Tíminn - 29.09.1989, Side 15

Tíminn - 29.09.1989, Side 15
Föstudagur 29. september 1989 ÍÞRÓTTIR Tíminn 15 Risaveldin áttust við á Nesinu í gær. Sovétmaðurínn í liði KR Anatolij Kovtoun og Bandaríkjamaðurinn Darin Schubríng í liði Hemel berjast um stöðu undir körfunni. Hoges gerði sér b'tið fyrir og braut körfuna á Nesinu í gær, í fyrsta körfuboitaleiknum sem fram fer í húsinu. Tekið skal fram að körfurnar eru ekki þær sterkbyggðustu á markaðnum. ^ Tímamynd Pjetur. Evrópukeppni félagsliða í körfuknattleik: Karfan brotnaði undan álaginu þegar KR vann Hemel Hempstead 53-45 í gærkvöldi Það var fleira brotið en blað í sögunni þegar KR-ingar mættu enska liðinu Hemel Hempstead í Evrópukeppni félagsbða í körfu- knattleik í nýja íþróttahúsinu á Sel- tjarnarnesi í gærkvöld. Talað var um það fyrir leikinn að blað værí brotið í sögunni, þar sem Sovétmaður og Bandaríkjamaður léku í fyrsta sinn í sama liðinu, þ.e.a.s. í liði KR. En CARRÖN ELDHÚSVASKAR úr stáli og hvítu sili qvartz K. AUDUNSSON GRENSASVEGI 8 S 68 67 75 & 68 60 88 önnur karfan á Nesinu þoldi ekki álagið í gærkvöld og brotnaði þegar Bandaríkjamaðurinn Darin Schubr- ing tróð knettinum í körfuna þegar 6:23 mín. voru til leiksloka. Leikurinn gat ekki hafist á nýjan leik fyrr en tveimur tímum eftir atvikið, þar sem sækja þurfti nýjar körfur úr Laugardalshöllinni. Þegar umrætt atvik átti sér stað voru KR- ingar 1 stigi yfir 43-42. KR-ingar hófu leikinn af miklum krafti og komust í 13-1 og 20-5. Þriggja stiga karfa Mark Smith þegar 8 mín. voru til leikhlés var fyrsta karfa enska liðsins í leiknum, en áður höfðu þeir skorað 5 stig öll úr vítaskotum. Eftir þessa góðu byrjun brást hittni KR-inga og Hemel náði að jafna 24-24. Enska liðið komst í fyrsta sinn yfir 26-27 og þar við sat í fyrri hálfleik. Leikurinn var í jámum allan síðari hálfleik og liðin skiptust á um að hafa forystu. Þegar Darin Schubring braut spjaldið var staðan 43-42 KR í vil. Knattspyma: ísland tapaði íslenska drengjalandsliðið í knatt- spymu tapaði 0-2 fyrír Svíum í undankeppni Evrópumótsins á KR- velh í gær. Svíar skoraðu úr víta- spyrau þegar 10 mín. voru til leikhlés og á lokamín. leiksins bættu þeir öðru marki við. BL Eftir að leikurinn hófst á ný tóku KR-ingar, með Jonathan Bow og Birgi Mikaelsson í fararbroddi, leik- inn í sína hendur og sigruðu 53-45. Stigin KR: Birgir 18, Bow 16, Kovtoun 8, Matthías 7, Guðni 2 og Axel 2. Hemel: Darin Schubring 18, Daron Hoges 12, Smith 8, Darlow 3, Taylor 2 og Noel 2. BL Evrópukeppni meistara- liða í körfuknattleik: Guðjón skoraði 41 stig íslandsmeistarar Keflavíkur í körfuknattleik máttu þola stórtap í fyrri leik sínum í Evrópukeppni meistaraliða í gærkvöld er þeir mættu ensku meisturanum BrackneU. Leiknum lauk með 144-105 sigrí enska liðsins. í hálfleik var staðan hvorki meira ná minna en 79-44. Guðjón Skúlason fór á kost- um í leiknum og gerði 41 stig, næstur í stigaskori í liði ÍBK var Falur Harðarson með 17 stig. Roberts gerði 40 stig fyrir Bracknell, Seaman 31 og Ba- logun 22 stig. BL 1x2 1x2 1x2 1x2 1x2 Síðasta leikvika getrauna var nokkuð merkileg fyrír þær sakir að í fyrsta sinn var einn með 12 rétta, en enginn með 11 rétta. Slíkt hefur ekki gerst áður í yfir 20 ára ■ sögu getrauna. Tólfan umrædda var keypt í sölutuminum Fellaís á Breiðholti og kostaði 60 kr. Sem sagt 6 einfaldar raðir. Því fylgdu engar ellef- ur með tólfunni. Tipparinn heppni studdi ÍR, þar sem hann merkti við félagsnúm- er 109 á seðlinum. Vinningurinn sem kemur í hans hlut er 337.583 kr. Samkvæmt reglugerð get- rauna færist 2. vinningur yfir á 10 rétta, en alls komu 22 raðir fram með 10 réttum. Fyrir hverja slíka greiðast 6.576 kr. ívinning. Úrslit voru nokkuð óvænt í síðustu viku svo ekki sé meira sagt. Sérstaklega kom 1-3 útisigur QPR á Aston Villa, 1-0 sigur Crystal Pal- ace á Nottingham Forest, 1-1 jafntefli Luton og Wim- bledon og 5-1 stórsigur Manchester City á Man- chester United á óvart. Enn fjölgar þeim tippur- um sem nota einmennings- tölvur sér til hjálpar við að tippa. Á síðasta rekstrarári var salan í gegnum PC 7- 14% á viku. Nú geta tippar- ar hringt eða komið á skrif- stofu getrauna og fengið forrit gefins. Hópurinn SVENSON leiðir enn í haustleik get- rauna með 31 stig. Fast á hæla hans koma 4 hópar með 30 stig, 8 hópar með 29 stig og 7 hópar með 28 stig. Fjölmiðlunum gekk afar illa að segja til um úrslit í síðustu viku, enda voru úr- slit mjög óvænt. Hér á Tímanum standast engar spár þessa dagana, en von- andi rætist þar úr. Bylgjan hafði vinninginn í síðustu viku með 7 rétta, en næstir komu RÚV, Stöð 2, Stjam- an og Hljóðbylgjan með 5 rétta. Aðrir miðlar fengu slæma útreið. Staðan í fjöl- i miðlaleiknum er nú þessi: Hljóðbylgjan 19 stig Bylgjan 19 stig Alþýðublaðið 18 stig Stöð 2 17 stig Stjaman 16 stig Dagur 16 stig Morgunblaðið 15 stig DV 15 stig Þjóðviljinn 15 stig . Ríkisútvarpið 14 stig Tíminn 9 stig En lítum á leiki helgar- innar, 39. leikvika, sölu- kerfið lokar kl. 13.55. Aston Villa-Derby: 2 Lið Aston Villa er í nokkr- um öldudal um þessar mundir og Derby-liðið ætti að vinna ömggan sigur á útivelli. Chelsea-Arsenal: 1 Ovænt úrslit á Stamford Bridge þar sem meistaramir mega þola ósigur. Crystal Palace- Everton: 2 Skotheldur útisigur hjá Everton í þessum leik. Leikmenn Palace verða enn í sigurvímu eftir leikinn gegn Forest um síðustu helgi og ná ekki að einbeita sér að leiknum. Manchester City- Luton: x Lið City kom liða mest á óvart um síðustu helgi, en núna verður liðið að láta sér jafntefli lynda gegn liðinu frá hattaborginni frægu. Millwall-Norwich: 2 Tvö af toppliðum síðasta keppnistímabils eigast við, en bæði hafa liðin verið ofarlega það sem af er í haust. Norwich-liðið hefur betur í þessum leik og kem- ur það eflaust mörgum á óvart. Nottingham Forest- Charlton: 1 Mikið þarf að koma til svo Forest tapi þessum leik, lið- ið tapar varla tveimur leikj- um óvænt í röð. Lið Charl- ton er með þeim slakari í deildinni. Sheffield Wed.- Coventry: 2 Lið Wednesday vermir botnsætið og mun vafalaust gera það áfram í vetur. Öruggur sigur Coventry. Southampton- Wimbledon: x Lið Wimbledon nær nú öðru jafnteflinu í röð í tveimur leikjum og má all vel við una. Tottenham-QPR: 1 Heimasigur Guðna og fé- laga á White hart Line væri ! vel þeginn af stuðnings- mönnum Tottenham. Von- andi gefur Terry Venables I Guðna Bergs tækifæri í þessum leik. Port Vale-Leeds: 2 Þá er það blessuð 2. deildin. I Lið Port Vale kom upp úr 3. deildinni í vor og mætir hér gamla stórveldinu Leeds. Útisigur segir í sögu- bókinni. Sunderland- Sheffield United: 2 Gengi Sheffield United hef- ur verið gott að undanfömu öfugt við miðvikudagsliðið frá sömu borg. Þessi leikur er toppslagur og honum lýk- ur með útisigri. Watford- Middlesbrough: 1 Watford í stuði á heimavelli og vinnur góðan sigur á Boro. FJÖ Ll trtll DL A SP >Á rg S-JÖtlwi'll s n i < j LEIKIR 30. SEPT. ’89 j f I § 3 □ Œ < </> s 'cr BYLGJAM 04 g 5 i $ j SAMTALS 1 g ■p a te Js 3 1 X 2 Aston Villa - Oerby 1 J 2 ± 7 1 1 7 X T j ± 7 7 Chelsea - Arsenal ± J 2 2^ 7 2 X 2 ± j ± C. Palace-Everton 2 2 2 2 2 ± 2 2 2 2 2 o T ii Man.City-Luton 1 1 ± 1 2 X 1 J X 1 1 T 3 1 i Millwall - Norwich Y X ± X| J 1 X^ 7 J T 6 • I Nott. For. - Charlton i J J 7 J 1 J j J J ± ± ± 7 ; r Sberi. Wed. - Coventry ± 2 i 2 2 2^ x 7 7 ± 7 2 j ± ± Southampton - Wimbledon 1 rr x 1 X 1 JL 1 X 1 J 7 4 ± Tottenham - Q.P.R. j 1 1 J JJ J T j T j 1 n 0 ± Port Vale - Leeds 2 t± t± 2 2 2 2, 2j 2 X 2 o 1 10 l Sundsrland - Sheff. Utd. 1 pr J. X X 1 1 J ± 5 ± j Wattord - Middlesbro J |7 i L 1 1 l L El X 1 X ± 2 0 i

x

Tíminn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.