Tíminn - 13.07.1989, Page 10
10 Tíminn
Fimmtudagur 13. júlí 1989
Fimmtudagur 13. júlí 1989
Tíminn 11
.
Net jarð
skjálfta
mæla um
Suðurland
Eftir Stefán Ásgrímsson
Jarðskjálftar cru tíðir á íslandi. Nokk-
uð er nú um liðiö síðan jarðskjálftar
grönduðu mannslífum hcr en þó cr ckki
ástæða til að sofna á verðinum. ísland er
á miklu umbrotasvæði og mörgum eru
enn í minni Dalvíkurskjálftarnir um
miðja þessa öld og það tjón sem af þeim
hlaust.
Suðurlandsundirlendið er mikið jarð-
skjálftasvæði og þar verða svonefndir
Suðurlandsskjálftar á u.þ.b. hundrað ára
fresti auk annarra og minni hræringa. Þar
hafa orðið a.m.k. 15 skjálftar síðan árið
1700 sem voru öflugri en 6 stig á Richter-
kvaröa.
Jarðskjálftavirkni á Suöurlandi á rætur
að rekja til Atlantshafshryggjarins sem
liggur gegn um þvert landið um Mýrdals-
jökul í Axarfjörð. Um Atlantshafshrygg-
inn eru mót Evrópu og Ameríkuplatn-
anna sem ganga í sundur um hrygginn.
Plötumótin koma upp á Reykjanesi en
hliðrast síðan austur eftir Suðurlandinu
eftir sprungu sem liggur nokkurn veginn
eftir 64. breiddarbaugnum cn um sprung-
una er misgengi til gagnstæöra átta. Þaö
mætti taka svo til orða að þarna fljóti
Suðurland á plötu milli eystra og vestra
gosbeltisins.
Um sprunguna byggist upp spenna sem
síðan losnar um, á um það bil hundrað
ára fresti, og þá verður Suðurlands-
skjálfti. Þess má geta að sprungan liggur
nokkurn veginn um Selfoss og austur í
Heklu. Það má því reikna með að þegar
Suðurlandsskjálftinn skellur á - en jarð-
eðlisfræðingar telja að við honum megi
búast hvenær sem er innan næstu 25 ára
- muni mikið ganga á í hinni þéttu byggð
Suðurlandsundirlendisins og eignatjón
verði umtalsvert.
Jarðskjálftaspár
Það hlýtur því að vera óheyrilega
mikilvægt að geta spáð fyrir um þessar
hamfarir og raunar um aðrar svipaðar
hvar sem er í heiminum því að jarðskjálft-
ar eru með mannskæðustu náttúruham-
förum. Dæmi eru um að allt að 400
þúsund manns hafi farist í jarðskjálftum
í Kína.
Nú lítur út fyrir að íslendingar,. í
samvinnu við hinar Norðurlandaþjóðirn-
ar, séu að verða skapendur og braut-
ryðjendur tækni sem gera mun kleift að
spá fyrir um jarðskjálfta því í gær var
kveikt á fyrstu athugunarstöð í kerfi sem
athuga á Suðurlandsskjálftana, eðli
þeirra, aðdraganda og forsendur og hugs-
anlega að aðvara um skjálfta með ein-
hverjum fyrirvara.
„Almannavarnir hafa verið þess mjög
fylgjandi að þetta kerfi kæmist á. Það er
nauðsynlegt að mælingar og tilraunir til
að sjá fyrir um jarðskjálfta verði efldar
eins og hægt er. Allt sem hjálpar okkur
til að þróa aðferð til að sjá jarðskjálfta
fyrir gefur möguleika á, í framtíðinni, að
vara við yfirvofandi skjálftum. Það getur
skipt gífurlegu ináli um líf og dauða
fólks,“ sagði Guðjón Petersen fram-
kvæmdastjóri Almannavarna ríkisins í
gær, er Tíminn ræddi við hann af því
tilefni að kveikt var á fyrstu útstöð hins
merka gagnasöfnunar- og aðvörunarkerf-
is sem er í smíðum og nota á til að
rannsaka og jafnvel vara við hugsanleg-
um Suðurlandsskjálftum.
Aðeins það sem máli skiptir...
í gær voru settir upp fyrstu skynjararnir
vegna Suðurlandsskjálftans. Kerfi af
þessu tagi hafa verið sett upp víða um
heim á jarðskjálftasvæðum, svo sem í
Japan og á vesturströnd Bandaríkjanna.
Skynjurum er komið fyrir með vissu
millibili og nema þeir minnstu hreyfingar
og hræringar jarðskorpunnar.
Það er þó nýnæmi í sambandi við
Suðurlandsskjálftakerfið að allar
Það er þó nýnæmi í sambandi við
Suðurlandsskjálftakerfið að allar hrær-
ingar sem skynjararnir nema fara í tölvu
sem er á sérhverjum mælingastað. Sú
tölva kannar upplýsingarnar og metur
þýðingu þeirra og sendir síðan niðurstöð-
ur sem hún telur skipta máli til móður-
tölvu á Veðurstofu fslands í Reykjavík.
Suðurlandsskjálftakerfið er upphaf-
lega til komið vegna samþykktar Evrópu-
ráðsins um að Suðurlandsundirlendið
skyldi útnefnt sem tilrauna- og rann-
sóknasvæði á jarðskjálftum og á grund-
velli hennar var skipuð sérstök jarð-
skjálftanefnd sem enn starfar.
í samþykkt Evrópuráðsins var gert ráð
fyrir að slík tilraunasvæði yrðu tvö í
Evrópu og skyidi hitt vera við Miðjarðar-
hafið. Engar rannsóknir hafa hins vegar
hafist þar eftir því sem næst verður
komist og mun málið hafa strandað á
fjárskorti og því að ekki hefur tekist að
koma á samvinnu þjóða um verkefnið.
í íslensku jarðskjálftanefndinni sitja
Júlíus Sólnes prófessor, Ragnar Stefáns-
son jarðskjálftafræðingur, Ragnar Sigur-
björnsson verkfræðingur, Sveinbjörn
Björnsson eðlisfræðingur og Guðjón Pet-
ersen framkvæmdastjóri Almannavarna.
Norrænt vísindaverkefni
Nefndin hlutaðist til um að málið var
tekið upp á vettvangi Norðurlandaráðs
Þau Steinunn Jakobsdóttir jarðeðlisfræðingur og Ragnar Stefánsson jarðskjálftafræðingur ofan í „tunnunni“ á Bjarnastöðum í Ölfusi koma fyrir skynjurunum á fyrstu mælingastöð Suðurlandsskjálftakerfisins en stöðin var gangsett í gær og tengd gagnaneti Pósts og
límamynd: Pjetur.
ingum frá stöðvunum átta á Suðurlandi.
Þessi stuttu skeyti verða í raun niðurstöð-
ur útreikninga sem hver stöðvartölva
hefur gert sjálfvirkt.
Úr þessum upplýsingum vinnur móður-
tölvan og metur hvort um raunverulegan
jarðskjálfta er að ræða eða ekki. Kerfið
mun því í grófum dráttum vinna á þann
hátt að hver einstök stöð greinir hræring-
ar á sínu svæði og móðurtölvan og þeir
sem við hana vinna geta athugað gögn
einstakra stöðva og einnig athugað hvort
samhengi eða að eitthvað sé líkt með
hræringum á hinum ýmsu stöðvum. Hver
stöð getur skynjað hræringar og gert
útreikninga og síðan hugsanlega komist
að því að um jarðskjálfta sé að ræða. Hún
sendir þá stutt skeyti í móðurtölvuna sem
geymir í sér svipaðar upplýsingar frá
hinum stöðvunum ásamt nákvæmri tíma-
mælingu. Þanniggetur móðurtölvan stað-
sett allnákvæmlega hvar upptök skjálfta
eru og auðvitað staðfest hvort um raun-
verulegan skjálfta er að ræða.
Ef móðurtölvan metur að um sé að
ræða skjálfta sem eitthvað kveður að
getur hún hringt upp staðartölvurnar og
sótt í þær upptöku af öllum skjálftanum
og síðan rannsakað þá og staðarákvarð-
að,“ sagði Reynir Böðvarsson að lokum.
sima.
og á þingi þess í Kaupmannahöfn árið
1986 var það samþykkt sem samnorrænt
verkefni. Komið yrði á fót gagnasöfnun-
arkerfi með það framtíðarmarkmið að
hægt yrði að spá fyrir um jarðskjálfta.
Það var fyrsta. útstöð þessa kerfis sem
gangsett var í gær.
Kerfinu er fyrst og fremst ætlað að
verða gagnasöfnunarkerfi en síðar meir
megi hugsanlega á grundvelli gagna frá
kerfinu og raunar fleiri sambærilegum
kerfum, þróa aðferð til að spá fyrir um
jarðskjálfta með einhverju öryggi og
aðvara gegn yfirvofandi hættu með ein-
hverjum fyrirvara.
Gagnasöfnunarkerfið er afar dýrt og
flókið verk og hafa margir lagt hönd á
plóginn bæði við undirbúning þess allt frá
samþykktum Evrópuráðsins og Norður-
landaráðs og þar til nú. Sérstök fram-
kvæmdastjórn var skipuð árið 1986 og í
henni sitja þessir menn: Ragnar Stefáns-
son forstöðumaður jarðskjálftadeildar
Veðurstofu íslands formaður, Hilmar
Bungum frá NORSAR í Osló, Reynir
Böðvarsson frá jarðeðlisfræðideild Upp-
salaháskóla, Páll Einarsson frá jarðeðlis-
fræðideild Háskóla íslands, Jörgen
Hjelme frá jarðeðlisfræðideild Kaup-
mannahafnarháskóla, Eystein Huseby
prófessor við jarðfræðistofnun Oslóar-
háskóla, Heikki Korhonen prófessor við
jarðeðlisfræðideild háskólans í Helsinkk
og Ragnar Slunga prófessor við Uppsala-
háskóla.
„Fyrsti undirbúningsfundur fram-
kvæmdanefndarinnar var haldinn 1986 í
Osló. Sænski vísindasjóðurinn veitti síð-
an fé í verkefnið í ársbyrjun 1987 og
skömmu síðar ýmsir vísindasjóðir í hin-
um löndunum einnig,“ sagði Reynir
Böðvarsson verkfræðingur við jarðeðlis-
fræðideild Uppsalaháskóla en hann er
framkvæmdastjóri verkefnisins og aðal-
hönnuður sjálfs kerfisins og þess hugbún-
aðar sem kerfið mun ganga fyrir.
Einnar mínútu fyrirvari
- 80% færri fallnir
Guðjón Petersen framkvæmdastjóri
Almannavarna sagði í gær að það væri
gríðarmikilvægt að leita leiða til að geta
sagt fyrir um jarðskjálfta. Japanir hefðu
sagt að væri hægt að gefa aðeins einnar
mínútu viðvörun við jarðskjálfta þá
myndi það þýða að úr manntjóni drægi
um 80% bara végna þeirra viðbragða sem
fólk gæti viðhaft. Guðjón gat þess að
jarðskjálftar væru þær náttúruhamfarir
sem flestu fólki grönduðu utan fellibylja
og flóða.
„Það sem veldur okkur mestum
áhyggjum hér á landi er að þeir jarð-
skjálftar sem urðu á Suðurlandi 1896 og
raunar þar áður urðu í allt öðru umhverfi
en nú er. Við vitum ekkert hvernig
nútíma húsagerðir fara í slíkum hamför-
um. Það er ljóst að þar sem hús eru nú
miklu þyngri en þá var, er miklu meiri
hætta á manntjóni ef hús hrynja á annað
borð,“ sagði Guðjón. Hann sagði að
reiknað hefði verið út að jarðskjálftar á
okkar tímum yrðu fjórum mönnum að
bana á móti hverjum einum sem særðist.
Áður hefði hlutfallið verið þveröfugt og
væri þetta vegna steinsteyptra húsa og
mannvirkja. „Þetta teljum við vera
stærstu ógnina sem við stöndum frammi
fyrir,“ sagði Guðjón ennfremur.
Ótrúlega næmir skynjarar
Undanfarna mánuði hefur verið unnið
að því að búa í haginn fyrir þann útbúnað
sem komið verður fyrir í sambandi við
gagnakerfið víðs vegar um Suðurland.
Grafnar hafa verið holur niður á fast
berg. í holurnar hafa síðan verið steyptir
miklir sökklar og hringlaga veggir og í
þvermál eru þessir brunnar eða tunnur
122 sm en misdjúpir eftir því hversu langt
er niður á fast.
Ofan í tunnurnar verða síðan settir
skynjarar sem skynja minnstu hreyfingar
til fjögurra höfuðátta auk lóðréttrar
hreyfingar. Skynjararnir gefa frá sér
stöðugan tón sem skelfur við minnstu
hreyfingu. Þessi tónn er sendur í tölvu
sem breytir honum í stafrænar upplýsing-
ar. Tölvan sem búin er sérstöku forriti
greinir síðan upplýsingarnar og metur
hvort um er að ræða jarðskjálfta eða
einhverjar aðrar hreyfingar, svo sem
dráttarvél eða eitthvað slíkt sem ekki
tekur að senda í móðurtölvuna.
Þetta er nauðsynlegt því að ef útstöðv-
arnar ættu að senda stöðugt yrði kerfið
svo dýrt í rekstri að engu tali tæki.
Tölvurnar í kerfinu verða búnar Unix
stýrikerfi og fyrst í stað, eða meðan á
þessum reynslutíma stendur sem hófst
með tengingunni í gær verður ekki um
sjálfvirk tengsl við móðurtölvu að ræða
heldur munu menn hringja í Bjarnastaða-
tölvuna og kalla fram úr henni einstakar
hræringar til að athuga nánar hér í
Reykjavík.
Reynir sagði að í haust þegar kerfið
verður allt tengt og sett í gang verður
keypt mjög öflug móðurtölva og á Raun-
vísindastofnun Háskólans verður tölva
tengd henni þannig að vísindamenn þar
munu geta sótt gögn í móðurtölvuna og
út á einstakar stöðvar.
Útbúnaðurinn á sjálfum stöðvunum
mun starfa þannig í höfuðdráttum að
settar verða upp átta stöðvar með
skynjurum sem nema minnstu hræringar
jarðskorpunnar. Stöðvarnar verða á
Bjarnastöðum í Hjallahverfi í Ölfusi,
Heiðarbæ í Þingvallasveit, Sölvholti í
Flóa, Ásmúla í Holtum, Gýgjarhólskoti
í Biskupstungum, Haukadal í Biskups-
tungum og Mið-Mörk undir Eyjafjöllum.
Einn staðurinn hefur ekki verið endan-
lega ákveðinn enn, en hann verður ekki
fjarri Reykholti í Biskupstungum.
Allt kerffið í gang í haust
„Við settum upp fyrstu stöðina að
Bjarnastöðum í gær. Hún er í rauninni
frumgerð stöðvanna og á henni ætlum við
að reyna þann hugbúnað sem við erum
búin að þróa og eins þau tæki sem keypt
hafa verið og svo auðvitað gagnanet
Pósts og síma. Við ætlum að láta Bjarna-
staðastöðina ganga fram í september þar
til við setjum upp allt kerfið.
Þegar því verki verður lokið tengjast
tölvur hverrar stöðvar sjálfvirkt saman
við móðurtölvuna sem verður í jarð-
skjálftadeild Veðurstofunnar. Móður-
tölvan mun taka við stuttum skeytasend-