Tíminn - 29.09.1989, Qupperneq 10

Tíminn - 29.09.1989, Qupperneq 10
10 Tíminn Föstudagur 29. september 1989 rkvr\i\^w i Mnr Sunnlendingar Félagsvist Spilaö veröur aö Eyrarvegi 15, Selfossi, þriöjudagskvöldiö 3. okt. kl. 20.30. (Stakt kvöld). Góö verðlaun í boöi. Allir velkomnir. Framsóknarfélag Selfoss. Reykjavík Létt spjall á laugardegi Hittumst í Nóatúni 21, laugardagsmorguninn 30. september kl. 10.30 og ræðum það sem efst er á baugi í stjórnmálunum. Félagar í fulltrúaráðinu og þeir sem eru starfandi í nefndum á vegum fulltrúaráösins eru sérstaklega hvattir til að mæta. Fulltrúaráðið. Framsóknarmenn á Siglufirði og nágrenni Við hefjum vetrarstarfiö hjá okkur meö hádegisverð- arfundi á Hótel Höfn, Siglufirði, 29. september n.k. Mætum öll. Stjórnin. Ungir framsóknarmenn - Byggðamál Byggöanefnd Sambands ungra framsóknarmanna heldur fund þriðju- daginn 3. október kl. 17.30 að Nóatúni 21 í Reykjavík. Allir áhugamenn um byggöamál og endurskoöun byggöastefnunnar sérlega boðnir velkomnir. Reykjanes Skrifstofa kjördæmissambandsins, Hamraborg 5, Kópavogi, s. 43222, er opin mánudaga, þriðjudaga og fimmtudaga, kl. 17-19. K.F.R. Austfirðingar Kjördæmisþing KSFA verður haldið á Breiðdalsvík dagana 13.-14. október. Nánari dagskrá auglýst síðar. Stjórn KSFA Borgnesingar - Nærsveitir Spilum félagsvist í samkomuhúsinu í Borgarnesi föstudaginn 29. september kl. 20.30. Mætum vel og stundvíslega. Framsóknarfélag Borgarness. Akranes Bæjarmálafundur laugardaginn 7. október kl. 10.30. Allir þeir sem eru í nefndum og ráðum á vegum flokksins, sérstaklega hvattir til að mæta. Bæjarfulltrúarnir. LÁTTU EKKI 0F MIKINN HRAÐA A VALDA ÞÉR SKAÐA! uss— iiilllllllillHllllli DAGBOK llllllllililiilllllllllllllllillllllllllllllllllllllllllllllllllllllllliilllllllllllllllllllllllll^^ Helgarferð F.í. í Þórsmörk Þetta er síðasta helgarferðin í Þórs- mörk á þessu sumri. Enn eru haustlitir í Mörkinni. Gönguferðir með fararstjóra. Gist í upphituðum Skagfjörðsskála. Farið í kvöld, föstud. kl. 20:00. Farmiðasala og nánari upplýsingar á skrifstofunni Öldu- götu 3. Ferðafélag íslands Sýning í „Undir pilsfaldinum" á Vesturgötu í sýningarsalnum „Undir pilsfaldinum" við Vesturgötu verður opnuð myndasýn- ing í kvöld, föstud. 29. sept. kl. 20:00. Þar eru sýndar málaðar myndir gerðar af þcim Þórhalli Þráinssyni og Aðalsleini Svani Sigfússyni. Þeir eiga það sameigin- legt, að hafa útskrifast úr Málunardeild M.A.Í. vorið 1986. Að opnun lokinni verður sýningin opin kl. 14:00-22:00 um helgar og kl. 14:00- 18:00 virka daga. Sýningunni mun Ijúka 8. október. Laugardagsganga Hana nú Vikuleg laugardagsganga hana nú í Kópavogi verður á morgun, laugard. 30. sept. Lagt af stað frá Digranesvegi 12 kl. 10:00. 1 fréttatilkynningu frá Frístundahópn- um „Hana nú“ segir m.a.: „Nú er ailra veðra von. Stemmning laugardagsgöng- unnar fer ekki eftir veðrinu. Það klæðum við af okkur. Verið með í bæjarröltinu í hreinasta og tærasta lofti heimsins. Nýlag- að molakaffi og skemmtilegur félagsskap- ur.“ Sýningu Gunnars R. Bjarnasonar í Hafnarborg lýkur á sunnudag Gunnar R. Bjarnason sýnir pastel- myndir í Hafnarborg, menningar- og listastofnun Hafnarfjarðar til 1. október. Sýningin er opin kl. 14:00-19:00 Síðasti sýningardagur er sunnudagurinn 1. októ- ber. Litla leikhúsið: Regnbogastrákurinn Litla leikhúsið sýnir barnaleikritið „Regnbogastrákinn" eftir Ólaf Gunnars- son. Söngvar í leikritinu eru eftir Gunnar Þórðarson og Ólaf Hauk Símonarson. Eyvindur Erlendsson leikstýrir og gerir leikmynd, en leikendur í Regnboga- stráknum eru: Emil Gunnar Guðmunds- son, Alda Arnardóttir og Erla Rut Harð- ardóttir. Sýningar eru í menningarmiðstöðinni Gerðubergi kl. 17:00 á laugardögum og kl. 15:00 á sunnudögum í október. Harpa sýnir í Gallerí Borg - Síðasta sýningarhelgi Harpa Bjömsdóttir sýnir verk sín í Gallerí Borg, Pósthússtræti 9. Á sýning- unni eru verk unnin með blandaðri tækni. Þetta er sjötta einkasýning Hörpu, en hún hefur einnig tekið þátt í fjölda samsýninga, hérlendis og erlendis. Sýningin er opin virka daga kl. 10:00- 18:00 en um helgar kl. 14:00-18:00. Henni lýkur 3. október. Menntaskólinn í Kópavogi: Nemendur á félagsbraut bjóða stuðning við fötluð ungmenni Eins og undanfarin ár býður Mennta- skólinn í Kópavogi upp á nám á félags- braut til stuðnings fötluðum ungmennum. Námið felst í því, að nemendur fylgja fötluðum ungmennum í félags- og skemmtanalíf. Þau fötluð ungmenni, sem hafa hug á að nýta sér þetta, þurfa að hafa samband við Garðar Gíslason menntaskóla- kennara á skrifstofu Menntaskólans í Kópavogi. en Garðar hefur umsjón með þessari námsbraut. Þátttaka er ekki bund- in við Kópavog. Tissa Weerasingha talar í Bústaðakirkju Tissa Weerasingha frá Sri Lanka talar á samkomum í Bústaðakirkju 2.-7. októ- ber kl. 20:30 hvert kvöld. Hann mun m.a. fjala um austræn trúarbrögð og áhrif þeirra á Vesturlöndum. þá verður fyrir- bænaþjónusta, beðið fyrir sjúkum og líðandi. Fjöldi söngfólks úr hinum ýmsu söfnuðum borgarinnar tekur þátt í samkomunum. Allir eru hjartanlega vel- komnir meðan húsrúm leyfir. Tissa Weerasingha þjónar Calvary kirkjunni í Colombo, sóknarbörn hans koma jafnt úr röðum singala og tamíla. Auk þess er ferðast hann um heiminn og predikar. Starfshópurinn „Öll sem eitt“ hefur undirbúið heimsókn Tissa, en að hópnum stendur fólk úr kristnum kirkjum á höfuð- borgarsvæðinu. Sýning Tuma Magnússonar Laugardaginn 30. sept. kl. 14:00 opnar Tumi Magnússon myndlistarmaður sýn- ingu í GALLERI, Skólavörðustíg 4A. Sýningin verður opin alla daga kl. 14:00- 18:00 til sunnud. 15. október. Ólöf Kolbrún Harðardóttir. Ólóf Kolbrún Harðardóttir syngur á Ijóðatónleikum í GERÐUBERGI Ljóðatónleikaröð Gerðubergs er nú haldin annað árið í röð og miðað við undirtektir er augljóst að framhald verður á. Að þessu sinni eru tónleikarnir fimm. Vönduð efnisskrá í umsjón Reynis Axels- sonar er gefin út með hverjum tónleikum, en Reynir hefur jafnframt annast þýðingu flestra Ijóðanna úr frumtexta. Fyrstu tónleikarnir verða mánudaginn 2. október Id. 20:30. Ólöf Kolbrún Harð- ardóttir, sópran, syngur sönglög eftir Jórunni Viðar, E. Grieg, P. Heise, G. Verdi og R. strauss. Olöf Kolbrún er löngu orðin þekkt fyrir óperusöng sinn og hefur sungið aðalhlutverk í mörgum óper- um, svo sem eftir Gluck, Mozart, Bizet, Verdi, Leoncavallo o.fl. Ólöf Kolbrún lærði hjá Elísabetu Erl- ingsdóttur í Tónlistarskóla Kópavogs. Eftir 1973 hefur hún stundað áframhald- andi nám í Þýskalandi, Austurríki og Ítalíu, og eru Eric Werba, Helene Kar- usso, Lina Pagliughi og Renato Capecchi á meðal kennara hennar. Aðrir ljóðatónleikar í Gerðubergi verða svo tilkynntir hverju sinni. Jónas Ingimundarson, pianóleikari, mun annast meðleikinn á þessum tónleik- um. Hægt er að kaupa áskrift á tónleikana og tryggja sér miða í síma 79140 kl. 09:00-14:00, og sækja verður frátekna miða í síðasta Iagi tveimur dögum fyrir tónlcika. Tónleikarnir verða ekki endur- teknir. MINNING Guðmunda Haraldsdóttir Fædd 31. ágúst 1928 Dáin 19. september 1989 Mér er alltaf mikils virði, mega geyma fagran sjóð, björt er sól í Bitrufirði, bjart er yfir æskuslóð. Þessar línur koma upp í huga minn nú á haustdögum er ég kom í land af sjónum. Ég fór að hugsa um hvað ég hefði nú vanrækt sveitina mína og frændfólk upp á síðkastið. En svo í þessum hugleiðingum hring- ir pabbi í mig og segir mér þær leiðu fréttir að Munda frænka hafi verið flutt alvarlega veik suður á spítala. Og aðeins rúmum sólarhring seinna var hún burtkölluð af þessu tilveru- stigi. Þar sem ég er á sjónum og get ekki fylgt henni hinsta spölinn, ætla ég og systur mínar, Haddý og Brynja og fjölskyldur í nokkrum fátæklegum orðum að kveðja hana og þakka henni alla þá góðmennsku og hlýju sem hún hefur sýnt okkur systkinum í gegnum tíðina, en við vorum með annan fótinn hjá Dadda og Mundu í Sandhólum öll okkar uppvaxtarár og fram á þennan dag þegar tími hefur gefist til að skreppa í sveitina. Það var ætíð tilhlökkunarefni að heimsækja Mundu, hún var ræðin og skemmtileg og kunni frá mörgu að segja. Gestrisni hennar er okkur sem hennar nutu ógleymanleg, og var ávallt æði gestkvæmt hjá þeim hjónum á sumrin og oft skildi maður ekki hvernig hún fór að því að hýsa og metta þá mörgu munna. Músík- ölsk og listræn var hún í sér og eru æði margir í fjölskyldunni sem eiga myndir frá henni sem hún skreytti með skeljum sem hún tíndi í fjör- unni, en í minningunni verðum við að eiga þær stundir þar sem hún spilaði og söng fyrir okkur og hreif með sér jafnt unga sem gamla af sínu eðlislæga léttlyndi. Það verður öðruvísi að koma í sveitina núna, en Daddi minn það deyfir sárin dásamleg minning um liðnu árin. Ást við sendum þér og biðjum guð að styrkja þig og Diddu og Gunnar, Ingvar og Gísla og yngsta fólkið Sigga Óla og Ingunni í ykkar miklu sorg. Halli, Haddý og Brynja. Hún Munda vinkona okkar er dáin. Þó við höfum vitað í mörg ár að hún gekk ekki heil til skógar, kom sviplegt fráfall hennar okkur á óvart. Munda kom hingað í sveitina fyrir um 40 árum sem kaupakona og það fór fyrir henni sem svo mörgum kaupakonum: í sveitinni kynntist hún mannsefni sínu. Árið 1952 giftist Munda Kjartani Ólafssyni bóndasyni frá Þórustöðum í Bitru og fljótlega byggðu þau nýbýlið Sandhóla úr landi Þórustaða og bjuggu þar síðan. Þau hjón eignuðust 4 börn: Ólu Friðmeyju húsfreyju á Þórustöðum, Ólaf Harald sem lést af slysförum 25 ára gamall, Ingvar Einar bónda í Sandhólum og Gísla Kristján sem ýmist er við störf í Reykjavík eða á búi foreldra sinna. Kjartan og Munda voru einkar gestrisin og var jafnan margt af þeirra vinum og ættingjum í heim- sókn að sumrinu. Munda var mjög handlagin og hugvitssöm og eru þeir ófáir hlutirnir sem hún gaf vinum og kunningjum, enda var greiðasemi hennar einstök. Og þáð var alltaf eitthvað gott til í skápunum hennar Mundu til að stinga upp í litla ferðalanga sem komu kannski óvænt í dyrnar. Eitt af því sem lék í höndum hennar var matargerð og munum við seint gleyma fögru haustkvöldi fyrir tæpu ári er við sátum í veislu hjá þeim hjónunum. Kjartan frændi og þið öll sem eigið um sárt að binda, við sendum ykkur okkar innilegustu samúðar- kveðjur. Þeirri látnu þökkum við fyrir allt sem hún gerði fyrir okkur. Fjölskyldurnar ÞambárvöIIum.

x

Tíminn

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.