Tíminn - 16.09.1989, Síða 4
4 Tíminn
Laugardagur 16. september 1989
Bráðabirgðatölur Fiskifélags Islands fyrir águst:
Afli í ágúst 15 þús.
t. minni en í fyrra
Heildarafli landsmanna nam 49.762 tonnum í ágústmánuði
sl. samanborið við 64.900 tonn í sama mánuði í fyrra.
Þorskaflinn í ágústmánuði nú, var 26.229 tonn, en þar er um
10.700 tonnum minni afli en í fyrra og hefur þorskafli ekki
orðið minni í ágústmánuði síðan 1985. Það sem af er árinu er
heildaraflinn orðinn 1.109.090 tonn, en var fyrir sama tímabil
í fyrra 1.132.415 tonn. Þetta kemur fram í bráðabirgðatölum
Fiskifélags íslands.
Fyrstu átta mánuði þessa árs er
þorskaflinn orðinn 260.467 tonn, en
það er um 16.200 tonnum minna, en
sama tímabil 1988. Ef tekið er mið
af meðalverði á óslægðum þorski,
fyrstu fjóra mánuði ársins, er hér um
að ræða verðmætatap sem nemur
700 milljónum króna. Grálúðuaflinn
hefur það sem af er árinu aukist um
11.048 tonn miðað við í fyrra og er
nú orðinn 54.980 tonn. Ef miðað er
við sömu verðlagsforsendur og í
dæminu hér að ofan, er um að ræða
verðmætaaukningu sem nemur 550
milljónum króna. Heildar humarafl-
inn varð 1646 tonn og er það um 500
tonnum minna en í fyrra og 1060
tonnum minna en 1987. Alls var
úthlutað 2100 tonnum til 76 báta í ár
og er þetta annað árið í röð sem
verulega vantar á að bátarnir nái
úthlutuðum kvóta.
Þorskafli allra báta og skipa var í
ágúst 26.229 tonn, þar af var hlutur
Norðlendinga 7.949 tonn, Reyknes-
inga 5.313 tonn, Vestfirðinga 5.004
tonn og Austfirðinga 2.706 tonn. í
sama mánuði í fyrra var hlutur
Norðlendinga 10.704 tonn, Reyk-
nesinga 7.571 tonn, Vestfirðinga
BRÚIN VÍGÐ
EFTIRHELGI
„Brúin sjálf er um það bil tilbúin
og við opnum hana í næstu viku með
formlegri vígslu,“ sagði Ingi Ú.
Magnússon gatnamálastjóri í gær
um nýju umferðarbrúna á Bústaða-
vegi við Miklubraut.
Hann sagði að eftir væri að koma
fyrir umferðarljósum á gatnamótum
Flugvallarvegar og ganga frá vega-
slaufum kringum brúna og nýrri legu
Litluhlíðar.
Unnið er að þessu á fullu og sagði
gatnamálastjóri að ætlunin væri að
ljúka þessu öllu áður en brúin verður
opnuð fyrir umferð svo ekki þurfi að
koma til umferðartafa og vandræða
síðar. -sá
7.561 tonn og Austfirðinga 3.574
tonn.
Heildarafli í ágústmánuði var
49.762 tonn og var hlutur Norður-
lands 13.414 tonn, Reykjaness
11.085 tonn, Vestfjarða 7.445 tonn,
Vesturlands 5.094 tonn, Austfjarða
5.032 tonn og Suðurlands 3.672
tonn. Afli fluttur erlendis nam 4.020
tonnum.
Af þorski kom mest á land í ágúst
á Akureyri eða 2.235 tonn, 2043
tonn komu á land í Reykjavík, 1.615
tonn í Hafnarfirði, 1.004 tonn á
ísafirði og 1.172 tonn af þorski voru
flutt út.
Þegar allar fisktegundir eru teknar
saman, hefur mest verið landað í
Hafnarfirði í ágúst sl. eða 4.505
tonnum, 3.750 tonnum í Reykjavík,
3.380 tonnum á Akureyri, 2.371
tonni á fsafirði, 2.052 tonnum í
Vestmannaeyjum og 1.753 tonnum
á Ólafsfirði. -ABÓ
PÓST- OG
SÍMAMÁLASTOFNUNIN
Nemar óskast í símsmiðanám hjá Póst- og
símamálstofnuninni í Reykjavík.
Símsmiðanámið er 3ja ára bóklegt og verklegt
nám, sem hefst með kennslu í jarðsímatengingum
nú í haust.
Fyrsti áfangi bóklega námsins verður næstkom-
andi vor, en tveir seinni bóklegu áfangarnir verða
þar næsta ár.
Umsækjendur skulu hafa lokið grunnskólaprófi
eða fornámi.
Urnsóknir, ásamt heilbrigðisvottorði, sakavottorði
og prófskírteini eða staðfestu Ijósriti af því skulu
hafa borist Póst- og símaskólanum fyrir 25.
september n.k.
Umsóknareyðublöð liggjaframmi í Póst- og síma-
skólanum, Sölvhólsgötu 11, Reykjavík, hjá dyr-
avörðum Landssímahúss og Múlastöðvar og enn-
fremur á póst- og símstöðvum.
Nánari upplýsingar eru veittar í Póst- og síma-
skólanum í símum 91-26000/385/386/336.
HH
2 g J FÉLAGSMÁLASTOFNUN
1 I f REYKJAVÍKURBORGAR
Heimilishjálp
Starfsfólk vantar til starfa í heimilishjálp. Vinnutími
eftir samkomulagi, allt niður í 4 tíma á viku.
Upplýsingar í sima 18800.
^JRARIK
^ RAFMAGNSVEITUR RÍKISINS
Útboð
Rafmagnsveitur ríkisins óska eftir tilboðum í
eftirfarandi:
RARIK-89005 33 kV Switchgear Cubicles „RIMA-
KOT“
Opnunardagur: Þriðjudagur 31. október 1989 kl.
14.00.
Tilboðum skal skila á skrifstofu Rafmagnsveitna
ríkisins, Laugavegi 118, 105 Reykjavík, fyrir
opnunartíma og verða þau opnuð á sama stað að
viðstöddum þeim bjóðendum sem þess óska.
Útboðsgögn verða seld á skrifstofu Rafmagns-
veitna ríkisins, Laugavegi 118, 105 Reykjavík, frá
og með þriðjudegi 19. september 1989 og kosta
kr. 300,00 hvert eintak.
Rafmagnsveitur ríkisins
Laugavegi118
105 Reykjavík.
Staða fulltrúa hjá
Veðurstofu íslands
er laus til umsóknar. Góð kunnátta í íslensku,
ensku og vélritun nauðsynleg. Kunnátta í einu
norðurlandamáli æskileg.
Laun samkvæmt launakerfi starfsmanna ríkisins.
Umsóknir, ásamt upplýsingum um aldur, menntun
og fyrri störf sendist samgönguráðuneytinu fyrir
29. sept. 1989.
Nánari upplýsingar eru veittar á skrifstofu Veður-
stofu íslands.
Veðurstofa íslands.
Jóhann Pétur Sveinsson:
Betri
framtíð!
Enn einu sinni hafa landsmenn
tekið höndum saman og brugðist
við kalli Sjálfsbjargar. Síðast lið-
in vika og helgin sýndu okkur
Sjálfsbjargarfólki að þjóðin öll
styður við bakið á okkur þegar
þörf krefur. Þó að miklir og
ákaflega nauðsyrtlegir fjármunir
hafi safnast í landssöfnuninni
kunnum við Sjálfsbjargarfélagar
ekki síður að meta þann almenna
velvilja og stuðning sem við urð-
um svo áþreifanlega vör við í allri
framkvæmd afmælisátaks okkar.
Hvar sem við komum og hvar
sem við leituðum liðsinnis voru
menn boðnir og búnir til að vinna
með okkur að framkvæmd átaks-
ins. Að ætla að telja upp alla þá
fjölmörgu sem þar lögðu hönd á
plóg yrði til þess að gefa yrði út
sérstakt aukablað sem eingöngu
fjallaði um það. Sérstakar þakkir
viljum við þó flytja Rás 2 og
Ríkissjónvarpinu sem voru með
söfnunardagskrána fyrir okkur,
Bifhjólasamtökum íslenska lýð-
veldisins hvers meðlimir létu sér
það lynda að „sniglast" áfram á
undan hjólastólaökumönnunum
frá Akureyri til Reykjavíkur,
Sérleyfisbifreiðum Keflavíkur
sem lánuðu okkur strætisvagn og
ökumann í hjólastólaaksturinn,
Þýsk-íslenska sem lánaði okkur
bíl, bílstjóra og ógrynni af Varta
rafgeymum fyrir hjólastólana,
Bílaleigunni Höldi á Akureyri
sem lánaði okkur bíl undir að-
stoðarfólk, aðstoðarfólkinu okk-
ar í hjólastólaakstrinum sem stóð
sig með stakri prýði, gistiheimil-
inu Lónsá, Húnavallaskóla,
Krútt kökuhúsi, Staðarskála, Sæ-
bergi, veitingaskálanum Víði-
gerði, Hreðavatnsskála, Bænda-
skólanum á Hvanneyri og West-
ern Fried sem allir veittu okkur
húsaskjól eða veitingar. Þá vilj-
um við einnig flytja sérstakar
þakkir til allra skemmtikraftanna
sem komu fram í útvarpi og
sjónvarpi okkur að kostnaðar-
lausu sem og stjórnmálamann-
anna okkar sem tóku á móti
okkur á Lækjartorgi og svöruðu í
símana í sjónvarpssal að
ógleymdu fyrirtækinu Miðlun
sem lánaði okkur Gulu línuna
sjálft söfnunarkvöldið og tók á
móti framlögum.
Vissulega gæti ég haldið svona
áfram lengi enn, því þetta var í
sannleika sagt átak þjóðarinnar,
en að endingu vil ég þó þakka
sérstaklega Sjálfsbjargarfélags-
deildunum um allt land og þeim
fjölmörgu sem aðstoðuðu okkur
við að dreifa söfnunarbaukum og
sáu um aðra vinnu við fram-
kvæmd átaksins.
Við hjá Sjálfsbjörg kunnum
landsmönnum öllum hinar bestu
þakkir fyrir þær sérstaklega góðu
móttökur sem við fengum við
framkvæmd afmælisátaksins og
fyrir þá gjafmildi sem þið sýnduð
í verki. Við eigum okkur þann
draum að sú vakning sem við
fundum fyrir meðal þjóðarinnar
við framkvæmd átaksins megi
verða upphafið að markvissum
breytingum í samfélagi okkar,
breytingum sem geri öllum þegn-
um þjóðfélagsins mögulegt að
njóta sín, breytingum sem tryggi
jafnrétti allra þegna þjóðfélags-
ins. Þá getum við með sanni sagt
að „betrí framtíð hafi byrjað í
dag“.
Jóhann Pétur Sveinsson,
formaður Sjálfsbjargar,
landssambands fatlaðra.