Tíminn - 02.09.1989, Síða 3
Laugardagur 2. september 1989
HELGIN
13
eftirtektarvert eða gamansamt
svar.“ - Hann var ekkert gefinn fyrir
ferðalög eða útreiðar, en vildi þó
eiga góða hesta. - Á dögum Thodals
lagðist mikið niður hinn gamli,
strangi, svokallaði „þrumustíll“ í
bréfum og skipunum valdsmanna
hér á landi. Stiftamtmaður vildi hafa
þetta allt einfaldara. Sjálfur var
hann ljúfur og kátur í viðmóti, þó að
hann ætti það til að vera smáskrítinn,
ef því var að skipta, var það ávallt
með hægð og stillingu. Mótbárum
manna svaraði hann jafnan með
hógværð, en hélt þó fast á sínu máli.
f>ess var áður getið, að Thodal
varð í byrjun dvalar sinnar hér á
landi fyrir því mótlæti, að missa
konu sína, en börn hennar ólust upp
hjá honum. - Síðan varð hann fyrir
enn þyngri sorg, sem lagðist mjög á
hann, en það var þegar stjúpdóttir
hans dó, orðin fullvaxta. - Það var
þó ekki eingöngu missirinn sjálfur,
sem hann tók sér svo nærri, heldur
hitt, að hann þóttist að nokkru leyti
mega sjálfum sér um kenna, að
svona tókst til, og skal nú sagt frá
þessum sorglega atburði. -
Stúlkan hafði, sem áður greinir,
alist upp á Bessastöðum, hjá stjúpa
sínum við hin bestu kjör. Hún var
nú orðin gjafvaxta og heimasæta á
mesta höfðingjasetri landsins. -
Auðvitað vel efnuð og glæsileg. Hún
var ávallt kölluð „frökenin" á Bessa-
stöðum, en frökenar-heitið báru þá
ekki nema tignustu meyjar einar. -
Það var því ofur eðlilegt, að einhver
ungur piltur í nágrenni Bessastaða
liti þessa göfugu mey hýru auga. - í
Hafnarfirði var ungur, danskur,
verslunarstjóri konungsverslunar-
innar. Hann hét Carl Pontoppidan
og var sonur Eiríks Pontoppidan
Sjálandsbiskups, sem nafnkunnur
var á sinni tíð. - Piltur þessi var því
ekki neitt umkomulaus eða ótiginna
manna, og eflaust hefur hann verið
hinn efnilegasti, ef að líkum lætur,
og marka má af því hvernig honum
vegnaði síðar í lífinu. - Þessar ungu
persónur, frökenin á Bessastöðum
og verslunarstjórinn í Hafnarfirði,
felldu nú ástarhug hvort til annars, -
þau höfðu heitið hvort öðru ástum
sínum. En þarna urðu erfiðleikar á
vegi elskendanna, sem oft vill verða,
og höfðu þeir örlagaríkar afleiðing-
ar.
Hans hágöfgi, stiftamtmaður
Thodal, var mótfallinn þessum ráða-
hag af þeim ástæðum, sem virðast
nokkuð einkennilegar, þegar tillit er
tekið til þess, að hann var sjálfur
kominn af alþýðufólki norðan úr
Þrændalögum. - Honum þótti gjaf-
orðið ekki nógu göfugt fyrir stjúp-
dóttur sína, og þó var hún aðeins
kaupmannsdóttir og pilturinn kaup-
maður. - Það gjörði að vísu hinn
mikla stéttar- og virðingarmun, að
frökenin hafði orðið stjúpdóttir hans
hágöfgi valdsmannsins á Bessastöð-
um. -
Ástin varð henni
að aldurtila
Stiftamtmanninum var ekki úr að
aka, - hann þverneitaði að gefa
elskendunum samþykki sitt og bless-
un til þess, að þau gætu notið ástar
sinnar og gengið í eina sæng, -og við
það stóð. - En hinn ungi og dugmikli
Carl Pontoppidan var heldur ekki af
baki dottinn. Hann brá sér nú til
Kaupmannahafnar og náði sér í
nafnbót hjá sjálfum kónginum, í því
skyni að komast ofurlítið nær unn-
ustu sinni að metorðum. - Hann var
sæmdur Agents-nafnbót, og fengu
hana duglegir kaupmenn á öldum
áður. Þegar Pontoppidan kom aftur
úr utanför sinni, bar hann enn fram
bónorðið við valdsmanninn á Bessa-
stöðum, en ekkert dugði, - hann var
ósveigj anlegur og þótti ekki jafnræði
og hafnaði enn bónorðinu. - En nú
hafði allt þetta þóf fengið svo mikið
á vesalings frökenina á Bessastöð-
um, að hún var orðin hugsjúk og
lögst í rekkju þungt haldin, en hinn
einbeitti stjúpi hennar blíðkaðist þó
ekki. - Alltaf elnaði henni sóttin
þangað til svo var komið, að allir
örvæntu um líf hennar. - Þá loks gaf
stiftamtmaðurinn sig. - Hann sendi
nú til Hafnarfjarðar eftir Carli Pont-
oppidan og gaf samþykki sitt til
ráðahagsins og bað elskendurna
njóta ástanna, en nú var það um
seinan, því að morguninn eftir
andaðist frökenin á Bessastöðum,
og var víst södd lífdaga þó að ung
væri, - aðeins 18 ára gömul. [Sbr.
kirkjubók: 1778, jan. 16. jarðsett á
Bessastöðum, Anna Wilhelmina
Klow, 18 ára gömul.) Það var ekki í
rauninni óeðlilegt, að þetta fengi
mikið á stiftamtmanninn, enda var
sagt, að hann yrði aldrei samur
maður eftir þetta, en það er af
elskhuganum Carli Pontoppidan að
segja, að hann varð mikill mektar-
maður í föðurlandi sínu. Hann varð
síðast forstjóri einokunarverslunar-
innar dönsku og skrifaði bók um
íslensk verslunarmál, en afkomend-
ur hans eru þekktir menn í Dan-
mörku.
Thodal stiftamtmaður var orðinn
miðaldra maður, 53 ára gamall,
þegar hann kom til íslands, og hér
var hann í 16 ár. - Árið 1784 var
heilsa hans farin að bila og því kennt
um, að hann þyldi ekki veðurfarið,
enda hann orðinn nærri sjötugur.
Hann sótti því um lausn frá embætti
og fékk hana, en svo samviskusamur
var hann, að hann frestaði för sinni
af landi burt um eitt ár, vegna hins
hörmulega ástands, sem hér var eftir
Skaftárelda í Móðuharðindunum
miklu. Honum þótti viðurhlutamik-
ið, vegna íslendinga, að fela eftir-
manni sínum, - ókunnugum manni,
yfirstjórn landsins á svo erfiðum
tímum. - En svo fluttist hann til
Danmerkur sumarið 1785 og dvaldi
í Kaupmannahöfn til dauðadags.
Ekki var Thodal að fullu skilinn við
málefni íslands, þó að hann væri
kominn til Hafnar, enda hafði hann
full laun stiftamtmanns meðan hann
lifði, í verðlaunaskyni fyrir góða
frammistöðu í embætti sínu. Hann
var líka eins konar ráðunautur
Rentukammersins og átti sæti og
atkvæði í stjórnarráðinu þegar mál-
efni íslands voru þar til umræðu og
meðferðar, enda var hann talinn
helsti og besti talsmaður íslendinga
í Höfn, eftir að Jón Eiríksson kon-
ferensráð dó, en með þeim Thodal
og Jóni hafði verið góð vinátta.
Hann tók sæti í nefndinni, sem sá
um verslunarbreytinguna á íslandi,
þegar losað var um böndin 1787, og
varð forseti Lærdómslistafélagsins
eftir Jón Eiríksson.
Enginn veit hvað átt hefur...
tslendingum mátti sannarlega
bregða við þegar eftirmaður Thodals
kom til sögunnar. Hann hét Levetz-
ow, og kom sér illa. Hann var víst
aðalsmaður eða „eðalborinn herra“,
; enda krafðist hann þess, að íslend-
ingar ávörpuðu sig „náðugan herra“,
en betur hefði átt við, að það ávarp
hefði verið „strangi herra", því að
hann var síður en svo íslendingum
náðugur. - Levetzow var maður
uppstökkur, drambsamur og ráðrík-
ur, og lét landsmenn óspart finna til
þessara lyndiseinkenna sinna. -
Hann var óvæginn við aðra og eftir-
gangssamur um alla hluti. Ef eitt-
hvað dróst hjá einhverjum em-
bættismanni að senda gjöld sín suður
að Bessastöðum, þó að ekki væri
nema um smáupphæðir að ræða,
gekk hann óðar harkalega að þeim
og lét vægðarlaust taka hjá þeim
lögtök. - Skal nú sagt dæmi þessa,
sem gjörðist á fyrsta stjórnarári
þessa drambsama herramanns. Á
útmánuðum 1786 sendi Levetzow
þjón sinn vestur í Dali til þess að
taka 60 rd. skuld, lögtaki hjá Magn-
úsi sýslumanni Ketilssyni. - Magnús
var sem kunnugt er einn efnaðasti
maður hér á landi, og því hreinn
óþarfi að senda til hans, um hávetur,
eftir ekki hærri upphæð, enda hittist
nú svo á, að peningarnir voru á
leiðinni suður. - Magnús varð samt
að gjöra svo vel að borga kostnaðinn
við sendiferðina.
Þetta og þvíh'kar aðfarir voru því
mikil viðbrigði eftir mildi og ljúf-
mennsku Thodals, sem öllum kom
saman um, að hafi verið eitt besta
yfirvald, sem gegnt hefur stjórnar-
störfum hér á landi. Um hann segir
Espólín við brottför hans frá íslandi,
„að hann hafi enga styrjöld átt við
hérlenda höfðingja", - og var þetta
óvenjulegt um valdsmenn Dana hér
á landi, á fyrri öldum.
Thodal stiftamtmaður varð fjör-
gamall maður og síðustu fjögur ár
ævinnar komst hann ekki út fyrir dyr
vegna lasleika, höfuðsvima og lopa í
fótum. - Hann dó 29. maí 1808, 90
ára gamall, og mættu íslendingar
ávallt hafa í heiðri minningu þessa
jgóða valdsmanns.
Síðustu bílarnir «rf Suzuki Swift árgerð 1989
VERÐ ÚTSALA AFSIÁTTUR
SWIFT GA 3ja dyra, 5 gíra 599.000,- 549.000,- SO.OOO,-
SWIFT GL 3ja dyra, 5 gíra 650.000,- 590.000,- 60.000,-
SWIFT GL 3ja dyra, sjálfskiptur 711.000,- 653.000,- 58.000,-
SWIFT GL 5 dyra, 5 gíra 682.000,- 626.000,- 56.000,-
SWIFT GL 5 dyra, sjálfskiptur 745.000,- 683.000,- 62.000,-
Við seljum þar að auki 4 Swift GTi árgerð 1988
með ótrúlegum 202,000,- kr. afslætti.
Verð áður kr. 997.000,-, nú kr. 795.000,-
Útborgun frá kr. 150.000,-. Eftirstöðvar lánaðar til allt að 36 mánaða.
Suzuki Swift traustur og sparneytinn bíll.
$ SUZUKI
SVEINN EGILSSON • HÚSI FRAMTlÐAR
FAXAFENI 10 SlMI 689622 OG 685100