Tíminn - 16.09.1989, Side 17
Laugardagur 16. september 1989
Tíminn 29
GLETTUR
- Sjáöu til, Matti, þennan bíl veröum viö aö kaupa,
það stendur á honum að honum hafi veriö ekið í
Flórída, Kaliforníu, Alaska og Mexíkó, - en það eru
aðeins 700 kílómetrar á mælinum!
- En ertu viss um, góöi minn, að þetta sé ekki úr
leið fyrir þig á leið á golfvöllinn... ?
- Ég sagði þér góði að hætta fyrir klukkan 12...
- Þessir asnalegu spádómar! Hér stendur að ég
verði bráðlega fyrir einhverju óvæntu...
„Bænasamkoma“ Madonnu
„Eins og bæn“ (Like a
Prayer) heitir nýjasta albúm-
ið hennar Madonnu, sem
kom út sl. vor og var töluvert
umdeilt, - en komst þó upp
í efstu sæti vinsældalistanna
alls staðar í heiminum.
Þegar verið var að halda
upp á þennan sigur Ma-
donnu, þá kölluðu gárung-
arnir samkvæmið „Bæna-
samkomu“ vegna nafnsins á
aðallaginu „Eins og bæn“.
Samkoman var haldin á
Plaza Hotel í Los Angeles
og þangað þyrptist „fína og
fallega" fólkið til að sýna sig
og sjá aðra.
Sagt er að fyrsta klukku-
tímann hafi þær Madonna
og Sandra Bernhard, stór-
vinkona Madonnu, dansað
saman, en svo hafi Warren
Beatty komið til skjalanna
og tekið söngkonuna
traustataki og ekki sleppt
henni aftur. Þau Madonna
og Beatty hafa verið sögð
trúlofuð, og þóttu það mikl-
ar fréttir, því að Warren
Beatty hefur verið kallaður
„forhertasti piparsveinninn í
Hollywood", en því miður
segja nýjustu fréttir, að gift-
ingaráætlanir þeirra séu
eitthvað í óvissu, og sumir
segja að trúlofunin sé runnin
út í sandinn.
Þegar Madonna kom í
samkvæmið var hún um-
kringd lífvörðum, og hún
neitaði að stoppa til að skrifa
nafn sitt á myndir eða blöð
fyrir aðdáendur sfna og vakti
það heilmikla óánægju.
Við birtum hér nokkrar
myndir frá „bænasamkom-
unni“ hennar Madonnu.
Madonna var nu með litað ljóst hárið og greidd og máluð í
„Marilyn Monroe-stíl“. Lífverðir umkringja söngkonuna
vegna hótana sem hún fékk út af laginu „Like a Prayer“,
sem sumum þótti ganga guðlasti næst.
Sandra Bernhard, vinkona og fyrrum sambýliskona Ma-
donnu, var í miklu „stuði“ og dansaði bara ein þegar Beatty
hafði tekið Madonnu frá henni.
Warren Beatty kemur í samkvæmið með sólgleraugu og Kim Basinger er nú mikið í sviðsljósinu vegna „Batman-
niðurlútur mjög, en Ijósmyndararnir þekktu hann samt á æðisins“. Hún kom með nýlitað Ijóst hárið og sagðist ekki
augabragði. láta Madonnu komast upp með það að vera einu ljóskuna í
partúnu.