Tíminn - 29.09.1989, Qupperneq 16

Tíminn - 29.09.1989, Qupperneq 16
AUGLYSINGASIMAR: 680001 —686300 NÚTÍMA FLUTNINGAR Halnarhúsinu v/Tryggvagötu, S 28822 ll«mil:IH?lil SAMVINNUBANKINN í BYGGÐUM LANDSINS =n» ÁTTHAGAFÉLÖG, FYRIRTÆKI OG EINSTAKLINGAR Gltasilagur salur tll leigu fyrir samkvæml og fundarhöld á daginn iam é kvöldin. ÞRttSTUR 685060 VANIR MENN Tíminn FÖSTUDAGUR 29. SEPTEMBER 1989 Slagurinn um sjónvarpsrásir í algleymingi og þrjár nýjarstöðvar í deiglunni: Nú stefnir hraðbyri í fimm sjónvarpsstöðvar m Leyfisveiting samgönguráðherra til Sýnar hf. um að senda út á rás 6 á metrabylgjusviði sjónvarps virðist ætla að valda miklum sviptingum. Stöð 2 hefur sótt um leyffi til útsendingar á rás 8 á VHF sviði og ráðgerir að hefja rekstur helgarsjónvarps. Samkvæmt upplýsingum Tímans hyggjast þeir aðilar er standa á bak við svonefnda Stöð 3, sem fékk leyfi til sjónvarpsreksturs í fyrra, einnig ætla að sækja um þessa rás. Með úthlutun rásar 8 er VHF kerfið orðið lokað þar sem ekki er um fleiri rásir að ræða á þessu sviði. Myndbanda- og auglýsingagerð-' eða jafnvel gefa myndlykla þar arfyrirtækið Sýn hf. fékk leyfi sam- sem þeir séu ekki bjartsýnir á að gönguráðherra með því skilyrði að Stöð 2 samþykki not af því mynd- lyklakerfi sem þar hefur verið kom- ið upp. Þá hafa þeir einnig lýst því yfir að áskriftargjaldið verði mun lægra en að Stöð 2. Ýmsir aðilar hafa verið nefndir í tengslum við hina nýju sjónvarps- stöð. Þar á meðal Saga film, Jón Ólafsson stjórnarformaður Is- lenska útvarpsfélagsins og Svavar Egilsson kaupsýslumaður í Reykjavík en hann var einn aðal- eigandi íslenska myndversins sem sér um tæknimál Stöðvar 2. Stöð 2 með sérstakt helgarsjónvarp Jón Óttar Ragnarsson staðfesti í viðtali við Tímann í gær að Stöð 2 hefði sótt um leyfi til útsendinga á samningar takist milli Sýnar og Ríkisútvarpsins um nauðsynlegar breytingar á dreifikerfi sjónvarps á suð-vesturhorninu. Meðal annars er um að ræða nýjan sendi á Kjalarnesi sem þjónar Mosfelling- um, einnig þarf að setja nýjar greiður á loftnet 400-500 húsa í Mosfellsbæ. Áætlaður kostnaður við þessar breytingar mun nema nokkrum milljónum króna. i Forsvarsmenn Sýnar gera ráð j fyrir að útsendingar geti hafist í: janúar eða febrúar á næsta ári. Útsendingar verða á föstudögum, laugardögum og sunnudögum. Þá hafa forsvarsmenn fyrirtækisins sagt að útsendingin verði læst en þeir hyggist leigja gegn vægu gjaldi rás 8 á VHF sviði. Þessi rás er í dag notuð af Ríkissjónvarpinu fyrir Fossvog og Kópavog. Sagði Jón að Stöð 2 myndi að sjálfsögðu bæta notendum á þeim svæðum skaðann og Ríkissjónvarpinu sendinn. „Svavar Egilsson var forstjóri | lengi fyrir íslenska myndverinu og hann vissi mætavel, og við höfum sagt frá því á öðrum vettvangi, að við stefndum að því að fá fleiri rásir á myndlykil Stöðvar 2. Eitt af því sem var efst á óskalistanum hjá okkur var helgarsjónvarp. Við ætl- uðum að tilkynna það á afmælis- deginum okkar sem er 9. október og við vonumst til að geta hafið útsendingar á næsta ári,“ sagði Jón Óttar Ragnarsson. Jón sagði einnig að Stöð 2 hafi gert ráð fyrir að VHF sviðið væri lokað. Þegar Stöð 2 var að hefja göngu sína hafi verið sótt um rás 6 sem Sýn hafi fengið núna og hafi Stöð 2 meðal annars boðist til að loftnetsvæða Mosfellsbæinn. Því hafi verið hafnað og sagði Jón að ákvörðun samgönguráðherra fæli í sér stefnubreytingu sem hann fagn- aði mjög. „VHF rásirnar eru mjög fáar og ég tel að það eigi að nota þær sem burðarrásir fyrir nýjar sjónvarpsstöðvar en ekki sem „holufyllingar" í kerfi Sjónvarps- ins. Við reiknum með að okkar 150 þúsund áskrifendur fái nákvæm- lega sömu afgreiðslu eins og Sýn og að við getum hafið VHF útsend- ingu þannig að okkar notendur þurfi ekki að koma sér upp nýjum loftnetsgreiðum." Þá sagði Jón að það væri einnig stefnubreyting að menn gætu sótt um sjónvarpsrás áður en sótt væri um útvarpsleyfi. Gert er ráð fyrir að útsendingar á nýju rásinni verði algjörlega truflaðar og að notendur þurfi að gerast áskrifendur að henni sér- staklega. Sagði Jón að hugmyndin að nýju stöðinni væri ekki fullmót- uð en hann gerði ráð fyrir að dagskráin yrði blönduð en væntan- lega á léttari nótunum. SSH i , Á næsta þingi verður lagt fram nýtt frumvarp um almannatryggingar. Á borði heilbrigðisráðherra liggja nú tillögur um að: Spara 200 milljónir í tryggingakerfinu Handbók vinnustaðarins: MFAútgáfa Tvær bækur komu út í gær á vegum Menningar- og fræðslusam- bands alþýðu. Önnur þeirra er Handbók vinnustaðarins sem kemur. nú út í þriðja sinn mikið breytt og. endurbætt. í bókinni eru prentuð, lög sem snerta vinnustaði, réttindi: og skyldur launafólks og stjórnenda á vinnustöðum. Þá eru birtir dómar í bókinni sem varða samskipti launafólks og at-; vinnurekenda. Skrá er í henni um • aðildarfélög ASÍ og ýmsar upplýs- ingar um starf og skipulag jDess. Sérstakir kaflar eru um lífeyrismál, almannatryggingar, alþjóðamál, samningamál, málefni neytenda, húsnæðismál og vinnuvernd auk annars. Hin bókin sem út kom hjá MFA í gær heitir Umheimurinn og ábyrgð okkar. Hún fjallar um umhverfismál, samstöðu þjóða og þróun heimsmála o. fl. Bókin kemur samtímis út á hinum Norðurlöndunum á tungu hvers lands. Útgáfa bókarinnar er liður í samvinnu fræðslusamtaka verkalýðshreyfinganna á Norður- löndum og er styrkt af Norræna menningarmálasjóðnum. , -sá Guðmundur Bjarnason heil- brigðis- og tryggingaráðherra mun á næsta þingi leggja fram nýtt frumvarp um almannatryggingar. í frumvarpinu verður reynt að lag- færa ýmsar misfellur á núverandi tryggingalögum. Með frumvarpinu er sú stefna mörkuð að trygginga- kerfið skuli vera til stuðnings fyrir þá sem minna mega sín og til hjálpar þeim sem hafa orðið fyrir áföllum í lífinu en að það eigi ekki að virka sem eins konar lífeyris- sjóður eins og það hefur gert. Heilbrigðisráðherra hefur lagt fram í ríkisstjórninni tillögur um breytingar á tryggingakerfinu. Tillögurnar miða að því að láta kerfið virka sem raunverulegt tryggingakerfi en ekki sem eins konar lífeyrissjóður. Rætt hefur verið um að tekjutengja trygginga- bætur en ekki er búið að ákveða við hvaða upphæð verður miðað. Ekki er fullljóst hvað þessar breyt- ingar koma til með að spara mikla fjármuni því eftir er að ákveða við hvaða tekjur verður miðað. Ráð- herra sagði þó að rætt hefði verið um 200 milljón króna sparnað á þessu sviði. Nefnd hefur verið að endur- skoða lög um almannatryggingar og Guðmundur sagðist vona að hann gæti lagt fram nýtt frumvarp í upphafi þings nú í haust. Hann kvað samstöðu innan ríkisstjórnar- innar að gera þær breytingar á tryggingakerfinu að það virkaði til jöfnunar. Það væri að vísu ekki búið að taka afstöðu til einstakra smáatriða. „Ég tel mikilvægast að menn nái samkomulagi um þessa grunnhugsun en séu ekki að þrátta um nokkrar krónur til eða frá. Skerðingunni er aðeins ætlað að koma niður á þeim sem við getum kallað að séu með veruleg laun. Það er alls ekki ætlun að svipta fólk sem er rétt yfir tekjutryggingar- markinu sínum grunnlífeyri þ.e. fólk sem er með 60-70 þúsund krónur á mánuði.“ Á næstunni mun hin svokallaða lyfjanefnd væntanlega skila af sér skýrslu. Nefndinni var ætlað að skoða kostnað við lyfjanotkun. Að sögn heilbrigðisráðherra hefur nefndin rætt um að fylgjast betur með innkaupsverði lyfja. Forsenda álagningar á Iyf hefur verið skoðuð sérstaklega, bæði í heildsölu og smásölu. Einnig hefur verið rætt um að læknar ávísi jafnan á ódýr- asta lyfið. Markmiðið væri að draga úr lyfjanotkun eins og kostur væri. Ráðherra tók þó fram að íslendingar væru engir óhófsneyt- endur lyfja. íslendingar nota næst- minnst af lyfjum af öllum Norður- landaþjóðunum. Aðeins Norð- menn nota minna af lyfjum. Ráð- herra taldi þó ástæðu til að reyna spara á þessu sviði sem og ýmsum öðrum. -EÓ

x

Tíminn

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.