefna í hússtjórnar- skóla og þeim tryggður fjárhagslegur grundvöllur, og skipulagt verði sem fyrst og komið á framhaldsnámi fyrir heimilisfræðikennara svo að þeir öðlist réttindi á framhaldsskólastigi. Hússtjómarkennarafélag íslands fagnaði manneldis- og neyslustefnu sem samþykkt var á Alþingi nú í vor og mun leggja sitt af mörkum til að efla fræðslu um næringar- og holl- ustuhætti á öllum skólastigum. -LDH Heimsókn konungs Juan Carlos I, Spánarkonungur, og Sofía drottning Spánar hafa þegið boð forseta íslands, frú Vigdísar Finnbogadóttur, um að koma í opin- bera heimsókn til íslands dagana 5.-7. júlí næstkomandi. Sölusamtök lagmetis með samning um framleiðslu á „kosher" mat sem meðhöndlaður er samkvæmt helgisiðum gyðinga: Sjö vörufiokkar með gæðamerkingu Hjá Sölusamtökum lagmetis er staddur Dr. I. Nathan Bamberger á vegum Union of Orthodox Jewish Congre- gations of America. Hann er hér kominn til að líta eftir og gefa vilyrði fyrir notkun á OU merkingu á framleiðsluvörur sem seldar eru undir framleiðslumerkinu Iceland Waters. OU merkið þýðir að varan sé hrein (kosher), þ.e. meðhöndluð samkvæmt helgisiðum gyðinga. Gyðingatrúin kveður á um að farið sé í öllu eftir Biblíunni og aðeins sá matur sem leyfður er samkvæmt Biblíunni, er viður- kenndur. Hér er um að ræða sumar tegundir af kjöti dýra og fugla, og fiskur. Dæmi um dýrakjöt sem er hreint, er nauta-, geita- og lamba- kjöt, ef þeim er slátrað samkvæmt helgisiðum gyðinga og dæmi um fuglakjöt má nefna hænsni og kalkún. Dr Bamberger sagði að ekki mætti skjóta dýrin, heldur yrði þeim að vera slátrað með fullkomnum hnífi sem væri flug- beittur og án nokkurra agnúa. Svínakjöt mega gyðingar ekki neyta undir neinum kringumstæð- um. Þegar kemur að fiski, en Bam- berger er einmitt staddur hér á landi vegna þeirrar framleiðslu, þá eru sumir fiskar hreinir, aðrir ekki. „Hreinn fiskur er sá fiskur sem hefur roð, ugga og hreistur," sagði Bamberger, dæmi um þærtegundir er þorskur, ýsa, síld, lax og ioðna. Tegundir eins og grásleppa, smokkfiskur, styrja og sverðfiskur eru ekki hreinir. OU, þar sem U er innan í O, er tákn þeirra samtaka sem Dr. Bamberger starfar fyrir og má finna táknið á þúsundum vöruteg- unda um allan heim. Þegar táknið er á umbúðum vörunnar þá er það merki þess að varan sé hrein og brýtur ekki í bága við þær kröfur sem samtökin gera um meðhöndl- un vörunnar samkvæmt helgisiðum gyðinga. Dr. Bamberger hefur komið hingað tvisvar á ári síðan 1984 til að skoða framleiðslu verksmiðj- anna sem framleiða vörur með OU merkinu á og athuga hvort varan uppfylli ekki þau skilyrði sem OU merkið krefst. í dag eru framleidd- ar sjö vörutegundir undir vöru- merki Iceland Waters, með merk- inu á. Þessar vörutegundir eru murta og loðnuhrogn frá ORA, loðna og síld í vínsósu frá K. Jónsson, þorsklifur og léttreykt síld frá Norðurstjörnunni og reykt síldarflök frá Egilssíld. Sölusam- tök lagmetis er hefur heimild til að selja vörur með merkingunni á og er því ábyrgðaraðili fyrir því að varan sé eins og hún á að vera. Á árinu 1988 voru fluttar út vörur fyrir 70 milljónir króna með OU merkingunni. Loðnuhrognin frá ORA er ný framleiðsluvara sem fær OU merk- inguna og sagði Dr. Bamberger að rabbíi yrði að vera vitni að fram- leiðslunni til að hún yrði samþykkt og Iitarefnið sem sett er í og kemur frá Bandaríkjunum, verður einnig að hafa merkinguna OU. Dr. Bamberger sagði að sam- starfið við íslendingana hefði geng- ið mjög vel, en reglurnar væru mjög strangar, þannig að ef í einhverju væri brugðið út af þeim samningi sem gerður hefði verið um innihald vörunnar sem hefur hlotið viðurkenningu samtakanna, þá væri samningnum sagt upp. Eiríkur Valsson skrifstofustjóri Sölusamtaka lagmetis sagði að þeir væru ánægðir með að framleiða vörur með merkingunni á, því í augum gyðinga og margra annarra neytenda væri þetta gæðamerki. -ABÓ

x

Tíminn

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.