Tíminn - 29.09.1989, Blaðsíða 5

Tíminn - 29.09.1989, Blaðsíða 5
Föstudagur 29. september 1989 Tíminn 5 Dýr< alæl knaskóli stofnaður fyrir 15 m.kr. á Keldum? Útvegsmenn í Grindavík hafa áhyggjur af minnkandi veiðiheimild- um heimamanna. Telja þeir að ástæða sé til að huga að því hvert stefni í atvinnumálum í byggðarlag- inu. í ályktun sem sameiginlegur fundur bæjarstjórnar, útvegsmanna og atvinnurekenda í Grindavík sendi frá sér segir: „Fundurinn telur að knýjandi þörf sé á því að endurskoða kvótakerfið, þar sem það er farið að hafa í för með sér ójöfnuð milli landshluta og þegar við bætist pólitísk úthlutun á fjármagni í útgerð og fiskverkun rýrnar hlutur bæjarfélaga, sem byggja á eðlilegum viðskiptum. Auk þess vara Grindvíkingar enn og aftur við áhrifum þeirrar fiskveiði- stefnu, sem miðar að sívaxandi smá- fiskadrápi.“ -EÓ og Þýskalandi, vegna gífurlega auk- innar eftirspurnar. Hún stafi aðal- lega af því að forsvarsmenn fiskeldis í Noregi kaupi hreinlega þau sæti sem hægt sé að fá í þessum skólum, til þess að mennta menn fyrir sína starfsgrein, en hún er í örum vexti og skortir dýralækna. Keldnanefnd sem áður hefur verið minnst á er nú að ljúka við tillögur sínar um framtíð tilraunastöðvarinn- ar á Keldum og mun skila þeim til ráðherra innan tíðar. í tillögum þeirrar nefndar er ekki lagt til að á Keldum verði í framtíðinni dýra- læknaskóli, en Oddur bendir á að nú þegar verið sé að vinna að skipan framtíðarmála á staðnum sé heppi- legt að sæta lagi. Gert er ráð fyrir 90 eininga BS námi og því nauðsynlegt að semja við erlenda háskóla um kennslu á seinni hluta námsins. „Til að setja upp námið allt til enda erum við allt of fáir, því að það er feikna dýrt“, segir Oddur. Hann bendir á það að með því að gera þetta svona sé unnt að nýta stóran hluta af þeim fyrir- lestrum sem nú þegar eru fyrir hendi í læknadeildinni, því að fyrstu tvö árin sé kennsla í dýralækningum og læknisfræði mjög af svipuðum toga. Yrði af þessum hugmyndum þyrfti að endurskipuleggja starfsemina á Keldum, með tilliti til þess að þar ætti að vera fræðslustofnun, en ekki bara rannsóknarstofnun eins og nú er. - ÁG Menntamálaráðherra mun á næstu dögum fá í hendur fullfrágengna skýrslu, frá nefnd sem starfað hefur á vegum Dýralæknafélags íslands, þar sem lagt er til að stofnaður verði nýr þriggja ára háskóli, sem kosti á bilinu 10-15 milljónir. Hugmyndir dýralækna eru að stofnaður verði u.þ.b. 10 nemenda skóli er staðsettur verði á Keldum og starfi í nánum tengslum við Læknadeild Háskóla íslands. Ólafur Oddgeirsson dýralæknir skrifar grein um þetta mál í nýjasta fréttabréfi Dýralæknafélags íslands þar sem að hann segir að nú þegar sé skortur á dýralæknum og horfur á að það ástand eigi eftir að versna á næstu árum. Aðspurður segir Oddur að ástæðuna fyrir skorti á dýralækn- um megi rekja til þess að mjög erfitt sé fyrir nema frá Islandi að fá inni í dýralæknaskólum erlendis. Sífellt erfiðara sé að fá inni í skólum í löndum eins og Noregi, Danmörku Nefndin hefur haldið fjölda funda og tekið saman helstu röksemdir fyrir kennslu í dýralækningum við H.Í.. Samin hefurverið kennsluskrá og settar fram hugmyndir um kennara, reiknaður út kostnaður af stundakennslu, stofnkostnaður og fastur rekstrarkostnaður. Þessar hugmyndir hafa verið kynntar fyrir ýmsum aðilum er málinu tengjast, s.s. menntamálaráðherra, rektor Háskóla íslands, Keldnanefnd og landbúnaðarráðuneyti. Þörf á að endur- skoða kvótakerfið Lífeyrissjóöur Vesturlands: Regla komin á bókhaldið Mál eru nú að komast í viðun- andi horf hjá Lífeyrissjóði Vestur- lands en hann hefur mátt þola harða gagnrýni að undanförnu. Reikningar fyrir árin 1986-8 eru að verða tilbúnir og á næstunni verður sent út yfirlit yfir inneign sjóðsfé- laga í sjóðnum. Eitt af því sem hefur komið í ljós við rannsókn á bókhaldi sjóðsins er að hann veitti m.a. kirkjunni í Stykkishólmi lán upp á fimm milljónir króna. Lífeyrissjóðurinn er landshluta- sjóður og honum er ætlað að ávaxta fjármuni sína heima í hér- aði. Lánveiting til Stykkishólms- kirkju brýtur því ekki í bága við upphafleg markmið sjóðsins. Lán- ið var veitt með bakábyrgð Stykkis- hólmsbæjarog því eru fjármunirnir ekki í neinni hættu. í skýrslu sem Gunnar Zoéga endurskoðandi gerði um bókhald Lífeyrissjóðs Vesturlands, var gerð athugasemd við þessa lánveitingu og fleiri þar sem lán var veitt með bakábyrgð- um sveitarfélaganna. Gunnar taldi að þessar lánveitingar samræmdust ekki ýtrustu reglugerðarákvæðum. Þessum lánveitingum hefur nú ver- ið hætt. Lánið var veitt að beiðni heimamanna í Stykkishólmi. Að sögn Bergþórs Guðmunds- sonar framkvæmdastjóra lífeyris- sjóðsins er mál sjóðsins að komast í gott horf. Ársreikningur fyrir árið 1986 liggur fyrir undirritaður af stjórn sjóðsins og endurskoðend- um hans. Ársreikningur 1987 mun liggja fyrir í byrjun nóvember og í framhaldi af því verður haldinn fulltrúafundur þar sem þessir tveir reikningar verða lagðir fram. Árs- reikningur fyrir árið 1988 mun væntanlega liggja fyrir í ársbyrjun 1990. í byrjun nóvember verða send út yfirlit yfir inneign sjóðsfélaga í sjóðnum. Yfirlitið mun sýna stöð- una frá stofnári sjóðsins, sem var 1970, til ársloka 1988. í framhaldi af því mun starfsfólk lífeyrissjóðs- ins verða með viðtalstíma hjá að- ildarfélögum sjóðsins þar sem sjóðsfélagar geta gert athugasemd- ir við yfirlitin og fengið upplýsingar um réttindi sín. Bergþór Guð- mundsson sagði að ætlunin væri að stórauka samskipti sjóðsins við að- ildarfélögin. Hann sagðist líta svo á að sjóðurinn hefði allar forsendur til að vera fyrirmyndar lífeyrissjóð- ur ef rétt yrði á málum haldið. Sú skoðun hefði reyndar komið fram í skýrslu Gunnars Zoéga endur- skoðenda sem fyrr er vitnað til. -EÓ Innheimtumönnum ríkissjóðs fjölgar úr 12.500 í 26.500 með virðisaukaskatti: Færri undanþágur en aukin skriffinnska Dæmi 1: Við skulum fyigja inntluttu heimilistaeki frá tollafgreiðslu til neytanda: Heildsali flytur inn heímilistæki. Tollverðtækisinser 1.000 kr. Tollstjóri innheimtir 22% vsk. af tollverðinu 220 kr. Heildsalinn greiðir samfals 1.220 kr Tollstjóri skilar 220 kr. I ríkissjóð. Heildsalinn skuldfærir ríkissjóð í bókhaldi sínu fyrir þessari upphæð, þ.e. færir sömu upphæð tíl frádráttar skattskilum sínum. Heildsalinn leggur 700 kr. á tækið og selur það til smásala á ... 1.700 kr. Heildsalinn innheimtir 22% vsk. af söluverðinu 374 kr. Smásalinngreiðirsamtals 2,074 kr. Heildsalínn hefur þá innheimt 374 kr. í virðisaukaskatt en við skil á skattinum i ríkissjóð dregur hann frá 220 kr. sem hann hefur áður skuldfært rikissjóð fyrir. Hann greiöir þvi 154 kr. í virðisaukaskatt. Smásalinn færir 374 kr. til frádráttar i bókhaldi sínu. Loks selur smásalinn tækið til neytanda á 2.300 kr. og að auki kemur 22% vsk 506 kr. Neytandinn greiðir 2.806 kr. Smásalinn skilar 132 kr. í rlkissjóð (506 kr. -374 kr. = 132 kr.). Hvað hefur gerst? Virðisaukaskatturinn er innheimtur á öllum stigum: Tollstjóri skilaði . . 220 kr. Heildsalinn skilaði . . 154 kr. Smásalinn skilaði .. 132 kr. Virðisaukaskattur samtals .. 506 kr. sem er sú upphæð sem neytandanum var gert aö greiöa, þ.e. 22% af sölu- verði án skatts. Skýringardæmi ríkisskattstjóra á því hvernig innheimta virðisaukaskatts gengur fyrir sig þegar um innfluttar vörur er að ræða. Innskattur smásalans í þessu dæmi er 374 kr. og útskattur 506 kr. „Virðisaukaskatturinn er veiga- mikið skref í þá átt að færa ísland inn í þann nútíma og framtíð sem helstu viðskiptalönd okkar hafa lag- að sig að á undanförnum árum og áratugum“, sagði fjármálaráðherra, Ólafur Ragnar Grímsson á fundi fréttamanna í gær. Þar með hófst formlega sú kynningarherferð sem sett hefur verið í gang til að koma þjóðinni - og ekki hvað síst þeim 26.550 aðilum sem skylt verður að innheimta skattinn fyrir ríkissjóð - í skilning um þessar „skattaumbæt- ur“, vsk., sem á að leysa þrjátíu ára söluskattskerfi af hólmi frá og með næstu áramótum. Færri undanþágur Helstu kostir virðisaukaskattsins fram yfir söluskattinn eru að mati yfirvalda: Hann safnast ekki upp í vöruverð- inu við kaup á aðföngum til fram- leiðslu og mismunar því ekki fram- leiðslugreinum og neysluvörum eins og söluskattinum hættir til. Af þeim sökum á samkeppnisstaða íslenskrar framleiðslu að batna verulega bæði hérlendis og erlendis. Þá á flókið undanþágu- og endurgreiðslukerfi að einfaldast verulega. Vöruverð að lækka í framtíðinni vegna þess að skatturinn safnast ekki upp. Og ekki síst á vsk. að gera innheimtu alla öruggari, fækka undanþágum og auðvelda eftirlit. Meiri skriffinnska Helsta gagnrýnin beinist hins veg- ar að því að skriffinnska muni aukast með fjölgun gjaldenda úr 12.550 upp í 26.550. Með lengingu upp- gjörstímabila úr einum mánuði í tvo er stefnt að því að draga úr pappírs- flóðinu hjá skattstjórum. En spurn- ing er um aukna skriffinnsku hjá hinum 14.000 nýju innheimtumönn- um. Þá er bent á að skatturinn muni binda meira fé í rekstri. Heildsali verður t.d. að greiða skattinn í tolli og smásalinn síðan að standa heild- salanum skil á skattinum við innkaup sín. Skatturinn 22% - 25% -15%? í lögum um virðisaukaskatt sem samþykkt voru vorið 1988 var gert ráð fyrir 22% virðisaukaskatti. Sú skattprósenta þýðir, að sögn fjár- málaráðherra, um 4.000 millj.kr. minni tekjur fyrir ríkissjóð á næsta ári heldur en af núverandi 25% söluskatti. Það „tap“ mundi hins vegar minnka niður í einhver hundr- uð milljónir ef skattþrepin yrðu tvö, almennur 25% skattur og síðan um 15% skattur á helstu innlendu land- búnaðarvörum og fiski, þ.e. vörum sem vega í kringum 10% reiknaðs framfærslukostnaðar. Skattprósent/ a/ur verða ákveðnar á Alþingi. Um 14.000 nýir skattheimtumenn Um 26.550 skattskyldir í virðis- aukaskatti ber vitni um það hve stór hluti þjóðarinnar stendur í einhvers- konar rekstri. Þessi fjöldi svarar t.d. til um 6. hvers íslendings á milli tvítugs og sjötugsaldurs, sem með vsk. verða innheimtumenn fyrir ríkissjóð. Rúmlega þriðjungur (5.000) hinna nýju skattgreiðenda er bændur, um 3.000 byggingarmenn, um 2.000 við fiskveiðar og vinnslu og um 1.500 bílstjórar, auk 2.500 sem sýsla við ýmislegt annað. Þó verða þeir sem selja vöru eða þjónustu fyrir minna en 122.000 kr. á ári undanþegnir skatti. Margir hinna nýju innheimtu- manna hafa ekki einu sinni verið bókhaldsskyldir til þessa - og sumir jafnvel átt fullt í fangi með frágang árlegs skattframtals, að því er sagt er. Með hinum nýja skatti er mönn- um a.m.k. vissara að glata ekki nótum fyrir kaup á vörum eða þjón- ustu, því hluti flestra greiðslna verð- ur virðisaukaskattur sem þeir eiga síðan að fá endurgreiddan. Týnd nóta verður því tapaðir peningar. Auk framangreindra 122 þús.kr. manna verður þessi starfsemi skattfrjáls: Heilbrigðisþjónusta og ýmis félagsleg þjónusta svo sem barnaheimili. Mennta- og menning- arstarfsemi t.d. skólar og söfn. Sama gildir um íþróttir, listir, banka, verð- bréfamiðlun, vátryggingar, happ- drætti, getraunir og þjónustu presta. Innskattur og útskattur Með virðisaukaskattinum bætast móðurmálinu a.m.k. 2 nýyrði; inn- skattur og útskattur. Innskattur heit- ir sá skattur sem fyrirtæki greiðir öðrum skattskyldum fyrirtækjum eða tollstjóra við kaup eða innflutn- ing á vörum og hvers konar aðföng- um. Útskattur er sá skattur sem fyrirtækið innheimtir af skattskyldri sölu sinni. - HEI

x

Tíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.