Tíminn - 16.06.1989, Blaðsíða 20
AUGLÝSINGASÍMAR: 680001 —686300
=1 RÍKISSKIP NÚTÍMA FLUTNINGAR Hatnarhúsinu v/Tryggvagötu, S 28822 1 . ‘O&0#- ^ £>(A % 0 SAMVINNUBANKI ISLANDS HF. 0rB,tAsr0 ÞRttSTUR 685060 VANIR MENN PÓSTFAX TIMANS 687691
Tíniiini
FÖSTUDAGUR 16. JÚNÍ1989
BANASLYS Á
LAUGAVEGI
Banaslys varð á horni Laugavegs
og Vitastígs á níuntla tímanum í
gærmorgun, þegar strætisvagn sem
var á leið niður Laugaveg og Volks-
wagenbifreið á leið upp Vitastíg
skullu saman. Ökumaður fólksbif-
reiðarinnar, stúlka fædd árið 1970,
vur látin þegar komið var með hana
á slysadeild og farþegi sem í bílnum
var, einnig ung stúlka, slasaðist
mikið. Farþegar og ökumaður
strætisvagnsins sluppu ómeiddir.
Við áreksturinn hentist fólksbifreið-
in til um nokkra metra og hafnaði á
búðarglugga, sem brotnaði. Tildrög
slyssins eru ekki að fullu kunn.
-ABÓ
Benedikt Gröndal segir starfi sínu lausu,
gagnrýnir ráðherra og kennir honum um;
Einangrun og
starfsleysi
Benedikt Gröndal hefur beðið
forseta íslands lausnar frá starfi
ferðasendiherru.
í bréfi sem hann sendi forsetanum
segir hann sínar farir ekki sléttar.
Benedikt segir starf ferðasendiherra
í Japan, Kína og fleiri Kyrrahafs-
löndum, sem hafi þróast í áratugi,
byggist á embættisferðum scm lengi
liafa verið tvær á ári. Hann segir
augljóst að utanríkisráðherra, Jón
Baldvin Hannibalsson, vilji losna
við sig úr utanríkisþjónustunni eða
Agæt veiði
í Kjósinni
„Þetta er allt að smella saman.
Vatnið er orðið mjög gott og
jafnar göngur eru í ána,“ sagði
Árni Baldursson í samtali við
Tímann í gær þegar hann var
spurður um veiði.
Fyrstu dagana var áin bakka-
full og skoluð. Hún hefur nú
jafnað sig og hefur veiði verið
viðunandi þrátt fyrir aðstæður. Á
hádegi í gær voru komnir þrjátiu
laxar á land, allir á bilinu níu til
sextán pund. Veiði hófst í Laxá í
Kjós þann 10. júní.
Allir fiskarnir, sem veiðst hafa,
fengust neðan Laxfoss og hefur
Kvíslarfossinn gefið best. Fyrir
hádegi í gær komu átta fiskar á
land, vatnið orðið mjög gott og
má því búast við stórum tíðindum
á næstu döguni.
Árni Baldursson er reyndar
fullviss um að þann tuttugasta
„byrji ballið" eins og hann orðaði
það. „Það er stór straumur á
þriðjudag og upp úr því verður
sprenging. Algjör sprenging,"
sagði Árni.
Seinnipartinn þann 13. tók
Árni fimm fiska í beit á pallinum
rétt fyrir ofan brúna. Rúta full af
ferðamönnum stoppaði til að
fylgjast með atgangnum og voru
margar vídeótökuvélar sem
beindust að kappanum. Einnig
voru ljósmyndir teknar í gríð og
erg. Árna varð að orði þegar sá
fimmti var kominn á land að nú
væri sumarið byrjað. -ES
að minnsta kosti halda honum ein-
angruðum og starfslausum.
Nefnir hann því til stuðnings að
nauðsynleg ferð til Japans hafi síð-
astliðinn vetur vcrið bönnuð, eins og
segir orðrétt og síðan hafi ríkt ferð-
abann. Jafnframt hafi sendiherra
ekki verið leyft að taka þátt í
viðræðum við sendimenn frá Japan.
Benedikt segir ráðherra hafa lýst
því yfir að starfið sé óþarft og verði
afnumið. „Þessari stefnu hans hefur
þegar verið fylgt í raun og sendiherra
verið að miklu leyti starfslaus" segir
í bréfinu. Hann segir tilgangslaust
að troða illsakir við ráðhcrra og segi
því starfi sínu lausu, á besta aldri og
við góða heilsu, eftir sjö ára starf
sem sendiherra.
Auk alls þessa hafi ráðherra ekk-
ert haft samband við sendiherra um
ofangreind mál né neitt annað varð-
andi starfið. Skrifstofa sendiherra sé
utan ráðuneytisins og úr tengslum
við flest sem þar gcrist. Fyrir utan
það að Jón Baldvin hafi ekki svarað
orðsendingum né skýrslum send-
iherra einu orði allt árið. jkb
l ormaöur BSKB og forsætisráðherra á fundinum í stjórnarráðinu í gær
Viðræður BSRB forystunnar og ríkisstjórnarinnar í gær. Ögmundur Jónasson:
Ræddum kauphækkun
og lækkun verðlags
„Þetta var mjög-gagnlegur fundur. Við, fyrir hönd
BSRB, skýrðum hvers vegna við hefðum haft uppi
yfirlýsingar um að ríkisstjórnin hefði ekki staðið við
skuldbindingar sem hún gekkst undir gagnvart okkur í
síðustu samningum.
Við lögðum fram kröfur um að
þessu yrði kippt í liðinn. f því
sambandi ræddum við um kaup-
hækkanir, við ræddum um verð-
lagslækkanir og um nauðsyn á
verðstöðvun."
Þetta sagði Ögmundur Jónasson
formaður BSRB í gær eftir fund
hans og fleiri forystumanna banda-
lagsins og Steingríms Hermanns-
sonar og fleiri ráðherra í gær.
Ögmundur sagði að niöurstaða
fundarins hefði orðið sú að aðilar
urðu ásáttir að ræða ofannefndar
kröfur BSRB nánar á næstu
dögum. Samstarf hefði um sinn
verið milli ASÍ og BSRB um
viðbrögð við verðlagshækkunum
undanfarinna vikna en á fundinum
í gær hefðu þær vitanlega verið til
umræðu. Þó hefði ekki síður verið
ræddir kjarasamningar BSRB og
ríkisins og ýmis atriði þeirra er að
þessum málum lúta.
„Okkur er verulega umhugað
um að ná árangri hið fyrsta og mér
fannst tónninn vera sá hjá ráðherr-
um að þeir væru sama sinnis og að
nauðsynlegt væri að grípa til ein-
hverra aðgerða til að stuðla að því
að grundvöllur kjarasamninganna
haldist. Það voru gerðir í vor
kjarasamningar til ákveðins tíma
og við viljum að þeir haldi,“ sagði
Ögmundur. SÁ
Flugleiðirog Flugvirkjafélag íslandsdeilaumyfirvinnu:
TELJA YFIRVINNU
■■
BANNIÐ 0L0GLEGT
Fulltrúar í samninganefnd Flugvirkjafélags íslands tjáöu
samninganefnd Flugleiða, á fundi hjá ríkissáttasemjara í gær,
að félagið myndi beita sér gegn því að flugvirkjar í þjónustu
Flugleiða ynnu yfirvinnu á meðan á kjaradeilu stæði.
OPIÐ BEINBROT
Harður árekstur varð milli mótorhjóls og fólksbifreiðar á horni
Grensásvegar og Skeifunnar síðdegis í gær. Ökumaður bifhjólsins
var fluttur á slysadeild með opið beinbrot auk annarra meiðsla.
Tímamynd Pjetur/ABÓ
Að sögn blaðafulltrúa Flugleiða,
Einars Sigurðssonar, telur félagið
vera hér um skipulagða og því
ólöglega aðgerð að ræða af hálfu
Flugvirkjafélagsins. sem ekki hafi
verið boðuð með neinum fyrirvara.
„Þessar aðgerðir koma sér einkar
illa fyrir Flugleiðir nú þegar fyrirtæk-
ið á í erfiðleikum með að halda
áætlunum vegna kyrrsetninga
tveggja véla félagsins,-1 sagði Einar.
Vegna yfirvinnubannsins seinkar
vinnu við aðra DC 863 flugvél félags-
ins sem hefur verið biluð síðan í
fyrradag. Af þessu leiðir svo dæmi
sé tekið að ferð farþega til Orlando
seinkar um sólarhring. Auk þess
sem 150 útlendingar urðu að gista á
Laugarvatni síðastliðna nótt vegna
skorts á hótelherbergjum í Reykja-
vík. „Ég geri ráð fyrir réttarstaða
félagsins í þessu máli verði skoðuð,“
sagði Einar. jkb