Tíminn - 29.09.1989, Page 2
Föstudagur 29. september 1989
2 Tíminn
Skoskur ráðgjafi um fiskeldi á íslandi:
Fiskeldið er
fífldirfska
„Áhættan er sennilega minnst í Suður-Noregi. Laxeldi
er áhættusamara í Norður-Noregi og í Skotlandi og enn
áhættusamara á írlandi og í Færeyjum og nálgast fífldirfsku
í Kanada, Chile og á íslandi.“ Þessi orð eru tekin úr grein
sem birtist í Frjálsri verslun eftir Skotann Ian MacFarlane
sem rekur viðamikið ráðgjafarfyrirtæki í laxeldi. Sérgrein
fyrirtækisins er að „bjarga“ fískeldisfyrirtækjum sem eru
starfshæf frá tæknilegu sjónarmiði en skortir fullnægjandi
stjórnun.
MacFarlane þekkir vel til á ís-
landi, hefur oftsinnis komið til
landsins og dvalið hér í lengri eða
skemmri tíma. Hann hefur ekki
mikla trú á flotkvíaeldi hérlendis
og gagnrýnir einnig meðal annars
hvemig staðið hefur verið að fjár-
mögnun laxeldisfyrirtækja.
Um flotkvíaeldið segir MacFar-
lane: „Almennt séð þá er laxeldi í
flotkvíum á íslandi óframkvæman-
legt sökum vetrarveðra og ofur-
kælingar sjávarins. Fiskur er alinn
í flotkvíum á íslandi en sú starfsemi
erótraust, óútreiknanleg, óhóflega
erfið og óarðbær. Líta má á þessa
aðferð fremur sem fjárhættuspil
heldur en fjárfestingu og á íslandi
þá eru líkurnar alltaf veðurguðun-
um í vil.“
Fiskeldi í landi er því eini raun-
hæfi kosturinn á íslandi að mati
MacFarlane, en hann bendir á að
þekking á þessari gerð eldis sé að
mörgu leyti takmörkuð hvað varð-
ar til dæmis stjórnun, tækni, að-
ferðafræði og hönnun. Hagnaður
hafi aðeins orðið til við undantekn-
ingaraðstæður þar sem fjámögnun-
ar- eða fjárfestingaraðstæður hafi
verið óvenjulegar. En hann bendir
á að ef aldrei væri ráðist í nýjungar
þá yrðu aldrei neinar framfarir.
„Ég vil því ekki halda því fram að
laxeldi í landi geti ekki gengið á
íslandi, hvorki frá tæknilegu né
viðskiptalegu sjónarmiði, ég vil
aðeins hvetja menn til að gera sér
grein fyrir því að það er ekki
óhjákvæmilegt að það gangi, sama
hversu miklum fjármunum kosið
er að verja til þess.“
Þá talar MacFarlane um að hlut-
fall eigin fjármagns í íslenskum
laxeldisfyrirtækjum sé í mörgum
tilfellum of lágt, eða 15-30%. Hins-
vegar sé æskilegt að skuldsetning
sé eins lítil og mögulegt er vegna
þess óstöðugleika og óvissu sem
laxeldið býr við eins og annar
landbúnaður.
Þegar skuldsetning er mikil auk-
ist mikilvægi veða til tryggingar
skuldunum umfram það sem ann-
ars þyrfti að vera. „í sumum laxeld-
isfyrirtækjum, einkanlega þó á ís-
landi, hefur spurningin um útvegun
veða náð slíkri fágun að hægt er að
tala um sjálfstætt listform! Það
felur m.a. í sér vafasamar ábyrgðir,
misnotkun á vátryggingarskírtein-
um og verðmætamat eigna byggðu
á óraunhæfum grunni." Þá hefur
MacFarlane ýmislegt að athuga við
hvernig tryggingaskírteini hafa
verið notuð til grundvallar veðum
og hér á landi sé slíkt notað í miklu
meira magni en erlendis. „Spurn-
ing sem vaknar er hvers vegna
tryggingafyrirtækin hafa leyft
slíkt? Áhrifin eru þó augljós í
mynd ofmats á verðmæti fisksins,
ofmats á stærð eða lífsmöguleikum
og jafnvel því að haldið er eftir
einskis nýtum sjúkum eða veikum
fiski, vegna vátryggingarverðmæt-
is.“
Þrátt fyrir öll neikvæðu atriðin
sem hann nefnir telur MacFarlane
að laxeldi muni þróast á íslandi, þó
hann búist við að umtalsverð mis-
tök eigi eftir að verða áður en það
geti orðið. „Það mun þróast þegar
menn gera sér grein fyrir því að
laxeldisfyrirtækin eru mismunandi
með tilliti til þeirrar þekkingar og
fæmi sem þau búa yfir, sem aftur
réttlætir mismunandi fjármögnun.
Laxeldi mun þróast þegar fjár-
magnsuppbyggingunni er breytt á
þann veg að hún taki mið af
raunverulegum þörfum fiskeldis-
fyrirtækjanna, sem sennilega þýðir
í raun að afskrifa þarf í stómm stíl
bókhaldsleg verðmæti í stað þess
að leggja út í nýjar fjárfestingar.
Þau mistök sem á eftir að gera í
laxeldinu verða dýr fyrir unga at-
vinnugrein sem kemur að öllum
líkindum til með að hafa minni
áhrif í hagkerfinu en áður var
talið.“
Athugasemdir
Frjáls verslun fékk Guðmund
G. Þórarinsson formann Lands-
sambands fiskeldis- og hafbeitar-
stöðva til að segja álit sitt á grein
MacFarlane. Guðmundur bendir
meðal annars á að greinarhöfundur
taki allt of djúpt í árinni varðandi
kvíaeldi á íslandi og dæmin sanni
annað. Þá gleymi hann einnig
möguleikanum á fareldi, þ.e. sam-
spili landeldis og kvíaeldis.
Guðmundur nefnir einnig að
stærstu stöðvarnar hér á landi séu
byggðar að frumkvæði Norð-
manna. í þeim tilvikum komi fjár-
magnið í miklum mæli frá Noregi.
Þá segir hann að þróun landstöðva
hafi orðið mikil á íslandi á síðast-
liðnum fimm árum og rekur hann
í framhaldi af því kosti landeldis.
Guðmundur tekur undir margt
það sem MacFarlane segir um
fjármögnun framkvæmda og
rekstrar. Segir hann meðal annars:
„Þau mál hér eru ótrúlegt rugl og
ekkert í samræmi við þau afurða-
lánakerfi sem keppinautar okkar
hafa byggt upp,“
Þá lýkur Guðmundur orðum sín-
um með því að fiskeldi sé mjög
vaxandi grein á íslandi sem feli í
sér mikla möguleika. Islendingar
hafí ekki efni á að dragast aftur úr
í þessari grein. SSH
HITAFARSBREYTINGAR
MIKLAR Á ÞESSARIÓLD
(slensk-ameríska verslunarráðiö:
Fundað um
viðskipti
Einstaklingar sem starfa að
viðskiptum milli íslands og
Bandaríkjanna hittast á um 150
manna ráðstefnu í Washington í
dag. Þar á að brjóta til mergjar
horfur í viðskiptum þjóðanna
næsta áratuginn með hliðsjón af
þeim krossgötum sem framundan
eru í heimsviðskiptunum.
Á ráðstefnunni mun einnig
verða fjallað um þau bandalög og
fríverslunarsamninga, sem hafa
munu áhrif á viðskipti þjóðanna.
Verður sérstaklega fjallað um
fiskveiðimál og ný viðhorf á fisk-
mörkuðum, sérstaklega mörkuð-
um neytenda. Einnig verður farið
yfir núverandi stöðu í viðskiptum
lslands og Bandaríkjanna.
Íslensk-ameríska verslunar-
ráðið stendur fyrir ráðstefnunni
með stuðningi íslenska sendiráðs-
ins, en Verslunarráð fslands og
Amerísk-íslenska verslunarráðið
standa að 40 manna þátttöku frá
íslandi. Meðal þátttakenda verð-
ur Ólafur Ragnar Grímsson
fjármálaráðherra.
Hitafarsbrey tingar hér á landi
hafa á þessari öld verið afar
miklar, alit frá kuldatímabili
fyrstu áratuganna í beinu fram-
haldi af kaldri 19. öld til óvenju-
legs hlýviðrisskeiðs á árabilinu
1926 til 1946. Þetta kemur fram
í riti sem ber heitið, „Hitafar á
íslandi á þessari öld“ eftir Mark-
ús Á. Einarsson.
í inngangi ritsins segir Markús að
því fari fjarri að unnt sé að gefa
einhlítar skýringar á veðurfarssveifl-
um en bendir á nokkra þætti sem
hafi ótvíræð áhrif á hitafar á íslandi.
Þar nefnir hann legu landsins, haf-
strauma, loftstrauma og að lokum
þátt landsins sjálfs. Hvað síðasta
þáttinn varðar tiltekur Markús að
Island sé hálent, hiti lækkar að öðru
jöfnu með vaxandi hæð yfir sjó auk
þess sem landslag ræður miklu um
hitann við ákveðnar aðstæður og er
hann þá allt annar í dölum og á
flatlendi en í hallandi landi.
Tveir fyrstu áratugir aldarinnar
voru verulega kaldir. Um 1920 átti
gífurlega mikil hitaaukning sér stað
á fremur fáum árum og stóð það
hlýindaskeið í um tvo áratugi, en
reyndar var nokkuð hlýtt allt til
ársins 1964. Þá varð snögg breyting
á til hins verra, er við tóku svokölluð
hafísár frá 1965 til 1971. Frá þeim
tíma höfum við búið við svalt ef ekki
kalt hitafar allt fram á þennan dag.
Ef tölur yfir fimm hlýjustu og
köldustu ár á tímabilinu frá 1901 til
1988 eru skoðuð, á þeim 7 veður-
stöðvum sem starfað hafa allt tíma-
bilið kemur í ljós að árshiti í Reykja-
vík var mestur 1941 eða 6,4 gráður,
en kaldasta árið var 1979,2,9 gráður.
1964 mældist árshiti í Reykjavík 5,7
gráður. Frá þeim tíma og til dagsins
í dag hefur ekki mælst jafn hár
árshiti. Á þessum áratug eru árin
1981 og 1983 í hópi fimm köldustu
ára aldarinnar í Reykjavík, en þá
mældist árshitinn 3,4 gráður.
í Stykkishólmi var árshiti mestur
1941 eða 5,2 gráður, en á árunum
1933, ’39 og ’46 mældist árshitinn 5,1
gráða. Tvö köldustu ár í Stykkis-
hólmi voru árið 1918, 2,2 gráður og
1979 2,3 gráður.
Á Akureyri var hlýjast árið 1933,
eða 5,6 gráður og næst hlýjast 1939,
Flugvirkjar hjá Landhelgisgæsl-
unni hafa skrifað undir nýjan kjara-
samning við vinnuveitendur sína,
eftir að hafa í tvígang fellt samninga
þá sem samninganefnd flugvirkjafé-
lagsins hafði gert við viðsemjendur.
Sáttasemjari tók það ráð að kalla
flugvirkja gæslunnar sjö að tölu alla
á samningafund á þriðjudag og var í
framhaldi skrifað undir samninginn.
Ástæðan fyrir því að samningar
5,0 gráður. Kaldasta árið frá alda-
mótum var hins vegar 1979, eða 1,3
gráður, en árin 1917 til ’18 mældist
árshitinn 1,6 gráða.
í Vestmannaeyjum var árshiti
mestur 1941 eða 6,3 gráður. En
köldustu árin voru 1919, þá mældist
árshiti 3,6 gráður og 1979 3,7 gráður.
-ABÓ
náðust í deilunni nú, var breyting á
tveim yfírlýsingum, sem um hafði
samist áður, en eru nú skarpar
orðaðar. önnur þeirra fjallar um
flugvirkja sem áhafnarmeðlim og
hin um aukamann á bakvakt, sem
hvorugt hefur verið til staðar áður.
Samningurinn er að öðru leyti á
sömu nótum og flugvirkjarflugfélag-
anna höfðu áður samið um.
-ABÓ
Flugvirkjar sömdu