Tíminn - 16.06.1989, Page 9

Tíminn - 16.06.1989, Page 9
Föstudagur 16. júní 1989 Tíminn 9 OSLÓ -Tveir norskir þing- menn hafa lagt til að Chai Ling sem er einn leiðtoga friðsam- legra mótmæla kínverskra stúdenta hljóti friðarverðlaun Nóbels. Chai Ling skýrði frá fjöldamorðunum á Torgi hins heimneska friðar á myndbandi sem smyglað var frá Kína og sýnt víða um heim. Chai er talin hafa fengið hæli í sendi- ráði Austurríkis, en Austurrík- ismenn hafa ekki viljað stað- festa það. DUBAI - Sprenging varð i risaolíuflutningaskipi í höfninni í Dubai. Að minnsta kosti einn maður lét lífið og fjórtán slösuðust. BONN - Mikhaíl Gorbatsjof forseti Sovétríkjanna sagðist harma atburðina i Kína og sagði að umbætur þær er haf n- ar voru í landinu mættu ekki fara út um þúfur. Þetta eru 2'rstu ummæli Gorbatsjofs um standið í Kína eftir að upp úr sauð, en heimsókn hans til Kína magnaði mjög mótmæla- aðgerðir stúdenta þar. JERUSALEM - Hermenn og lögregla gerðu skjöl upptæk og lokuðu skrifstofu Palestínu- mannsins og heimspekingsins Sari Nussebeih. Hann var sak- aður um að hafa hjálpað PLO við að skipuleggja uppreisn Palestinumanna á hernumdu svæðunum. CANBERRA - Ástralar hafa veitt kínverskum sendi- ráðsmanni tímabundið hæli sem pólitískur flóttamaður. Bob Hawke forsætisráðherra Ástraliu skýrði frá þessu. WASHINGTON - Viðskipta- halli Bandaríkjanna minnkaði í aprílmánuði, varð 8,26 millj- arðir dollara í stað 9,54 í mars. Þetta er svipaður viðskiptahalli og hagfræðingar höfðu spáð. Dollarinn tók stökk upp á við eftir þessar fréttir. DUBLIN -Talið er að Char- les Haughey forsætisráðherra írlands og ríkisstjórn hans missi ekki meirihluta á þingi ( þingkosningunum. ÚTLÖND Uppgjör kínverskra stjórnvalda við mótmælaaðgerðir námsmanna hefst á samatímaog einn leiðtogi námsmanna hefur veriðtilnefndur til friðarverðlauna Nóbels: ÞRÍR ANDÓFSMENN DÆMDIR TIL DAUÐA Þrír kínverskir andófs- menn voru dæmdir til dauða í Sjanghæ vegna skemmdar- verka. Þrímenningarnir voru sakaðir um að hafa ráðist á og kveikt í járnbrautarlest sem hafði ekið inni í hóp mótmælenda í Sjanghæ ó.júní, er fréttir höfðu þá borist um blóðbaðið á Torgi hins himneska friðar. Sex manns létu Iífíð er lestin ók inn í mannþröngina og sjö slösuðust alvarlega. Þetta er fyrsti dauðadómurinn sem kveðinn er upp yfir andófs- mönnum eftir að kínversk stjórnvöld drekktu mótmælum stúdenta í blóði með því að senda vopnaða hermenn til að rýma Torg hins himneska friðar sem lýðræðishreyfing náms- manna hafði á valdi sínu. Sjónvarp- að var þegar dómarinn kvað upp úrskurð sinn. Dómarinn sagði að glæpur þre- menninganna sem allir eru á þrítugs- aldri hafi verið mjög alvarlegur og að þá ætti að aflífa sem allra fyrst. Þeir hafa hins vegar þrjá daga til að áfrýja dómnum. Þá skýrðu kínversk stjórnvöld frá því að tveir hinna sérstaklega eftir- lýstu leiðtoga námsmanna hafi verið handteknir. Þá hafa fjórir af þeim tuttugu og einum sem eftirlýstir eru lent í klónum á lögreglunni. Ríkissjónvarpið skýrði frá því að Xiong Wei, einn hinna eftirlýstu hafi gefið sig fram við lögreglu og verið í fylgd móður sinnar. Sjónvarpið sýndi frá yfirheyrslum yfir honum. Þá sýndi sjónvarpið einnig frá því þegar Liu Quiang einn leiðtogi sjálf- 3ilN£S£ Deng Xiaoping hefur atast blóði stúdenta í Kína, eins og þessi skopmynd ber með sér. Blóðbaðið á Torgi hins himneska friðar var hins vegar ekki skoplegt, né sú ákvörðun harðlínumanna að dæma þrjá andófsmenn til dauða. skipaðra verkalýðssamtaka sem tóku þátt í mótmælunum, var dreg- inn handjárnaður út úr lest í Innri- Mongólíu. Hundruð ungmenna hafa verið handtekin víðs vegar um Kína vegna mótmælanna, en flestir leiðtoga stúdenta fara nú huldu höfði. Einn leiðtogi námsmannanna hin 23 ára Chai Ling hefur verið tilnefnd til friðarverðlauna Nóbels vegna þátttöku sinnar í friðsamlegum mót- mælum og baráttu stúdenta og verkamanna fyrir lýðræði. Chai Ling náði að smygla myndbandi úr landi sem sýndi aðför hermanna gegn námsmönnum. Óstaðfestar fregnir segja að Chai hafi leitað hælis í sendiráði Austurríkis í Peking. Kínversk stjórnvöld hafa haldið uppi stanslausum áróðri í fjölmiðl- um þar sem það er staðhæft að námsmenn hafi ráðist af mikilli grimmd á hermenn Alþýðuhersins, og staðhæft er að herinn hafi ekki skotið einni einustu kúlu að náms- mönnum. Gaddafi beitiráhrifumsínum og bregðursér í líki frelsandi engils í Líbanon: Belgískum gísl sleppt eftir þrettán mánuði Gaddafi leiðtogi Líbýu skellti sér í líki frelsandi engils með því beita áhrifum sínum í Líbanon á þann veg að fá Belgann Jan Cools leystan úr gíslingu í gær. Cools hafði verið í Kýpurtyrkir bjóða búlgörskum Tyrkjum athvarf í Varhosa Ekkert lát er á straumi fólks af tyrknesku bergi brotnu frá Búlgar- íu til Tyrklands og er talið að um 22 þúsund flóttamenn hafi komið til Tyrklands í kjölfar kynþáttaá- taka í Búlgaríu, enda hafa Búlgar- ar þvingað fjölda þeirra til að yfirgefa Búlgaríu. Tyrkneskiremb- ættismenn segja að að minnsta kosti fimmtíu Tyrkir hafi fallið í kynþáttaróstunum í Búlgaríu undanfarna fjörutíu daga, en Búlg- arar segja þrjá hafa fallið. Flóttamannastraumurinn frá Búlgaríu hefur ekki einungis skap- að erfiðleika í Tyrklandi, allt bend- ir til þess að harðar deilur blossi upp á Kýpur vegna þessa. Rauf Denktash leiðtogi Kýpurtyrkja hefur boðið hinum búlgörsku Tyrkjum að flytjast um stundarsak- ir að minnsta kosti til borgarinnar Varosha sem er á norðurhluta Kýpur. Borgin var áður byggð fólki af grísku bergi brotnu, en það fólk yfirgaf heimili sín árið 1974 þegar tyrkneskar hersveitir gerðu innrás á Kýpur til að tryggja stöðu Kýpurtyrkja. Kýpurtyrkir hafa lýst yfír sjálf- stæði tyrkneska hluta Kýpur, en ekkert ríki utan Tyrklands hefur viðurkennt það. Denktash sagði að 30 þúsund flóttamenn af tyrk- nesku bergi gætu komið til borgar- innar án mikils fyrirvara, en í borginni bjuggu 40 þúsund Grikkir fyrir innrásina 1974. Grikkir á Kýpur urðu mjög reið- ir vegna þessa boðs Denktash og sagði Vassos Lyssarides forseti þingsins á Kýpur, að þetta tilboð væri út í hött. Þetta mál gæti komið afturkipp í þær viðræður sem hafnar eru um hugsanlega sameiningu Kýpur að nýju, en Denktash mun hitta George Vassiliou forseta Kýpur og Perez de Cuellar aðalritara Sam- einuðu þjóðanna seinna f þessum mánuði til að ræða hugsanlega sameiningu. Flóttamannastraumurinn hefur skapað Tyrkjum mikla erfiðleika og hefur Turgut Ozal forsætisráð- herra Tyrklands farið fram á fund með búlgörskum stjómvöldum um þessi mál. haldi öfgafullra múslíma í Líbanon í þrettán mánuði, en Cools starfaði þar á vegum norsku hjálparsamtak- anna NORWAC. Talið er að tuttugu og tveir útlendingar séu enn í gísl- ingu í Líbanon. - Ég er mjög glaður. Ég er svolítið þreyttur sagði hinn 32 ára Belgi eftir að honum hafði verið sleppt í hafnar- borginni Sídon í Suður-Líbanon. Cools var vel á sig kominn og sagði að mannræningjarnir sem kalla sig „Hermenn sannleikans" hefðu kom- ið vel fram við sig þessa þrettán mán- uði. Bæði Jan Cools og Robert Urbain viðskiptaráðherra Belgíu þökkuðu Gaddafi fyrir hlut hans í gíslalausn- inni, en Urbain hélt til Líbanon eftir að hafa rætt við Gaddafi um lausn Cools. Velta menn nú fyrir sér hvort Belgar hafi skuldbundið sig til að aðstoða Lfbýumenn í staðinn, eða hvort hér sé einungis um jákvætt uppátæki Gaddafis að ræða. Þá þökkuðu þeir palestínska skæmliðaforingjanum Abu Nidal fyrir sinn hlut í málinu, en Palest- ínska Fatha byltingaráðið sem Nidal leiðir hafði milligöngu um lausnina. Hafa samtökin lýst yfir að þau reyni nú að fá fleiri gísla leysta úr haldi. Nikolai Ryzkhof forsætisráðherra Sovétríkjanna: Leiðtogar komm- únista þátttak- endur í kynþátta- ofsóknum Úzbeka Leiðtogar í héraðsdeildum komm- únistaflokksins í Úzbekistan tóku þátt í kynþáttaofsóknum Úzbeka gegn Mesketíum, en um það bil hundrað manns hafa fallið í kyn- þáttaátökunum í Sovétlýðveldinu undanfarið. Frá þessu skýrði Nikolai Ryshkov forsætisráðherra Sovétríkj- anna á fundi kommúnistaflokksins í Úzbekistan í gær, en Ryshkov hefur undanfarna daga dvalið í Úzbekistan til að koma þar á reglu og hefur heimsótt flóttamannabúðir Me- sketa. - Það hefur komið í ljós að einstaklingar innan flokkins og emb- ættismenn ríkisins tóku þátt í of- sóknunum, hafði Moskvuútvarpið eftir forsætisráðherranum á fundi í þorpinu Andizhan í Feranahéraði þar sem ofsóknirnar voru einna verstar. - Ég vil sjá þessa menn svara fyrir gjörðir sínar gagnvart saklausu fólki. Ég hef séð margt ljótt um ævina, en þeir hlutir sem ég komst að í flótta- mannabúðum Mesketa í gær slá allt annað út, sagði Ryshkov.

x

Tíminn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.