Tíminn - 13.07.1989, Blaðsíða 4
4 Tíminn
Fimmtudagur 13. júlí 1989
Tilkynning til
söluskatts-
greiðenda
Athygli söluskattsgreiðenda skal vakin á því, að
gjalddagi söluskatts fyrir júnímánuð er 15. júlí.
Ber þá að skila skattinum til innheimtumanna
ríkissjóðs ásamt söluskattsskýrslu í þríriti.
Fjármálaráðuneytið.
Umboðsmaður -
Akureyri
Tíminn óskar eftir að ráða umboðsmann fyrir
blaðið á Akureyri.
Upplýsingar gefur framkvæmdastjóri í síma 91-
686300.
Tíminn.
BILALEIGA
meö utibu allt i -kringurri
landiö, gera þér mögulegt
aö leigja bíl á einum staö
og skila honum á öörum.
Reykjavík
91-31615/31815
Akureyri
96-21715/23515
Pöntum bíla erlendi$i(
interRent
Bílaleiga Akureyrar
/4
TÖLVU-
NOTENDUR
Víð í Prentsmiðjunni Eddu
hönnum,
setjum og prentum
allar gerðir eyðublaða
fyrir tölvuvinnslu
f PRENTSMIÐJAN
Smiðjuvegi 3,
200 Kópavogur.
Sími 45000
Barn sem situr í barnabílstól
getur sloppið við meiðsl
í árekstri!
|| UMFERÐAR
Heybindivél óskast
Upplýsingar í síma 93-51381.
+
Útför mannsins mlns
Gísla Kristjánssonar
fyrrverandl útgerðarmanns
fer fram frá Garðakirkju föstudaginn 14. júlí kl. 13:30.
Fanný Kristín Ingvarsdóttir.
Menntamálaráðherra Islands í opinberri heimsókn í Finnlandi:
Menningarfjárlög
og listamannalaun
Gerð norrænna menningar-
fjárlaga, skólamál og verk-
menntun í atvinnulíHnu voru á
meðal málaflokka sem mennta-
málaráðherra íslands og menn-
ingarmálaráðherra Finnlands,
Anna Liisa Kasurinen, tóku til
Lands-
fundur
Útvarðar
Byggðarhreyfingin Út-
vörður, samtök um jafnrétti
milli landshluta, héldu
landsfund sinn að Reykjum í
Hrútafirði dagana 1. og 2.
júlí 1989.
í ályktunum fundarins er varað
sérstaklega við þeirri „alvarlegu
byggðaröskun sem orðin er og þeirri
hrikalegu þróun sem framundan
virðist vera, ef ekki er brugðist við
af mikilli festu“. Fundurinn bendir á
nokkur atriði til að snúa þessari
þróun við. Þar segir að gengisskrán-
ingu skuli vera þannig hagað á
hverjum tíma að tryggð sé góð
afkoma útflutningsgreina. Þá fer Út-
vörður fram á að fjölbreyttum land-
búnaði sé haldið við. „Efling hefð-
bundinna og nýrra búgreina er eitt
stærsta byggðarmálið við núverandi
aðstæður og um fyrirsjáanlega
framtíð.“ Fundurinn mótmælir ein-
nig öllum hugmyndum um innflutn-
ing búvara.
í ályktuninni segir einnig að
ákvarðanataka sé of fjarlæg fram-
kvæmdastað og fundurinn leggur
áherslu á að heimabyggðir fái til
meðferðar hluta þess framkvæmdar-
valds sem nú er hjá ríkinu.
Einnig segir að nauðsynlegt sé að
efla þjónustugreinar á landsbyggð-
inni, sem nú eiga undir högg að
sækja. Fundurinn hvetur forráða-
menn fyrirtækja sem þar starfa, að
nýta öll möguleg tækifæri til eflingar
atvinnu í heimahéraði. „Þetta er
lykilatriði til þess að auka fjölbreytni
í atvinnulífi og mannlífi á lands-
byggðinni," segir í ályktun Útvarð-
ar. GS.
umræðu í opinberri heimsókn
Svavars Gestssonar til Finnlands
nú fyrir skömmu.
Á fundi sem haldinn var þann
þriðja þessa mánaðar voru rædd
ýmis mál sem þjóðirnar vinna að
sameiginlega og Finnar greindu frá
sínu fyrirkomulagi í ýmsum mála-
flokkum sem nú eru á döfinni í
menntamálaráðuneytinu hér á landi.
Má þar meðal annars nefna lista-
mannalaun, vinnu Finna að stefnu-
mörkun til næstu tíu ára í íþrótta- og
æskumálum, þátttöku opinberra að-
ila í rekstri ýmis konar menningar-
starfsemi. Fjallað var um Finnsk-ís-
lenska menningarsjóðinn og ákveðið
að halda áfram eflingu höfuðstóls
hans og fleira.
Ráðherranum var boðið til Savol-
ina þar sem haldin er óperuhátíð í
Nýlega fékk Æfingastöð hjarta-
og lungnasjúklinga sjö æfingahjól að
gjöf frá Lionsklúbbi Reykjavíkur.
Hjólin eru af Monark gerð og er
verðmæti þeirra samtals um 750
þúsund krónur.
Þetta er önnur stórgjöfin sem
Lionsklúbbur Reykjavíkur gefur H-
L stöðinni. Við opnun stöðvarinnar
júlímánuði hvert ár. í Kuopio var
borgar- og hérðasbókasafnið heim-
sótt. En þar er sérstök íslandsdeild
og töluvert safn íslenskra bóka.
íslendingar munu á þessu ári veita
safninu svipaðan styrk og á síðasta
ári til bókakaupa. Jafnframt heim-
sótti ráðherrann Háskólann í Kuop-
io og var boðið á listsýningar í
Punkaharju.
Árið 1990 verður opnuð ný menn-
ingarmiðstöð í Tammerfors. Áhugi
er fyrir hendi á að miðstöðin opni
með sérstakri fslandsviku og að
Sinfóníuhljómsveit íslands byrji þar
tónleikaferð sína um Norðurlöndin.
Móttökur af hálfu Finna voru til
mikillar fyrirmyndar og ber þar ekki
síst að geta Matta Gustafsson deild-
arstjóra sem lengi hefur starfað að
menningarsamskiptum Finna og fs-
lendinga. jkb
1. apríl s.l. gáfu þeir Ambu-neyðar-
tösku sem er mikilvægt öryggistæki
við þjálfun og endurhæfingu hjarta-
og lungnasjúklinga.
Endurhæfingastöðin er iokuð í
júlí og ágúst vegna sumarleyfa.
Starfsemin hefst að nýju 1. septem-
ber.
Endurhæfing hjarta- og lungnasjúklinga fer fram á H-L stöðinni undir
handleiðslu sérfræðinga og með fullkomnum tækjakosti.
Æfingastöð hjarta- og lungnasjúklinga:
Lionsklúbburinn
gaf æfingahjól
Fógetaúrskurður
enn í Hæstarétt
Úrskurður fógetaréttar í fyrradag í málum OIíss og
Landsbankans féll bankanum í hag. í úrskurðinum er
komið til móts við þá kröfu bankans að Olís verði að benda
á lausafé tíl tryggingar skuld sem nemur 116 mUIjónum
króna.
Lögmenn Olíss kærðu úrskurð-
inn í fyrradag til Hæstaréttar og
bætist kæran nú við tvær aðrar
kærur sem fyrir Hæstarétti liggja
vegna úrskurða fógeta og beðið er
dóms í.
Þrátt fyrir kæruna í fyrradag var
málinu fram haldið en ekki frestað
og bentu því fulltrúar Olíss á
tankbíla félagsins sem tryggingar
en þeir eru að mati Olíss 209
milljón króna virði. Landsbankinn
féllst á að bílamir yrðu teknir gildir
sem trygging en krafðist þéss að
þeir yrðu metnir og tilnefndi fógeti
þá matsmenn til að meta bílana.
Málinu var síðan frestað þar til
niðurstaða matsmannanna liggur
fyrir.
Flestir tankbíla félagsins eru
ekki nýir af nálinni en Olís mun
innan skamms fá splunkunýjan
tankbíl af sænskri gerð, en þessa
dagana er verið að setja á hann
tank og smíða tankvagn sem bíllinn
á að draga. Fer það verk frani í
V-Þýskalandi.
Þetta verður eitt stærsta tank-
bílsúthald landsins og mun taka
fulllestað nálægt fjörutíu þúsund
lítra af olíu eða bensíni og kosta
nálægt þrjátíu milljónum króna að
sögn fróðra manna. -sá
Fasteignamat ríkisins:
íbúðaverð
stöðugt á
annað ár
Raunverð, eða verð miðað við
vísitölu, fjölbýlishúsaíbúða hefur nú
verið svo að segja stöðugt á annað
ár og greiðslukjör hafa ekki breyst
umtalsvert í yfir eitt ár.
Frá janúar fram til loka marsmán-
uðar á þessu ári fjölgar viðskiptum
úr 82 í 131 á meðan söluverð hvers
fermetra helst tiltölulega stöðugt en
útborgun hækkar lítillega.
Raunverð fjölbýlishúsa í Reykja-
vík hækkaði töluvert bæði 1986 og
1987 en var nokkuð stöðugt á síðasta
ári eins og áður sagði. Aftur á móti
skiptu hlutfallslega fáar íbúðir um
eigendur í fyrra. Nú í ár má telja að
velta á markaðnum hafi aukist um-
talsvert, ef tekið er mið af fjölgun
kaupsamninga. En þeir voru, í sölu-
könnun Fasteignamats rfkisins, fleiri
á fyrstu mánuðum þessa árs en verið
hafði í heilt ár þar á undan. jkb