Tíminn - 16.06.1989, Blaðsíða 13
Föstudagur 16. júní 1989
Tíminn 13
Aðalfundur Sölusambands íslenskra fiskframleiðenda hvetur félagsmenn
til samstöðu og þannig:
Virða langtímahagsmuni
íslensks saltfiskiðnaðar
Á aðalfundi SÍF sem haldinn var
á dögunum var samþykkt ályktun
þar sem skorað er á stjórnvöld að
flýta ákvörðun um tillögu hagsmuna-
samtaka í sjávarútvegi um aflamiðl-
un sem mun fylgjast með útflutningi
á öllum óunnum fiski. Þessi ályktun
er m.a. tilkomin vegna þeirrar sam-
keppni sem íslenskur saltfiskur er að
lenda í við íslenskan fisk sem fer til
söltunar á Spáni og í Evrópu og
mikið var rætt um á fundinum.
Afkoma saltfiskframleiðenda á
síðasta ári versnaði mikið frá árinu
1987. „Það hefur síðan heldur hallað
undan fæti fyrrihluta þessa árs,“
sagði Magnús Gunnarsson fram-
kvæmdastjóri SÍF í samtali við
Tímann. f ræðu stjórnarformannsins
Dagbjartar Einarssonar kom fram
að þrátt fyrir þrengingar á mörkuð-
um, þá hafi SIF flutt út á árinu 1988
61.331 tonn af saltfiski að verðmæti
223 milljónir Bandaríkjadollara.
Þetta svarar til útflutningsverðmæta
að upphæð 12,6 milljarðar íslenskra
króna á gengi í dag.
í einni af ályktunum aðalfundarins
er varað við útflutningi á fiski sem
saltaður er erlendis og seldur sem
íslenskur saltfiskur í beinni sam-
keppni við íslenskan saltfisk. Magn-
ús sagði að mikil samstaða hefði
verið um að menn reyndu að vinna
eins mikið saman og unnt væri. Þeir
aðilar sem selt hafa erlendum aðilum
flattan fisk ósaltaðan, hafa fyrst og
fremst bent á að stóri kosturinn við
þetta sé sá að greiðslur berist mjög
hratt, meðan þeir sem salta hér
heima hafa þurft að veita lengri
greiðslufrest til kaupendanna, í sam-
keppni við Norðmenn.
Fundurinn hvatti stjórn SÍF til að
leita allra leiða til að gera það sem
hagkvæmast fyrir framleiðendur að
salta fisk á íslandi. Fundurinn hvatti
félagsmenn til samstöðu og virða
þannig langtímahagsmuni íslensks
saltfiskiðnaðar.
Þá samþykkti fundurinn einnig
ályktun þess efnis að stjórn sam-
bandsins beiti sér fyrir í samráði við
önnur bagsmunasamtök í sjávarút-
vegi og stjórnvöld, að mörkuð verði
heilsteypt sjávarútvegsstefna sem
taki í senn til veiða og vinnslu.-ABÓ
ÚTSKRIFT í FLENSBORG
Laugardaginn 10. júní s.i. voru 42 stúdentar brautskráðir frá Flensborgarskólanum. Flestir brautskráðust af
viðskiptabraut eða 13, 9 af málabraut, 9 af félagsfræða- eða uppeldisbraut, 8 af náttúrufræðabraut og 3 af
eðlisfræðibraut.
Bestum námsárangri náði Marta Einarsdóttir, viðskiptabraut, nemandi í öldungadeild skólans, en hún hlaut 36
A og 8 B í einkunn.
Við brautskráningarathöfnina tóku til máls auk skólameistara, Kristjáns Bersa Ólafssonar, Lúðvík Kristjánsson
sagnfræðingur, sem flutti kveðju og gjöf frá þeim sem luku gagnfræðaprófi frá skólanum fyrir 60 árum, séra Bjarni
Sigurðsson sem flutti kveðju og gjöf frá 50 ára gagnfræðingum, og einn úr hópi hinna nýju stúdenta, Páll Jakob
Malmberg.
Kór Flensborgarskólans undir stjórn Margrétar J. Pálmadóttur söng við athöfnina.
Höfuðborgarveðrið í maí: 191 stundarsól, 126mm úrkomaog4,1 stigshiti:
„Bara að ’ann hangi þurr“
Þótt kuldahrollur hafi hrjáð marga það sem af er sumri
(m.a. páfa og preláta) segja mælingar Reykvíkinga hafa notið
heldur meiri sólar í maímánuði s.l. heldur en í meðalári, og
litlu minni en í maí í fyrra. Úrkoma í borginni var samt óvenju
mikil nú í maí, eða 126 mm, sem er hátt í þrefalt meira en í
meðalmaí. Höfuðborgarbúar mega nú líklega óska sér hvað
heitast að ekki taki við jafn grár júnhnánuður eins og í fyrra.
Þá skein sólin aðeins 72 stundir á Reykvíkinga, samanborið
við nær 190 stundir í meðalári.
Samkvæmt upplýsingum Veður-
stofunnar var meðalhiti í Reykjavfk
nú í maí aðeins 4,1 stig (4,7 á
Akureyri). Meðalhiti Reykjavíkur í
maí er 6,9 stig, en 7,5 stig í maí í
fyrra. Frá tólfta til átjánda maí var
hitinn þá allt frá 11 og upp undir 19
stig (og glampandi sólskin) um há-
daginn og 9-14 stig það sem eftir
lifði mánaðarins. Hitamunurinn hef-
ur því verið mikill milli ára.
Þessi kuldi í maí stafar þó ekki af
því að sólin hafi svikið borgarbúa.
Veðurstofan mældi 191 sólskins-
stund í Reykjavík, sem var að vísu
nokkru minna en í maí í fyrra (202
klst.), en heldur meira en í meðalári
(189 klst.).
Þótt flestir hafi nú kannski gleymt
því þá fylgdi í fyrra einstaklega grár
júnímánuður í kjölfar sólríks maí.
Veðurstofan lýsti honum svo: „Tíð-
arfar var leiðinlegt vestan- og sunn-
anlands sökum úrkomu og sólarleys-
is“ (þótt á Norðurlandi drægju
þurrkar úr sprettu). í þessum bjart-
asta mánuði ársins skein sólin aðeins
72 stundir í Reykjavík (70 stundir í
Fljótshlíð), sem var aðeins rúmlega
þriðjungur af meðal sól í júnímánuði
í Reykjavík. Meira en helming mán-
aðarins sást annað hvort ekki til
sólar eða að hún skein innan við einn
klukkutíma á dag. Aðeins þann 30.
júní náði sólin að skína í 10 tíma.
í Reykjavík var 126 mm úrkoma
í maí s.l., sem var nær fjórðungi
meira en í fyrra og nær þrefalt meiri
úrkoma heldur en t maí í meðalári í
Reykjavík. Á Akureyri var úrkoma
15 mm sem er nálægt meðallagi þar
um slóðir. -HEI
ral ’ A ' 'T --a 1 -1 -i
vi\rvo«J ■ «nr
Jón Kristjánsson, alþingismaður, verður með
viðtalstíma og fundi, og situr fyrir svörum um
stjórnmálaviðhorfið og þingstörfin.
Á Vopnafirði, viðtalstími í Miklagarði ki.
17.00-19.00 og almennurfundur á sama stað
kl. 20.30 miðvikudaginn 21. júní.
Jún
Kristjánsson
Vorhappdrætti Framsóknarflokksins
Dregið var í Vorhappdrætti Framsóknarflokksins 9. júní. Vinnings-
númer eru sem hér segir:
1. vinningur númer 17477
2. vinningur númer 36272
3. vinningur númer 33471
4. vinningur númer 37116
5. vinningur númer 38156
6. vinningur númer 27174
7. vinningur númer 8313
Vinningsmiðum skal framvísa á skrifstofu Framsóknarflokksins í
Nóatúni 21, Reykjavík.
Ógreiddir miðar eru ógildir.
Vinninga skal vitja innan árs frá útdrætti.
Allar frekari upplýsingar i síma 91-24480.
Framsóknarflokkurinn
Landsþing L.F.K. á Hvanneyri
8.-10. september 1989.
4. landsþing L.F.K. verður haldið að Hvanneyri dagana 8.-10.
september n.k.
Dagskrá þingsins verður tilkynnt síðar.
Framsóknarkonur eru hvattar til að fjölmenna eins og á undanfarin
þing.
Stjórn L.F.K.
Framsóknarmenn
Siglufirði
Munið hádegisfund föstudaginn 16. júní.
Sumartími:
Skrifstofa Framsóknarflokksins, að Nóatúni 21 í Reykjavik, verðurfrá
og með 1. júní n.k. opin alla virka daga frá kl. 8.00-16.00.
Framsóknarflokkurinn.
Súgþurrkunar-
blásarar
Til sölu súgþurrkunarblásarar H12 og H22 með
mótorum 71/2 hö. og 13 hö. Þéttar og spólurofar
fylgja. Upplýsingar í síma 98-75078.
SUMAR I GARÐINUM