Tíminn - 03.10.1989, Síða 13
Þriðjudagur 3. október 1989
Tíminn Í3
GLETTUR
- Veðurstofan segir að í dag komi mjög snögg og
áköf regndemba, en standi stutt.
- Ég ætlaði eiginlega að gefa þér minkaskinnspels,
en svo var útsala á ryksugum.
- segir Mary Elizabeth Mastrantonio
Stúlkunni með stóra
nafnið, Mary Elizabeth Mas-
trantonio, skaut upp á
stjörnuhimininn þegar hún
lék í kvikmyndinni „The
Color of Money“, en þá var
hún tilnefnd til Oscars-verð-
launa fyrir leik sinn. í kjöl-
farið fylgdu svo hlutverk í
leikritum á Broadway og
þátttaka í kvikmyndum með
Paul Newman, Al Pacino og
Tom Cruise.
En Mary Elizabeth segir
að „stóra tækifærið" sitt hafi
þó verið þegar hún fékk
hlutverk í „Janúar-mannin-
um“, sem nú er sýndur í
Bíóborginni við Snorra-
braut.
Myndin er gerð eftir hand-
riti Johns Patricks Shanley,
sem fékk Oscar fyrir handrit-
ið að myndinni „Moon-
struck" (með leikkonunni
Cher, sem einnig hlaut Osc-
ars-verðlaun).
Mary Elizabeth Mastran-
tonio segir að það sé á við
góðan skóla að fá að leika
með þessum stórkostlegu
leikurum sem eru meðleikar-
ar hennar í Janúar-mannin-
um.
Fyrst telur hún Susan
Sharandon, og segir að sig
hafi lengi langað til að leika
með henni.
„Fyrstu kynnin við Susan
voru þau, að hún hughreysti
mig, þegar ég sagði henni,
að í Flollywood væri ég að fá
á mig orð fyrir að erfitt væri
að vinna með mér.“
„Blessuð vertu,“ sagði
Susan, „ef einhver leyfir sér
að hafa skoðun á einhverju,
þá fær hann á sig slæmt orð
hjá stjórnendunum í Flolly-
wood. Taktu þetta ekki al-
varlega!"
Kevin Kline leikur aðal-
hlutverkið í myndinni „Janú-
armanninum", leynilögguna
Nick Starkey, sem eltist við
hættulegan morðingja. Mary
Elizabeth segir að hann sé
dásamlegur og Kline hælir
hinni ungu leíkkonu á móti.
Hann segir hana alls ekki
vera erfiða í samvinnu, og
t.d. hafi hún alltaf tekið því
með jafnaðargeði þó þurft
hafi að taka sum atriðin upp
aftur og aftur.
Mary Elizabeth Mastrantonio er aðeins 23 ára, og hún segir í viðtali: „í fyrsta sinn í ár hef ég fundið fyrir stressi, og stundum
þegar ég lít í spegilinn á morgnana þá finnst mér ég ekki vera ncin fegurðardís, - þó gagnrýnendur hafi verið svo elskulegir
að segja að ég væri falleg.“
„Janúar-maðurinn“
var stóra tækifærið!“
Susan Sarandon, önnur aðal-
leikkonan í Janúar-mannin-
um er hér að koma á frum-
sýningu með manni sínum,
Tim Robbins.
Gagnrýnandinn sagði Kevin
Kline (niðurlútan) líkjast
Geraldo Rivera, stjórnanda
í spurninga- og rabbþætti í j-
sjónvarpi í Bandaríkjunum. n
Rivera hefur greinilega sjálf-
ur verið óánægður með útlit
sitt, því að hér er mynd af
honum þar sem hann er
nýkominn úr fegurðarað-
gerð á nefi.
-
Kevin Kline leikur á móti Mary Elizabeth í Janúar-mannin-
um. Um hann sagði gagnrýnandi í amerísku kvikmyndablaði:
„Þegar Kline horfir upp þá minnir hann á hinn glæsilega
Errol Flynn, - en þegar hann horfir niður er hann helst líkur
Geraldo Rivera. Berðu því höfuðið hátt, Kline!“