Tíminn - 29.09.1989, Side 14
14 Tíminn
Föstudagur 29. september 1989
ÚTLÖND
FRETTAYFIRLIT
AÞENA — Formaður hins
Ihaldssama lýðræðisflokks,
Constantine Mitsotakis, tii-
kynnti í gær að flokkur sinn,
sem aðild hefur átt að sam-
steypustjórn með kommúnist-
um, hygðist slíta stjórnarsam-
starfinu. Svo sem fram kemur,
hér á siðunni, sórust hin and-
stæðu, pólitísku öfl í fóst-
bræðralag til þess eins að
fletta ofan af spillingu hinnar
fráfarandi sósialistastjórnar og
draga Papandreou fyrir lög og
rétt. „Stjórnin hefur í dag full-
nægt þeirri skyldu sinni að
hreinsa grísk stjórnmál af
hneyksli," sagði Mitsotakis.
Stjórnin mun segja opinber-
lega af sér í næstu viku og
kosningar verða 5. nóvember.
BRUSSEL — Fjögurra
stjörnu generáll, norskur að
ætt og uppruna, tók við starfi I
gær sem formaður hernaðar-
nefndar NATO sem hefur
æðstu hernaðarlögsögu innan
bandalagsins. Vigleik Eide,
sem er 55 ára að aldri, tók við
af Vestur-Þjóðverjanum Wolf-
gana Altenburg er hefur nú
lokið þriggja ára kjörtímabili
sínu. Heimildir innan NATO
herma að Eide, sem mun til-
tölulega litla reynslu hafa til að
bera til starfans, hafi verið
ráðinn í málamiðlunarskyni,
eftir að Bretinn Sir John Field-
house dró sig í hlé af
heilsufarsástæðum.
STOKKHÓLMUR -
SAS-flugfélagið og svissneska
flugfélagið Swissair undirrituðu
í gær samkomulag um gagn-
kvæm hlutabréfakaup, sam-
eiginleg þjónustukaup, hótel-
rekstur, viðhald flugflota, þjón-
ustukost, starfsmannaþjálfun
og fleira. Samningurinn á að
vera félögunum Björn að baki
Kára í síharðnandi samkeppni
flugfélaga og er einn margra er
flugfélög hafa gert, hvert við
annað, undanfarið. Er
skemmst að minnast viðlíka
samkomulags milli Lufthansa
og Air France nýverið. Swissair
á þegar hlut í Delta og Austrian
Airlines og hvað SAS áhrærir
á það hlut í breskum flucjfélög-
um og bandaríska felaginu
Texas Air, auk 40% hlutafjár í
Inter-Continental hótelkeðj-
unni.
M ANILA — Corazon Aquino,
forsti Filippseyja, lét í gær í
Ijósi hryggð yfir andláti Ferdin-
ands Marcos, fyrrum forseta,
en tók því jafnframt fjarri að lík
hans fengi að hvíla í Filipps-
eyjafold. Forsetinn tók þessa
ákvörðun ( blóra við áskoranir
stjórnarandstöðunnar og
stuðningsmanna Marcos, er
skorað höfðu á Aquino að
skapa þjóðarsátt með því að
leyfa greftrun hins látna and-
stæðings hennar í heimabæ
hans. Aquino sagði ákvörðun
sína byggða á umhyggju fyrir
„þjóðarfriði og reglu í samfé-
laginu."
CATANIA á SlKlLEY -
Sprunga myndaðist í suð-aust-
urhlíðum eldfjallsins Etnu á
Sikiley í gær og hraunstraumur
flæddi niður hlíðina, 8 kíló-
metra lanaur er síðast fréttist.
Hraunbráoin stefndi ofan í
Bove-dalinn við rætur fjallsins
og munu mannvirki ekki í
hættu. Minni háttar jarðhræri-
ngar hafa mælst í Etnu allan
þennan mánuð. Hún lét síðast
frá sér flæða fyrir sex árum og
stóð sá atgangur í 129 daga.
BRASILÍA — Heimilislaus
börn og unglingar þinga nú í
höfuðborg Brasilíu - er reynd-
ar heitir Brasilía-um hlutskipti
sitt og annarra í hópi um það
bil 12 milljóna æskufólks er
heldur til á strætum borgarinn-
ar og hefur ofan af fyrir sér
með hvers kyns þiónustu og
lausamennsku. Ráostefnan er
styrkt af Barnahjálp S.Þ. og
sækja hana 750 strætisbörn úr
27 fylkjum landsins, auk 15
fulltrúa frá öðrum ríkjum S-Am-
eríku. Fram kom I gær að yfir
600 börn hafa fallið fyrir hendi
morðingja og misindismanna
á strætum Brasilíu á síðustu
19 mánuðum og alls 1397 hafa
látið lífið frá 1984 fram til
þessa árs.
Papandreou hvergi banginn:
Heitir kosningasigri og
hreinum skildi í nóvember
Sköp hafa þannig skipt því á að Andreas Papandreou,
leiðtogi hinnar sam-hellensku sósialistahreyfingar í Grikk
landi og forsætisráðherra landsins fram í júní í ár, situr nú á
sakamannabekk eftir að hans fyrri starfsbræður á þingi
ákváðu að svipta hann þinghelgi. Papandreou er sakaður um
að hafa átt hlut að fjármálahneyksli er uppvíst varð um í
október í fyrra, er þáverandi bankastjóri Krítarbanka,
George Koskotas, flýði til Bandaríkjanna þar sem hann situr
nú í varðhaldi.
Bandaríkjamenn fella senn úr-
skurð um framsal hans til föðurhús-
anna, að ósk grísku stjórnarinnar.
Framsalsbeiðnin var lögð fram í tíð
Papandreou. Samkvæmt framburði
bankastjórans fyrrverandi, er hófst
til skjótra og óvæntra metorða í
grísku fjármálalífi eftir kosningasig-.
ur Papandreou 1981, er forsætisráð-
herrann fyrrverandi sekur um aðild
að 200 milljóna dala fjárdrætti og
áralangri mútuþægni í opinberu
starfi. Hvorttveggja varðar áratuga
fangelsdómi. Fjórir af helstu sam-
ráðherrum hans fylla einnig flokk
sakborninga í máli þessu. Þessum
skrautfjöðrum til viðbótar var Pap-
andreou í síðustu viku ákærður um
að hafa fyrirskipað símahleranir hjá
blaðamönnum, pólitískum and-
stæðingum, eigin flokksmönnum og
einkavinum, þau átta ár sem aldafer-
ill sósialista varði.
Papandreou verst öllum ásökun-
um af hinni mestu einurð og lætur
engan bilbug á sér finna. Hann segir
málatilbúnaðinn á hendur sér „sjúk-
lega ímyndun veiklaðs huga“ - þ.e.
Koskotas - og þeirra pólitísku óvina
sinna er einskis láti ófreistað til að
klekkja á sósialistum og samtökum
þeirra, PASOK. Papandreou hefur
strengt þess heit að leiða PASOK í
kosningum er ráðgerðar eru í nóv-
ember og spáir sigri og uppreisn
æru. Skoðanakannanir sýna þó
minnkandi vinsældir sósialista.
Samsteyptustjóm fhaldsafla og
kommúnista, er nú heldur um valda-
tauma í Grikklandi, er hin fyrsta
sinnar tegundar í landinu og sagt er
að stjórnareining þessara andstæðu
afla byggi einvörðungu á sameigin-
legum vilja til að kanna 8 ára
stjórnarferil sósialista í Grikklandi
og draga Papandreou til ábyrgðar.
Miklum tröllasögum hefur farið af
miður Iöglegu atferli á valdatíma
sósialista. Talsmenn samsteypu-
stjórnarinnar segja þjóðina gera skil-
yrðislausa kröfu til þess að hinir fyrri
valdamenn verði dregnir til ábyrgð-
Papandreou og frú. Ævilangt fangelsi vofir yfir.
ar, en skoðanakannanir sýna að
mörgum Grikkjum þykir málarekst-
urinn gegn Papandreou bera keim af
pólitískum ofsóknum.
Gorbatsjov til Ukraínu:
Forystusæti fallvölt
fyrir f lokksritaranum
Sovéska fréttastofan TASS skýrði
frá því í gær, í stuttorðri tilkynningu,
að Mikhail Gorbatsjov, forseti og
flokksritari, væri væntanlegur til
Kiev til að sitja fund úkraínska
Kommúnistafiokksins. Fréttin var
talin forboði þess að mannaskipti
myndu í vændum í æðstu stöðum í
Úkraínu, þar sem gamall gæðingur
Brjesnevs, fyrrum aðalritara, hefur
setið við stjórnvölinn frá 1972.
Hinn 71 árs gamli Vladimir
Shcherbitsky hefur ekki reynst per-
estrokju leiðitamur, auk þess sem
honum hefur gengið treglega að
hemja innanlandsólgu í Úkraínu
undanfarið.
Hugboð manna gekk eftir, enda
ritað á vegginn að Scherbitsky yrði
ekki langlífur í æðstu stöðu heima í
héraði eftir að honum var vikið úr
stjórnmálanefnd Kommúnistaflokks
Sovétríkjanna í Moskvu í fyrri viku.
Skarð hans var fyllt af Vladimir
Ivashko, er gegnt hefur starfi flokks-
formanns síðan fyrirrennara hans
var vikið úr stjórnmálanefndinni.
Ivashko, sem er 57 ára að aldri, mun
hafa borið sigurorð af flokksritaran-
um Stanislav Gurenko í atkvæða-
greiðslu.
í júlí síðastliðnum brá Gorbatsjov
sér til Leníngrad í sams konar heim-
sókn er leiddi til brottvikningar for-
manns flokksins þar, Yuri Solovyov.
Vildarmenn Brjesnefs hverfa einn af
öðrum og stjarna hins látna leiðtoga
lækkar ört á stjórnmálahimni Sov-
étríkjanna. í gærsvipti forsætisnefnd
Æðstaráðsins Brjesnef sáluga Sigur-
krossinum, æðsta heiðursmerki
landsins, er áðalritaranum var veitt
1978 fyrir þátt hans í minni háttar
orrustu er háð var á strönd Svarta-
hafs árið 1943. Hildur þessi, er
Sovétmenn höfðu rýrar spurnir af á
sínum tíma, varð á valdaferli Brjesn-
efs að vendipunkti í átakasögu síðari
heimsstyrjaldarinnar en frá gærdeg-
inum að telja hefur hún að nýju
Frá flokksþingi. Höfuðin fjúka eitt
af öðru.
skroppið saman og fær lítið rými í
sovéskum sögubókum hér eftir.
Hefðbundin vopn:
Sovétmenn vilja leiðtogafund
Fulltrúi Sovétmanna á ráðstefnu
23 þjóða um fækkun hefðbundinna
vopna í Evrópu, Oleg Grinevsky,
tjáði fréttamönnum í gær að Eduard
Shevardnadze, utanríkisráðherra
Sovétríkjanna, hefði lagt til að
leiðtogar Evrópuríkja, Kanada,
Sovétríkjanna og Bandaríkjanna
komi saman til fundar á síðari hluta
næsta árs til að undirrita samkomu-
lag um takmörkun hefðbundinna
vopna. Shevardnadze mun hafa lagt
þetta til á fundi sínum með Baker,
utanríkisráðherra Bandaríkjanna, á
fundum þeirrá í síðustu viku. Grin-
evsky minnti á að á síðastliðnu sumri
hefðu bæði fulltrúar NATO og Var-
sjárbandalagsríkjanna samþykkt að
ljúka viðræðunum í Vínarborg á
næsta ári og því þyrfti að hraða
viðræðunum.
Shevardnadze mun einnig hafa
lagt til að utanríkisráðherrar land-
anna hittist í Vínarborg í byrjun
næsta árs til að undirbúa leiðtoga-
fundinn. Að sögn Grinevskys hafa
Bandaríkjamenn báðar þessar tillög-
ur nú til athugunar, en hafa engu
svarað enn.
Frétt þessi kom eftir að fulltrúar
Varsjárbandalagsins lögðu fram nýj-
ar tillögur um takmörkun flugvéla-
flota. Þær munu NATO-ríkjunum
mikið fagnaðarefni.
Wallenberg:
Enner
leitað
Fjölskylda sænska sendiráðs-
starfsmannsins Raoul Wallen-
berg hefur ekki gefið upp von um
að fá af honum einhverjar fréttir,
þó svo rúm 42 ár séu liðin síðan
síðast spurðist til hans. Wallen-
bergs er minnst fyrir ötula fram-
göngu sína á árum síðari heims-
styrjaldar, er hann hjálpaði fjölda
gyðinga til að flýja ofsóknir nas-
ista, með því að útvega þeim
sænsk vegabréf.
Ættmenni Wallenbergs hafa
ráðið sænskan sagnfræðing, Hel-
ene Carlback, til að safna sem
mestum gögnum um dularfullt
hvarf Wallenbergs, handan sov-
ésku víglínunnar eftir heimsstyrj-
öldina síðari, áður en nokkrir úr
fjölskyldunni halda til Moskvu til
að kanna sovésk skjalasöfn og
leita ásjár yfirvalda. Fram til
þessa hafa Kremlverjar verið
þögulir sem gröfin um afdrif
Svíans, en ýmsar sögusagnir hafa
spunnist og stangast hver á við
aðra. Með tilkomu perestrojku
hafa opinberir aðilar þó orðið
samvinnuþýðari, sjónvarpsþættir
hafa verið gerðir og blaðagreinar
birtar. Ráðgert er að Wallenberg-
fjölskyldan hitti fulltrúa sovéska
utanríkisráðuneytisins, sem og
leyniþjónustunnar KGB. Carl-
back hefur þó sóst rannsóknirnar
seint og meðal annars hefur
K.G.B. ekki viljað greiða götu
hennar og verða skjalasöfn leyn-
iþjónustunnar lukt, að minnsta
kosti uns ættmenni Wallenberg
koma til Moskvu.