Tíminn - 16.06.1989, Blaðsíða 19

Tíminn - 16.06.1989, Blaðsíða 19
Föstudagur 16. júní 1989 Tíminn 19 llllllllllllllllllli. ÍÞRÓTTIR , Körfuknattleikur: Pétur Guðmundsson með Lakers í sumar - kemur heim í ágúst til þess að æfa með landsliðinu VfsA Kortnr.: □□□□□□□□□□□□□□□□ ÁSKRIFANDI:. Á þessarí mynd sést vel hve gott færið var sem Sigurður Grétarsson fékk á 12. mín. síðari hálfleiks landsleiksins í fyrradag. Fyrir opnu marki skaut Sigurður framhjá. langt er í næsta vamarmann Austumkis og markvörðurinn hefði ekki átt möguleika á að verja, hefði knötturinn hitt markið. Þetta færi var mun opnara og betra en færið er Sigurður skaut í þverslána. rinunyad: Pjtiar. Mippið hér Tíminn □ ER ÁSKRIFANDI □ NÝR ÁSKRIFANDI Dags.: BEIÐNIUM MILLIFÆRSLU ÁSKRIFTARGJALDS Ég undirrítuö/aður óska þess að áskriftar- gjald Tlmans verði mánaðarlega skuld- fært á greiðslukort mitt. UNDIRSKRIFT. SENDIST AFGREIÐSLU BLAÐSINS LYNGHÁLSI 9. 130 REYKJAVÍK PÓSTNR. - STAÐUR:.............. SÍMI:. Knattspyrna: Þorsteinn Guðjónsson til Gróttu Þorsteinn Guðjónsson knatt- spymumaður úr KR hefur tilkynnt félagaskipti í 3. deildarlið Gróttu á Seltjamamesi. Þorsteinn, sem einnig er hand- knattleiksmaður með KR, er ný tekinn til við knattspyrnuæfingar, en hann æfði í vor með 21 árs landsliðinu í handknattleik. Ekki er að efa að Þorsteinn á eftir að styrkja lið Gróttu mikið í barátt- unni í sumar, en hann verður lögleg- ur með liðinu í síðari umferð íslands- mótsins. BL MARGT SMATT Ottawa-Toronto. Tveir kanadískir íþróttamenn voru í gær dæmdir í keppnisbann vegna þess að þeir höfðu notað hormónalyfið stan- ozolol. Það voru þau Lulie Rochel- eau-Baumann 100 m grindahlaupari og lyftingamaðurinn Bob Karsch. Genf. Karl-Heinz Rummenigge lauk knattspymuferli sínum í fyrra- dag með því að skora mark í 4-2 sigri Servette á Bellinzona í svissneska knattspyrnunni. Kappinn skoraði alls 313 mörk á 15 ára ferli sínum. London. Manchester United gekk í gær frá kaupum á þeim Neil Webb frá Nottingham Forest og Michael Phelan frá Norwich. Pétur Guðmundsson körfúknatt- leiksmaður, sem undanfarin ár hefur leikið í NBA-atvinnumannadeild- inni í Bandaríkjunum, hefur nú náð sér af meiðslunum sem hrjáðu hann í vetur. Pétur var á samningi hjá San Antonio Spurs s.l. 2 ár, en er nú með lausan samning. Forráðmenn Los Angeles Lakers hafa sýnt Pétri mikinn áhuga að undanfömu og buðu honum meðal annars að leika með liðinu í úrslita- keppninni. Pétur varð að hafna því boði vegna meiðslanna, en hann hefur nú tekið boði liðsins um að æfa og leika með Iiðinu í æfingamótum í sumar. Lakers-liðið leitar nú að stórum miðherja til þess að fylla skarð Kareem Abdul-Jabbars, en hann hefur nú sem kunnugt er lagt skóna á hilluna eftir 20 ár í atvinnumennsk- unni, enda orðinn 42 ára gamall. Pétur lék sem kunnugt er með Lakers fyrir 3 árum, en var seldur frá liðinu, þar sem hann átti við bak- meiðsl að stríða. Stórir miðherjar eru ekki á lausu í Bandaríkjunum um þessarmundir, frekar en annars staðar og því er ekki ólíklegt að Lakers bjóði Pétri samning í haust. Þótt Michael Thompson komi til með að leika í miðherjastöðunni í byrjunarliði Lakers, þá vantar liðið stærri mann til að skipta við Thompson. Lakers- liðið þarf að hafa vamarmann sem gætt getur risa eins og Mark Eaton, Chuck Nevitt og Manut Bol, en þessir kappar eru allir töluyert hærri en Pétur, sem þó er 2,18 m á hæð. Pétur kemur væntanlega til ís- lands f ágúst til þess að æfa með landsliðinu, en hann varð nýlega löglegur með liðinu. í september heldur landsliðið til Englands til þátttöku í forkeppni heimsmeistara- keppninnar og þar mun Pétur líklega leika sína fyrstu landsleiki í ein 8 ár. BL Frjálsar íþróttir: Jóhann og Gunnlaugur bættu sig í Koblens - hlupu í fyrsta sinn 5000m undir 15 mínútum Hópur frjálsíþróttamanna er nú við æfingar og keppni í V-Þýska- landi. f fyrrakvöld kepptu þeir Jóhann Ingibergsson FH og Gunn- laugur Skúlason UMSS i 5000m hlaupi á móti í borginni Koblens, þar sem árnar Rín og Móseí mætast. Þeir félagar bættu báðir fyrri árangur sinn verulega. Jóhann hljóp á 14:52,35 mín. en átti áður best 15:10 mín. Gunnlaugur hljóp á 14:57,53 mín. en besti árangur hans áður var 15:25 mín. Að sögn Guðmundar Karlssonar landsliðs- þjálfara í frjálsum íþróttum er þessi árangur þeirra Jóhanns og Gunnlaugs, miklum æfingum þeirra f vetur að þakka, svo og góðum aðstæðum í V-Þýskalandi. Aðeins einn íslendingur hefur áður hlaupið 5000m á tíma undir 15 mín. en það er Keflvíkingurinn Már Hermannsson. Már má því eiga von á harði keppni á mótum hér heima síðar í sumar. Daníel Guðmundsson USAH keppti fyrir skömmu á móti í Essen °g þar náði hann þeim árangri að hlaupa í fyrsta sinn á tíma undir 4 mín. Daníel fékk tímann 3:59,2 mín. bl

x

Tíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.